Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 40
„VIÐ Guðmundur Ólafsson leikari fórum af stað í vor
og ákváðum að byrja á því að sanka að okkur sögum
um það hvernig „ástandið“ færi í fólk,“ segir Þór Tul-
inius leikari. Útkoma þessarar mannlífsstúdíu þeirra
félaga varð leikdagskráin „Spliinng“ sem tileinkuð er
Íslendingum í kreppunni og var frumsýnd í Iðnó í gær.
Stúdía á því hver Íslendingurinn er
Þeir Þór og Guðmundur taka hinn stereótýpíska Ís-
lending fyrir í sýningunni og flétta saman sögum úr
samtímanum, bæði hádramatískum og meinfyndnum.
Efnið er útfært af léttri alvöru og er stefnan sú að
áhorfendur geti dottið inn í sýninguna og um leið út úr
hversdagslífinu og þyngslunum eins og allir þurfa á að
halda öðru hverju. Sýnt verður út desember. | 31
Skopleg en líknandi
kreppusýning
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kreppukómík Þeir Þór Tulinius og Guðmundur Ólafs-
son taka púlsinn á ástandinu frá öllum sjónarhornum.
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 316. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
123,84
206,3
118,39
25,011
22,226
18,182
123,27
1,3776
198,49
186,13
Gengisskráning 11. nóvember 2009
124,14
206,8
118,74
25,084
22,291
18,235
123,61
1,3816
199,08
186,65
239,4573
MiðKaup Sala
124,44
207,3
119,09
25,157
22,356
18,288
123,95
1,3856
199,67
187,17
Heitast 7°C | Kaldast 1°C
Austan 8-18 m/s,
hvassast við suður-
ströndina. Súld sunnan-
og austantil, úrkomulít-
ið norðan- og vestanlands. »10
Gerður Kristný
fléttar saman
skemmtilegri sögu
og þjóðlegum fróð-
leik í nýjustu bók
sinni. »33
BÆKUR»
Fræðandi
skemmtun
KVIKMYNDIR»
Butler er slakur í Law
Abiding Citizen. »36
Norræna húsið blæs
um helgina til suð-
rænnar og sjóðheitr-
ar tónlistarveislu
með flytjendum úr
norðri. »36
TÓNLIST»
Sjóðandi
suðrænt
TÓNLIST»
Mugison í ferð með
Björgvini. »32
TÓNLIST»
Tón- og lagalisti breytist
lítið sem ekkert. »37
Menning
VEÐUR»
1. Lést í lyftustokki
2. Var lasin og reið á borgarafundi
3. Íslenskar stúlkur enn í haldi
4. Rekin fyrir að vera í of stuttum kjól
Íslenska krónan hélst óbreytt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Kvikmyndin
Heiðin eftir Einar
Þór Gunnlaugs-
son hefur verið
valin á India Int-
ernational Women
Film Festival 2009,
sem haldin er dag-
ana 15.-22. desember. Myndin er
sýnd í flokknum Karlmannsrödd eða
„Male Voice“ sem er sérstakur
keppnisflokkur mynda eftir karlleik-
stjóra en hátíðin er annars lögð und-
ir myndir kvenna. Heiðin er á tölu-
verðu flakki erlendis um þessar
mundir, verður m.a. sýnd í New
York, Berlín og Terni á Ítalíu.
KVIKMYNDIR
Einar Þór er karlmannsrödd
á kvikmyndahátíð í Indlandi
„Ég hef fundið
fyrir víðtækum
stuðningi í sumar
og í haust og það
var mér hvatning
og ég ákvað í fram-
haldinu að gefa
kost á mér til emb-
ættisins,“ sagði Ólafur Rafnsson,
forseti Íþrótta- og ólympíusam-
bands Íslands, þegar hann tilkynnti
um framboð til embættis forseta
Körfuknattleikssambands Evrópu.
Ólafur er fyrstur til þess að lýsa yfir
framboði en kjörið fer fram eftir
hálft ár. Hann hefur setið í stjórn
sambandsins síðustu sjö ár.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Hefur fundið fyrir
víðtækum stuðningi
Nemendafélag
Menntaskólans við
Hamrahlíð stendur
nú fyrir góðgerðar-
viku nemenda til
styrktar Barna- og
unglingageðdeild
Landspítalans,
BUGL. Markmið vikunnar er að
styrkja gott málefni og um leið að
hafa gaman af og rennur allur ágóði
óskiptur til deildarinnar. Meðal
þeirra sem leggja málefninu lið er
Unnsteinn Manuel Stefánsson,
söngvari hljómsveitarinnar Retro
Stefson, en hann hefur heitið því að
aflita á sér hárið fyrir 25.000 kr.
GÓÐGERÐARMÁL
Unnsteinn Manuel aflitar
á sér hárið fyrir BUGL
Morgunblaðið/Kristinn
Af himnum ofan Þyrla Gæslunnar flutti efnið út í varphólmann við Útskálakirkju þar sem vaskir menn tóku á móti.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„KRÍAN kemur til að verpa, ég hef
ekki áhyggjur af því, nema sílamáv-
urinn og veiðibjallan flæmi hana í
burtu,“ segir Vil-
helm Guðmunds-
son, fyrrverandi
útgerðarmaður í
Garði. Hann hef-
ur ásamt félögum
sínum unnið að
því að byggja
upp lítinn varp-
hólma í Út-
skálasíki. Þeir
fengu þyrlu
Landhelgisgæsl-
unnar í gær til að flytja efni út í
hólmann.
Kría verpti alltaf í hólmanum í
Útskálasíki. Þegar hólminn sökk
var flutt efni þangað á ís og honum
haldið þannig við. Hólminn hefur
haldið áfram að síga svo nú standa
aðeins nokkrir steinar upp úr á
sumrin og ekki nóg til að krían geti
verpt þar.
Velviljaðir hjá Gæslunni
Vilhelm er alinn upp í Garð-
húsum, skammt frá Útskálum og
hefur áhuga á umhverfinu. Hann er
í hópi manna sem mæta í morgun-
kaffi hjá Tryggva Einarssyni sem
rekur gröfuþjónustu í Garðinum.
Þeir ákváðu að laga hólmann en
gekk illa að flytja þangað efni með
þeim tækjum sem þeir réðu yfir.
Síkið er salt og það hefur ekki lagt í
mörg ár. Ásmundur Friðriksson
bæjarstjóri mætir stundum í kaffið
og hann fékk Landhelgisgæsluna til
að aðstoða þá við málið. „Þeir eru
alltaf velviljaðir hjá Gæslunni og
gátu sett upp æfingu og aðstoðað
okkur um leið,“ segir Ásmundur.
Þyrlan flutti sex fiskikör af grjóti
út í hólmann og hækkaði hann veru-
lega við það. „Við reynum að bæta
ofan á hann ef þetta dugar ekki,“
segir Vilhelm.
Krían hefur átt erfitt uppdráttar í
nágrenni Garðs undanfarin tvö ár
vegna skorts á æti í sjónum. Vil-
helm vonast til að ástandið lagist og
hún geti nýtt sér hólmann.
„Maður verður að hafa eitthvað
að gera í ellinni,“ segir Vilhelm en
hann er 72 ára og hefur ræktað eig-
in garð vel og látið ýmis verkefni í
umhverfinu til sín taka.
Laga varphólma á Útskálum
til að hafa kríuna góða
Gæsluþyrlan að-
stoðaði félagana
úr morgunspjall-
inu hjá Tryggva
Vilhelm
Guðmundsson
Í HNOTSKURN
»Átta til tíu karlar, ungir oggamlir, koma í morg-
unkaffi hjá Gröfuþjónustu
Tryggva Einars. Þar eru
landsmálin og heimsmálin
rædd og leyst. Körlunum er
umhugað um velferð kríunnar
en mávurinn er ekki vinsæll.
BUBBI Morth-
ens hefur samið
nokkur jólalög og
stefnir á upp-
tökur eftir ára-
mót með nokkr-
um traustum
samstarfs-
mönnum, þ. á m.
Pétri Hallgríms-
syni. Auk eigin
laga hyggst hann taka upp nokkur
lög af jólaplötu Hauks frænda síns
Morthens, Hátíð í bæ. Platan mun
verða með kántrísniði. | 32
Bubbi sem-
ur jólalög
Bubbi Í jólagírnum.