Morgunblaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 14
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is 1.381 fjölskylda á eignir sem eru metnar á meira en 150 milljónir króna. Samanlagðar eignir þessara fjölskyldna eru 468 milljarðar, en skuldir þeirra nema 60 milljörðum. Þessi hópur er um 0,8% af öllum fjölskyldum í landinu en þær eiga 12,8% af öllum eignum. Þessar upplýsingar koma fram í grein Páls Kolbeins, sérfræðings hjá embætti ríkisskattstjóra í nýj- asta tölublaði af fréttablaðinu Tí- und. Vöxtur í banka- og fjármála- starfsemi og síðan hrun bankanna hefur haft mikil áhrif á hagi lands- manna. Fjölskyldur í landinu eru misvel í stakk búnar til að takast á við áföllin. Sums staðar er þröngt í búi en margir standa sem betur fer ágætlega. Skuldir jukust um 25% í fyrra Það eru ekki ný sannindi að fólk hafi verið duglegt að taka lán á síð- ustu árum. Árið 2000 skulduðu ein- staklingar 415 milljarða, en í árslok 2008 námu skuldirnar 1.683 millj- örðum. Skuldirnar höfðu því fjór- faldast á þessum árum. Mest var skuldaaukningin á árinu 2008 þegar gengi krónunnar féll en þá jukust skuldir einstaklinga um 24,9%. Eignirnar jukust hins vegar aðeins um 8,2% í fyrra. Það verður hins vegar að hafa einn fyrirvara á þessum tölum því að í fyrra var farið að skrá rafrænt allar inni- stæður í bönkum inn á skatt- framtal, en það leiddi til þess að innistæður einstaklinga í bönkum hækkuðu um 370 milljarða milli ára eða um 139,3%. Erfitt er að átta sig á hversu stór hluti af þessari upphæð er til kominn vegna van- halda á skráningu eða vegna þess að fólk var að flytja eignir úr hluta- bréfum, skuldabréfum eða öðrum eignum inn á innlánsreikninga í bönkum. En þó að skuldirnar hafi aukist mikið eru eignirnar líka miklar og mun meiri en skuldirnar. Í árslok 2008 námu eignir einstaklinga sam- tals 3.657 milljörðum. Eignum og skuldum er hins vegar ekki skipt jafnt niður milli landsmanna. Meirihlutinn skuldar lítið eða ekkert Mjög misjafnt er hversu fólk skuldar mikið og raunar er það þannig að flestir skulda lítið eða ekki neitt. Af 181.755 fjölskyldum í landinu töldu 79.149 ekki fram neinar skuldir. Þetta eru 67.433 einstaklingar og 11.706 hjón. Þessi hópur taldi fram eignir sem metnar voru á 845 milljarða. Fjölskyldur sem skulduðu minna en fimm millj- ónir eru 30.825. Þetta þýðir að um 60% af öllum fjölskyldum í landinu skulda annaðhvort ekki neitt eða innan við 5 milljónir. Í árslok í fyrra skulduðu 41.535 fjölskyldur á bilinu 5-20 milljónir og 20.149 fjölskyldur skulduðu á bilinu 20-35 milljónir. „Hópur skuldunauta sem skulda meira en 150 milljónir kr. vekur sérstaka athygli. Þessar 244 fjöl- skyldur skulduðu 77 milljarða kr. Lítill hópur á miklar eignir Morgunblaðið/Ómar Skattgreiðendur Tæplega 1.400 fjölskyldur eiga 12,8% af öllum eignum á Íslandi, samanlagt um 468 milljarða kr.  Tölur ríkisskattstjóra sýna að fólk er misvel í stakk búið að takast á við þau áföll sem dunið hafa yfir  0,8% íslenskra fjölskyldna eiga 468 milljarða sem eru um 12,8% af öllum eignum heimilanna í landinu Eignir og skuldir Íslendinga Heildarskuldir 1.683 milljarðar Heildareignir 2.657 milljarðar 79.149 fjölskyldur skulda ekki neitt 37.320 fjölskyldur skulda meira en þær eiga Tölur ríkisskattstjóra fyrir árið 2008 endurspegla ekki nema að takmörkuðu leyti samdrátt í efna- hagslífi landsins. Hafa ber í huga að hrunið varð ekki fyrr en í októ- ber og ekki fór að bera á sam- drætti í tekjum fyrr en í lok ársins. Búast má við að samdrátturinn komi fram með skýrari hætti í næsta uppgjöri. Undanfarin ár hefur þeim sem telja fram skatta á Íslandi fjölgað ótrúlega mikið. Fjölgunin var 4-5% árlega fyrir hrun, en í fyrra nam fjölgunin aðeins 1%. Skattskyldar tekjur hafa líka hækkað mikið, en þær hækkuðu t.d. um 21% milli ár- anna 2007 og 2008. Nú hækka tekjur hins vegar aðeins um 0,7%. Þetta skýrist fyrst og fremst af því að söluhagnaður, sem verið hefur mjög mikill undanfarin ár, dróst saman um 82%. Laun, hlunnindi, lífeyrir og aðrar greiðslur sem mynda tekjuskatts- og útsvarsstofn hækkuðu á árinu. Liðurinn önnur hlunnindi lækkaði hins vegar mikið eða um 84%. Ástæðan er sú að árið 2007 færðu margir kaupréttarsamninga í þennan framtalsreit. Fjármagns- tekjuskattur skilaði lægri upphæð í fyrra en árið á undan. Skatturinn skilaði samt meiru en 2007. Skatttekjur eru byrjaðar að lækka 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 LÖGMENN, ráðgjafar og stjórn- málamenn hafa þrýst á um að lögum verði breytt þannig að ekki þurfi að skattleggja niðurfellingu á skuldum einstaklinga og lögaðila. Þetta segir Aðalsteinn Hákonarson, sérfræð- ingur á eftirlitssviði ríkisskattstjóra. Kaupþing og Glitnir veittu stjórn- endum sínum há lán til hlutabréfa- kaupa. Kaupþing veitti t.d. 130 starfsmönnum bankans 47,3 millj- arða að láni til hlutabréfakaupa. Stjórn bankans samþykkti skömmu fyrir hrun að fella niður persónu- legar ábyrgðir að upphæð 10,5 millj- arða króna, þar af fengu sjö æðstu stjórnendur bankans 4,9 milljarða fellda niður. Eftir að bankinn féll var þessi ákvörðun tekin til endurskoð- unar. Tvær lögfræðilegar álitsgerðir voru lagðar fram þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að stjórninni hefði verið heimilt að fella niður þess- ar ábyrgðir og að henni hefði ekki verið stætt á að ganga að persónu- legum ábyrgðum starfsmanna. Þessu máli hefur verið vísað til embættis sérstaks saksóknara og tók stjórn Nýja Kaupþings þá ákvörðun um að afgreiða málið ekki fyrr en niðurstaða væri komin í rannsókn saksóknara. Ekki liggur fyrir hve- nær hún kemur. En þó að bankarnir komi til með að afskrifa þau lán sem veitt voru til hlutabréfakaupanna stendur eftir hvernig á að fara með skattlagningu afskrifaðra skulda. Aðalsteinn fjallar um þetta í Tí- und, fréttablaði ríkisskattstjóra. Hann bendir á að þessi lán hafi oft verið veitt til einkahlutafélaga sem þýðir að menn gátu mögulega sótt sér skattalegt hagræði umfram aðra. „Sumir græddu á þessu fjárhæðir sem voru hærri en ævitekjur vel- flestra Íslendinga en aðrir lentu í hruninu og sátu uppi með skuldir og verðlitlar eða verðlausar eignir eða jafnvel fluttu eignir sínar yfir á nöfn ættingja eða vina.“ Vextir lægri en bankar buðu Aðalsteinn bendir á að einkenni á þessum lánum sé að vextir af þeim hafi að jafnaði verið lægri en bank- arnir buðu almennum viðskiptavin- um sínum. Lántökukostnaður hafi stundum verið enginn, en stundum 5.000 krónur jafnvel þó að lánin næmu hundruðum milljóna króna. Þá hafi stjórnendur fyrirtækjanna ákveðið að ekki ætti að greiða stimp- ilgjöld þótt ekki verði ráðið af lög- unum að þau hafi verið undanþegin gjaldinu. „Þrátt fyrir að þessi kjör hafi í samanburði við önnur lánakjör verið mjög hagstæð ganga nú lögmenn, ráðgjafar og stjórnmálamenn fram fyrir skjöldu til að fá þessi lán felld niður án þess að komi til skatt- skyldu.“ Aðalsteinn sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri að vísa til ákvæðis í frumvarpi félagsmála- ráðherra um greiðsluaðlögun fyrir heimilin í landinu. „Ég varð var við að það voru menn að vinna í því að koma þessu í gegn. Það átti að keyra þetta í gegn á skömmum tíma.“ Ákvæðið var tekið út úr frumvarp- inu áður en það varð að lögum og í nefndaráliti þingnefndar sagði að menn hefðu viljað taka sér lengri tíma til að skoða þennan þátt máls- ins. Aðalsteinn sagðist vera ánægður með að þetta hefði verið tekið út úr frumvarpinu því engin þörf væri á því að fella niður skattskyldu vegna afskrifaðra skulda. Hann sagði að það væri einnig merkilegt að félags- málaráðherra skyldi á Alþingi leggja fram tillögur um breytingar á skatta- lögum. Það væri á verksviði fjár- málaráðherra að gera það. Aðalsteinn segir einnig í grein sinni að það sé sérkennilegt og algert stílbrot í íslenskum skattarétti að gera kröfu um að fella niður lán hjá lögaðilum án þess að niðurfellingin Þrýstu á um að sleppa við að borga skatta af afskrifuðum skuldum Morgunblaðið/Eggert Alþingi Tekið var út úr frumvarpi félagsmálaráðherra um skuldaaðlögun ákvæði sem hefði heimilað skattfrjálsa niðurfellingu skulda. Andstætt öllu sem gilt hefur í skatta- rétti í áraraðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.