Skinfaxi - 01.02.2011, Side 3
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Á þessu ári á Þrastaskógur, sem stendur á
Öndverðarnestorfunni við Sogið í Árnessýslu,
eitt hundrað ára afmæli. Það var 18. októ-
ber 1911, á 76 ára afmælisdegi sínum, sem
athafnamaðurinn Tryggvi Gunnarsson
afhenti UMFÍ gjafabréf þar sem fram kom
að landsvæðið væri 140 ½ vallardagslátta
og álitið hentugt til skógræktar.
Ástæða þess að Tryggvi gefur hreyfing-
unni landsvæðið er sú að hann hafði frétt af
þeim áhuga ungmennafélaga að vilja leggja
stund á skógrækt. Það fylgdi gjafabréfinu
að landspilduna megi Ungmennafélag
Íslands hvorki selja né veðsetja. Þessi gjöf
Tryggva var stór og höfðingleg og um leið
mikil viðurkenning í garð Ungmennafélags
Íslands. Frá upphafi hefur ungmennafélags-
hreyfingin lagt mikla rækt við svæðið sem í
dag er óneitanlega ein af dýrmætustu
gróðurperlum landsins og dýrasta eign í
eigu Ungmennafélags Íslands.
Nafn sitt, Þrastaskógur, fékk skógurinn
árið 1913 en hugmyndina að nafninu átti
Guðmundur Davíðsson sem varð formaður
UMFÍ 1914 og var mikill aðdáandi og vel-
gjörðarmaður skógarins. Rökstuddi Guð-
mundur nafngiftina með því að skógarþrest-
irnir kynnu einstaklega vel við sig í skógin-
um og gæfu honum mikið líf. Keyptu menn
þessi rök og nafnið Þrastaskógur var tekið
gilt.
Þrastaskógur sker sig úr að því leyti að
þar er engin byggð fyrir utan veitingastað-
inn Þrastalund sem er einnig í eigu Ung-
mennafélags Íslands. Mikil ásókn hefur ver-
ið í að fá að byggja sumarhús í skóginum en
stjórn UMFÍ hefur þvertekið fyrir slíkt hvort
sem í hlut hafa átt menn innan hreyfingar-
innar eða utan hennar.
Ungmennafélagar víða af landinu hafa
verið duglegir við að gróðursetja í skógin-
um frá upphafi. Í dag er skógurinn orðinn
mjög þéttur og er hann grisjaður reglulega.
Búið er að leggja merkta göngustíga um
skóginn sem nýtast til gönguferða hvort
heldur er á sumrin eða veturna, m.a. fyrir
skíðagöngu. Stór grasflöt er inni í skóginum.
Flötinni var í upphafi ætlað það hlutverk að
vera íþróttavöllur en í dag er hún nýtt sem
tjaldsvæði og til leikja.
Náttúruperla UMFÍ
Ungmennafélag Íslands mun halda upp
á 100 ára afmæli skógarins með ýmsum
hætti sem verður kynnt á réttum tíma-
punkti. Afmælisnefnd er að störfum og
vitað er að hún hefur t.d. hugmyndir um að
í haustblaði Skinfaxa verði umfjöllun um
Þrastaskóg og sögu hans gerð skil.
Þrastaskógur er mikil náttúruperla sem á
sér langa og merkilega sögu sem vert er að
minnast og um leið að þakka öllu því frá-
bæra fólki sem hefur unnið margar stundir í
sjálfboðaliðavinnu við að gera skóginn að
slíku djásni sem hann er. Öllu þessu ágæta
fólki verður ungmennafélagshreyfingin
ævinlega þakklát.
Ég óska ungmennafélögum til hamingju
með afmæli Þrastaskógar og vil hvetja alla
þá sem ekki hafa notið þess að upplifa
Þrastaskóg að gera það hið fyrsta. Ganga
um skóginn og enda síðan góða útivist
með því að fá sér kakó og meðlæti í Þrasta-
lundi.
Íslandi allt!
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
Þriðja úthlutun styrkja úr Umhverfissjóði
UMFÍ, Minningarsjóði Pálma Gíslasonar
– formanns UMFÍ 1979–1993, fór fram 10.
mars sl. í þjónustumiðstöð Ungmenna-
félags Íslands við Sigtún í Reykjavík. Við
athöfnina flutti formaður UMFÍ, Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, ávarp og Stella
Guðmundsdóttir, ekkja Pálma Gíslasonar,
afhenti styrkina.
Stjórn sjóðsins komst að þeirri niður-
stöðu að veita tvo styrki úr sjóðnum að
þessu sinni:
Héraðssamband Vestfirðinga fékk kr.
175.000 í verkefni sem unnið er í tilefni af
10 ára afmæli HSV, að koma upp svokölluð-
um HSV-skógarlundi. Hugmyndin með
Þriðja úthlutun úr Umhverfissjóði UMFÍ
Frá vinstri: Sædís Valdemarsdóttir, fulltrúi USÚ,
Ari Hólmsteinsson, fulltrúi HSV, Stella Guð-
mundsdóttir, ekkja Pálma Gíslasonar, og
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
lundinum er að gera framtíðarútivistar-
svæði fyrir almenning og íþróttafélög í
Ísafjarðarbæ þar sem verði gönguleiðir
ásamt opnum svæðum til leikja og til að
grilla o.s.frv. Einnig á að vera markmið að
auka vitund aðildarfélaga HSV hvað varð-
ar umhverfissjónarmið og nærumhverfið.
Ungmennasambandið Úlfljótur – Umf.
Sindri fékk kr. 175.000 í verkefni til að
undirbúa gróðurbelti kringum gervigras-
völl til að skapa skjól fyrir vetraráttum.
Aðalfundur Vest Nordisk
Ungdomsforum, VNU:
Skrifað undir
nýjan sam-
starfssamn-
ing
Aðalfundur VNU, Vest Nordisk Ungdoms-
forum, var haldinn á Íslandi um helgina
19.–20. mars. VNU er samstarfsvettvang-
ur Íslands, Grænlands og Færeyja á sviði
æskulýðsmála. Fundurinn var haldinn í
þjónustumiðstöð UMFÍ og sóttu hann,
auk fulltrúa frá UMFÍ, fulltrúar frá FUR í
Færeyjum og Sorlak í Grænlandi.
Skrifað var undir nýjan samstarfssamn-
ing þessara aðila á fundinum og sam-
starf og verkefni fyrir ungt fólk rædd.
Líkur eru á að hópar frá bæði Grænlandi
og Færeyjum komi til Íslands í sumar og
taki þátt í verkefni með UMFÍ.
Fundinn sátu frá UMFÍ Garðar Svans-
son, Haukur Valtýsson og Ómar Bragi
Stefánsson. Frá FUR í Færeyjum sátu
fundinn Hans Anfinnson Norðfoss og
Asta Abrahamsen og frá Sorlak á Græn-
landi Kaalinnguaq Siegstad og Asiarpak
Frederiksen Lund.
Frá undirritun samstarfssamnings VNU.
Frá vinstri: Kaalinnguaq Siegstad (Sorlak), Helga
Guðrún Guðjónsdóttir (formaður UMFÍ), og Hans
Anfinnson Norðfoss (FUR).