Morgunblaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 STUNDUM er talað um að nemendur gangi mennta- veginn. En framvegis munu nemendur Háskólans í Reykjavík aka Menntaveginn því það er heitið sem val- ið hefur verið á aðkomugötu og bogagötu að hinni nýju byggingu skólans við Nauthólsvík. Ennfremur hefur verið ákveðið að gata frá Flugvallarvegi í átt að skól- anum heiti Nauthólsvegur og hringtorg á Nauthólsvegi fái heitið Menntatorg . sisi@mbl.is Morgunblaðið/RAX NEMENDURNIR AKA MENNTAVEGINN FRUMVARP um breytingar á fisk- veiðistjórnunarkerfinu sem Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, hefur lagt fram var að miklu leyti samið af Guðjóni Arnari Kristjánssyni, formanni Frjálslynda flokksins, að því er fram kemur á vef flokksins, xf.is. Guðjón Arnar vinnur að sérverkefnum í ráðuneytinu. Þótt Frjálslyndi flokkurinn hafi ekki fengið menn kosna í síðustu al- þingiskosningum er nokkurt starf á hans vegum. Magnús Reynir Guð- mundsson framkvæmdastjóri er í sjálfboðinni vinnu við frágang fjár- mála og ýmislegt stúss, að eigin sögn. Helgi Helgason miðstjórnarmaður heldur heimasíðunni lifandi. Þótt lýst sé ánægju með fisk- veiðistjórnunarfrumvarpið er það tekið fram að frjálslyndir vilji ganga lengra og muni vinna áfram að breyt- ingum í sjávarútvegnum. Hafa enn áhrif í þinginu Segja Guðjón Arnar hafa samið frumvarp „AUKIN skattbyrði á þessu ári og komandi árum er ótvíræð greiðsla fyrir hrunið og at- hafnir útrásarvíkinga svo og siðleysi þeirra sem skotið hafa undan tekjum á liðnum ár- um gagnstætt því sem hin merka tilvitnun gefur fyrirheit um [skattar eru það sem menn greiða fyrir siðað samfélag]. Réttast væri að kalla skattahækkanirnar und- anfarna mánuði réttum nöfnum – útrás- arskatta – lagða á þá sem ekki tóku þátt. Það er engu að síður eftirtektarvert að hin- ir siðfirrtu hafa þó alla jafna kosið að búa í okkar siðaða þjóðfélagi enda eru skattar þar greiddir af öðrum sem hafa þá rótfestu sem gefur þeim styrk til að hlaupast ekki undan sameiginlegum skyldum.“ Þetta segja þeir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri og Ingvar J. Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri í skorinorðum leiðara í ný- útkominni Tíund, riti embættis ríkisskattstjóra. „Þegar staðreyndir liggja fyrir fer fram end- urákvörðun opinberra gjalda að gættum öllum formreglum. Raunar er það svo að formreglurnar eru tíðast helsta viðbáran, þegar tekið er til varna við að hamla því að viðkomandi taki afleið- ingum af upplýstum og sönnuðum gjörðum sínum. Athafnir skattleysingjanna eru þannig að öllu jöfnu gerðar ívið flóknari en þegar íslenskir almúgamenn stunduðu snærisþjófnað frá dönskum kaupmönnum til að hafa í færi við að afla sér nauðþurfta. Þó nokk- urrar samúðar gæti í sögubókum í garð slíkra ógæfumanna þá verður sú samúð seint yfirfærð á þá sem telja að ekkert smærra en milljarðar dugi til einkaneyslu. Hug- myndaauðgi þeirra er komið hafa sér hjá skatt- greiðslum, svo og ráðgjafa þeirra, hefur lítt þorrið síðustu ár og raun- ar hið gagnstæða. Fjarstæðukenndar hug- myndir um ráðstafanir og túlkun laga- ákvæða á skjön við alla skynsemi eru birtingarmynd ýmissa ráðgjafa þeirra sem í fylgsnum halda sig. Ýmsum væri nú hollt að horfa um öxl á þá ábyrgðarlausu starfsemi sem átti sér stað í stað þess að hamast linnulítið við að fela eigin slóðir,“ segir enn- fremur. Og lokaorðin í leiðaranum eru þessi: „Þeir sem skotið hafa undan greiðslum ættu að sjá sóma sinn í því að snúa til betri vegar og standa nú skil á greiðslu und- anskotinna skatta með því að leiðrétta skattskil sín og koma sér í hóp skilvísra skattgreiðenda. Þannig myndu þeir taka þátt í að rétta samfélagið úr þeirri alvar- legu kreppu sem nú ríkir sem þeir sjálfir áttu þátt í að valda. Ekki er svo sem líklegt að alikálfinum verði slátrað eins og í sög- unni sem sögð var fyrir 2000 árum en örugglega myndu einhverjir hugsa að batn- andi mönnum væri best að lifa.“ sisi@mbl.is Skattahækkanirnar eru útrásarskattar Leiðari Tíundar: „Hinir siðfirrtu hafa þó alla jafna kosið að búa í okkar siðaða þjóðfélagi“ Skúli Eggert Þórðarson Ingvar J. Rögnvaldsson „ÞAÐ er mjög gaman að þessu. Það kemur tals- vert af öðruvísi vörum en við er- um venjulega með. Það kom kattamatur í gær án þess að við bæðum sér- staklega um hann en þá var einmitt einn sem spurði um hann. Svo tókst að bjarga barnaafmæli af því að það hafði komið súkkulaði og vöffl- umix sem við höfum annars ekki. Mest eru þetta þó nauðþurftir,“ segir Anna Ólafsdóttir, verk- efnastjóri hjá Hjálparstarfi kirkj- unnar, um vinsældir aukapokans svokallaða. Lágverðsverslanirnar Bónus og Krónan bjóða viðskiptavinum sín- um að skilja eftir poka með mat- vöru fyrir bágstadda og segir Anna stefnt að því að Samkaup og síðar Kostur bætist í hópinn. Hún segir í undirbúningi að bjóða upp á auka- pokann á Akureyri og bætir því við að 2.355 manns hafi skráð sig á vinasíðu pokans á Facebook. Pok- ana má nálgast hjá Hjálparstarfi kirkjunnar við Grensáskirkju. Aukapokinn fer vel af stað HÓPUR fjárfesta er nú sagður leggja drög að kauptilboði í smásöluversl- anakeðjuna Haga. Guðmundur Franklín Jónsson er í forsvari fyrir hópinn, en brátt mun vefsíðan þjóð- arhagur.is verða opnuð vegna máls- ins. „Fólk getur farið þangað inn og skráð sig fyrir hlutafjárframlagi, upp- hæðin skiptir ekki máli,“ segir Guð- mundur í samtali við Morgunblaðið. Guðmundur segist ekki geta upplýst hverjir standa að baki hópnum enn sem komið er, en segir um nokkurn fjölda að ræða. „Þetta eru um 120 manns sem eru klárir með nægt fé til að gera tilboð í Haga. Einn fjárfest- anna hafði samband við mig og bað mig um að fara fyrir hópnum. Menn eru hræddir við þá viðskiptahætti sem hafa verið stundaðir inni í bönk- unum og vilja fara varlega til að byrja með. Þetta eru engir lífeyrissjóðir eða slíkt, en einhver lítil fjárfestingafélög er að finna í hópnum.“ Vonast eftir góðum viðbrögðum Guðmundur nefnir að vonandi muni hundruð eða þúsundir manna skrá sig fyrir hlut í Högum: „Við er- um þegar með nægt fé til að kaupa Haga, en það fer þó eftir því hversu mikill hluti fyrirtækisins er til sölu, 60% eða 100%. Aðalmálið er samt að fólkið í landinu fái að vera með, þess vegna skýrum við verkefnið Þjóð- arhag.“ Að sögn Guðmundar hefur enn ekkert félag verið stofnað utan um hóp fjárfestanna. „Við erum bara að auglýsa eftir áhugasömu fólki til að vera með í þessu.“ Afleitt ef skattgreiðendur borga En hvað gerist ef fáir eða enginn skráir sig fyrir hlut á þjóðarhagur.is? „Hagar eru náttúrlega ekki til sölu eins og er. Þannig að við leyfum síð- unni að vera opinni 1-2 vikur og sjáum hvað margir skrá sig. Fjöldinn getur verið sterkari en upphæð- irnar.“ „Við þurfum auðvitað að sjá bók- haldið hjá Högum og gera áreið- anleikakönnun ef af þessu verður. Ef gefa á Bónusfeðgum eftir ein- hverja tugi milljarða er afrakstur lágs vöruverðs í verslunum þeirra horfinn – ef menn vilja halda því fram að það sé lágt. Afleitt yrði ef skattgreið- endur borguðu fyrir mistökin,“ segir Guðmundur. Segir fjölda fjár- festa tilbúna með fé Þjóðarhagur.is opnaður og vill nýja hluthafa Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS verður haldinn 30. nóvember 2009 kl. 19:30 á Hilton Reykjavík Nordica. Dagskrá: 1. Samningar og stöðugleikasáttmáli (Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR). 2. Skipulag launþegahreyfingarinnar: a) VR (Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR). b) LÍV (Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður LÍV). c) ASÍ (Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ). 3. Stefnumótun VR (fulltrúar ParX kynna). 4. Umræður, stjórn situr fyrir svörum. Fundarstjóri: Pétur Guðmundsson Félagsfundur VR Upplýsinga- og umræðufundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.