Morgunblaðið - 27.08.2009, Side 18
18 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
sigrunerna@mbl.is
B
ókin er bæði ætluð kvíðnum börn-
um og áhyggjufullum. Hún lýsir
því hvað einkennir hugsanir
barna með kvíða og bendir á
lausnir,“ segir Árný. Byggt sé á
hugrænni atferlismeðferð en hún er einna
mest notuð hér á landi vegna kvíða og þung-
lyndis.
Lesist ekki í einum rykk
„Við mælumst til þess að foreldrar lesi bók-
ina með börnunum, og bara hluta í einu. Síðan
er hún hvíld í nokkra daga svo barnið geti með-
tekið efnið. Hún á ekki að lesast í einum rykk
því kvíði er ekki vandamál sem er leyst á einum
degi, bókin er hluti af meðferð,“ segir
Árný. Bókin er gagnvirk því í henni
eru ýmis verkefni og börnin eiga til
dæmis að teikna í hana myndir. Árný
segir bókina vera skemmtilega mynd-
skreytta og efnið sé sett fram á auð-
skiljanlegan hátt. „Hún er upphaflega
ætluð 6-12 ára börnum en hún nýtist
ekki síður eldri og yngri börnum,
jafnvel fullorðnu fólki líka, því boð-
skapurinn er sá sami, hérna er hann bara sett-
ur fram á léttan og skemmtilegan hátt.“
Börn sem halda sig til hlés
En eru mörg börn kvíðin? „Það hafa alltaf
verið til kvíðin börn, ætli hlutfallið sé ekki í
kringum 10%. Þar fyrir utan eru mörg börn
áhyggjufull þótt þau séu kannski ekki kvíðin,
ekki síst í þessu ástandi. Þau skilja ekki hvað
er í gangi en skynja streituna sem er alls stað-
ar í kringum þau,“ segir Árný. Hún segir að lít-
ið hafi verið talað um kvíðin börn í gegnum tíð-
ina. Þetta séu börnin sem halda sig gjarnan til
hlés og eru ekki eins áberandi og börn sem eru
til dæmis með athyglisbrest. Þau fái því ekki
þá athygli sem þau þurfi. Kvíðin börn hafi
áhyggjur þótt engin raunveruleg ógn sé í gangi
og ýki ástandið. Þau hafi
þrálátar hugsanir, séu
hrædd um að þeim mistakist
og fólk hlæi að þeim eða
mamma eða pabbi deyi.
Þetta geti birst í breyttri
hegðun; þau hafi minni
áhuga á að taka þátt í hlutum
sem þau hafa haft áhuga á,
fari auðveldlega úr jafnvægi,
forðist að gista hjá vinum eða fara eitthvað án
foreldranna þar sem þau hafi ekki stjórn á að-
stæðum. Langvarandi kvíði geti svo haft lík-
amleg einkenni, börnin hafi höfuð- eða maga-
verk, fái hjartslátt og jafnvel útbrot eða svima.
Önnur bók í farvatninu
Árný segir þýðingarvinnuna hafa gengið vel
og verið mjög skemmtilega. Vel hafi gengið að
fá þýðingarleyfi frá Samtökum bandarískra
sálfræðinga sem gáfu bókina út í Bandaríkj-
unum en stöllurnar ákváðu strax í upphafi að
gefa bókina út sjálfar og fylgja henni eftir með
fyrirlestrum. „Hún er svo flott bókin, það er
svo mikil þörf á henni og lítið til af svona efni.
Okkur langaði því ekki til þess að hún hyrfi
bara inn í bókabúð og týndist.“ Þær sóttu því
um styrki og fengust tveir; frá Velferðarsjóði
barna og fræðsluráði Vestmannaeyjabæjar, en
Thelma vinnur meðal annars hjá fjölskyldu- og
fræðslusviði bæjarins. Það hafi verið mikill
léttir. Þá voru þær sömuleiðis styrktar af fjöl-
skyldunni. „Á köflum hugsaði maður: Hvað er-
um við að spá! en núna sjáum við ekkert eftir
þessu því bókin fer mjög vel af stað,“ segir
Árný. Hún kom út á fimmtudaginn var og hafa
þær þegar selt um hundrað eintök í gegnum
heimasíðu sína. Einnig sé búið að biðja þær að
halda nokkra fyrirlestra. Áhuginn sé greini-
lega mikill og hefur bókin til dæmis verið seld
til nokkurra skóla og leikskóla. Bókin er einnig
til sölu hjá bókabúðum Eymundsson og Penn-
ans. Árný og Thelma hafa ekki hugsað sér að
láta eina bók nægja heldur er stefnan að þýða
næstu bók í bókaröðinni sem heitir Hvað get
ég gert? og verður hún um reiðiköst og reiði-
stjórnun. Ætla þær að hefja vinnuna næsta
haust. „Þótt þetta hafi gengið ljómandi vel
núna gengur það örugglega enn betur næst,
núna þegar við erum orðnar reynslunni ríkari
af bókaútgáfu og öllu því sem henni fylgir,“
segir Árný.
Barnabók sem tekur á kvíða
Morgunblaðið/Heiddi
Þörf Árnýju Ingvarsdóttur og samstarfskonu fannst vera mikil þörf á bók fyrir börn um kvíða.
Börn Kvíðin börn eru gjarnan hlédræg og fá
því ekki þá athygli sem þau þurfa á að halda.
Sjálfshjálparbókin Hvað get ég
gert við of miklar áhyggjur? er
nýkomin út en hún er ætluð
börnum sem þjást af kvíða. Bók-
ina þýddu tveir sálfræðingar,
þær Árný Ingvarsdóttir og
Thelma Gunnarsdóttir. Bókina
gáfu þær út sjálfar.
Bókin er seld á vefsíðunni
www.hvadgeteggert.is en hún er einn-
ig til sölu hjá Pennanum og Eymunds-
son.
Þýðendurnir halda fyrirlestra um
efni bókarinnar og er áhugasömum
bent á að hafa samband gegnum síðuna.
Í hugrænni atferlismeðferð er unnið
með hugsanir og hegðun fólks. Hugs-
anamynstur er leiðrétt og rang-
hugmyndir og ýkjur skoðaðar ofan í
kjölinn. Ef hugsað er: Það eru allir á
móti mér, þá á að hugsa á móti: Nei,
ekki þessi. Hugsanirnar eru teknar
föstum tökum og fólki kennt að sjá þær
á rökréttan hátt. Fólk er látið æfa sig
úti í daglega lífinu og félagsfælnum ein-
staklingi er kannski uppálagt að
hringja í eina manneskju þennan dag-
inn og spjalla aðeins. Þannig tekst
smám saman að yfirvinna kvíðann og
vanlíðunina.
Seld á vef
og í búðum
Bónus
Gildir 27.-30. ágúst verð nú áður mælie. verð
Frosnir blandaðir kjúklingabitar ... 359 479 359 kr. kg
Ali ferskur grísabógur ................. 398 498 398 kr. kg
Bónus ferskur heill kjúklingur ...... 489 629 489 kr. kg
Bónus ferskt kjúklingafillet .......... 1.498 1.798 1.498 kr. kg
Gv ferskar grísakótilettur ............. 798 998 798 kr. kg
Gv fersk grísarifjasteik ................ 498 598 498 kr. kg
Gv bajonskinka .......................... 898 998 898 kr. kg
Toppur sítrónu, 2 l...................... 125 179 62 kr. ltr
Svali, 3x250 ml ......................... 98 109 130 kr. ltr
Ks frosin lambasvið .................... 269 298 269 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 27.-29. ágúst verð nú áður mælie. verð
Lúxus svínakótilettur, beinlausar . 1.298 1.998 1.298 kr. kg
Lambafille m/fitu....................... 2.998 3.498 2.998 kr. kg
Hamborgarar, 2x115 g ............... 298 398 298 kr. pk.
Grillaður kjúklingur..................... 748 890 748 kr. stk.
SS bláberjalæri ......................... 1.798 2.248 1.798 kr. kg
Fk kjúklingabringur .................... 1.665 2.220 1.665 kr. kg
Fk vínarpylsur ............................ 558 698 558 kr. kg
Ali reykt medisterpylsa ............... 570 814 570 kr. kg
Ali svínakótilettur léttreyktar........ 1.924 2.565 1.924 kr. kg
Krónan
Gildir 27.-30. ágúst verð nú áður mælie. verð
Grísaskankar............................. 238 298 238 kr. kg
Grísabógsneiðar ........................ 399 799 399 kr. kg
Grísahakk ................................. 399 798 399 kr. kg
Grísarifjur.................................. 449 898 449 kr. kg
Grísasíður, pörusteik .................. 479 798 479 kr. kg
Grísakótilettur, kryddaðar ........... 749 1.598 749 kr. kg
Grísasnitsel ............................... 799 1.698 799 kr. kg
Grísagúllas................................ 799 1.598 799 kr. kg
Grísakótilettur............................ 749 1.498 749 kr. kg
Grísahnakki, úrb. sneiðar............ 849 1.698 849 kr. kg
Nóatún
Gildir 27.-30. ágúst verð nú áður mælie. verð
Lambaskrokkur, 1/1 .................. 898 898 kr. kg
Ísl.m kjúklingur, heill .................. 499 989 499 kr. kg
Ýsa Thai karrí............................. 1.299 1.498 1.299 kr. kg
Saltfiskur að hætti Börsunga....... 1.299 1.498 1.299 kr. kg
Saltfiskréttur að hætti Grikkja...... 1.299 1.498 1.299 kr. kg
Fiskbollur.................................. 698 1.098 698 kr. kg
Ýsa, indversk karrí & kóriander .... 1.299 1.498 1.299 kr. kg
Ýsa, koníaks í humarsósu ........... 1.299 1.498 1.299 kr. kg
Sportbrauð Nóatúns .................. 249 425 249 kr. stk.
Brazzi safi, 1 l............................ 119 124 119 kr. ltr
Þín Verslun
Gildir 27. ágúst-2.sept. verð nú áður mælie. verð
Ísfugls kjúklingur, heill ................ 620 886 620 kr. kg
Myllu fjölkornabrauð .................. 299 377 299 kr. pk.
Myllu beyglur, 6 stk.................... 298 498 298 kr. pk.
Casa Fiesta hveitikökur, 245 g .... 318 425 1.298 kr. kg
Casa Fiesta st. Taco sósa, 225 g . 254 339 1.129 kr. kg
Champion sveskjur steinl., 340 g 415 475 1.221 kr. kg
Pataks korma sósa, 540 g.......... 429 569 795 kr. kg
Pataks pappadums, 100 g ......... 275 369 2.750 kr. kg
Almondy súkkulaðiterta, 350 g ... 1.149 1.398 3.283 kr. kg
helgartilboð
Svínakjöt og hamborgarar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Tilboð Eins og stundum áður bjóða stórmarkaðir upp á
tilboð á kjúklingum um helgina.
„Mörg börn eru
áhyggjufull núna
þótt þau séu
kannski ekki kvíð-
in. Þau skilja ekki
hvað er í gangi en
skynja streituna.“
KL20 -ARVEHENRIKSEN,JANBANG
OGANNAMARIAFRIMAN
KL22 - JÓELPÁLSSON-VARP
NARODNAMUZIKA- BALKAN PARTY,
JAGÚAR- TAUMLAUSTSTUÐ
NASA Laugardag29.agúst /Húsið opnar kl 19.30
Forsala hafin á midi.is
2500 kr fyrir allan pakkann - 1500 kr frá kl. 22
reykjavikjazz.is