SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Qupperneq 2
2 22. nóvember 2009
16 Jólaguðspjallið í túlkun trúða
Trúðarnir Barbara, Úlfar og Bella leggja út af sögunni um Jesú litla í
Borgarleikhúsinu. Frumsýningin er í kvöld, laugardagskvöld.
18 Rithöfundur og sjónvarpskona
Á æskuárunum fékk Sirrý sögur og fleira frá Rússlandi og Kúbu frá
móðursystur sinni Ingibjörgu Haraldsdóttur rithöfundi.
20 Ekki farið út í 4 ár
Gunnhildur Ragnarsdóttir MND-sjúklingur komst loksins út í ferska
loftið í vikunni. Hún fer fram á notendastýrða þjónustu.
24 Æskuminningar leik-
skálds úr vesturbænum
Kolbrún Bergþórsdóttir ræðir við Ólaf Hauk Sím-
onarson í tilefni af nýrri bók hans.
40 Rómuð súpa á Ön-
undarstöðum
Litið ofan í pottana hjá Hrefnu Ingólfsdóttur á Öng-
ulsstöðum og fengin uppskrift að súpu og marmelaði.
Lesbók
48 Ferillinn færður í letur
„Það er mjög mikils virði fyrir mig að fá svona bók með yfirliti um fer-
ilinn,“ segir Kristinn E. Hrafnsson myndlistarmaður um nýja bók.
50 Gríðarleg afköst
Jón Karl Helgason, rithöfundur og bókmenntafræðingur, hefur skrifað
bók um menningarfrömuðinn Ragnar í Smára.
37
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af trúðunum Barböru og Úlfari.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Ingveldur Geirsdóttir,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
Augnablikið
Þ
að standa fjórir leikarar á sviðinu, halla
sér að leikmyndinni og horfa framan í
áhorfendur áður en frumsýningin hefst á
Rautt brennur fyrir í Borgarleikhúsinu.
Ástandið gæti vart orðið eldfimara, því þeir mæta
einbeittu augnaráði gagnrýnenda á fremstu bekkj-
um. Eins og þeim hafi verið stillt upp fyrir framan
aftökusveit, án keflis fyrir augun. Og inn á milli
svipbrigðalausra gagnrýnenda situr ungt leikskáld.
Þetta er fyrsta leikverk Heiðars Sumarliðasonar í
atvinnuleikhúsi. Í því tekur hann fyrir veröld unga
fólksins, sem er óvisst um sjálft sig og aðra, telur
enn mánuðina í sambandi og bólfélagana, ring-
ulreiðina sem rótleysið veldur, einsemdina sem
fylgir öryggisleysinu. „Hvort er mikilvægara ást
eða öryggi?“ spyr María í tilvistarangist. Tilveran
ómótuð hjá unga fólkinu; lífið eins og teikning að
byggingu sem á eftir að rísa. Og það þarf lítið til að
eitthvað fari úrskeiðis.
Eftir sýninguna hópast fólk um leikara og að-
standendur sýningarinnar í myrkrinu á bakvið
leikmyndina. Þar til einhver leggur til að leik-
ararnir fái næði, svo þeir komist í sturtu. „Ég held
að ég þurfi líka að komast í sturtu,“ segir leikstjór-
inn í armæðutón.
Einsemd persónanna er efst í huga Elísabetar
Jökulsdóttur rithöfundar í mannþrönginni í for-
dyrinu. Hún trúir blaðamanni fyrir því, að hún
þjáist ekki af ritteppu heldur útgáfuteppu. Það sé
úr svo mörgum handritum að velja. „Ég hringi í þig
þegar bókin kemur í búðir – ætli það verði ekki á
Þorláksmessu,“ segir hún og hlær.
Hófið er haldið í notalegum sal á þriðju hæð,
voldug bókahilla geymir leikritasafn hússins, og á
einum veggnum hangir portrett af leikaranum
Brynjólfi Jóhannesssyni, sem vann marga leiksigra
á ferlinum, meðal annars í hlutverkum séra Sig-
valda í Manni og konu og Jóns bónda í Gullna hlið-
inu. Hann er orðum skrýddur á málverkinu og seg-
ir sagan að eftir að hann fékk fálkaorðuna og
stórriddarakrossinn hafi þeim verið bætt við
myndina.
Brynjólfur horfir sposkur yfir menningarelítuna,
en heldur á gleraugunum. Hann hefur verið í
frumsýningarpartýum áður.
pebl@mbl.is
Svipmynd úr fordyrinu undir merki Borgarleikhússins fyrir frumsýningu. Allir hugsa sitt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvort er mikilvægara
ást eða öryggi?
21. nóvember
Yfirlitssýning opnar á Kjarvalsstöðum á fatahönnun Steinunnar Sig-
urðardóttur allt frá því fyrsta flíkin leit dagsins ljós árið 2000. Teflt
saman fágætum flíkum frá ólíkum tímabilum og ljósmyndir Mary Ellen
Mark af fatnaði Steinunnar prýða veggi salarins.
Steinunn Sigurðardóttir á Kjarvalsstöðum
Við mælum með…
21. nóvember
Á 2x200 ára ártíð Felix Mendelssohns
og Roberts Schumannsflytur tríóið
Tríólógía afmælisdagskrá í Salnum.
24. nóvember
Heimildarmynd um kanadísku þunga-
rokksveitina Anvil frumsýnd, sem var
innblástur sveita á borð við Metallica,
Slayer og Anthrax.
26. nóvember
Tónleikar Mugison og Bjögga Gísla í
Landnámssetursinu.
27. nóvember
Dansaðu við mig eftir Þórdísi Elvu Þor-
valdsdóttur Bachmann við tónlist Jar-
þrúðar Karlsdóttur á galasýningu í
Iðnó til styrktar Unifem. Ragnheiður
Gröndal syngur og gestir mæta í app-
elsínugulu.
27. nóvember
Mr. Skallagrímsson endurfrumsýnd í
Landnámssetrinu.
ostur
Ríkur af mysupróteinum
Bra
gðg
óð
nýju
ng
9%
aðeins
Prófaðu nýja braðgóða Fjörostinn,
fituminnsta kostinn í ostaúrvali dagsins.