Morgunblaðið - 12.11.2009, Síða 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009
✝ Sesselja Ein-arsdóttir fæddist í
Vestmannaeyjum 19.
febrúar 1921. Hún lést
á hjúkrunarheimilinu
Eir 29. október sl.
Foreldrar hennar
voru Sigríður Magn-
úsdóttir, f. 15. maí
1882, d. 9. desember
1939 og Einar Sím-
onarson, f. 24. október
1874 og, d. 23. mars
1936. Systur Sesselju
eru: Þuríður, f. 31.
desember 1910, d. 30.
janúar 1988 og Anna, f. 20. desem-
ber 1913, d. 4. desember 1979.
Árið 1942 giftist Sesselja Gunnari
Marteinssyni, f. 1. mars 1921, d. 31.
maí 1992. Foreldrar hans voru Mar-
teinn Einarsson, f. 25. febrúar 1890,
d. 24. janúar 1958 og Guðrún Karit-
as Magnúsdóttir, f. 9. desember
1895, d. 19. apríl 1922. Sesselja og
Gunnar bjuggu öll sín hjúskaparár í
Miðtúni 56 en hún flutti að Löngu-
mýri 26 í Garðabæ eftir andlát
Gunnars. Sesselja dvaldi síðustu
mánuðina á hjúkrunarheimilinu
Eir. Börn þeirra eru: 1) Edda Sig-
rún, f. 1943, gift Þórði Sigurðssyni.
Synir þeirra eru Gunnar Jökull, f.
1968, kvæntur Helmu Björk Jó-
hannesdóttur. Gunnar á þrjú börn
og Helma einn son, Frosta, f. 1970,
kvæntur Helgu Sigurðardóttur.
Þau eiga tvö börn auk þess á Helga
einn son, Snorra
Stein, f. 1970, kvænt-
ur Ragnhildi Þórð-
ardóttur. 2) Guðrún, f.
1949, gift Sigurjóni
Sigurðssyni. Synir
þeirra eru Styrmir, f.
1974, kvæntur Berg-
lind Erlingsdóttur,
þau eiga þrjú börn,
Egill, f. 1978, unnusta
Hildur Helga Krist-
jánsdóttur og Bjarki,
f. 1989. 3) Marteinn, f.
1958, kvæntur Ing-
unni Steinþórsdóttur.
Börn þeirra eru Gunnar, f. 1983, í
sambúð með Hörpu Rut Hallgríms-
dóttur, þau eiga einn son, Steinþór
Árni, f. 1990 og Anna Sesselja, f.
1993.
Eftir hefðbundna skólagöngu í
Vestmannaeyjum og verslunarstörf
flutti Sesselja til Reykjavíkur haust-
ið 1939. Hún lærði hárgreiðslu í Iðn-
skólanum og útskrifaðist árið 1942.
Sesselja var heimavinnandi hús-
móðir fram til ársins 1970 en byrjaði
þá að vinna hjá Íslensk-Ameríska.
Árið 1971 hóf hún störf í Holts-
apóteki og vann þar fram á haust
1993. Sesselja var í Kvenfélaginu
Heimaey til margra ára. Hún var
einnig virk í starfi eldri borgara í
Garðabæ.
Útför Sesselju fer fram frá Vídal-
ínskirkju í dag, 12. nóv., og hefst at-
höfnin kl. 15.
Mamma mín, fyrirmynd mín, stoð
mín og stytta í gegnum þykkt og
þunnt, er fallin frá.
Hún var falleg kona hún mamma,
létt á fæti, nett og kvenleg, vel gefin,
sjálfstæð og fróðleiksfús. Skapgóð,
skipulögð og vinnusöm en líka stund-
um svolítið fljótfær. Hún hafði mikla
og góða nærveru.
Allt sem hún mamma kom nálægt
var vel gert. Henni féll aldrei verk úr
hendi. Matargerð, hannyrðir, við-
haldsvinna, garðvinna og að sjálf-
sögðu hárgreiðslustörf. Öll þessi verk
léku í höndunum á henni. Hún fylgd-
ist vel með öllum nýjungum og til-
einkaði sér þær sem hentuðu henni og
fjölskyldunni. Æskuheimili mitt var
fallegt og mamma og pabbi voru fal-
leg hjón. Þrátt fyrir þyrna voru þau
alltaf skotin hvort í öðru.
Frá barnæskunni er minningin um
mömmu náttúrlega fullkomin. Hún
var alltaf til staðar. Hún hafði alltaf
tíma. Hún leiddi mig í gegnum barn-
æskuna og hélt þétt utan um mig í
gegnum unglingsárin. Margar góðar
minningar koma upp í hugann um
notalegar samverustundir.
Systurnar frá London voru sam-
rýndar. Það var spjallað, hlegið, sung-
ið, spilað á orgel og píanó, hár litað,
klippt og krullað. Föt sniðin og saum-
uð á þær sjálfar og börnin. Systurnar
voru skemmtilegar og glæsilegar.
Engin lognmolla þegar þær voru ann-
ars vegar. Það sama má segja um
saumaklúbbinn, æskuvinkonurnar úr
Eyjum. Ég sat oft á stigaskörinni og
hlustaði á hláturrokurnar sem
glumdu um húsið.
Mamma brýndi fyrir mér góð gildi.
Eitt af því mikilvægasta var að bera
virðingu fyrir sjálfum sér. Hin mundu
fylgja í kjölfarið. Í æsku varð mér
svolítið hált á svellinu. Hjá kaup-
manninum á horninu lét ég skrifa hjá
mömmu poka af þurrkuðum ávöxtum
sem ég borðaði í leyni. Þegar mamma
uppgötvaði brotið varð hún bæði sár
og alvarleg, ekki reið. Samtalið sem
fylgdi í kjölfarið varð að lífstíðarlexíu
fyrir mig.
Mömmur eru góðar. Ég skildi það á
unglingsárunum þegar mér fannst
vandamálin vaxa mér í augum. Ég
átti það til að læðast inn til hennar um
hánótt og var hún þá fljót að kveikja á
perunni. Við læddumst upp í stofu og
mikið var gott að létta á hjartanu.
Vandamálin gufuðu upp á auga-
bragði. Ég átti líka hauk í horni þar
sem mamma var á djammárunum.
Hún setti upp hárið á mettíma, ýmist
lokkaflóð eða heysátu, alltaf sam-
kvæmt nýjustu tísku.
Mömmur eru líka stjórnsamar.
Uppeldishlutverkið fylgir þeim alla
tíð. Mamma mín hafði alveg sérstakt
lag á að koma sínum sjónarmiðum að
við mig, fullorðna konuna. Stundum
hafði ég lúmskt gaman af þessum at-
hugasemdum og stundum ekki. Það
var líka mamma sem studdi mig og
varði þegar ég hélt áfram að vinna
sem flugfreyja eftir að elsti sonur
minn fæddist. Það var ekki sjálfgefið
á þeim tíma. Ég er þakklát fyrir það.
Ég er henni líka þakklát fyrir að gæta
sona minna, jafnt að degi sem nóttu,
þegar á þurfti að halda. En við gátum
alltaf talað saman. Vorum alltaf vin-
konur.
Eftir andlát pabba, sem kom fyrir-
varalaust, sýndi mamma ótrúlegan
dugnað. Hún flutti í annað bæjarfélag
og bjó sér til fallegt heimili. Hún tók
þátt í starfi eldri borgara, dreif sig af
stað án þess að hafa nokkur tengsl,
kynntist þar góðu fólki og eignaðist
frábærar vinkonur.
Hægt og hljótt fjaraði undan sjálf-
stæði mömmu sem var henni svo mik-
ilvægt. Hún var stolt kona og kyngdi
eiginlega aldrei þeim bita að verða
öðrum háð. Undanfarin misseri varð
henni oft að orði að hún hlakkaði til að
hitta pabba, foreldra sína og systur.
Hún sagði líka við mig að þó minnið
væri orðið glompótt, þá gleymdi hún
aldrei að þakka Guði fyrir okkur
börnin sín og fjölskyldur okkar.
Hún var tilbúin, ekki ég.
Megi mamma mín hvíla í friði. Guð
blessi minningu mömmu og pabba.
Guðrún.
Í dag verður jarðsett tengdamóðir
mín, Sesselja Einarsdóttir, eða Sella,
eins og hún var jafnan kölluð.
Það eru liðin rúm 40 ár síðan mér
var boðið til þeirra hjóna Sellu og
Gunnars á þeirra glæsilega heimili að
Miðtúni 56. Þau tóku vel á móti mér
þá sem alltaf síðan. Minningarnar
hrannast upp. Öll jólaboðin, ferðalög-
in og allar hinar góðu samverustund-
irnar. Sella passaði strákana okkar,
Gunnar Jökul, Frosta og Snorra
Stein, mjög oft þegar þeir voru litlir
og fannst þeim alltaf gaman hjá
ömmu og afa. Ekki vantaði þá góðu
pönnukökurnar hennar ömmu. Við
Edda ferðuðumst mikið.með þeim.
Við ókum meðal annars saman hring-
veginn og einnig komu þau oft í sum-
arbústaðinn okkar. Nokkrar ferðir
voru líka farnar til útlanda með þeim
hjónum og síðan með Sellu eftir að
Gunnar lést.
Eftir að Sella varð ekkja flutti hún í
Garðabæ og bjó sér annað fallegt
heimili. Eignaðist hún þar góðar vin-
konur. Þær stunduðu handavinnu,
leikfimi og fleira skemmtilegt og fóru
til Kanarí í sýningarferðir.
Sellu féll ekki verk úr hendi, var
sérlega myndarleg í höndunum saum-
aði, prjónaði bakaði. Allt var vandað
og flott og var garðurinn í Miðtúninu
þar engin undantekning. Barnabörn-
in eru níu, átta drengir og ein stúlka,
nafna hennar. Elskuðu þau öll ömmu
Sellu og þótti mikið til hennar koma.
Langömmubörnin eru orðin níu og
voru þau henni líka mjög kær. Alltaf
fannst henni mjög gaman að koma
með okkur austur í sumarbústað og
átti þar sitt herbergi eins og hún kall-
að það. Þegar minnið fór að gefa sig
komst hún í dagvistun í Drafnarhúsi
og fannst þar vera gott fólk og gaman.
Síðustu mánuðina dvaldi hún á hjúkr-
unarheimilinu Eir. Fannst henni
starfsfólkið þar og annað samferða-
fólk elskulegt og gott. Engu að síður
var hún á því að nú væri komið nóg
eftir langt og gott líf. Svo hún var
tilbúin að kveðja. Saknaði Gunnars
sárt.
Að leiðarlokum þakka ég Sellu af
heilum hug samfylgdina öll þessi ár
þar sem aldrei bar skugga á.
Þórður Sigurðsson.
Brimaldan brotnar við sorfna
klettana.
Báturinn líður inn þessa ótrúlegu
innsiglingu og hugtakið náttúrufeg-
urð fær nýja merkingu.
Hamrastálið blasir við, þar kveðast
á fuglarnir. Lundinn situr á grastó,
spekingslegur.
Á einum stað leggst grasið undan
vindi en á öðrum ládeyða.
Fiskibátar koma og fara, allt iðar af
lífi. Þetta eru Vestmannaeyjar.
Þarna sleit hún Sella barnsskónum.
Hún fékk gott íslenskt uppeldi.
Naut leiðsagnar góðra foreldra sem
báru hag barna sinna fyrir brjósti.
Faðir hennar var sögumaðurinn,
glettinn og kankvís, söngvinn. Móðir
hennar stoðin góða, sagði minna
hlustaði betur. Henni var innrætt
hæverska og heiðarleiki.
Sella sagði oft að fá að alast upp í
Eyjum væru forréttindi. Alltaf eitt-
hvað spennandi að gerast, nýir at-
burðir, nýir sigrar. Hún var stolt af
Eyjunum sínum.
Hún unni mjög lífinu í Eyjum, naut
æskuáranna á heimaslóð en hún vildi
sjá meira af heiminum. Hún hleypti
ung heimdraganum.
Hugur hennar stóð til náms. Hún
fór til Reykjavíkur með æskuna og
bjartsýnina í farteskinu.
Árið er 1939. Höfuðborgin var að
vakna til lífsins. Hún hafði tryggt sér
húsnæði hjá athafnasömum frænkum
sínum við Laugaveginn.
Laugavegurinn átti eftir að koma
betur við sögu í hennar lífi. Sella fór í
Iðnskólann og lærði hárgreiðslu.
Hún hafði ekki verið lengi í höfuð-
borginni þegar hún varð að fara með
hraði aftur heim. Slæmar fréttir.
Móðir hennar hafði veikst alvarlega.
Hún missti móður sína í desember
þetta ár en faðir hennar andaðist
1936.
Þetta var mikil reynsla fyrir hana.
Hún er 18 ára. Hún lét engan bilbug á
sér finna. Fór aftur til Reykjavíkur.
Nú verður hún algjörlega að standa
á eigin fótum, treysta á sjálfa sig en
æðruleysi var henni gefið.
Hún kynntist verðandi eiginmanni
sínum, Gunnari Marteinssyni, og
1942 gengu þau í hjónaband. Þau voru
glæsileg saman bæði tvö.
Faðir Gunnars, Marteinn Einars-
son, rak á þessum tíma glæsilega
verslun við Laugaveginn. Seinna tók
Gunnar við rekstrinum ásamt syst-
kinum sínum. Fljótlega fluttu ungu
hjónin í Miðtún 56. Þau eignuðust
þrjú börn: Eddu, Guðrúnu og Mar-
tein.
Þegar Gunnar féll frá árið 1992
flutti Sella í Garðabæinn og bjó þar
uns hún fór á Eir fyrr á þessu ári.
Sella lagði alúð sína í öll verk sem
hún tók sér fyrir hendur, hvort sem
var við afgreiðslustörf eða hár-
greiðslu.
Hún var mikil húsmóðir. Hún
sinnti uppeldishlutverki í hvívetna,
var stolt af sinni fjölskyldu.
Lagði mikinn metnað í matargerð
og töfraði fram veisluborð.
Sella var „elegant“ kona.
Hún var fagurkeri. Gat verið kapp-
söm en alltaf fáguð. Hún var í eðli sínu
bjartsýn en þekkti hlutskipti sitt.
Það er auðna hvers manns að eiga
sér góða samferðamenn því allt gott
fólk auðgar heiminn. Það var gæfa
mín og forrétindi að kynnast Sellu.
Ég ruglaði reytum við Guðrúnu dótt-
ur hennar og tengdist þannig fjöl-
skyldunni.
Sella hafði yndi af ferðalögum. Hún
og Gunnar ferðuðust mikið og eftir að
Gunnar féll frá fór hún allmargar
ferðir utan með vinkonum sínum.
Nú hefur Sella lagt upp í sína
hinstu för. Hún sofnaði inn í haustið.
Lífsbókin hennar hefur lokist aftur.
Hún mætti örlögum sínum.
Engill hjá Guði.
Sigurjón.
Komið er að kveðjustund, í dag
kveð ég elskulega tengdamóður mína
Sesselju Einarsdóttur (Sellu) frá
London í Vestmannaeyjum. Þegar ég
kynntist henni fyrir rúmlega 30 árum
man ég hve mér fannst hún glæsileg
og vel til höfð. Hún var áberandi létt á
fæti og létt í lund, hafði húmor fyrir
sjálfri sér og held ég að það hafi gegn-
um ýmsa erfiðleika fleytt henni langt.
Hún fór ung að árum frá Eyjum en
þangað lá sterkur þráður og minntist
hún æsku sinnar og fjölskyldu ávallt
með gleði. Þegar okkar kynni hófust
vann hún í Holtsapóteki snyrtivöru-
deild á Langholtsveginum og þangað
var gaman að koma. Hún sem lærð
hárgreiðslukona gat svo sannarlega
hjálpað kúnnunum og vissi ég um
marga sem létu aðeins hana sinna sér.
Hún Sella var einstaklega vinnusöm
og myndarleg húsmóðir, bjó eigin-
manni og börnum fallegt heimili, bjó
til góðan mat og sinnti störfum heim-
ilisins, stundaði garðvinnu og var
mikil handavinnukona. Ég skildi ekki
hvernig þetta var allt hægt og spurði
hvort hún væri ekki þreytt því maður
sá hana sjaldan hvíla sig, þá sagði hún
gjarnan „vinnan drepur nú engan“!
Þannig var hún Sella, hreinskiptin og
hjálpleg það var auðvelt að þykja
vænt um hana og margir minnast
hennar með hlýju. Það urðu kafla-
skipti í lífi hennar þegar Gunnar, eig-
inmaður hennar, lést fyrir 17 árum og
Sella flutti úr húsi þeirra Miðtúni 56
en þar höfðu þau búið í 50 ár.
Hún flutti í Garðabæ og sá um sig
sjálf að öllu leyti þar til sl. ár. Kom þá
vel í ljós dugnaður hennar og sjálf-
stæði, það var ekki hennar að kvarta
og ef henni leiddist fann hún sér alltaf
eitthvað að sýsla. Hún hafði ánægju
af starfi með eldri borgurum í Garða-
bæ og fannst gaman að allri þátttöku
enda félagslynd að eðlisfari. Þá var
hún í saumaklúbb sem runninn var
frá Vestmannaeyjum og fannst mér
gaman að fylgjast með þeim „stelp-
unum“ eins og þær kölluðu sig alltaf
og heyra af þeim. Sella var ákaflega
söngelsk og kunni urmul af textum og
vísum, sumt sem ég hef aldrei heyrt
áður. Þá voru Eyjalögin sterkt inni og
sungin af krafti. Hún var ákaflega
þakklát fyrir sína góðu heilsu og
þakkaði oft og mikið fyrir hve börn
hennar og afkomendur væru heil-
brigð. Sl. ár fór heilsu hennar að
hraka og fannst henni erfitt að geta
ekki verið eins sjálfstæð og áður en
hún vildi helst ekki vera upp á aðra
komin.
Mig langar að kveðja hana með
Eyjalagi og þakka henni fyrir að vera
tengdamóðir mín, það hefur verið
mér mikils virði.
Dagurinn kveður, mánans bjarta brá
blikar í skýja sundi.
Lokkar í blænum, leiftur augum frá,
loforð um endurfundi.
Góða nótt, góða nótt,
gamanið líður fljótt,
brosin þín bíða mín,
er birtan úr austri skín.
Dreymi þig sólskin og sumarfrið,
syngjandi fugla og lækjarnið.
Allt er hljótt, allt er hljótt
ástin mín, góða nótt.
(Ási í Bæ.)
Blessuð sé minning þín. Með þakk-
læti.
Ingunn Steinþórsdóttir.
Elsku amma Sella, núna ertu dáin.
Það var vel hugsað um þig á Eir en
þú vildir aldrei vera þar en nú ert þú
komin til afa Gunnars og þá verður þú
aftur glöð.
Ég hugsa til gömlu daganna þegar
þú varst stytta og stoð í öllu. Núna
ertu farin frá mér en vonandi hitt-
umst við aftur á einhverjum góðum
stað.
Ég var fyrsta barnabarnið þitt og
var auðvitað mest hjá þér, elsku
amma mín. Þennan tíma tekur enginn
frá okkur. Þú leyfðir mér að vera
heima hjá þér eins og ég vildi enda
bað ég alltaf um að fá að vera hjá þér.
Meira að segja í menntaskóla fór ég
alltaf til þín.
Elsku amma Sella, ég sakna þess-
ara tíma þar sem ég var áhyggjulaus
hjá þér og afa. Þú bjóst alltaf um mig í
gráa sófanum við hliðina á ykkur und-
ir svanamyndinni þar sem þú sagðir
mér allt um ævintýrin um prinsinn og
hvítu álftina Ég vildi sofa frekar uppi í
hjá ykkur og þið leyfðum mér það
alltaf. Ég mátti gera allt sem ég vildi
hjá þér, hamast í pottum og pönnum
eða einhverju öðru og því gleymi ég
aldrei. Aldrei man ég eftir þér, amma
mín, nema í góðu skapi. Þú varst alltaf
frábær og hafðir alltaf tíma fyrir okk-
ur barnabörnin. Minningin er ótrú-
lega sterk, elsku amma.
Elsku amma Sella, það getur eng-
inn og mun enginn taka þessar stund-
ir frá okkur. Þú lifir með okkur og
mikið er það mér mikils virði að þú
eyddir aðfangadeginum í fyrra heima
hjá okkur.
Elsku amma Sella, ég kveð þig í
bili. Þú verður alla tíð í huga mér.
Ástarkveðja
Gunnar Jökull.
Í dag kveð ég þig í hinsta sinn og
með miklum söknuði. Mér fannst erf-
itt að trúa því að þú værir farin frá
okkur en ég er rosalega þakklát fyrir
að hafa fengið að kynnast þér, amma
mín, og þér mun ég aldrei gleyma.
Minningarnar koma upp í hugann og
mér finnst erfitt að hugsa til þess að
ég fari ekki að heimsækja þig í vik-
unni með súkkulaði eða banana sem
þér þótti svo gott að fá. Ég veit ekki
hvar ég á að byrja, það er frá mörgu
að segja. Það fyrsta sem ég man er að
við fjölskyldan fórum oft í heimsóknir
til þín í Löngumýrina, þú bauðst alla
velkomna í kaffi og bakaðir alltaf
pönnukökur, vöfflur og bollur svo
eitthvað sé nefnt. Eitt sem ég mun
Sesselja
Einarsdóttir
Elsku Sella.
Hugur minn er fullur af
þakklæti fyrir ævilanga vin-
áttu.
Það var yndislegt að eiga
þig fyrir ferðafélaga síðustu
15 árin. Glaðlyndi þitt og
glæsileiki lýstu upp sam-
verustundirnar.
Hjartanlegustu sakn-
aðarkveðjur,
Magnea.
HINSTA KVEÐJA