Morgunblaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 45
Dagbók 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
1
5 1
9 7 2
9 8
4 5
3 7 2
8 6 1
2 1 6 7
3 5 4
5 7
9
3 4 8
6 8 1 3
2 3 6 4
7 4 9
2 7 1
5 4
9 2
9 1
2 8 3
7
7 2 4
3 5 6 2
3 7 5
1 8 4 6
8 7 2
1 5 4 2 6 9 3 7 8
7 6 3 4 8 1 9 5 2
8 9 2 7 3 5 4 1 6
5 8 6 9 2 3 1 4 7
4 1 9 5 7 8 6 2 3
3 2 7 6 1 4 8 9 5
6 4 5 3 9 2 7 8 1
2 7 1 8 4 6 5 3 9
9 3 8 1 5 7 2 6 4
1 7 5 8 6 2 3 9 4
6 2 4 5 9 3 8 1 7
3 8 9 7 1 4 2 6 5
5 4 6 3 8 9 1 7 2
2 9 7 1 5 6 4 8 3
8 3 1 2 4 7 6 5 9
9 5 8 4 2 1 7 3 6
7 1 2 6 3 5 9 4 8
4 6 3 9 7 8 5 2 1
5 8 7 3 2 1 4 9 6
2 1 4 5 6 9 7 3 8
6 3 9 4 7 8 2 1 5
7 2 8 9 1 6 3 5 4
4 6 1 8 3 5 9 7 2
9 5 3 7 4 2 6 8 1
8 7 2 1 9 4 5 6 3
3 4 5 6 8 7 1 2 9
1 9 6 2 5 3 8 4 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 13. nóvember,
317. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í sam-
anburði við þá dýrð, sem oss mun op-
inberast. (Rm. 8, 18.)
Gera má því skóna að flestum efekki öllum einstaklingum sem
komnir eru til vits og ára hafi orðið á í
messunni á einn eða annan hátt.
Ætla má að flestir geri sér grein fyrir
mistökunum, taki út sína refsingu í
einu eða öðru formi og reyni að læra
af reynslunni. Það er alltaf auðvelt að
dæma aðra en sumir þrífast á því að
velta sér upp úr óförum annarra og
kveikjuþráðurinn virðist óvenju
stuttur þessa dagana.
x x x
Undanfarna viku hefur fjár-málastjóri Knattspyrnu-
sambandsins verið á milli tannanna á
fólki vegna nokkurra ára gamals at-
viks, sem reyndar skaðaði engan
nema hann sjálfan og fjölskyldu
hans. Vissulega gerði viðkomandi
maður hluti sem hann hefði betur lát-
ið ógerða en mistökin kostuðu hann
mikla peninga og sálarangist. Hann
segir að á sér hafi verið brotið, kred-
itkort í hans vörslu hafi verið misnot-
uð. Hann hafi hins vegar fengið upp-
reisn æru með játningu fjögurra
manna og endurgreiðslu að hluta.
Síðan gerist það að í Sviss er dóm-
ur birtur, þar sem kröfu hans á hend-
ur enn einum manni er hafnað en
ákærði dæmdur fyrir önnur brot.
Fjármálastjórinn er nafngreindur og
nokkurra ára gamla málið er blásið
upp hérlendis. Fjallað er um mann-
inn eins og ótíndan glæpamann og
þess jafnvel krafist að stjórn KSÍ
segi af sér vegna málsins.
x x x
Viðbrögðin eru með ólíkindum. Ífyrsta lagi er ráðist á liggjandi
mann og það lýsir best gerendunum.
Í öðru lagi er verið að gera íþrótta-
hreyfinguna og einkum knatt-
spyrnuhreyfinguna tortryggilega
vegna málsins. Í þriðja lagi hefur
starfsmaðurinn þegar tekið út sína
refsingu. Drukkinn þingmaður varð
sér til skammar í haust og með sömu
rökum eru allir þingmenn óalandi og
óferjandi. Á borgarstjórn að segja af
sér verði greint frá því opinberlega
að einhver starfsmaður borgarinnar
hafi hegðað sér ósæmilega? Lítum
okkur nær áður en við dæmum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gleypir í sig, 4
afundnar, 7 barin, 8
kynjuð, 9 lík, 11 mjög, 13
belti, 14 hirðuleysi, 15
hrósað, 17 ófús, 20 tónn,
22 káka, 23 votviðrið, 24
skyldmennið, 25 beiska.
Lóðrétt | 1 vígja, 2 móð-
ir, 3 heimili, 4 skordýr, 5
smá, 6 gler, 10 átölur, 12
upptök, 13 títt, 15 lyfta,
16 girnd, 18 fuglum, 19
skræfa, 20 hafði upp á,
21 digur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 Hofteigur, 8 góður, 9 iglan, 10 iðn, 22 afræð,
13 asnar, 15 hatta, 18 elgur, 21 ull, 22 götum, 23 detta,
24 flandraði.
Lóðrétt: 2 orðar, 3 tárið, 4 ilina, 5 uglan, 6 egna, 7 snýr,
12 æst, 14 sel, 15 hagl, 16 titil, 17 auman, 18 eldar, 19
getið, 20 róar.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O b5 6. Bb3 Bc5 7. a4 Hb8 8. c3 d6
9. d4 Bb6 10. a5 Ba7 11. h3 O-O 12. Be3
exd4 13. cxd4 Re7 14. Rbd2 Bb7 15.
Dc2 Rg6 16. Hfe1 h6 17. e5 Rd5 18.
Had1 Kh8 19. Bxd5 Bxd5 20. Re4 He8
21. Rh2 dxe5 22. dxe5 Bxe3 23. Hxe3
Hxe5 24. Rf3 He7 25. b4 Hd7 26. Rc5
Hd6 27. Hde1 Df6 28. Re5 Hbd8 29.
Rxg6+ fxg6 30. Dc3 Dxc3 31. Hxc3
Hc6 32. Hd3 Hdd6 33. Rb7 Bc4
Staðan kom upp í opnum flokki
heimsmeistaramóts unglinga (20 ára
og yngri) í Puerto Madryn í Argentínu.
Stórmeistarinn Sergey Zhigalko
(2646) frá Hvíta-Rússlandi hafði hvítt
gegn indverska alþjóðlega meist-
aranum P Karthikeyan (2449). 34.
Rxd6! Bxd3 35. He8+ Kh7 36. Rf7! og
svartur gafst upp enda fátt til varnar
þar sem eftir 36…g5 37. Hh8+ Kg6 38.
Re5+ tapar hann hrók.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Búktal.
Norður
♠D92
♥KD
♦G105
♣ÁD1072
Vestur Austur
♠854 ♠K10
♥10987 ♥Á6532
♦ÁD32 ♦987
♣63 ♣G85
Suður
♠ÁG763
♥G4
♦K64
♣K94
Suður spilar 4♠.
Orðið „búktalari“ er venjulega notað
um mann sem talar fyrir lífvana búk.
En þeir menn eru líka til sem tala með
búknum – sínum eigin. Vestur er slíkur
búktalari.
Vestur kom út með ♥10, austur tók á
ásinn og skipti yfir í ♦9. Vestur lyftist í
sætinu, tók tvo slagi á ♦ÁD og spilaði
þriðja tíglinum. Hann vænti þess að
makker trompaði, en austur varð að
fylgja lit. Vestur stundi, sökk djúpt
niður í sætið aftur og hristi höfuðið
mæðulega. Þetta búktal fór ekki
framhjá sagnhafa, sem gerði sér nú
góðar vonir um að ♠K lægi fyrir svín-
ingu. Sagnhafi fór inn í borð á ♣D, spil-
aði smáum spaða og austur lét kóng-
inn! Þá var vestri öllum lokið, hann
henti spilunum inn á mitt borðið og ját-
aði vörnina sigraða. En makker hans
var ekki skemmt.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hrútnum finnst hann ekki hafa
nægar upplýsingar til þess að vinna vinn-
una sína. Ferðaáætlanir með nánum vini
hljóma vel.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Farðu varlega og hafðu aðgát í nær-
veru sálna. Fólki sýnist þú samúðarfull,
góðleg og umhyggjusöm manneskja
þessa dagana.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þótt allt virðist ganga nokkuð
átakalaust fyrir sig núna gæti það breyst
í einni svipan ef þú slakar of mikið á.
Rómantík? Viðskipti? Það er undir þér
komið.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er allt í lagi að baða sig í að-
dáun annarra ef henni er tekið með réttu
hugarfari. Settu mál þitt fram af skyn-
semi og sanngirni.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hleyptu þér ekki í deilur við sam-
starfsmenn þína eða vini, allra síst ef til-
efni er lítilfjörlegt. Mundu að engir tveir
einstaklingar eyða peningum á sama
hátt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þarft að koma á jafnvægi milli
starfs þíns og einkalífs því aðeins þannig
geturðu ræktað og notið hvors um sig.
Hugsaðu málið vandlega og fylgdu því
svo fast eftir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er oft tímafrekt að skoða allar
hliðar mála, en engu að síður nauðsynlegt
til þess að geta tekið réttar ákvarðanir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er skemmtileg spenna í
loftinu í dag. Taktu því fagnandi sem já-
kvætt er en gerðu þér líka far um að læra
af mistökunum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér hættir til í hita augna-
bliksins að missa sjónar á takmarkinu.
Frestaðu mjög mikilvægum fjárfest-
ingum ef þú getur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Hvað hrinti af stað vissum at-
burði skiptir minna máli en að bregðast
við honum. Farðu ekki of geyst í hlutina
þótt þér finnist þú fær í flestan sjó.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hugulsemi vinar gefur til
kynna að hann kunni að meta þig. Leystu
málin og þá geturðu um frjálst höfuð
strokið.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Gleymdu ekki að gefa þér tíma til
að njóta þess sem þú ert að gera. Láttu
það ekkert á þig fá þótt aðrir kvarti.
Stjörnuspá
13. nóvember 1946
Vestmannaeyjaflugvöllur var
formlega tekinn í notkun.
Flugbrautin var 800 metrar á
lengd og var mesta mannvirki
sinnar tegundar sem unnið
hafði verið fyrir íslenskt fé.
13. nóvember 1963
Þriggja alda afmælis Árna
Magnússonar var minnst af
Háskóla Íslands og Handrita-
stofnun.
13. nóvember 1973
Samningur við Breta um lausn
landhelgisdeilunnar var sam-
þykktur á Alþingi, rúmlega
ári eftir útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar í 50 sjómílur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Guðmundur
Ragnar Guð-
mundsson verður
níræður í dag,
13. nóvember.
Hann fæddist í
Fischersundi 1 í
Reykjavík. Guð-
mundur starfaði
lengst af sem
slökkviliðsstjóri á Reykjavík-
urflugvelli hjá Flugmálastjórn eða í
40 ár. Hann mun njóta afmæl-
isdagsins í faðmi fjölskyldunnar.
90 ára
Heiðurshjónin Rósa Ívarsdóttir
og Ragnar Guðmundsson á Brjáns-
læk eiga fimmtíu ára brúðkaups-
afmæli sunnudaginn 15. nóvember
næstkomandi. Af því tilefni blása
þau hjónin til fagnaðar á morgun,
laugardaginn 14. nóvember kl. 20, í
Birkimel á Barðaströnd. Allir vinir
og vandamenn, nær og fjær, hjart-
anlega velkomnir. Þar verður glens
og gaman og dansað.
Gullbrúðkaup
Sigríður Þóra Valgeirsdóttir, fv. prófessor, verður
90 ára, sunnudaginn 15. nóvember. Sigríður er
ekkja Hjörleifs Baldvinssonar prentara, en þau
kynntust í gegnum íþróttafélagið Ármann. Bú-
skap sinn hófu þau í nágrenni við Þingholtin en
byggðu sér seinna heimili í Garðabæ. Þau eign-
uðust þrjú börn; Dagmar Völu, Sigríði og Ingólf.
Um hálfrar aldar skeið starfaði Sigríður Þóra
við menntun kennara, en sjálf lauk hún meist-
araprófi og kennsluréttindanámi frá Kaliforníu-
háskóla í Berkeley. Námið var á sviði hollustu-,
líkams- og sálarfræði sem aðalgreina, en auka-
greinar voru dansmennt og listdanssköpun. Síðar lauk hún dokt-
orsprófi í menntasálfræði og vann að rannsóknum á því sviði. Hún var
fyrsti forstöðumaður Rannsóknarstofnunar KHÍ og HÍ.
Síðari árin hefur Sigríður unnið ritverk um dans, til að varðveita
þjóðararf Íslendinga á því sviði. Hún var stofnandi Þjóðdansafélags
Reykjavíkur árið 1951 og Dansfræðifélagsins árið 1998. Þá hefur hún
gegnt mörgum alþjóðlegum embættum í sínu starfi og við áhugastörf
hjá kvenfélögum í líknar- og menntamálum. Sigríður býr nú í Reykja-
vík og býður vinum og vandamönnum í kaffiboð á afmælisdaginn.
Sigríður Þóra Valgeirsdóttir 90 ára
Vinnur við ritstörf
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is