Organistablaðið - 01.06.1995, Side 3
Ráðstefna um kjaramál
HALDIN í HELSINGFORS í FlNNLANDI
Kjartan Sigurjónsson formaður F.Í.O. og
Hörður Askelsson ritari félagsins fóru til
Helsingfors og sátu þar fund fulltrúa
organistafélaganna á Norðurlöndum.
Formaður finnska félagsins setti fundinn
og bað Sixten Enlund (organista í gömlu
kirkjunni í Helsingfors) að taka við
fundarstjórn.
1 byrjun var beðið um skýrslur frá öllum
löndunum urn stöðu mála, kjaramála, og
alla þróun á síðustu árum. En aðalefni
þessarar stefnu voru kjaramálin. Þetta var í
fyrsta sltipti sem Islendingar tóku þátt í
nákvæmlega þessum umræðum, en full-
trúar hinna Norðurlandanna hafa haldið
einn slíkan fund á ári frá því 1986. Þarna
átti einnig að fjalla um næsta norræna
kirkjutónlistarmót og var því sjálfsagt íyrir
Islendinga að vera með, enda annað
aðalmál fundarins.
Fyrstir töluðu Norðmenn. Formaður
þeirra er Ivar Mæland. Hann talaði urn að
breytingar í Noregi hefðu verið hraðari á síðustu 10 árum heldur en nokkurn tíman áður
í sögunni á þessum vettvangi, hvað varðar starfsmannamál kirkjunnar og kjör starfsfólks.
Launaþróun í þjóðfélaginu hefði haft áhrif á kjör starfsmanna kirkjunnar. Hann gat þess
þó sérstaklega að tilhneiging væri til að meta laun organista eftir tímaframlagi þeirra. En
kantorar í Noregi eru í verndaðri stöðu sent meta má sem æviráðningu.
Næst töluðu Svíar. Ole Kamelit flutti þeirra mál. Hann er einskonar verkalýðsforingi,
launamálamaður sem þeir hafa ráðið sérstakelga . Hann er ekki tónlistarmaður.
Launabaráttan í Svíþjóð hefur verið varnarbarátta, verðbólga valdið kjararýrnun frekar
en auknum kaupmætti. Hann ræddi um breytingar sem framundan eru vegna aðskiln-
aðar ríkis og kirkju. Nokkuð virðist óljóst hvaða áhrif það hefur á kjör starfsfólks.
Síðan töluðu Finnar. Sixten Enlund flutti mál þeirra og talaði um að á síðustu 30 árum
hefði kostnaður við starfsmannahald kirkjunnar nær þrefaldast. Launatengd gjöld vinnu-
3 ORGANISTABLAÐIÐ