Morgunblaðið - 12.11.2009, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009
Það telst varla frétt að veðrið var
gott í höfuðstað Norðurlands í gær
og Pollurinn spegilsléttur. Samt allt-
af gaman að nefna það; eins fagur
haustdagur og þeir geta orðið.
Framleiðsla hófst í gær hjá Plastiðj-
unni Bjargi-Iðjulundi á þurrkum
sem ætlaðar eru til að þrífa olíur og
ýmis önnur efni um borð í skipum og
á fleiri vinnustöðum. Þurrkurnar
eru endurunnar úr fatnaði, rúmföt-
um og handklæðum sem borist hafa
Hjálpræðishernum, Mæðrastyrks-
nefnd og Rauða krossinum en hafa
ekki nýst af einhverjum ástæðum.
Ólöf Leifsdóttir, forstöðumaður
Bjargs-Iðjulundar, sem er vinnu-
staður fyrir fólk með skerta starfs-
getu, sagði þetta mikilvæga viðbót
við starfsemina. Mjög hefur dregið
úr sölu á efni til raflagna og þess
vegna var hugað að nýjungum, með
þessum flotta árangri.
Samherji og Slippurinn reyndust
vinnustaðnum betri en enginn; fyrr-
nefnda fyrirtækið gaf tæki til að
pressa og pakka þurrkunum en
Slippurinn breytti græjunni þannig
að hún henti sem best. Ekki nóg með
það; tilkynnt var í gær að fyrirtækin
hefðu ákveðið að kaupa framleiðsl-
una fyrstu tvo mánuðina.
Gísli Sigurgeirsson, fyrrverandi
fréttamaður á RÚV, er orðinn „hús-
bóndi“ á Sigurhæðum, þar sem séra
Matthías bjó forðum. Í húsi skálds-
ins og klerksins verður reglulega
boðið upp á ýmsa menningar-
viðburði í vetur.
Í gær voru liðin 174 ár frá fæðingu
séra Matthíasar og var dagskrá í
húsinu af því tilefni. Barnakór
Akureyrarkirkju söng og nemendur
úr Tónlistarskóla Akureyrar léku.
Raðað verður í sex efstu sæti á lista
framsóknarmanna fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor með
prófkjöri. Þetta var samþykkt á
fundi fulltrúaráðs framsóknarfélag-
anna á þriðjudagskvöldið. Prófkjörið
verður síðari hluta janúar.
Leikfélag Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri frumsýnir á laugardaginn
tónleikaútfærslu á rokk-söng-
leiknum We Will Rock You, sem
byggður er á tónlist bresku hljóm-
sveitarinnar Queen. Sýnt verður í
Gryfjunni, samkomusal Verk-
menntaskólans.
Söfnuður Sjöunda dags aðventista
hefur keypt Gamla Lund á Akur-
eyri. Húsið, sem stendur við Eiðs-
vallagötu á Oddeyri, verður kirkja
safnaðarins í bænum frá og með
næsta vori.
Söfnuðurinn kaupir húsið af börnum
Jóns Gíslasonar húsasmíðameistara
sem lést í haust. Hann keypti Gamla
Lund snemma á níunda áratugnum
og hugðist gera það upp, en húsið
reyndist ónýtt þannig að Jón tók sig
til og reisti nýtt hús í líkingu við
Gamla Lund á sama stað.
Manfred Lemke, prestur Sjöunda
dags aðventista á Akureyri, segir
söfnuðinn ekki hafa átt fastan sama-
stað í langan tíma. „Við höfum leigt
aðstöðu eða verið í heimahúsum í 50
ár,“ sagði hann við Morgunblaðið.
Söfnuðurinn tók húsið í notkun í
fyrrakvöld en stefnt er að því að það
verði vígt sem kirkja næsta vor.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þurrkur Ágúst Ellertsson sýndi gestum Bjargs-Iðjulundar í gær hvernig
nýja tækið virkar. Forstöðumaðurinn Ólöf Leifsdóttir fylgist spennt með.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
! "# $ %
&' (
)
* *(
$
+(
# , -*(
.
( ,
/
)*( 0 12 0 3 *( 0 4 -( 5 - (6
.3 . .3 7
.3 .
.3 8 *
.3 9
5 %
- 6
.3 3
.3 :
.3 :;3
"#
< - *- ( *
. ( 3 % *
! *
(
===
>>' ?''' $ * (
@
. ( 3 * A B C A D'E 2
3 >>' ?''' A )F >>' ?'D' A ===.3 A .3@.3
! 2 83# : * G H''C
/ 3 + 83# * G H''>
.3 2 "# , 1( !
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
A B C D E F G H I J K L M N O P Q
Íslenska er okkar mál
www.jonas.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100