Morgunblaðið - 31.10.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„ÞAÐ var svolítið hringt í mig og í mömmu líka,
fólk man greinilega eftir þessu,“ segir Akureyr-
ingurinn Stefán Hallsson. Frétt Morgunblaðsins
um þyngdarmet íslenskra barna í fæðingu
hrærði upp í mörgum sveitungum hans sem
töldu sig ekki vita betur en að Stefán ætti metið.
Líkt og fram kom í Morgunblaðinu á miðviku-
dag nær gagnagrunnur fæðingaskrár Landspít-
alans ekki lengra aftur en til ársins 1982. Rætt
var við Kristínu Guðlaugsdóttur sem var 26
merkur þegar hún kom í heiminn árið 1962, en
samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur
þyngra barn ekki fæðst á Íslandi svo vitað sé.
Norðlendingar slógu Dönum við
Kristín lýsti hins vegar eftir fleiri „tröllabörn-
um“ af sömu stærð og í kjölfarið hafa dúkkað
upp ábendingar um að a.m.k. þrír aðrir Íslend-
ingar hafi fæðst í sömu þyngd og deila þeir því
metinu með Kristínu. Einn þessara Íslendinga
er einmitt Stefán Hallsson, sem fæddist á Húsa-
vík í mars árið 1972, sjöunda barn foreldra sinna,
og vó 26 merkur líkt og Kristín, eða 6.950 gr.
Fæðing Stefáns vakti mikla athygli á þessum
tíma, enda hafði þá nýverið borist sú fregn að
þyngsti hvítvoðungur Danmerkur væri 6.250 g
og því ljóst að Stefán hafði slegið Danmerkur-
metið hið minnsta, staðreynd sem Norðlend-
ingar hafa greinilega ekki gleymt 36 árum síðar.
Sjö systkini og fæddust öll stór
Stefán er yngstur sjö systkina og stóð móðir
þeirra, María Helgadóttir, í ströngu því þau voru
öll í stærra lagi, á bilinu 18-21 mörk. Stefán var
þó þeirra langstærstur og langur í ofanálag, 26
merkur og 65 cm.
Í dag er Stefán 190 cm og því yfir meðalhæð
íslenskra karla. Hann á fimm börn en segir þau
öll hafa fæðst í meðalþyngd enda virðist stærð í
fæðingu vera tilviljunum háð og erfist því ekki
endilega innan fjölskyldunnar.
Fleiri eiga heiðurinn af þyngdarmeti
Titillinn þyngsti hvítvoðungurinn virðist deilast á milli nokkurra Íslendinga sem allir fæddust
26 merkur Nokkrar ábendingar bárust Morgunblaðinu eftir að lýst var eftir „tröllabörnum“
Í HNOTSKURN
»Meðalþyngd íslenskrabarna hefur undanfarinn
áratug verið tæp 3,7 kg og
eru þau með stærstu hvít-
voðungum á heimsvísu.
»Stærsta nýfædda barnheims var hins vegar
Kanadamaður, sem vó 12,5
kg í fæðingu árið 1879.
»Fæðingaskrá Landspít-alans heldur utan um
alla tölfræði sem tengist
fæðingum á Íslandi, m.a.
stærð og þyngd, en gagna-
grunnurinn nær hins vegar
ekki lengra aftur en til
1982. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svona stór Íslensk börn eru almennt stálpuð.
SEÐLABANKI Íslands kynnir í dag
breytingar á reglum um gjaldeyris-
mál. Eru þær breytingar í samræmi
við áður kynnta áætlun um afnám
gjaldeyrishafta þar sem fyrsta
skrefið verði tekið 1. nóvember með
því að opna fyrir gjaldeyrisviðskipti
inn í landið.
Fundartíminn þykir heldur
óvenjulegur en seðlabankastjóri, að-
stoðarseðlabankastjóri og for-
stöðumaður gjaldeyriseftirlits
Seðlabanka Íslands kynna breyting-
arnar og svara fyrirspurnum fjöl-
miðlamanna klukkan tíu árdegis.
Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri
skrifstofu bankastjórnar, segir það
hafa þótt hentugt að halda fund á
laugardagsmorgni, það sé hluti af
ferli sem skýrt verði þar nánar.
Kynna fyrsta
skref í afnámi
gjaldeyrishafta
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins þurfti í gær að fjarlægja ís-
skáp úr íbúð í Reykjalundi eftir að
þar kom upp ammoníaksleki. Þegar
slökkviliðið kom á staðinn var þar
mikil og sterk ammoníakslykt og
þurftu slökkviliðsmenn að fara í
hlífðarbúnað svo hægt væri að fara
inn og fjarlægja ísskápinn.
Íbúum varð ekki meint af og
þurfti ekki að flytja neinn á sjúkra-
hús til athugunar en hættulegt get-
ur verið að anda að sér ammoníaki.
Ammoníaksleki í ís-
skáp í Reykjalundi
Diddú, Jóhann Friðgeir og Óskar Pétursson
í Íslensku óperunni
Aukatónleikarnir á morgun – 1. nóv kl 20:00
Miðasala Íslensku óperunnar og www.opera.is
3. tónleikarnir verða
í Akureyrarkirkju
sunnud. 8. nóv kl. 17:00
Miðasala í Eymundsson
Akureyri
A U K
AT Ó N
L E I K
A R
Efnisskrá í léttari kantinum, glens og gaman
í hávegum haft, þó dramatíkin fylgi að sjálfsögðu.
Píanóleikari Jónas Þórir.
FJÓRTÁN manns fengu uppsagn-
arbréf í hendurnar hjá Reykjalundi
endurhæfingu í gær. Að sögn Birgis
Gunnarssonar, forstjóra Reykja-
lundar, eru uppsagnirnar tilkomnar
vegna þess niðurskurðar sem
Reykjalundi er gert að ganga í gegn-
um. „Það er bara hörmulegt að
þurfa að vera að standa í þessu en
þetta er bara eitthvað sem er óhjá-
kvæmilegt og við reynum að velja
illskásta kostinn og það er enginn
kostur góður í þessu,“ segir Birgir.
„Okkur er gert að spara á næsta ári
um 6,7% frá fjárlögum þessa árs og
það eru rétt um 90 milljónir. Við
unnum þetta þannig að það var skip-
aður vinnuhópur til að fara yfir
skipulag og mönnun deilda. Það
ásamt ýmsum aðgerðum sem við
vorum að fara í þýðir að við sögðum
upp fjórtán manns um þessi mán-
aðamót,“ segir Birgir. Einnig voru
fastar yfirvinnugreiðslur lækkaðar,
akstursgreiðslum sagt upp og fleira.
Hvað áhrif á þjónustu þeirra sem
sækja Reykjalund varðar segir
Birgir að í gildi sé samningur við
heilbrigðisyfirvöld um þá þjónustu
sem þeim er gert að veita. Þau sjái
fram á að geta áfram sinnt þeirri
starfsemi sem þau eru samnings-
bundin til að veita en óneitanlega
verði gæði þjónustunnar ekki þau
sömu. Núna verði t.d. meira skil-
greint hverjir þurfi að vera inniliggj-
andi, m.a. vegna fólks sem af ein-
hvers konar ástæðum getur ekki
sótt dagdeildina heiman frá sér en
það verði engin þjónusta í kringum
það.
Fjórtán starfsmönnum
sagt upp hjá Reykjalundi
Viðbrögð við kröfu um 90 milljóna sparnað á næsta ári
Í HNOTSKURN
»Um er að ræða 10 stöðu-gildi, 5 stöðugildi hjúkr-
unarfræðinga og 5 stöðugildi
sjúkraliða og ófaglærðra.
»Unnið verður að eflingudagdeildarþjónustu og
göngudeildarinnar.
ÞAÐ var ekki að sjá á þessum stelpum, sem
gengu vasklega niður Laugaveginn í gær, að
veturinn væri kominn en hitinn á hádegi í
Reykjavík var 10 stig sem er heldur óvenjulegt á
þessum árstíma.
Heitt var fram eftir degi og náði hitastigið 11
gráðum kl. 18 en austanlands var veðrið ekki
síðra, hiti jókst smám saman eftir því sem leið á
daginn og seinnipartinn náði hann 12 stigum.
Veðurguðirnir þurftu þó aðeins að minna á sig
og var rigning víða um landið. Í dag styttir þó
upp um landið allt og verður hiti víðast hvar um
7 stig og alskýjað nema um austanvert landið
þar sem enn eimir eftir af góða veðrinu, þar
verður léttskýjað og hiti rúmar 10 gráður.
Óvenjuleg hlýindi suðvestan- og austanlands í gær
Morgunblaðið/Ómar
Sumarlegar að vetrarlagi í höfuðborginni