Skinfaxi - 01.02.2011, Qupperneq 35
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 35
Úr hreyfingunni
Héraðsþing HSK var haldið
á Hellu 12. mars sl. og
gengu þingstörf mjög vel
enda móttökur heima-
manna frábærar. Á þing-
inu var gefin út vegleg 80
blaðsíðna ársskýrsla um
starfsemi héraðssambandsins á liðnu ári.
Björg Jakobsdóttir, varaformaður UMFÍ,
og Örn Guðnason, ritari UMFÍ, sátu þingið.
Jóhannes Sigmundsson var kosinn
heiðursformaður HSK. Þetta er í annað
sinn í 100 ára sögu sambandsins sem
kosinn er heiðursformaður HSK. Fyrst var
það árið 1966, þegar Sigurður Greipsson
hlaut þann heiður, en það ár lét hann af
formennsku. Þegar Guðríður Aadnegard
hafði lesið upp tillögu og greinargerð um
kjörið risu fulltrúar og gestir úr sætum og
hylltu Jóhannes með dynjandi lófataki.
Guðmundur Kr. Jónsson var sæmdur
gullmerki HSK og Olga Bjarnadóttir silfur-
merki. Þá fengu hjónin Ásta Laufey Sig-
urðardóttir og Ólafur Elí Magnússon úr
Dímon starfsmerki UMFÍ. Björg Jakobs-
Héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins, HSK:
Jóhannes kosinn heiðursformaður HSK
dóttir, varaformaður UMFÍ, og Örn Guðna-
son, ritari UMFÍ, afhentu þau.
Umf. Selfoss sigraði í heildarstigakeppni
HSK. Selfoss hafði nokkra yfirburði með
245 stig, Hamar varð í 2. sæti með 177,5
stig og skákaði þar með Dímon sem varð
í 3. sæti með 174 stig. Fimleikadeild Umf.
Selfoss hlaut unglingabikar HSK fyrir fjöl-
breytt unglingastarf og Íþróttafélagið
Dímon fékk foreldrastarfsbikarinn fyrir
öflugt foreldrastarf. Handboltamaðurinn
Ragnar Jóhannsson á Selfossi var valinn
Íþróttamaður HSK árið 2010 úr hópi tutt-
ugu tilnefndra íþróttamanna.
Árni Einarsson, Umf. Selfoss, var valinn
öðlingur ársins 2010. Árni verður áttræð-
ur í ár og keppti á árum áður í frjálsum
íþróttum. Á efri árum hefur hann hafið
iðkun aftur og m.a. keppt á Norðurlanda-
meistaramóti og Evrópumeistaramóti öld-
unga í frjálsum.
Miklar og góðar umræður fóru fram í
fjórum starfsnefndum þingsins og nokkr-
ar tillögur urðu til í nefndum.
Guðríður Aadnegard var endurkjörin
formaður HSK og aðrir stjórnarmenn
voru endurkjörnir, utan Helga Kjartans-
sonar sem gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs í varastjórn. Anný Ingimarsdóttir
kemur ný inn í varastjórn, í stað Helga.
Guðríður Aadnegard,
formaður HSK, og
Jóhannes Sigmunds-
son, heiðursformað-
ur HSK.
Björg Jakobsdóttir, varaformaður UMFÍ, (t.v.) og Örn Guðnason, ritari
UMFÍ (t.h.), ásamt Ólafi Elí Magnússyni og Ástu Laufey Sigurðardóttur,
sem fengu starfsmerki UMFÍ.
Íþróttafólk ársins innan HSK ásamt formanni
HSK, Guðríði Aadnegard (lengst til vinstri).
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar og Jón Páll
Hreinsson, formaður Héraðssambands
Vestfirðinga, hafa skrifað undir sam-
starfssamning og verkefnasamning.
Samningar sem þessir hafa verið í gildi
undanfarin ár og hafa vakið athygli og
eftirtekt á landsvísu.
Samstarfssamningurinn hljóðar alls
upp á 10,2 m.kr. og felur í sér framlag
bæjarins vegna skrifstofuhúsnæðis,
þjálfarastyrkja, húsaleigu- og æfinga-
styrkja og framlög í afreksmannasjóð.
Verkefnasamningurinn felur í sér rekstr-
arstyrk frá Ísafjarðarbæ að fjárhæð 6,7
m.kr. sem verður ráðstafað sem rekstrar-
HSV og Ísafjarðarbær skrifa undir samstarfs- og verkefnasamning
framlagi til aðildarfélaga HSV. Stjórn HSV
sér um að ráðstafa rekstrarframlaginu
milli félaga með tilliti til umfangs barna-
og unglingastarfs þeirra. Aðildarfélög
HSV taka á móti að sér einstaka verk-
efni, svo sem þrif á fjörum, umsjón
með golfvöllum, vinnu við Skíðaviku
og 17. júní, þrif eftir áramót og fleira.
Frá undirritun sam-
starfssamnings HSV
og Ísafjarðarbæjar.