Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
UMFÍ:
Nú styttist óðfluga í sumar-
ið og margir hugsa sér til
hreyfings. Ungmennafélag
Íslands stendur fyrir nokkr-
um áhugaverðum verkefn-
um eins og undanfarin ár.
Mjög góð þátttaka var í verkefnum sem UMFÍ
bauð upp á sl. sumar og má í því sambandi
nefna að yfir 15 þúsund manns tóku þátt í
verkefninu Fjölskyldan á fjallið.
„Ég er mjög bjartsýnn á þátttöku almenn-
ings í þeim verkefnum sem við bjóðum upp
á í sumar. Þátttakan var einstaklega góð í
fyrrasumar. Eins og áður verður hægt að
nálgast helstu upplýsingar á gönguvefnum
ganga.is. Eins og endranær verður gefin út
göngubók og henni dreift um land allt. Ég
hvet fólk til þátttöku og við leggjum mikið
upp úr því að fjölskyldan taki þátt,“ sagði
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi UMFÍ,
í samtali við Skinfaxa.
Hér hefur verið tekið saman
hvaða verkefni standa
almenningi til boða í sumar.
Ganga.is
Flott heimasíða sem er alltaf
verið að bæta. Á vefnum
ganga.is gefur að líta
ýmsan fróðleik um hvað
beri að hafa í huga þegar
farið er af stað í gönguferð
eða fjallgöngu. Á vefnum
má finna fjölda stuttra og
langra gönguleiða um allt
land sem og upplýsingar um þau fjöll sem
sambandsaðilar mæla sérstaklega með að
þátttakendur í verkefninu Fjölskyldan á fjall-
ið gangi upp á. Lagt er upp með að fjölskyld-
an hreyfi sig saman í fallegri náttúru. Inni á
vefnum ganga.is er einnig hægt að finna
upplýsingar um ýmislegt, m.a. helstu sund-
laugar og golfvelli landsins sem gefur góða
yfirsýn yfir þá þjónustu sem er fyrir hendi á
hverjum stað. Ganga.is-heimasíðan mun
áfram halda utan um skráningarkerfið sem
tengist verkefninu Hættu að hanga! – Komdu
að hjóla synda eða ganga! sem verður sett í
annað skiptið nú í sumar.
Göngubókin
Göngubókin Göngum um Ísland kemur út í
vor. Bókin hefur að geyma 278 stuttar göngu-
leiðir og 24 fjöll sem í boði eru í verkefninu
Fjölskyldan á fjallið. Í bókinni er að finna ýms-
ar upplýsingar sem gott er að hafa í huga
áður en lagt er af stað í gönguferð, hvort
sem um er að ræða stutta eða langa. Bókin
er prentuð í 20 þúsund eintökum og verður
henni dreift á allar N1-stöðvar á landinu, all-
ar sundlaugar og á helstu ferðamannastaði.
Fjölskyldan á fjallið
Verkefnið Fjölskyldan á fjallið verður áfram í
sumar en síðasta sumar var gríðarlega góð
þátttaka í því og um 15 þúsund manns skrif-
uðu nöfn sín í gestabækur sem voru á 24
fjöllum. Flest þessara fjalla eiga það sam-
eiginlegt að vera tiltölulega létt að ganga
á. Markmiðið er að fá fjölskyldur í létta
fjallgönguferð og stuðla þannig að auk-
inni samveru, útivist og um leið líkamsrækt
innan fjölskyldunnar. Göngugarpar voru
hvattir til að skrifa nöfn sín í gestabæk-
urnar á fjöllum. Á hverju hausti er síðan
dregið úr hópi þátttakenda og hljóta hinir
heppnu sérstök verðlaun. Hægt er að sjá
þau fjöll sem eru í verkefninu á ganga.is eða
í göngubókinni Göngum um Ísland.
Hættu að hanga!
– Komdu að hjóla,
synda eða ganga!
Hættu að hanga! – Komdu að hjóla, synda
eða ganga! er verkefni sem fór fram í fyrsta
skipti síðastliðið sumar. Megintilgangur verk-
efnisins er að hvetja einstaklinga, fyrirtæki,
fjölskyldur og hópa til að hreyfa sig og stunda
heilbrigða lifnaðarhætti. Þátttakendur skrá
þá hreyfingu sem þeir stunda inn á vefinn
ganga.is, ef þeir hjóla 5 km, synda 500 m,
ganga eða skokka 3 km og fyrir að ganga á
fjöll. Fyrir að hreyfa sig í 30 skipti fá þátttak-
endur bronsmerki, silfurmerki fyrir 60
skipti og gullmerki fyrir 80 skipti. Einnig
eiga þátttakendur kost á öðrum veg-
legum verðlaunum fyrir þátttöku
sína. Öllum er heimil þátttaka, óháð
aldri, en hægt er að velja milli
þátttöku í einstaklingskeppni,
hópakeppni eða fyrirtækja-
keppni. UMFÍ hvetur alla til að
taka þátt í verkefninu Hættu að hanga!
– Komdu að hjóla, synda eða ganga! í sumar.
Frjálsíþróttaskóli
UMFÍ
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ hefur notið mikilla
vinsælda undanfarin ár. Skólinn verður hald-
inn í sumar á nokkrum stöðum á landinu
og þeir staðir hafa verið auglýstir á heima-
síðu UMFÍ.
Frjálsíþróttaskólinn er ætlaður ungmenn-
um á aldrinum 11–18 ára. Komið er saman
á hádegi á mánudegi en skólanum lýkur á
hádegi á föstudegi í sömu viku. Aðaláhersla
er lögð á kennslu í frjálsum íþróttum. Auk
frjálsra íþrótta er farið í sund, leiki, óvissu-
ferðir og haldnar kvöldvökur. Ungmenna-
félag Íslands hefur yfirumsjón með fram-
kvæmd skólans og annast sameiginlega
kynningu á starfseminni. Sambandsaðilar
á því svæði þar sem skólinn er haldinn
hverju sinni sjá um að finna kennara og
aðstoðarmenn til starfa við skólann. Lagt
er upp með að hafa fagmenntaða kennara
í kennslu á hverjum stað til að tryggja sem
besta kennslu fyrir ungmennin.
Þátttaka ungmenna hefur aukist umtals-
vert milli ára. Góð þátttaka undirstrikar að
skólinn er ákjósanlegur vettvangur til að
kynna og breiða út frjálsar íþróttir á Íslandi.
Þannig gegnir skólinn mikilvægu hlutverki í
að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþrótta-
iðkunar og styðja fjölmargar rannsóknir þá
fullyrðingu að ungmenni, sem stunda
íþróttir, leiðast síður út í óreglu síðar á lífs-
leiðinni. Síðast en ekki síst öðlast ungmenn-
in tækifæri til að kynnast hvert öðru og
mynda tengslanet og auka hæfni sína í
mannlegum samskiptum.
Verkefni sumarsins