Morgunblaðið - 12.11.2009, Qupperneq 31
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009
Ég kynnti hann svo
sem afa minn þegar
hann kom upp á svið. 32
»
LJÓÐAKLÚBBURINN Hási
Kisi stendur fyrir ljóða-
upplestri á Dögum myrkurs á
Egilsstöðum í kvöld kl. 20.30.
Lesturinn fer fram í fokheldu
einbýlishúsi að Hömrum 19 á
Egilsstöðum. Í Hása Kisa eru
þau Ásgrímur Ingi Arn-
grímsson, Hrafnkell Lárusson,
Ingunn Snædal og Stefán Bogi
Sveinsson. Öll lesa skáldin ný
ljóð og leitast við að tala við
samtímann, hvert með sínu nefi. En svarar hann
einhverju? Er þetta kannski bara eintóm tilgerð
og verður okkur ekki bara skítkalt? Aðgangur er
ókeypis. Hamrar 19 eru á Suðursvæði, beygt er til
vinstri við mjólkurstöðina upp fyrir blokkirnar.
Bókmenntir
Hási Kisi murrar
á Dögum myrkurs
Hási Kisi biður fólk
að klæða sig vel.
SÝNING á verkum
Soffíu Sæmundsdóttur
verður opnuð í Artóteki,
fyrstu hæð Borg-
arbókasafns í Gróf-
arhúsi kl. 17 í dag. Á
sýningunni eru olíu-
málverk á tré og striga
og einþrykk á pappír. Á
vegg verður sýnt myndbandið Málarinn við höfn-
ina … en það gefur innsýn í myndheim Soffíu og
er gert af syni hennar, Erlendi Sveinssyni, nema
við Kvikmyndaskóla Íslands. Soffía Sæmunds-
dóttir hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum
og haldið einkasýningar, bæði á Íslandi og erlend-
is í Evrópu og Norður-Ameríku. Hún hefur hlotið
margskonar viðurkenningu fyrir list sína.
Myndlist
Soffía Sæmunds-
dóttir í Artóteki
Ljósið kemur.
LIGHTHOUSE-kvartettinn
leikur á tónleikum Jazzklúbbs-
ins Múlans í kvöld. Þar mun
trommuleikarinn Erik Qvick
fara með hlutverk trommugoð-
sagnarinnar Elvins Jones,
ásamt vaskri hljómsveit sem
ásamt Erik skipa saxófónleik-
ararnir Jóel Pálsson og Ólafur
Jónsson og bassaleikarinn Þor-
grímur Jónsson. Leikið verður
m.a. efni af tímamótaplötu Elvins Jones, Live At
The Lighthouse sem kom út hjá Blue Note-
plötufyrirtækinu árið 1972. Þar voru í aðal-
hlutverki ásamt Elvin saxófónleikararnir Steve
Grossman og Dave Liebman.
Tónleikarnir hefjast á Café Cultura kl. 21.
Tónlist
Elvin Jones í kjuð-
um Eriks Qvick
Erik Qvick
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
HVAÐ er þetta Spliinng?
„Spliinng! Þetta reddast …“
Spliinng er hlátur, redding, leikur, húmor, söngur, al-
vara og uppfræðsla. Spliinng er leikdagskrá tileinkuð Ís-
lendingnum í kreppunni, það er að segja, okkur öllum.
„Við Guðmundur Ólafsson fórum af stað í vor og
ákváðum að byrja á því að sanka að okkur sögum um það
hvernig „ástandið“ færi í fólk,“ segir Þór Tulinius, leikari
og leikstjóri, um Spliinng. Ástandið er auðvitað kreppan;
þeir heimsóttu Vinnumálastofnun, töluðu við atvinnu-
lausa, vinnandi, veðsetta, skulduga og venjulega Íslend-
inga og fléttuðu sögurnar í dagskrána.
„Úr þessu varð skemmtileg samsuða af sögum úr nú-
tímanum og stúdíu á því hver Íslendingurinn er. Þú
þekkir það: vinnusemin, afneitunin, reddararnir … við
skoðum þetta allt. Á köflum er sýningin líka námskeið,
heilmikill söngur og alls konar skemmtilegheit önnur.“
Þór, Guðmundur og leikaralið þeirra tóku stikkprufu í
vor og efndu til örfárra forsýninga á dagskránni. Í kvöld
hefjast hins vegar eiginlegar sýningar dagskrárinnar, og
þær verða í Iðnó. Frumsýningin í kvöld hefst kl. 20.
Nálgast efnið með léttleika og léttri alvöru
„Við tökum púlsinn á þessu ástandi eins og það er og
frá öllum mögulegum sjónarhornum. Við leikum okkur
auðvitað að því að komast að niðurstöðum, en við gerum
grín að þeim samt. Það eru auðvitað dramatískar sögur
úr nútímanum í verkinu, en við reynum að nálgast efnið
með léttleika og léttri alvöru. Við tölum til dæmis um
áfallastigin sem fólk upplifir; til dæmis gremjuna, en not-
um kómík til þess. Við viljum að fólk geti komið og um
leið dottið út úr þyngslum kreppunnar og hversdagslífs-
ins. Þetta er skopleg sýning en líka líknandi.“
Þór og Guðmundur hafa bætt við sýninguna frá því í
vor. „Við lifum á tímum þar sem hlutirnir breytast hratt.
Daginn sem biðinni eftir ákvörðun Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins í vor var létt, þá var ýmislegt í verkinu sem virk-
aði ekki lengur. Þá var bara að breyta og það var af
meira en nógu að taka.“
Kómík í kreppurannsóknum
Þór Tulinius og Guðmundur Ólafsson hafa sett saman leikdagskrá um
Íslendinginn í kreppunni Sögur, leikur, söngur, fræðsla en umfram allt léttleiki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spliinng „Þetta er skopleg sýning en líka líknandi,“ segir Þór Tulinius sem hér er með Guð-
mundi Ólafssyni við Iðnó. Frumsýning er í kvöld og sýnt verður frameftir desembermánuði.
„LISTIN er hjartað, eg lati úr og gevi tær.“
Þetta er yfirskriftin á sýningu færeysku lista-
konunnar Sigrúnar Gunnarsdóttur í Galleríi
Fold, sem opnuð verður á laugardag. Sigrún
verður ekki ein í Fold, því með henni sýnir ís-
lenska listakonan Gunnella.
Báðar sækja þær viðfangsefni sín í mann-
eskjuna, hversdagsleikann og það sem áhrif
hefur á þær, en niðurstaða þeirra hvorrar um
sig er engu að síður ólík.
„Ég sæki innblástur í það sem gerist í kring-
um mig, bækur, bíómyndir og fleira,“ segir
Sigrún, en yfirskrift sýningar hennar mætti
útleggja sem: Listin er hjartað, ég tek úr því
og gef þér.
„Ég er líka mjög upptekin af því að byggja
brýr milli fólks. Það er erfitt að vera þess lags
brúarsmiður vegna þess að mannskepnan er
svo flókin. Við segjum ekki alltaf það sem við
hugsum. Ég lít líka á samstarf mitt við Ísland
sem brúarsmíði. Verkin mín eru fígúratíf – ég
hef aldrei verið mikill landslagsmálari. Ég er
hrifnari af því að mála fólk, og þá út frá sjálfri
mér, líðan minni og því sem ég er að hugsa
hverju sinni.“
Fólkið, fortíðin og eigin hugarheimur
Gunnella sýnir líka olíumálverk og í mynd-
um hennar er manneskjan einnig í öndvegi.
„Landið, sagan, fólkið og fortíðin gefa mér inn-
blástur. Stundum er það gömul ljósmynd sem
kveikir hugmynd. Þegar ég byrja svo að mála
spinnst eitthvað fleira inn í myndefnið, oft eitt-
hvað sem ég man sjálf frá því ég var krakki
eða eitthvað úr mínum eigin hugmyndaheimi.“
Gunnella veit ekki í upphafi verks hvernig
myndin kemur til með að líta út; hún teiknar
myndina ekki, byrjar strax að mála. „Tíminn
sem fer í hverja mynd er líka breytilegur.
Stundum er ég í mjög góðu sambandi við
myndefnið og allt gengur snurðulaust fyrir sig,
en stundum næ ég engu sambandi við hálfklár-
aðar myndir og allt verður stopp. Þá legg ég
þær myndir til hliðar og hvíli þær en tek þær
kannski fram eftir langan tíma. Þá sé ég
kannski hvað vantar uppá og vinn það. Það
kemur þó líka fyrir að mér finnst engu að
bjarga, og þá er bara að mála yfir og byrja upp
á nýtt,“ segir Gunnella.
Hún samsinnir því að margt sé líkt með hug-
arheimi þeirra Sigrúnar. „Jú, það er ákveðinn
strengur á milli okkar. Við erum báðar að mála
fígúratívar myndir, en förum þó mjög ólíkar
leiðir í túlkun. Hún málar stóra hreina fleti, en
ég er meira í smáatriðunum. Við erum þó á
svipuðum slóðum.“ begga@mbl.is
Förum ólíkar leiðir
Sigrún Gunnarsdóttir listmálari frá Færeyjum og
íslenski listmálarinn Gunnella sýna í Galleríi Fold
Morgunblaðið/Golli
Brúarsmíði Sigrún Gunnarsdóttir og Gunnella eiga sameiginlegan streng, en eru þó ólíkar.
LÍK skulu gjöld gjöfum, segir í
Hávamálum og víst er að útvarps-
útsendingar frá sýningum Metropo-
litan-óperunnar til Skotlands hafa
glatt Monu Webster meira en lítið,
því fyrir andlát sitt ánafnaði hún
Metropolitan-óperunni andvirði
tæps milljarðs íslenskra króna í
þakklætisskyni fyrir útvarpsútsend-
ingarnar sem hún hafði hlýtt á á
laugardagskvöldum heima hjá sér
áratugum saman.
Mona Webster lést í ágúst, 94 ára
gömul. Hún fæddist á Isle of Man,
þar sem faðir hennar var vitavörður,
ólst upp á Orkneyjum en bjó á efri
árum í Edinborg. Hún átti tvö
áhugamál í lífinu, fugla og óperur.
Hún giftist manni í fjárfest-
ingabransanum er lést 1981 og þau
voru barnlaus. Sjálf var hún skrif-
stofumaður á skattinum lengstan
hluta starfsævinnar og lifði fábrotnu
lífi með manni sínum en fór í ferða-
lög til að skoða fugla. Bresk fugla-
verndunarsamtök fengu jafnháa
upphæð og Metropolitan-óperan.
Átti bara grammófón
Þegar Mona Webster tilkynnti
Metropolitan-óperunni á sínum tíma
að hún hygðist gefa óperuhúsinu
stóra gjöf að sér genginni vildu
fulltrúar óperuhússins auðvitað allt
fyrir hana gera og ætluðu sér að
gleðja hana á móti með því að senda
henni fuglabækur, geisladiska og
mynddiska, en því miður átti Mona
Webster ekki græjur til að skoða
slíkar gersemar, svo grafa varð upp
gamlar LP-plötur til að senda henni.
Fulltrúi Metropolitan-óperunnar
segir í viðtali við New York Times að
svo vel hafi Mona Webster fylgst
með útsendingunum frá Metropolit-
an-óperunni að hún hafi fyrir andlát-
ið munað vel eftir sýningum sem
voru á dagskrá árið 1939.
begga@mbl.is
Gjafmild við
söngfuglana
Gaf Metropolitan-
óperunni milljarð
Örlát Webster óperuunnandi.
Þau sem leika og syngja í Spliinng eru auk
þeirra Þórs Tulinius og Guðmundar Ólafs-
sonar; Arndís Hrönn Egilsdóttir, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir og Höskuldur Sæ-
mundsson og Pálmi Sigurhjartarson er pí-
anóleikari sýningarinnar.
Daginn áður en leikdagskráin Spliinng
var forsýnd í vor, voru 17.380 manns á Ís-
landi á atvinnuleysisskrá samkvæmt upp-
lýsingum á vef Vinnumálastofnunar. Í gær,
daginn fyrir frumsýningu verksins, voru
þeir 15.165. Það liggur því fyrir að hvað
sem þetta Spliinng er, þá hefur það áhrif.
Spliinng hefur augljós áhrif