Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2011, Síða 20

Skinfaxi - 01.02.2011, Síða 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Ungmennasamband Vestur–Húnvetninga, USVH, var stofnað 28. júní 1931 og fagn- ar því 80 ára afmæli á þessu ári. Svæði ungmennasambandsins nær yfir alla Vestur–Húnavatnssýslu eða sveitarfélag- ið Húnaþing vestra. Félögin innan sam- bandsins eru sex talsins og félagar rúm- lega eitt þúsund. Guðmundur Haukur Sigurðsson, formaður USVH, segir starf- semina ganga vel. Starfið fer að mestu fram úti í einstökum félögum og skipta þau íþróttagreinunum á milli sín. „Kormákur hefur að mestu séð um körfubolta og fótbolta, sund og frjálsar íþróttir hafa verið hjá Sundfélaginu Hún- um og Hestamannafélagið Þytur hefur haldið úti miklu og öflugu barna- og unglingastarfi. Hestamannafélagið var sérstaklega verðlaunað fyrir tveimur ár- um af Landssambandi hestamanna fyrir gott starf með unglingum,“ sagði Guð- mundur Haukur. „Héraðssambandið hefur staðið að út- gáfu Húna allar götur síðan 1976. Í blað- inu eru fréttir úr sýslunni, frásagnir af ýmsu tagi, ljóð og annar fróðleikur. Þá er sagt frá því hverjir eru að fermast og látinna minnst. Ritnefnd innan héraðssambands- ins sér um efni blaðsins sem hefur alla tíð notið mikilla vinsælda.“ – Þegar þú lítur yfir farinn veg, finnst þér starfið hjá ykkur hafa tekið breytingum? „Mér finnst inntakið vera að mörgu leyti það sama. Íþróttastarfið er alltaf mikið en samt sem áður hefur líka verið unnið gott starf á öðrum sviðum. Félögin standa fyrir ýmsum atburðum og má í því sambandi nefna þorrablót, atburði í kringum sumardaginn fyrsta, leiklist og svo eru félagsvistir og ýmsar aðrar uppá- komur. Síðan eru félögin eignaraðilar að öllum þremur félagsheimilunum í sveitar- félaginu. Ég sé svona í fljótu bragði ekki mikla breytingu á starfinu í gegnum tíð- ina,“ sagði Guðmundur Haukur. Aðspurður segist Guðmundur Haukur hafa verið tengdur ungmennafélags- hreyfingunni í nálægt 45 ár. Hann hefur verið formaður USVH í þrjú ár en starfaði með USAH þegar hann bjó á Skagaströnd á sínum yngri árum. Hann var ennfremur í stjórn UMFÍ um átta ára skeið á níunda áratug síðustu aldar. Hann segist hafa orð- ið faðir á seinni árum og á 16 ára stúlku sem hann hefur fylgt eftir og það er ástæða þess að hann fór að koma aftur að starfinu innan hreyfingarinnar. – Hvernig hefur gengið að fá fólk til starfa hjá USVH? „Það gengur yfirleitt nokkuð vel. Maður heyrir samt úti í félögunum að stundum sé erfitt að fá fólk í stjórnir og ráð. Fólk vill fá þjónustuna en er ekki endilega tilbúið til starfa. Það er ekki hægt að kvarta undan ungmennasambandinu því að þar höfum við verið með öfluga stjórn. Maður heyrir frá sumum félögum að það gangi svolítið illa að endurnýja í stjórnum.“ EINBEITUM OKKUR AÐ STARFINU MEÐ BÖRNUM OG UNGLINGUM Guðmundur Haukur Sigurðsson, formaður Ungmennasambands Vestur–Húnvetninga: Guðmundur Haukur Sigurðsson, for- maður USVH, og Anna María Elías- dóttir, framkvæmda- stjóri USVH.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.