Morgunblaðið - 12.11.2009, Síða 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
3
3 9
2 5
8 4 7
4 1 8 2
4
5 3 9 7 1
4 6 5
3 1
2 9
6
8 6 5
8 1
2 5 6 3
4 7 9
9
7 5 4
3 9 8 2 1
7 2 6
1 6
3 8 1
6 5
4 3 2
3 7 1
8 7 9 6 3
9
6 8 7
2 1 9 7 8 4 5 6 3
6 3 4 1 5 9 2 8 7
5 7 8 6 2 3 4 9 1
7 2 3 5 1 8 6 4 9
9 4 6 2 3 7 8 1 5
1 8 5 9 4 6 3 7 2
8 9 1 3 6 5 7 2 4
4 5 7 8 9 2 1 3 6
3 6 2 4 7 1 9 5 8
5 1 2 4 9 7 6 8 3
3 4 6 8 5 1 7 9 2
7 9 8 6 2 3 1 4 5
4 6 5 1 3 8 9 2 7
8 2 7 5 6 9 4 3 1
9 3 1 2 7 4 5 6 8
2 5 4 7 8 6 3 1 9
6 7 9 3 1 2 8 5 4
1 8 3 9 4 5 2 7 6
4 5 2 3 1 6 8 7 9
6 9 1 7 8 2 5 4 3
8 7 3 9 5 4 1 6 2
1 3 4 5 7 8 2 9 6
2 8 7 4 6 9 3 5 1
9 6 5 1 2 3 4 8 7
3 4 8 6 9 1 7 2 5
7 2 6 8 3 5 9 1 4
5 1 9 2 4 7 6 3 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 12. nóvember,
316. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji dagsins hefur löngum ver-ið mikil landsbyggðartútta og af
einhverjum ástæðum ágerist lands-
byggðarþráin á haustin. Trúlega má
rekja það til ljúfra barnsminninga
þegar móðir Víkverja stóð við eldhús-
borðið og tók slátur eða unaðsstunda
þegar myrkrið réð ríkjum og móðir og
barn sátu saman, móðirin við hann-
yrðir, barnið við bóklestur eða annað
sem því hugnaðist þá stundina, og
stórhríðin gnauðaði úti.
x x x
Víkverji er Norðlendingur og íæsku hans stóð stórhríðin oft yf-
ir svo vikum skipti. Því fylgdi gjarnan
rafmagnsleysi í einhverja daga. Þegar
rafmagnið fór var viðkvæðið ein-
göngu: Jæja, er nú rafmagnið að fara?
Svo voru kertastubbarnir sóttir upp í
skáp og kveikt á þeim á eldhúsborðinu
eða stofuborðinu þar sem fjölskyldan
safnaðist svo saman við ljóstíruna.
Nú gæti einhver sagt að þessar
stundir séu eingöngu sveipaðar róm-
antískri þoku í huga Víkverja. Eflaust
er eitthvað til í því en samt … þetta
voru góðir dagar.
x x x
Þegar stórhríðin gekk svo loks nið-ur og hægt var að hefja skóla-
hald að nýju var bærinn gjarnan á
kafi í snjó, skaflar upp á húsþök og
marga daga tók að hreinsa göturnar.
Bílar voru mokaðir út af bílastæðum
og börnin drógu fram snjóþoturnar. Í
kjölfar langvarandi stórhríða komu
nefnilega oftar en ekki langir kaflar
þar sem veður var stillt og útileikir
barnanna snerust mest um að byggja
snjóhús, moka göng í gegnum stóra
og mikla skafla og stökkva í þá ofan af
húsþökunum. Og síðast en ekki síst
voru börnin rétthærri en bílarnir í
brekkunum, renndu sér niður og
hlupu uppeftir aftur til að taka eina
salíbunu í viðbót.
x x x
Þegar inn var komið, búið að skafasnjóinn af útifötunum og setja
vettlingana og stígvélin á ofn til þerris
var gjarnan blandað í kakó sem
drukkið var með sælustunu.
Já, þetta voru góðir tímar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gata í Reykja-
vík, 8 vænn, 9 blóðsugan,
10 fag, 11 ákveð, 13 fífl,
15 höfuðfata, 18 klauf-
dýr, 21 reyfi, 22 opum,
23 falla, 24 flakkaði.
Lóðrétt | 2 minnist á, 3
dreitillinn, 4 líkamshlut-
ann, 5 snaginn, 6 espa, 7
vendir, 12 í uppnámi, 14
sjávardýr, 15 snjókorn,
16 nafnbót, 17 vesælan,
18 bál, 19 megnið, 20 sef-
ar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 berja, 4 gætin, 7 gengi, 8 rekju, 9 rúm, 11
reim, 13 enni, 14 ósinn, 15 flór, 17 nefs, 20 uns, 22 tjóns,
23 veldi, 24 aftri, 25 reisa.
Lóðrétt: 1 bógur, 2 rengi, 3 akir, 4 garm, 5 tekin, 6
nauti, 10 úfinn, 12 mór, 13 enn, 15 fitla, 16 ómótt, 18
efldi, 19 seiga, 20 usli, 21 sver.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. d4 Rxe4 4. Bd3 d5
5. Rxe5 Rd7 6. Rxd7 Bxd7 7. O-O Bd6
8. Rc3 Rxc3 9. bxc3 Dh4 10. g3 Dh3 11.
Hb1 O-O-O 12. c4 dxc4 13. Df3 c6 14.
Bxc4 Be6 15. d5 cxd5 16. Bxd5 Bxd5
17. Dxd5 Hd7 18. Da5 a6 19. Dc3+ Kb8
20. Be3 Dg4
Staðan kom upp í opnum flokki
heimsmeistaramóts unglinga (20 ára
og yngri) sem lauk fyrir skömmu í Pu-
erto Madryn í Argentínu. Stórmeist-
arinn Sergey Zhigalko (2646) frá
Hvíta-Rússlandi hafði hvítt gegn kín-
verska kollega sínum Chao Li (2617).
21. Dc6! og svartur gafst upp enda
ræður hann ekki við margvíslegar hót-
anir hvíts, t.d. væri 21…a5 svarað með
22. Da6.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ruglingur.
Norður
♠53
♥ÁK98
♦G1073
♣Á94
Vestur Austur
♠4 ♠D1098
♥G752 ♥D103
♦ÁK94 ♦82
♣7652 ♣K1083
Suður
♠ÁKG762
♥64
♦D65
♣DG
Suður spilar 4♠.
Mikilvægasta varnarreglan er kall
eða frávísun í sama lit. Enskumælandi
menn tala um „attitude signal“, sem er
gott heiti, því tilgangurinn er einmitt
sá að tjá sig um næsta leik: vilji maður
litinn áfram er kallað, annars vísað frá.
Talning („count signal“ á ensku) er
gjörólík regla. Tilgangur hennar er að
gefa upp lengd í lit. Vilji eða álit kemur
þar ekkert við sögu. En það er gömul
saga og ný að spilurum hættir til að
rugla saman áliti og talningu. Spilið að
ofan er dæmigert. Vestur leggur niður
♦Á og austur á leik.
Telji austur það heilaga skyldu sína
að „sýna tvílit“ mun vestur taka á
kónginn og spila þriðja tíglinum. Með
miður góðum afleiðingum. Austur er
beðinn um álit í þessari stöðu og hann
ætti að VÍSA FRÁ, því hann vill fá lauf
í öðrum slag.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er eitt og annað að gerast í
kringum þig sem þú kannt litla skýr-
ingu á. Leggðu þig fram um að bæta
samskiptin því maður er manns gaman.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þótt þú hafir þína skoðun á málum
þarftu líka að taka tillit til skoðana ann-
arra. Hægðu á þér og taktu eitt verk-
efni í einu og kláraðu það.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Temdu þér að sjá hlutina í
samhengi og horfa frekar til heildar-
innar en láta einstök smáatriði byrgja
þér sýn. Mundu að koma fram við aðra
eins og þú vilt að komið sé fram við þig.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hlustaðu á ráð þér eldri og
reyndari manneskju. Dragðu lærdóm af
þessum samskiptum og þú getur verið
viss um að aðrir kunna þér þakkir fyrir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gerðu ráð fyrir einhverju óvæntu
frá yfirmanni þínum. Vertu opinn fyrir
tækifærum í skemmtana- og fé-
lagslífinu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það þýðir ekkert að vera með
einhvern vælutón. Nú er bara að sýna
dirfsku og staðfestu og sigla málunum í
örugga höfn.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Tekið verður eftir öllu sem þú gerir
í dag. Fínstilltu gangverkið til þess að
auka jafnvægið. Aðrir gætu í framhald-
inu borið meira traust til þín.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Finnist þér þú verða að
skipta um skoðun á einhverju máli,
skaltu ekki hika. Að fyrirgefa virðist
ýmist kjánalegt eða guðdómlegt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú átt auðvelt með að laða
fram það besta í öðrum sem og að miðla
málum þegar menn eru ekki á eitt sátt-
ir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þegar þú þekkir og fylgir for-
gangsröðuninni þinni, gengur allt sem
smurt. Taktu þér tíma fyrir sjálfan þig
og sinntu þeim, sem þér standa næst.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú eyðir peningum í dag. Nýttu þér
meðbyrinn en mundu að skjótt skipast
veður í lofti.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hver er sinnar gæfu smiður og
það sannast á þér sem öðrum. Ef ein-
hver vill slást um molana á gólfinu er
best að vera stórlyndur og leyfa við-
komandi að vinna.
Stjörnuspá
12. nóvember 1958
Skipherra breska herskipsins
Russell hótaði að sökkva varð-
skipinu Þór ef það tæki breska
togarann Hackness, sem var
með ólöglegan umbúnað veið-
arfæra 2,5 sjómílur út af
Látrabjargi. „Breski flotinn
grímulausir sjóræningjar,“
sagði á forsíðu Þjóðviljans.
12. nóvember 1967
Þorgeir Þorgeirson frumsýndi
kvikmyndirnar „Að byggja“
og „Maður og verksmiðja“ í
Hlégarði. Einnig voru sýndar
myndirnar „Grænlandsflug“
og „Hitaveituævintýri“.
12. nóvember 1974
Þórbergur Þórðarson rithöf-
undur lést, 86 ára. Jakob
Benediktsson sagði að hann
hefði verið „einn mesti stíl-
snillingur sem við höfum
nokkru sinni átt“.
12. nóvember 2007
Paul Nikolov tók sæti á Al-
þingi, fyrstur Íslendinga af er-
lendum uppruna. Paul sagðist
aldrei hafa verið stoltari af því
að vera íslenskur ríkisborgari.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Steingrímur H.
Ingvarsson,
Grænumörk 2,
Selfossi, verður
sjötugur á morg-
un, 13. nóv-
ember. Hann
starfaði sem um-
dæmisverkfræð-
ingur hjá Vega-
gerð ríkisins á Selfossi þar til hann
varð að hætta vegna veikinda 2002.
Steingrímur og kona hans Jóhanna
M. Þórðardóttir ætla að taka á móti
fjölskyldu og vinum á afmælisdag-
inn frá kl. 16 til 19 í húsi Frímúr-
ara, Hrísmýri 1, Selfossi. Húsið er
við hliðina á Vegagerðinni.
70 ára
„Það er lán að vera alla tíð frískur og virkur og fá
að lifa allan þennan tíma með börnunum sínum og
fjölskyldu. Það er ekki hægt að fara fram á
meira,“ segir Ríkharður Jónsson, málarameistari
á Akranesi sem verður áttræður í dag. Hann á sér
einstakan knattspyrnuferil, ekki síst með gullald-
arliði Akurnesinga sem hann lék með og þjálfaði
sem og með íslenska landsliðinu, og ávann sér
stóran hóp aðdáenda innanlands og utan.
Ríkharður hætti með málningarfyrirtæki sitt
um áramót en hefur eigi að síður verið á fullu í
málningargallanum á undanförnum mánuðum.
Fyrir þá vinnu getur hann engan reikning sent því hann er að gera
við eigið hús, að innan og utan. Hann var í gær að reyna að ljúka við
að taka baðherbergið í gegn. Þótt það klárist er ekki ætlunin að halda
upp á afmælið fyrr en næstkomandi laugardag. Þá kemur öll fjöl-
skyldan saman, meira að segja Jón Leó, sonur Ríkharðs, sem býr úti í
Svíþjóð. „Ég ætla að vera heima og njóta þess að eiga svona góða fjöl-
skyldu,“ segir afmælisbarnið. Þetta er mikið afmælisár hjá fjölskyld-
unni því um jólin eiga Ríkharður og kona hans, Hallbera G. Leósdótt-
ir, sextíu ára hjúskaparafmæli. helgi@mbl.is
Skagamaðurinn Ríkharður Jónsson áttræður
Lýkur viðgerð fyrir afmælið
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is