Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 17

Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 MYNDIN kann að minna suma á Erró eða á miðaldamálverk af pínslunum í því neðra en því fer þó fjarri. Hér eru allir glaðir og reifir enda er tómata- kastið mikla í Bunol í Valensía á Spáni hafið. Þá gildir að mæta til leiks hálfnakinn og taka þátt í því að grýta tómötum í mann og annan. Talið er, að siðurinn sé frá því um 1940 og kannski má rekja hann til offramleiðslu á tómötum. svs@mbl.is Reuters TÓMATASVALLIÐ MIKLA ER HAFIÐ Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is NOKKUÐ er tekið að skýrast hvernig svínaflensufaraldurinn gengur fyrir sig. Kemur það fram í einni af fyrstu úttektunum á sóttinni og 574 dauðsföllum af hennar völdum í 28 lönd- um. Dauðsföllin eru langflest hjá ungu fólki og fólki á miðjum aldri en börnum og öldruðu fólki virðist minni hætta búin en í fyrstu var talið. Það sýnir sig hins vegar, að fólk, sem er syk- ursjúkt eða allt of feitt, er í meiri hættu en aðrir. Ólík venjulegri árstíðabundinni flensu „Flest dauðsföllin (51%) hafa orðið í aldurs- hópnum 20 til 49 ára en það er þó breytilegt frá einu landi til annars,“ segir í skýrslunni, sem Evrópska sóttvarnastofnunin tók saman. Aðeins 12% þeirra, sem hafa látist, eru 60 ára eða eldri og að því leyti er svínaflensufaraldurinn mjög ólíkur venjulegu, árstíðabundnu flensunni. Hún verður 250.000 til 500.000 að bana árlega en rúmlega 90% þeirra eru fólk, sem er 65 ára eða eldra. Í skýrslunni segir, að aldrað fólk sé að ein- hverju leyti ónæmt fyrir svínaflensunni, líklega vegna þess, að það hafi áður komist í tæri við líka veiru. Hins vegar virðist það vera svo, að veikist aldraðir á annað borð, sé dánartíðnin hærri en hjá öðrum hópum. Þá er á það minnt, að svínaflensan og venjulega flensan leggist gjarna á ófrískar konur og því ættu þær að til- heyra forgangshópum þegar kemur að bólusetn- ingu. Rannsóknin bendir til, að af hverjum 1.000, sem smitast, muni sex deyja, en það er þreföld dánartíðnin í venjulegri flensu. Fólki á besta aldri hættast Ný úttekt á gangi svínaflensunnar í 28 löndum sýnir, að meira en helmingur dauðsfalla af hennar völdum er hjá fólki í aldurshópnum 20 til 49 ára Viðbúnaður vegna svínaflensunnar. Í HNOTSKURN » Svínaflensan eða H1N1 var fyrst greindí Mexíkó í mars og apríl og olli þá mikl- um ótta. Síðan hefur hún dreifst um lönd og álfur og er orðin að heimsfaraldri. » Ekki er samt talið, að flensan eigi upp-tök sín í Mexíkó, heldur í svínum í Suð- austur-Asíu og hafi síðan borist þaðan með fólki til Ameríku. Líklegt þykir, að veiran hafi verið í svínum í mörg ár. Vilja ekki tjaldbúann STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum eru í nokkrum vanda stödd vegna væntanlegrar komu Muammars Gaddafis, leið- toga Líbýu, til New York vegna setningar alls- herjarþings Sam- einuðu þjóðanna. Viðbúið er, að hann vilji slá þar upp tjaldi en til þess mega marg- ir Bandaríkja- menn ekki hugsa. Þótt sambúð Líbýu og vestrænna ríkja hafi batnað mjög þá er Gadd- afi ekki í miklum metum eftir að hann fagnaði hryðjuverkamann- inum Abdelbaset al-Megrahi eins og hetju við komuna til Trípólí. Hann hafði áður verið dæmdur fyrir að myrða 270 manns í Lockerbie- ódæðinu. Þingmenn og aðrir frammámenn í Bandaríkjunum hafa hvatt utan- ríkisráðuneytið til að takmarka New York-veru Gaddafis við SÞ- lóðina eina, en Líbýuleiðtoginn, sem segist vilja vera trúr sínum hirð- ingjarótum, er vanur að tjalda þeg- ar hann sækir heim erlenda leið- toga. svs@mbl.is Tjaldbúinn í Brussel. BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra Ísraels, sagði í gær, að skammt væri í að Ísraelar og Banda- ríkjamenn leystu ágreining sinn um gyðingabyggðirnar á Vesturbakk- anum. Sagði hann, að vegna þess gætu friðarviðræður Ísraela og Pal- estínumanna hafist fljótlega. Netanyahu sagði þetta fyrir fund með George Mitchell, sendimanni Bandaríkjastjórnar í Mið-Aust- urlöndum, í London en það er mikið metnaðarmál hjá Barack Obama Bandaríkjaforseta að leysa deiluna á milli Ísraela og Palestínumanna. Sagt er, að Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar hafi heitið Ísraelum harðari stefnu gagnvart Íran, meðal annars með því að fá öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til að herða á refsiaðgerðum og láta þær ná til ír- anska olíu- og gasiðnaðarins. Gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslífið í landinu. Um 300.000 Ísraelar búa nú á Vesturbakkanum, á landi, sem þeir hafa tekið af Palestínumönnum. Skoðanakönnun, sem birt var í Ísr- ael í gær, sýndi, að 60% aðspurðra voru andvíg því að hætta landtök- unni á Vesturbakkanum, jafnvel þótt það gæti greitt fyrir betri sambúð við nágrannaríkin. svs@mbl.is Friðarviðræður á næsta leiti? Netanyahu segir lausn vegna gyðingabyggða skammt undan ÖLL hreyfing, jafnvel þótt lítil sé, gerir ellina bærilegri og lengir líf- ið. Er það niðurstaða mjög um- fangsmikillar rannsóknar í Bandaríkjunum. Hún sýndi líka, að menn eiga ekkert inni í þessum efnum. Dálítið skokk, rösk ganga í smástund og nokkrar léttar líkamsæfingar. Allt er betra en ekkert þegar fólk er komið á efri ár. Í rannsókninni var fylgst með 4.400 miðaldra Bandaríkjamönnum, körlum og konum, í níu ár og áttu þeir það sameiginlegt að hreyfa sig lítið. Helmingurinn hreyfði sig ekki meira en hann nauðsynlega þurfti en hinn helmingurinn hreyfði sig reglulega í smástund í viku hverri. Að níu árunum liðnum var fjórðungur þeirra, sem ekkert hreyfðu sig, látinn en aðeins 13% hinna. Rannsóknin sýndi líka, að fólk á ekkert inni að þessu leyti. Mikil hreyfing fyrr á ævinni breytti engu. Það er kyrrsetan, sem er svo skaðleg. svs@mbl.is Göngutúrinn lengir lífið. Allt er betra en ekkert NOKKRAR líkur eru á, að gátan um bý- flugnahvarfið vestan hafs og austan sé að leysast. Ný rannsókn bendir til, að RNA-kjarnasýran í flugunum hafi orðið fyrir skemmdum en hún fram- leiðir ýmis lífsnauðsynleg prótein. Bandarískir vísindamenn segja, að smámaur, svokallaður Varroa- maur, sem barst til Bandaríkjanna fyrir slysni 1986, beri með sér veirur, sem valdi skemmdum á RNA-kjarnasýrunni. Telja þeir lík- legt, að maurinn eða veirurnar séu upphafið að ógæfunni. Laskað RNA geri síðan flugurnar berskjaldaðar fyrir alls kyns sýkingu. svs@mbl.is Ný skýring á hvarfi býflugnanna Er gátan leyst? ALEXANDER Bastrykín, einn kunnasti saksóknari í Rússlandi, segir, að hugsanlega hafi flutn- ingaskipið Arctic Sea, sem rænt var í Eystrasalti, verið með eitthvað grunsamlegt innanborðs. Bastrykín sagði þetta í viðtali við dagblaðið Rossískaja Gazeta og bætti við, að þetta yrði kannað ofan í kjölinn. Sagði hann, að enn væri ekki ljóst hvers vegna skipinu hefði verið rænt. svs@mbl.is Hvað var í Arctic Sea?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.