Morgunblaðið - 27.08.2009, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
Það var mikil eftirvæntingríkjandi á NASA er gítar-veisla Jazzhátíðar Reykja-víkur hófst. Þetta er fjórða
gítarhátíð á djasshátíð og sú fyrsta
sem ekki er undir stjórn Björns
Throddsen. Á RúRek 1991 var gít-
arveisla þar sem eini erlendi gest-
urinn var Færeyingur; í hittiðfyrra
Bandaríkjamaður og í fyrra Japani
og Belgi – og tónlistin hefðbundin.
Það verður að segjast að ansi margir
sem komu á hátíðina í ár bjuggust
við djassi í anda Bjössa Thor og trú-
lega voru flestir komnir til að heyra
gítarstjörnuna sænsku, Ulf Wake-
nius, en hróður hans hefur farið vax-
andi hin síðari ár. Það voru ekki allir
tilbúnir að hlusta á frjálsan spuna
Hilmars, Marc og Jim í hálfan annan
tíma áður en Björn og Ulf stigu á
sviðið; þriðja atriðið, hljómsveit Guð-
mundar Péturssonar, kom ekki fyrr
en klukkan var farin að nálgast tólf.
Hálftími af frjálsdjassinum hefði
varla fælt neinn í burtu. Satt best að
segja var tríóið fantagott. Hilmar og
Marc skiptust á spunaköflum og Jim
hélt öllu saman með frábærum
trommuleik. Marc kom víða við –
minnti stundum á goðið Derek Bai-
ley, tók jafnvel Jimi Hendricks stróf-
ur er best lét og Hilmar gaf honum
ekkert eftir í hugmyndaauðginni.
Ekkert var gefið upp um tónsmíð-
arnar; þær vísast flestar samdar á
staðnum, enda formfesta Hilmars
fjarri.
Ulf og Björn voru stórkostlegir og
ekki víst að Björn hefði spilað svona
vel hefði hann borið ábyrgð á heilli
veislu einsog áður, sem og kom illi-
lega niður á dúett hans og Philip
Catherine í fyrra. Þeir Ulf lögðu út
af hefðbundnum djassverkum eins
og „Salt Peanuts“ Dizzys og „Spain“
Corea og svo var Bítlalag „Norvegi-
an Wood“. „Here There And Eve-
rywhere“ léku þeir í útvarpinu fyrr
um daginn og eins og þar slógu þeir
frumsaminn blús tileinkaðan hátíð-
inni. Ég hef sjaldan heyrt Ulf betri
og gítartónn hans var óborganlegur.
Björn er líka í toppformi og sann-
aðist það enn og aftur á heiðurstón-
leikum í tilefni af áttræðisafmæli
Guðmundar Steingrímssonar þar
sem stemningin var rafmögnuð og
þeir félagar, ásamt Hans Kwak-
kernaat og Gunnari Hrafnssyni létu
gamminn geisa og Rúnar Georgsson
kom og lék með þrjú lög, sem er
sjaldgæft núorðið. Þarna var enginn
að bíða og ef gítarveislan hefði byrj-
að á hálftíma með Hilmari og þriggja
kortera Thoroddsen og Hilmar síðan
brúað bilið þar til Pétursson mætti,
hefðu þeir tónleikar orðið allir aðrir.
Beðið eftir Wakenius
NASA
Gítardúettar
bbbmn
Hilmar Jensson og Marc Ducret gítara
ásamt Jim Black trommur. Björn Thor-
oddsen og Ulf Wakenius, gítara. Föstu-
dagskvöldið 21.8. 2009.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Morgunblaðið/Eyþór Árnason
Gítarleikarinn Hilmar Jensson.
BANDARÍSKA leikkonan Megan
Fox hefur verið ráðin í hlutverk
Kattarkonunnar í næstu kvik-
mynd um Leðurblökumanninn.
Fox, sem er 23 ára gömul, mun
því leika við hlið þeirra Christian
Bale og Sir Michael Caine í
myndinni, sem verður sjálfstætt
framhald hinnar vinsælu The
Dark Knight. Leikstjóri mynd-
arinnar verður Christopher Nol-
an og er gert ráð fyrir að hún
verði frumsýnd árið 2011.
Fox fetar þar með í fótspor
Michelle Pfeiffer og Halle Berry
sem báðar hafa leikið konuna
sem kennd er við ketti. Áður
hafði verið talið að Angelina Jol-
ie myndi hreppa hnossið.
Leikur Katt-
arkonuna
Reuters
Kisulóra Skutlan Megan Fox.
Kynningarbæklingar atvinnu-leikhúsa borgarinnar meðverkefnum vetrarins eru
komnir. Stórir eru þeir í broti. Á
öðrum er forsíðumynd af ramm-
gerðri svartri höll. Á hinum mynd
af vegg við götu, þakin auglýs-
ingaplakötum um leiksýningar,
maður á hraðri hreyfingu út úr
rammanum, sennilega í leikhúsið.
Þegar ég svo fletti þeim vaknar
fljótt spurningin: Væru þessir
bæklingar tveir ókunnugir ein-
staklingar sem byðu mér heim
þægi ég þá boðið?
Annar, sem við getum nefnt hall-arbúann, lýsir sínum mörgum
verðlaunahliðum sem yndislegum,
forvitnilegum, frumlegum, ögr-
andi, sprellfjörugum, bráðfyndnum
og geysivinsælum. Hinn, sem við
getum nefnt borgarbúann, full-
yrðir að á honum séu þær ramm-
íslenskar, elskaðar af öllum, krass-
andi skemmtilegar, safaríkar,
stórbrotnar, geti jafnt heillað sem
vakið hroll enda þyrpist heimurinn
til hans.
Væru þessi bæklingar fólk teldu
flestir að annaðhvort væru menn-
irnir að grínast eða sjálfsmyndin
væri svo brengluð að rétt væri að
forða sér á hlaupum undan þeim.
En bæklingar eru ekki fólk og þó
svo að þeir væru það erum við Ís-
lendingar ekki alveg eins varn-
arlausir gagnvart sjálfshóli í dag
og við vorum í gær.
Þegar stóru orðin hafa veriðstrikuð út má sjá að verk-
efnum hefur enn fækkað í Þjóðleik-
húsinu, verkum leikritahöfunda
sömuleiðis. Tilraunaleikhúsið svo-
kallaða á Smíðaverkstæðinu er guf-
að upp og að venju ýmsir leik-
stjórar og leikarar líka.
Leikgerðum hefur hins vegar fjölg-
að og einnig hugmyndaríkum kon-
um í kjallaranum í Jónshúsi. Skond-
ið er hins vegar og sennilega
einsdæmi í sögu okkar að meiri-
hluti verka á stóra sviði Þjóðleik-
hússins fellur þetta árið undir sósí-
alískan menningararf. Líf Fridu
Kahlo, Gerpla, Íslandsklukkan og
Brennuvargarnir verða vart slitin
úr því samhengi þótt hallarbúinn
flíki því ekki. Þykir mér þetta
reyndar ákaflega forvitnilegt og
hvernig úr þeirri róttækni verður
unnið.
Margir munu áreiðanlega farameð börnin í Kúluna að sjá
Fíusól hennar Kristínar Helgu
Gunnarsdóttur og Sindra silfurfisk
eftir Áslaugu Jónsdóttur. Leik-
stjórarnir eru líka pottþéttir. Ég
kvíði hins vegar svolítið fyrir að
fara í Kassann, að vísu hvorki því
að horfa á Hænuungana eftir
Braga Ólafssonar né samstarfs-
verkefnið Af ástum manns og
hrærivélar heldur hinu að sjá hvort
minningarskjöldurinn um rausn-
arskap Björgúlfs Guðmundssonar
sé horfinn úr anddyrinu. Hvort sem
hann er kyrr eða farinn mun það
vekja upp margar stríðar hugsanir.
Þrátt fyrir eða kannski einmitt
vegna aðalstefsins á Stóra sviðinu.
Í Borgarleikhúsinu hefur leik-verkum hins vegar fjölgað, inn-
lendum jafnt sem erlendum, skap-
andi leikhópum hefur líka fjölgað,
samstarfsverkefnum og gestasýn-
ingum. Fastráðni hópurinn hefur
styrkst, það virðist vera reynt að
skapa samfellu í starfi þeirra og
leikstjóra og eftirtektarverðustu
tilraunum gærdagsins er fylgt eftir
núna. Ekkert eitt þema er ríkjandi
heldur höfðað til fjölbreytts
smekks manna. Ég hef mestan
áhuga á að sjá Bláa gullið, Rautt
brennur fyrir, Jesús litla, Góða Ís-
lendinga, Dúfurnar og Eilífa óham-
ingju. Styrkustu vaxtarsprotana í
íslensku leikhúsi ásamt reyndum
leikurum sem vænta má sín mikils
af. Þá verða sýningarnar þrjár á
Rómeó og Júlíu efalaust mikill
fengur fyrir leikhúsáhugafólk.
Það bendir allt til þess að í Borg-arleikhúsinu iði allt af lífi eins
og á götum borgar þennan vet-
urinn, það er kyrrlátara í Þjóðleik-
húsinu en bókelskir menn finna þar
kannski ró til að skoða hvort eitt-
hvað sé það í fortíðinni sem nýta
má fyrir framtíðina. Forsíðumynd-
irnar á bæklingunum segja reynd-
ar ansi margt.
Ef bæklingar væru fólk
» Skondið er hins veg-ar og sennilega eins-
dæmi í sögu okkar að
meirihluti verka á stóra
sviði Þjóðleikhússins
fellur þetta árið undir
sósíalískan menningar-
arf.
AF LISTUM
María Kristjánsdóttir
Sósíalískt Brennuvargarnir. Ádeila Góðir Íslendingar.
Morgunblaðið fékk leiklistargagn-
rýnendur sína til að fara yfir kom-
andi leikár í stóru leikhúsunum
tveimur. Á næstu dögum verður
birtur pistill eftir Ingibjörgu Þóris-
dóttur.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Leikferð um landið 13. - 22. september
Fim 10/9 kl. 20:00 Fors U
Fös 11/9 kl. 20:00 Fors U
Lau 12/9 kl. 20:00 Frums U
Sun 13/9 kl. 20:00 U
Fim 17/9 kl. 20:00 U
Fös 18/9 kl. 19:00 U
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Sun 20/9 kl. 20:00 U
Fim 24/9 kl. 20:00 U
Fös 25/9 kl. 19:00 Ö
Lau 26/9 kl. 19:00 Ö
Sun 27/9 kl. 20:00 Ö
Djúpið (Litla sviðið)
Mið 23/9 kl. 20:00 Ö
Sun 27/9 kl. 16:00 Ö
Mið 30/9 kl. 20:00
Sun 4/10 kl. 16:00
Allt að seljast upp - tryggðu þér miða
Skelltu þér í áskrift – 4 sýningar á 8.900 kr
Fös 4/9 kl. 19:00 U
Lau 5/9 kl. 19:00 U
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 20:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 11/9 kl. 19:00 Ö
Lau 12/9 kl. 19:00 Aukasýn.
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Sun 20/9 kl. 14:00 U
Fös 25/9 kl. 19:00 Aukasýn.
Lau 26/9 kl. 14:00 U
Sun 27/9 kl. 19:00 Aukasýn.
Fös 2/10 kl. 19:00 U
Fös 9/10 kl. 19:00 Ö
Sýnt á ensku í tengslum við Lókal leiklistarhátíðina
Dauðasyndirnar (Litla sviðið)
Lau 5/9 kl. 19:00 Sýnt á ensku
Flutt á ensku í tengslum við Lókal leiklistarhátíðina
Þú ert hér (Litla sviðið)
Lau 5/9 kl. 22:00 Aukasýn. Sun 6/9 kl. 20:00 Aukasýn.
FRIDA... viva la vida (Stóra sviðið)
* Til styrktar Grensásdeild. Ath. stutt sýningartímabil
UTAN GÁTTA (Kassinn)
4ra sýninga kort aðeins 9.900 kr.
KARDEMOMMUBÆRINN (Stóra sviðið)
Opið hús í Þjóðleikhúsinu 29. ágúst
Leitin að Oliver!
Við leitum að 8-13 ára strákum til að fara með hlutverk í söngleiknum
OLIVER! Skráning í áheyrnarprufur fer fram á Opna húsinu.
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Sun 30/8 kl. 14:00 U
Sun 30/8 kl. 17:00 U
Sun 6/9 kl. 14:00 Ö
Sun 6/9 kl. 17:00 Ö
Sun 13/9 kl. 14:00 Ö
Sun 13/9 kl. 17:00 Ö
Sun 20/9 kl. 14:00 Ö
Sun 27/9 kl. 14:00 Ö
Sýningar haustsins komnar í sölu
Fös 11/9 kl. 20:00 Frums U
Lau 12/9 kl. 20:00 2. sýn Ö
Fös 18/9 kl. 20:00 3. sýn Ö
Lau 19/9 kl. 20:00 4. sýn Ö
Fös 25/9 kl. 20:00 5. sýn
Lau 26/9 kl. 20:00 6. sýn
Fös 2/10 kl. 20:00 7. sýn
Lau 3/10 kl. 20:00 8. sýn
Sýningar haustsins komnar í sölu
Fös 4/9 kl. 20:00 Ö
Sun 6/9 kl. 20:00 Ö
Lau 12/9 kl. 20:00
Lau 19/9 kl. 20:00
Lau 26/9 kl. 20:00