Morgunblaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 3. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
306. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
mbl.is
SÍÐUSTU TÍSKUBLOGGARARNIR, MARÍA
ER EKKI DESPÓ OG KEPPT Í ÍMYNDUN
DAGLEGT LÍF
96
ára
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
FJÖLSKYLDUR sem eiga meira en
150 milljónir eiga samtals 468 millj-
arða í framtaldar eignir. Það er 1.281
fjölskylda sem á þessar miklu eignir.
Þetta eru 0,8% af öllum fjölskyldum í
landinu, en hópurinn á 12,8% af öllum
eignum. Þetta kemur fram í Tíund,
fréttablaði ríkisskattstjóra, en grein-
ina ritar Páll Kolbeins.
Niðurstaðan í grein Páls er að þó
að margar fjölskyldur glími við fjár-
hagserfiðleika vegna þeirra áfalla
sem dunið hafa yfir í efnahagslífinu
gildi það alls ekki um alla. Margir séu
langt frá því að vera á flæðiskeri
staddir.
79.149 fjölskyldur telja ekki fram
neinar skuldir, þar af eru 67.433 ein-
hleypingar og 11.706 hjón. Eignir
þessa hóps námu 845 milljörðum. Um
60% fjölskyldna skulda innan við
fimm milljónir eða ekki neitt.
37.320 fjölskyldur skulda
meira en þær eiga
Þó að staðan sé góð hjá meirihluta
allra fjölskyldna í landinu gildir það
ekki um alla. 37.320 fjölskyldur
skulda meira en þær eiga. Sá fyr-
irvari er við þessa tölu að í ein-
hverjum tilvikum kunna að vera eign-
ir sem ekki eru skráðar á
markaðsvirði. Hópurinn sem á
minnst er jafnframt hópurinn sem
skuldar hlutfallslega mest. 76.344 ein-
staklingar töldu fram eignir sem voru
metnar á innan við 10 milljónir. Hann
átti samtals 115 milljarða en skuldaði
108 milljarða. Gera má ráð fyrir að í
þessum hópi séu margir sem hafi tek-
ið bílalán og lánin hafa hækkað en
eignirnar fallið í verði.
Þeir sem hafa keypt fasteignir á
síðustu árum eru í sömu stöðu. Þessi
hópur hefur ekki notið hækkunar á
fasteignaverði, en skuldirnar hafa
hækkað ár frá ári. Þeir sem eiga á
bilinu 5 til 10 milljónir í fasteign
skulda 80,1% af matsverði fasteign-
arinnar. Þetta hlutfall lækkar eftir
því sem eignarhlutur í fasteigninni
hækkar.
Í grein Páls í blaðinu Tíund kemur
fram að stór hópur landsmanna
greiði meira en þriðjung brúttótekna
sinna í vexti og afborganir af lánum.
Hér er um að ræða 9.232 einhleyp-
inga og hjón en sumir þessara fram-
teljenda, 225 hjón og 972 einhleyp-
ingar eða alls 1.197 heimili, töldu
fram hærri vaxtagreiðslur en sem
nam framtöldum brúttótekjum síð-
asta árs.
Flestar fjölskyldur töldu fram
eignir sem metnar voru á bilinu frá 10
til 40 milljónir króna í árslok 2008 og
af þessum hópi áttu flestar á bilinu 15
til 25 milljónir króna. Af 181.755 fjöl-
skyldum í landinu greiddu 82.039
enga vexti á síðasta ári.
Ríkustu fjölskyldurnar
skera sig úr hópnum
Morgunblaðið/Golli
Skulda lítið eða ekkert Af um 182 þúsund fjölskyldum töldu rúmlega 79 þús.
fjölskyldur ekki fram neinar skuldir en töldu fram eignir upp á 845 milljarða.
Tölur embættis ríkisskattstjóra
sýna að á Íslandi er hópur fólks
sem er mjög vel efnum búinn
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
UMSÓKN Íslendinga um aðild að
Evrópusambandinu, efnahags-
ástandið hér á landi og ýmis ágrein-
ingsmál hafa sett fríversl-
unarviðræður Íslendinga og
Kínverja í salt. Síðasti svonefndi
tæknilegi fundur fulltrúa utanrík-
isráðuneytisins hér á landi og kín-
verska viðskiptaráðuneytisins fór
fram í mars sl.
Gunnar Snorri Gunnarsson,
sendiherra Íslands í Kína og að-
alsamningamaður Íslendinga í við-
ræðunum, átti óformlegan fund með
aðalsamningamanni Kínverja í sept-
ember sl. Þar sagðist sá síðarnefndi
telja ýmis tormerki á því að samn-
inganefnd Kínverja yrði ræst út í
nánustu framtíð. Gunnar Snorri seg-
ir Kínverja hafa nefnt ýmsar ástæð-
ur fyrir tregðu sinni til áframhald-
andi viðræðna.
„Þeir hafa verið með mismunandi
afsakanir uppi. Fyrst var það að þeir
hefðu svo mikið að gera vegna jarð-
skjálftanna, svo kom kreppan og síð-
an hafa þeir einnig látið í ljós að
fyrst Ísland sé komið á braut með
viðræður við Evrópusambandið
ættu viðræðurnar að vera í bið-
stöðu,“ segir Gunnar Snorri. | 16
Fríverslun við Kína í salt
Umsókn um ESB-
aðild liðkaði ekki
fyrir viðræðum
Reuters
Kína Óvissa er um fríverslunina.
Ný tillaga hef-
ur verið lögð
fram um deili-
skipulag við
Ingólfstorg. Nú-
verandi skipu-
lag hefur verið
mjög umdeilt en
skv. því nýja
hefur verið hætt
við að flytja
gömul hús inn á
torgið auk þess sem Nasa verður
ekki rifið. Þá verður fyrirhugað
hótel minna en til stóð og í takt við
götumyndina. »4
Gömul hús við Ingólfstorg
verða ekki færð úr stað
Mannlíf Ingólfs-
torg minnkar ekki.
VERÐBRÉFAFYRIRTÆKIÐ
Arev mun sjá um stýringu á rekstri
og eignum veitingastaðarins Ruby
Tuesday og ritfangaverslunarinnar
A4 samkvæmt samningi sem skila-
nefnd Icebank hefur gert við Arev.
Icebank tók nýverið yfir Ruby
Tuesday og A4 og í stað þess að
halda rekstri félaganna innan vé-
banda bankans var ákveðið að leita
til utanaðkomandi aðila. »17
Verðbréfafyrirtækið Arev
rekur Ruby Tuesday og A4
Frá 2000 til 2008 jukust skuldir
einstaklinga úr 415 milljörðum í
1.683 milljarða. Þetta er fjór-
földun skulda á átta árum.
Skuldirnar jukust mest á síð-
asta ári eða um 24,9%. Á sama
tíma jukust eignir aðeins um
8,2% þrátt fyrir að ýmislegt
bendi til þess að þá hafi komið
inn á skattframtöl mikið af
bankainnistæðum sem áður
voru vantaldar. Eignir ein-
staklinga hafa aukist mikið á
síðustu árum og nema nú 3.657
milljörðum.
Skuldir jukust
Orkuveita Reykjavíkur skuldar
227 milljarða króna í erlendum
myntum, en lánshæfiseinkunn fyr-
irtækisins var lækkuð niður í svo-
kallaðan „ruslflokk“ í fyrradag.
Skuldirnar eru 19-faldur rekstrar-
hagnaður fyrirtækisins, sem er vel
yfir því sem talið er eðlilegt hjá
fyrirtækjum í orkugeiranum. »15
Skuldastaða OR erfið
www.gottimatinn.is
Jólablaðið
-frá MS kemur
til þín í dag
Eignir og skuldir | 14-15
Ekki náðist endanleg niðurstaða í
umræðum um skattatillögur rík-
isstjórnarinnar á fundum þing-
flokka stjórnarflokkanna í gær-
kvöldi. Enn er verið að reikna.
Formenn flokkanna ræða málið og
staðan verður metin á ríkisstjórn-
arfundi í dag. Ekki er vitað hvenær
tillögurnar verða kynntar. »2
Morgunblaðið/Kristinn
Staðan í skattamálum met-
in á ríkisstjórnarfundi í dag