Organistablaðið - 01.06.1995, Page 11

Organistablaðið - 01.06.1995, Page 11
Norsk lög um organista frá 16. júní 1967, breytt 1. janúar 1994 1 . G R E I N . Við hverja kirkju skal ráða organista svo frainarlega sem ráðuneytið liefur ekki ákveðið annað. Biskupinn getur ákveðið að hringjari gegni starfi organista þar sem sú skipan telst vera hagkvæm. Að fenginni tillögu frá sóknarnefnd og með samþykki viðkontandi sveitarfélags getur biskupinn ákveðið að organisti þjóni fleiri en einni kirkju. 2 . G R E I N . Sóknarnefnd ræður organista. Biskupinn þarf að samþykkja ráðninguna. Organisti við dómlcirkju er settur til starfa af ráði biskupsdæmisins samkvæmt tillögu frá sóknarnefnd. Biskupsdæmið gefur út ráðningarbréf. Fyrir ráðningu skal liggja fyrir ábyrg kirkjumúsíkölsk umræða um faglega hæfni um- sækjanda eftir nánari reglum sem ráðuneytið setur. Umsækjandi með organistamenntun skal yfirleitt ganga fyrir um stöðuveitingar. Næsti yfirmaður organista er sóknarpresturinn. 3 . G R E I N . Organistinn er starfsmaður sveitarfélags. Hann tekur laun hjá sveitarfélagi ef annað er ekki tekið fram. Ef ein kirkja þjónar fleiri sveitarfélögum skiptist kostnaður launagreiðslu eftir fjölda safn- aðarfólks. 4 . G R E I N . Organista ber að: 1. Þjóna við allar reglulegar guðsþjónustur og einnig við guðsþjónustur á jólum, á gamlárskvöld, I. og 17. maí, við föstuguðsþjónustur, barnaguðsþjónustur og við guðsþjónustur sem konungurinn, ráðuneytið eða biskupinn ákveða. 2. Þjóna á fundum í sambandi við þessar guðsþjónustur, einnig þó að fundirnir séu í öðru húsnæði en kirkjunni. 3. Þjóna við allar kirkjulegar athafnir sem fram fara í kirkjunni eða útfararkapellunni. Sveitarstjórnin getur samkvæmt ákvæðum í 7. grein ráðið organista til fleiri skylduverka, eða að fengnu samþykki ráðuneytis breytt þjónustuskyldum hans og sett þar unt nánari ákvæði í grein 7. 1 1 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.