Morgunblaðið - 27.08.2009, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
ÞEIR ERU NÝJUSTU NJÓSNARAR FBI
OG ÞURFA AÐ TAKA HÖNDUM SAMAN
TIL AÐ BJARGA HEIMINUM
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
HEIMURINN ÞARF STÆRRI HETJUR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
SÝND Í 3D
Í REYKJAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
HHHH
„BESTA TARANTINO-MYNDIN
SÍÐAN PULP FICTION OG
KLÁRLEGA EIN AF BETRI
MYNDUM ÁRSINS.“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA,
VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA
ÆVINTÝRI TIL ÞESSA
HHHH
- H.G.G, POPPLAND/RÁS 2
SÝND Í ÁLFABAKKA
/ KRINGLUNNI
DRAG ME TO HELL kl. 8:20 - 10:30 16 HARRY POTTER 6 kl. 5:30 10
PUBLIC ENEMIES kl. 8:20 - 11 16
G-FORCE 3D m. ísl. tali kl. 63D L DIGITAL 3D
G-FORCE 3D m.ensku tali kl. 63D L DIGITAL 3D
THE PROPOSAL kl. 8:20D - 10:40D L DIGITAL
/ ÁLFABAKKA
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 5 - 8 - 11:05 16 G-FORCE m. ísl. tali kl. 3:40 L
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 8 - 11:05 LÚXUS VIP THE PROPOSAL kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 L
DRAG ME TO HELL kl. 5:40 - 8 - 10:20 16 HARRY POTTER 6 kl. 5 - 10:20 10
PUBLIC ENEMIES kl. 8 - 11:05 16 HARRY POTTER 6 kl. 5 LÚXUS VIP
G-FORCE 3D m. ísl. tali kl. 43D - 63D L DIGTAL 3D HANGOVER kl. 8 síðustu sýningar 12
Það er dagljóst frá spennu-þrungnu upphafsatriðinu íI.B., að Tarantino er aðgera framúrskarandi hluti.
Sögusviðið bóndabær í Frakklandi
undir miðju hernámi Þjóðverja í
seinna stríði. Hinn tungulipri Hans
Landa (Waltz), ofursti í Gestapo, er
að yfirheyra bóndann og breiðir
notalegan kumpánskap yfir illmennið
sem undir býr. Fransmaðurinn hefur
falið Soshönnu Dreyfus (Laurent),
nágranna sinn af gyðingaættum, rétt
við tærnar á þeim, í kjallaranum.
Hún sleppur og á eftir að verða lyk-
ilpersóna í viðfangsefninu, að koma
„der Führer“, Adolf Hitler (Wuttke),
fyrir kattarnef.
Myndin dregur nafn sitt af
harðsnúinni sveit bandarískra her-
manna af gyðingaættum, sem hefur
þá dagskipun að drepa stríðsmenn
Þriðja ríkisins, lokatakmarkið sjálfur
Hitler. Sveitin er illræmd, aðferðir
hennar grimmilegar með liðsforingj-
ann Aldo Raine (Pitt), í fararbroddi.
Flakar höfuðleðrið af andskotunum
að hætti stríðsmanna frumbyggja
N.-Ameríku. Annar í hópnum, Dono-
witz liðþjálfi (Roth), beitir horna-
boltakylfu. Þessi aftökusveit kemst í
kynni við Frönsku andspyrnuhreyf-
inguna og með aðstoð Drefus, sem
nú rekur kvikmyndahús í París, er
leiðtogum Þriðja ríkisins brugguð
banaráð.
Tarantino, sem skrifar og leik-
stýrir, skemmtir sér greinilega við að
gera það sem öðrum mistókst í raun-
veruleikanum, að stúta „foringj-
anum“ á viðeigandi hátt og hans nán-
asta fénaði. Hann er gangandi
alfræðiorðabók um flest sem snýr að
kvikmyndum og tilvitnanir hans í
gamlar seinnastríðsmyndir eru fleiri
en tölu verður á komið. Látum nægja
eitt dæmi um hversu útsmoginn
hann er; nafnið á Aldo Raine, per-
sónunni sem leikin er af Pitt, er vís-
un í leikarann Aldo Ray, sem fór með
tugi hlutverka seinnastríðshetja í
sögufrægum myndum á borð við The
Naked and the Dead og Battle Cry.
Að venju er þessi einstæði kvik-
myndagerðarmaðkur fullur sköp-
unargleði. Tekur hverja stríðs-
myndaklisjuna eftir annarri og lagar
hana að eigin geðþótta svo úr verður
fersk heildarmynd úr margþvældu
efni. (T.d. er efnisþráðurinn að ein-
hverju leiti sóttur í ítalska eftiröpun
á hinni mögnuðu stórmynd, The
Dirty Dozen.) Að vísu þekkir obbi
bíógesta samtímans sjálfsagt lítið til
seinnastríðsmyndagreinarinnar, en
við sem eldri erum sjáum hlutina í
nýju og örvandi ljósi þessa glað-
hlakkalega kvikmyndaskálds.
Skemmtunin er hress, fyndin og
óforskömmuð á sinn jákvæða hátt.
Tarantino lætur hverja þjóð tala eig-
in tungu, slíkt hefur tæpast gerst síð-
an á tímum The Longest Day (́62),
eða í þá hálfu öld sem hjákátlegur
hreimur hefur verið látinn duga okk-
ur áhorfendum. Höfundurinn end-
ursemur lokakafla síðari heimsstyrj-
aldarinnar að hætti hússins, lokin eru
jafnframt óður til kvikmyndanna á
sinn kaldhæðna hátt. Höfuðpaur
Þriðja ríkisins og árar hans fá mak-
leg málagjöld og enda líf sitt undir
táknrænum kringumstæðum.
Eitt af aðalsmerkjum Tarantinos
er lygileg þekking á leikaraframboði,
jafnt í Hollywood sem í Evrópu. Val-
ið í I.B., er stórsnjallt, hver lítt
þekktur leikarinn treður upp og hríf-
ur áhorfandann með sér í þessum
Brooks-lega stríðsfarsa. Fyrst skal
færan telja Christoph Waltz, sem
leikur hinn eilífa Gestapo-foringja af
slægvisku höggormsins, mjúkmáll og
ljúfmannlegur á yfirborðinu. Waltz
talar að auki helstu mál álfunnar og
stelur myndinni þegar hann er í
kastljósinu. Daniel Brühl (Good Bye
Lenin!), er sannfærandi sem of-
urskyttan og stríðshetjan, „hinn
þýski Sergeant York.“ Wuttke er
bráðfyndið Hitler-skrípi, Pitt óvenju
afslappaður sem fjallabúinn Aldo
„the Apache“, með tilheyrandi hreim,
og svo mætti lengi telja. Roth einn
veldur vonbrigðum. Tónlist og taka
er í hæsta gæðaflokki, litirnir sterkir,
búningar og munir hnökralausir og
útkoman ein eftirminnilegasta mynd
ársins og ein sú skemmtilegasta. Of-
beldið er notað á kómískan hátt, að-
eins þrjótarnir fá á baukinn. Myndin
brýtur þakksamlega upp hefðbundið
mynstur brellu- og teiknimyndanna
sem hafa tröllriðið sumarmynda-
markaðnum í áratugi.
saebjorn@heimsnet.is
Laugarásbíó, Sambíóin Álfa-
bakka, Smárabíó, Háskólabíó,
Borgarbíó Akureyri
Inglourious Basterds
bbbbm
Leikstjóri: Quentin Tarantino. Aðalleik-
arar: Brad Pitt, Christoph Waltz, Eli
Roth, Michael Fassbender, Diane Kru-
ger, Daniel Brühl, Mélanie Laurent. 152
mín. Bandaríkin. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Roth og Pitt Að mati gagnrýnanda er Inglourious Basterds frábær mynd.
Flýtt fyrir bálförinni