Morgunblaðið - 13.11.2009, Síða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
Styrkþegar 840.000 kr. var úthlutað úr Magnúsarsjóði að þessu sinni.
ÚTHLUTAÐ var úr Magnús-
arsjóði, menntunar- og afreks-
sjóði ÍR, sl. miðvikudag og nam
heildarupphæðin að þessu sinni
840.000 kr.
Í flokkinum sérstök verkefni
hlaut frjálsíþróttadeildin styrk
vegna ólympíuáætlunar sinnar,
en deildin hefur sett sér það há-
leita markmiðið að ÍR-ingar
verði meðal þátttakenda á Ól-
ympíuleikunum 2010. Í flokk-
inum afreksfólks hlaut skíða-
deildin síðan styrk vegna þeirra
Stefáns Inga Jóhannssonar, Ein-
ars Kristins Kristgeirssonar og
Jóhönnu Auðunsdóttur. Þá fékk
júdódeildin styrk vegna þeirra
Gísla Haraldssonar, Kjartans
Magnússonar og Ásdísar Mar-
grétar Ólafsdóttur og loks fékk
körfuknattleiksdeildin styrk
vegna Daða Bergs Grétarssonar.
Auk þess fengu fjórir þjálf-
arar styrki vegna námskeiða er-
lendis.
Frjálsíþróttadeild ÍR
stefnir á ólympíuleikana
ALÞJÓÐADAGUR sykursjúkra
verður haldinn á morgun, laug-
ardag, og verður af því tilefni boðið
upp á blóðsykursmælingar í Smára-
lind frá kl. 12-16.
Áætlaður fjöldi þeirra sem
greindir hafa verið með þennan
sjúkdóm hér á landi er 8.000-9.000,
en rannsóknir á hinum Norðurlönd-
unum benda til þess að fyrir hvern
greindan gangi tveir um með sjúk-
dóminn án þess að gera sér grein
fyrir því.
Blóðsykursmæl-
ingar í boði á degi
sykursjúkra
NORRÆNI
skjaladagurinn
verður haldinn á
Norðurlönd-
unum á morgun,
laugardag.
Hér á landi
verða Þjóð-
skjalasafn Ís-
lands, Borg-
arskjalasafn og
Héraðsskjalasafn
Kópavogs með sérstaka hátíð-
ardagskrá í húsakynnum Þjóð-
skjalasafnsins við Laugaveg 162 frá
kl. 11-15, þar sem þemað verður
„konur og kvenfélög“. Haldnir
verða stuttir 15-20 mínútna fyr-
irlestrar með vefkynningum í há-
tíðarsal á 3. hæð safnsins og eru
kvenfélagskonur sérstaklega hvatt-
ar til þess að heimsækja safnið á
morgun.
Við sama tækifæri mun mennta-
málaráðherra formlega opna nýjan
manntalsvef Þjóðskjalasafns Ís-
lands.
Nýr manntalsvefur
Þjóðskjalasafnsins
Dagskrá verður í
Þjóðskjalasafninu.
Jólakortasala
Blindrafélagsins
er hafin. Sölu-
menn frá
Blindrafélaginu
munu ganga í
hús í nóvember
og desember og
selja kortin. Þau
eru af tveimur
gerðum. Annars vegar er um að
ræða kort með myndinni Hátíð-
arljós eftir listakonuna Marlyn
Herdísi Melk, hins vegar kort með
ljósmynd af Skógafossi eftir Sig-
urgeir Sigurjónsson ljósmyndara.
Blindrafélagið fjármagnar
starfsemi sína að langmestu leyti
með sjálfsaflafé og gegnir jóla-
kortasalan þar veigamiklu hlut-
verki.
Jólakort Blindra-
félagsins í sölu
FRIÐRIK Ey-
steinsson, að-
júnkt í markaðs-
fræði við
viðskiptafræði-
deild Háskóla Ís-
lands, heldur í
dag, föstudag,
fyrirlestur undir
yfirskriftinni
„Hafa auglýs-
ingar neikvæð
áhrif á börn?“.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12 og
fer fram á Háskólatorgi, stofu
HT-104.
Öðru hverju koma fram kröfur
um að stjórnvöld þrengi að aug-
lýsendum hvað varðar auglýsingar
sem beint er að börnum. Yfirleitt
eru þessar kröfur byggðar á því
að börn skilji ekki tilgang auglýs-
inga, þau geti ekki gert greinam-
un á þeim og dagskrárefni eða þá
að auglýsingar hafi neikvæð áhrif
á þau. Í fyrirlestrinum verður far-
ið yfir niðurstöður helstu rann-
sókna sem birtar hafa verið á
áhrifum auglýsinga á börn.
Hafa auglýsingar
slæm áhrif á börn?
Friðrik
Eysteinsson
Þórunn J. Hafstein Henrik W.K. Kaspersen
Jukka Viljanen Eric Barendt
Kyrre Eggen Eiríkur Jónsson
Björg Thorarensen
Haukur Arnþórsson Árni Matthíasson
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og dómsmála- og mann-
réttindaráðuneytið efna til alþjóðlegrar ráðstefnu um ábyrgð á
birtingu og dreifingu efnis á Internetinu. Fjallað verður um helstu
knýjandi álitaefni á þessu sviði, m.a. um alþjóðlega dreifingu á
barnaklámi, kynþáttahatri og meiðyrðum, hvernig gerendur verði
fundnir og hvar þeir verði dregnir til ábyrgðar fyrir dómstólum.
Þá verður fjallað um skyldu ríkja til að vernda friðhelgi einkalífs
einstaklinga. Norræna ráðherranefndin veitir styrk vegna ráð-
stefnunnar í tilefni af formennsku Íslands árið 2009.
Ábyrgð á Internetinu
Responsibility for Expression and Information on the Internet
13.00-13.10 Þórunn J. Hafstein, settur ráðuneytisstjóri dómsmála- og mannréttindaráðuneytis
13.10-13.30 Fighting Cybercrime: Meaning of Council of Europe Cybercrime Convention 2001
Próf. Emeritus Dr. Henrik W.K. Kaspersen, ráðgjafi Evrópuráðsins og hollenska
dómsmálaráðuneytisins á sviði netglæpa
13:30-13.50 State Obligations under Article 8 of the ECHR
Ph.D. Jukka Viljanen, lektor í mannréttindum við háskólann í Tampere, Finnlandi
13.50-14.10 The Legal Control of Pornography and Hate Speech on the Net in the United
Kingdom
Próf. Eric Barendt, Goodman prófessor í fjölmiðlarétti við University College,
London
14.10-14.25 Fyrirspurnir og umræður
14.25-15.00 Kaffihlé
15.00-15.20 Jurisdictional Issues in Private Litigation
Dr. juris Kyrre Eggen, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda lögfræðistofunnar
Wiersholm, Mellbye & Bech í Osló.
15.20-15.40 Responsibility for Internet Defamation in Icelandic Law
Eiríkur Jónsson LL.M., lektor og doktorsnemi við Lagadeild Háskóla Íslands,
LOGOS lögmannsþjónusta styrkir stöðuna
15.40-16.00 How to prevent Anonymity on the Internet
Ph.D. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur
16.00-16.15 The Internet and the Media
Árni Matthíasson, blaðamaður og verkstjóri á mbl.is og umsjónarmaður blog.is
16.15-16.45 Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri: Björg Thorarensen, prófessor og forseti Lagadeildar Háskóla Íslands
Nánari upplýsingar: www.hi.is og http://hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/lagadeild/adal/conference
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Fimmtudaginn 19. nóvember í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands
Dagskrá ráðstefnunnar