Morgunblaðið - 27.08.2009, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 27.08.2009, Qupperneq 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI STREITU- OG KVÍÐALOSUN Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694-5494, www.EFTiceland.com. Húsnæði óskast Atvinnuhúsnæði Fellihýsi - Hjólhýsi - Tjaldvagnar. Tökum til geymslu fellihýsi, hjólhýsi,tjaldvagna og húsbíla. Engin stærðartakmörk. Leigutími september til 15. maí. Upphitað fyrsta flokks húsnæði í hjarta Reykjavíkur. Uppl. í símum: 544-5466 og 893-1162. Námskeið Microsoft kerfisstjóranám Windows Server 2008 Administrator nám hefst 14.9. Verð kr. 229.000 fyrir 341 st. nám. Upplýs. og skráning á www.raf.is og í síma 863 2186. Rafiðnaðarskólinn. Til sölu Úrval af vönduðum handskornum trémunum frá Slóvakíu á góðu verði. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Óska eftir Óska eftir eftir að kaupa færanlegan söluvagn, og einnig tvö stykki candy flos vélar. Uppl. gefur: jón s. 661 3700. KAUPUM GULL Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi af fólki og veiti ég góð ráð. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns. Upplýsingar á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13. Verið velkomin. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897-9809. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Vélar & tæki Vélaleiga og hellulagnir Traktorsgrafa, minigrafa og vörubíll. Hellulagnir, drenlagnir og jarðvegs- skipti. Margra ára reynsla og vönduð vinnubrögð. Mr vélar, símar 698 1710 og 616 1170. Bátar Strandveiðimenn Fiskiker gerðir 300, 350, 450 og 460. Línubalar 70 og 80 l. Allt íslensk framleiðsla í hæsta gæðaflokki. www. borgarplast.is Völuteig 31, Mosfellsbæ, s: 561 2211. Bílar Einn ódýr - Toyota Carina árg. ´95 2000 vél, beinsk. 5 g., ekinn 190.000 km. Fæst á 185 þ. stgr. í dag, en 250 þ. stgr. ef hann er sko. 2010. Sími 893-5201. Jeppar Toyota Rav4 árg. 2001 Beinsk., 5 g., ek. 170.000 km, skoð. 2010. Góður bíll. Ásett verð 1150 þ. Fæst á 850 þ. stgr. S. 893-5201. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Vélhjól Til sölu fjórhjól 4x4 Suzuki quad master 500 árg. 2002 á nýjum 27 tommu grófum dekkjum, ekið aðeins 4000 km. Uppl. í síma 892-9545 eða 565-4947. Húsviðhald Tökum að okkur að leggja PVC dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands- byggðinni einnig. Erum líka í viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598. Smáauglýsingar augl@mbl.is Farðu inn á mbl.is/smaaugl Ein besta kona sem ég hef kynnst um ævina er látin eftir baráttu við erfiðan sjúkdóm. Ég var 16 ára þegar ég kynntist Inga syni hennar og Sveinbjarnar og fór að venja komur mínar að Ysta- Bæli undir Eyjafjöllum. Með okkur Eygló tókst mikill vin- skapur og kærleikur sem hélst alla tíð þó svo að ég og sonur hennar slitum samvistum. Hún var mér bæði móðir og vin- kona og var óendanlega þolinmóð við að kenna mér ótal hluti. Hún kenndi mér m.a. að baka flatkökur, sauma, búa til sósu, mjólka kýr og ýmis ráð varðandi uppeldi barna. Þar var brunnurinn óþrjótandi. Hún kom t.d. strax til mín þegar dætur mínar Hrund og Eygló fædd- ust til að sjá svipinn á þeim, já hún varð að sjá andlitssvipinn á barna- börnunum sem fyrst eftir fæðingu og skoða tærnar á þeim. Þegar hún var búin að skoða þau vel og vandlega sagði hún okkur hvernig skapgerð barnsins væri. Þegar Hrund fæddist kenndi hún mér að láta hana sofa alla nóttina og það gekk eins og í sögu. Þegar hún sá nöfnu sína, sem fæddist nokkum árum seinna, sagði hún: „Þessari stúlku kennir þú líklega ekki að sofa alla nóttina nema hún ætli það sjálf, það sést á svipnum.“ Enda fór það svo að við gáfumst upp fyrir krílinu með ákveðna svipinn og gáfum henni að drekka hvenær sem hún kallaði. En helst af öllu kenndi hún Eygló mér að vera ég sjálf og standa með sjálfri mér og hvatti mig til að gera það sem hugur minn stefndi að. Hún var alltaf með einhver ráð ef ég leitaði til hennar og ef hún hafði þau ekki þá kíkti hún í bollann minn eða lét mig skrifa eitthvað á blað og síðan las hún úr þessu öllu og við hlógum að þessu og höfðum gaman af. Elsku Eygló mín, ég tel mig vera betri manneskju af því að hafa fengið að umgangast þig þegar ég var ung Eygló Markúsdóttir ✝ Eygló Mark-úsdóttir fæddist á Borgareyrum, V- Eyjafjöllum, 10. júlí 1933. Hún andaðist á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 2. ágúst 2009 og fór út- för hennar fram frá Hafnarfjarðarkirkju 18. ágúst. kona að læra á lífið. Í þér átti ég góða vin- konu og dætur mínar yndislega ömmu. Þakka þér fyrir það. Ég gleymi ekki síðasta heilræðinu sem þú gafst mér, það auð- veldaði mér þá ákvörð- un að flytja aftur undir Eyjafjöll. Minning þín lifir í hjarta mínu og ég hugsa til þín þegar ég horfi til fjallanna sem okkur þykir svo vænt um. Elsku Sveinbjörn, ættingjar og vin- ir, megi Guð gefa ykkur styrk. Heiða Björg Scheving. Amma mín var stórkostleg kona. Hún var engum öðrum lík og satt best að segja þá hef ég alla mína tíð hálf- vorkennt öðrum sem áttu ekki ömmu eins og ömmu Eygló. Það er kannski kjánalegt en ég hef oft staðið mig að því að monta mig af minni ömmu. Hversu frábær og fyndin hún væri. Hún var engum lík og enginn getur nokkurn tímann komið í hennar stað. Amma hafði einstakt lag á að láta hverju barnabarni líða eins og það væri hennar uppáhalds þótt barna- börnin væru á þriðja tug talsins. Svo mikla ást og hlýju hafði hún að gefa. Það var alltaf gott að hitta ömmu og finna hlýtt og þétt faðmlag hennar sem staðfesti að ég væri, án nokkurs vafa, hennar uppáhald. Í mínum huga fylgir ömmu sann- kallaður ævintýraljómi. Hún var bráðfyndin og skemmtileg, heimspek- ingur og viskubrunnur og bjó í sveit- inni með afa undir Eyjafjallajökli. Amma hafði alltaf tíma til að spjalla og gerði það af heilum hug og áhuga. Hún var nútímakona og við gátum talað um allt. Hún var því ekki bara amma mín heldur einnig góð vinkona. Mér þykir óendanlega vænt um þann tíma sem ég hef átt með afa og ömmu á Yzta-Bæli og líka á Álfa- skeiðinu. Ég hef alltaf litið upp til þeirra beggja og hef fyrir löngu ákveðið að svona ætli ég að vera þeg- ar ég verði stór. Amma er sannarlega mín fyrir- mynd og ég mun halda minningu hennar á lofti með því að halda fast í hennar gildi. Eins sárt og mér þykir að þurfa að kveðja þessa yndislegu konu er ég svo þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman. Ég mun alltaf sakna þín en minning þín lifir. Þitt gottubarn, Hrönn. Ég missti ömmu mína, nöfnu mína, fyrirmynd mína og vinkonu mína. Og jafnvel þó að ég eigi ennþá ömmu, nöfnu, fyrirmynd og vinkonu þá á ég ekki þig. Kæra Eygló amma, ég sakna þín, saknaði þín og mun sakna þín þangað til einhver saknar mín. En það er allt í lagi því ég á ætíð minn- inguna um þig. Ég man þegar ég kenndi þér að blanda liti, mér fannst það svo sjálfsagt að kunna það, en þá gerði ég mér grein fyrir hve ólík kyn- slóðin þín var. Þegar ég tók viðtal við þig þá sá ég hve mikil mannsekja þú varst og hversu full af ást þú hefur alltaf verið, og sá hvað við áttum mikið sameig- inlegt. Ég lærði að þú þurftir að þroskast ung, að þú fékkst ekki alla þá menntun sem þú hefðir viljað og ég lærði hve lengi og mikið þú hefur elskað afa, þú sagðir mér að það hefði verið af því að „hann lét mig líða heima“. Ég dáðist oft að því hve mikið þið elskuðuð hvort annað afi og þú. Ég er glöð að hafa þekkt þig, þó hefði ég vilja þekkja þig betur, vitað hvað þér líkaði og líkaði ekki. Mér finnst að ég hafi ekki þekkt galla þína, bara kosti, hugsanlega hafðir þú bara kosti. Þú kenndir mér að teikna, semja vísur og ljóð. Á fermingardaginn minn gafst þú mér þessa vísu eftir þig: Eygló þú ert yndið mitt auðnu það mér gefur allt hið fagra útlit þitt ástúð skapað hefur. Við sendum öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls ömmu, og þá sérstaklega afa, samúð- arkveðjur. Eygló Ýr Hrafnsdóttir og fjölskylda. Elsku amma, ég er nú sest niður til að senda þér mitt síðasta bréf og aldr- ei þessu vant skortir mig orð til að lýsa því hversu stórkostleg mann- eskja þú varst. Á hverju sumri frá því ég var lítil og fram á unglingsár kom ég í sveit til þín og afa á Yzta – Bæli til að eyða sumrinu í paradís á jörðu. Það var mikil tilhlökkun að fá að hitta þig enda varst þú eins og góður vinur, skemmtileg og fús til að taka þátt í umræðum og leikjum með óhörðnuðum barnssálum. Minningar þér tengdar eru uppfull- ar af uppátækjum, hlýju, speki og visku sem þú ein kunnir lag á að veita í ótakmörkuðu magni. Þú varst mikil sögukona og voru músasögurnar sem þú samdir okkur til skemmtunar á sumarkvöldum mér ofarlega í minni. Þú skemmtir þér líka konunglega með okkur krökkunum, tókst þátt í prakkarastrikum og öðr- um uppátækjum en jafnframt hvattir þú okkur til að vera trú okkur sjálfum og kanna mátt okkar og megin. Þú varst líka sannur heimspekingur og langt á undan þinni samtíð í hugsun og gjörðum. Þú kunnir manna best að sjá það góða í hverjum og einum og hafðir persónutöfra sem hrifu jafnt unga sem aldna sem þér kynntust. Allir áttu sér stað í hjarta þínu og þar virtist ótakmarkað pláss fyrir alla þá sem stóðu þér næst, og það var ekkert smáræði. Einnig eru mér minnisstæðir allir þeir furðulegu siðir og uppátæki sem virtust þér svo eðli- leg, til að mynda að skoða fæturna á öllum börnum sem fæddust í ættinni til að spá fyrir um útlit þeirra og manngerð. Elsku amma mín. Ég hef þá trú að einu sinni yfir ævina fáum við að kynnast manneskju sem býr yfir öllu því besta sem menn hafa yfir að búa. Það er mín gæfa að hafa átt þig sem ömmu í öll þessi ár og þar með haft ótakmarkaðan aðgang að hreinni manngæsku, hlýju og visku. Það hef- ur sannarlega mótað mig og gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Elsku hjartans afi minn og þeir ótal- mörgu sem eiga um sárt að binda við fráfall þessarar einstöku manneskju, megið þið finna styrk til að halda áfram og gleði til að minnast þeirra tíma sem við áttum saman. Elsku amma mín, ég veit þú bíður mín þó svo að þú hafir ekki getað það í þessu lífi. Minning þín mun lifa með mér þar til við hittumst næst. Þín Björk. Það er skrítið að skorta orð þegar maður hefur svo margt að segja. Allar þær minningar sem ég á um þig, amma, eru sem gull í hjarta mínu og verða geymdar um ókomna tíð. Sum- ar eftir sumar dvaldi ég í sveitinni hjá ykkur afa og alltaf var tilhlökkun að koma til ykkar og erfitt var að vera lítil stelpa sem þurfti að bíða eftir því að fá að koma til þín í ömmu holu. Við frændsystkinin brölluðum mik- ið í sveitinni og aldrei varst þú reið, heldur hvattir þú okkur frekar til þess að gera hvaða vitleysu sem var. Eins og þegar við sváfum inni á baði með selnum, þegar við bjuggum til orm- asjúkrahús, þegar ég datt í fjósahaug- inn, þegar ég festist undir baðkarinu, þegar ég gaf blómunum þínum „líf- rænt-ræktaðan“ áburð og annað sem okkur datt í hug. Alltaf tókstu þessu með jafnaðargeði. Þú gast alltaf glatt mig og voru ófáar músarsögurnar sem þú sagðir mér og það sem þú gast bullað var ómetanlegt eins og til dæmis þegar þú varst að syngja um mig. Umhyggja þín og ást var meira en lítil stelpa getur óskað sér og ég verð alltaf litla stelpan þín. Þú átt stóran þátt í því að ég er sú mann- eskja sem ég er í dag. Takk fyrir það. Eitt af því sem þér þótti gaman að gera var að búa til vísur. Þú bjóst meðal annar til vísur handa börnun- um mínum þegar þau voru skírð og langar mig að deila þeim með ykkur: Skírn Selmu Rúnar 9.10. 2004: Alltaf lengist ættin mín, er það lífsins saga. Auður minn er æskan þín, eigðu bjarta daga. Ljúfa og góða snót, sé liggja í faðmi móður. Ykkar fagra ættarmót, er sem draumur góður. Langamma sér lífið dafna, lítil stúlka gleður mig. Af því má þér enginn hafna, allir snúast kringum þig. Skírn Magnúsar Heiðars 24.6. 2007: Velkominn í veröld nýja, vaskur drengur ættarsóma. Af þér alltaf andar hlýja, allir sjá þinn æskuljóma. Ást til þín mun vaxa víða, verndar þig um ævi langa. Óskir mínar ekki bíða, allt þitt líf mun gleði fanga. Hér er svo ein vísa fyrir þig: Elsku amma sárt er þig að kveðja, geta ekki augum borið þig. En vertu viss, ég þori því að veðja, að þú munt síðar aftur hitta mig. Elsku afi minn, pabbi og aðrir ætt- ingjar, ég votta ykkur mína innstu samúð. Ég mun alltaf elska þig, amma mín, og þú átt stóran hluta af hjarta mínu. Þín Hrund ömmustelpa.  Fleiri minningargreinar um Eyglóu Markúsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.