SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Síða 6
6 22. nóvember 2009
E
vrópa logar stafna á milli. Hvorki eru það þó
efnahagsmál né hlýnun jarðar sem deilt er
um að þessu sinni heldur markið sem fleytti
Frökkum í lokakeppni heimsmeistaramótsins
í knattspyrnu (HM) næsta sumar á kostnað Íra. Alvara
lífsins hefur lagst yfir álfuna af fullum þunga.
Engin áhöld eru um að Thierry Henry, fyrirliði
Frakka, hafði rangt við þegar hann lagði knöttinn fyr-
ir sig með hendinni áður en William Gallas gerði
markið. Það staðfesta upptökur. Það viðurkennir
hann líka sjálfur og vill helst að leikurinn fari fram að
nýju. Styrinn stendur um hvað eigi að gera. Eiga úrslit
leiksins að standa eða á að leika hann aftur? Sitt sýn-
ist hverjum.
Fátt bendir til þess að Alþjóðaknattspyrnu-
sambandið (FIFA) sem hefur lögsögu í málinu muni
aðhafast neitt. Sænska dómaratríóið sá ekki atvikið og
gat því ekki dæmt. Menn dæma ekki á það sem þeir
sjá ekki. Það er ófrávíkjanleg regla í knattspyrnu.
Málið horfði öðruvísi við hefði dómarinn verið staðinn
að „tæknilegum mistökum“, þ.e. að dæma ranglega. Í
þessu tilviki eru mistök hans fólgin í því að dæma
ekki neitt. Það eru ekki „tæknileg mistök“.
FIFA hefur einu sinni ógilt úrslit í kappleik og látið
endurtaka hann á grundvelli „tæknilegra mistaka“
dómarans. Það var leikur Úsbekistans og Bareins í
undankeppni HM 2006. Málsatvik voru þau að Úsbek-
um var dæmd vítaspyrna. Vítaskytta liðsins skoraði úr
spyrnunni en dómarinn dæmdi markið af, þar sem
Er sæti á
HM fast í
hendi?
Allt í upplausn
eftir sigur
Frakka á Írum
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
William Gallas fagnar markinu umdeilda á miðvikudag.
Skúrkurinn í málinu.
Thierry Henry, fyrirliði
sparksveitar Frakka.
annar leikmaður Úsbeka var kominn inn í vítateiginn
áður en spyrnan var framkvæmd. Ekkert athugavert
við þá dómgæslu. Í stað þess að gera Úsbekum að
endurtaka spyrnuna dæmdi dómarinn hins vegar Bar-
einum óbeina aukaspyrnu og það stríðir gegn bókstaf
laganna.
Dómarinn daufheyrðist við andmælum Úsbeka á
vellinum en knattspyrnsamband landsins kærði málið
formlega til FIFA í kjölfarið. Eftir að hafa kynnt sér öll
gögn í málinu, m.a. skýrslu fjórða dómarans, ákvað
sambandið að ógilda úrslitin og láta endurtaka leik-
inn.
Fáheyrt er að knattspyrnulið bjóðist til að endur-
taka leiki, allra síst hafi þau farið með sigur af hólmi.
Þetta gerðist þó í bikarkeppni enska knattspyrnu-
sambandsins árið 1999. Arsenal lagði þá Sheffield
United á Highbury sáluga með afar umdeildu marki.
Atvikið bar að með þeim hætti að leikmaður United
varð fyrir hnjaski og félagar hans spyrntu knettinum
út fyrir hliðarlínuna svo huga mætti að honum. Lá
hann um hríð í sverðinum. Þegar maðurinn hafði náð
heilsu kastaði Lee Dixon, bakvörður Arsenal, bolt-
anum inn á félaga sinn Nwankwo Kanu og ætlaðist til
að hann skilaði honum til gestanna. Eitthvað sló út í
fyrir Nígeríumanninum sem sneri umsvifalaust í átt að
marki, þar sem hann stóð ofarlega út við hliðarlínu.
Marc Overmars, fljótasti sparkandi sinnar kynslóðar,
rann þá á lyktina og tók æðisgenginn fimmtíu metra
sprett inn í vítateig, þar sem hann fékk eitraða send-
ingu frá Kanu. Og skoraði. Leikmenn United stóðu
þar hreyfingarlausir álengdar, felmtri slegnir.
Mótmæli þeirra voru áköf en aumingja dómarinn
fórnaði höndum. Hvað átti hann að gera? Leiknum
lauk með sigri Arsenal, 2:1. Strax að honum loknum
hjó Arsène Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sem
vel að merkja er franskur, hins vegar á hnútinn að
hætti Alexanders mikla. Tók ekki annað í mál en leik-
urinn yrði endurtekinn. Svona vildi hann ekki vinna.
Arsenal vann aukaleikinn líka.
Wenger hvatti í gærkvöldi sparkbændur í Frakk-
landi til að bjóða Írum nýjan leik. Eina von þeirra
grænklæddu er líklega fólgin í því að þeir geri það.
Hvernig ætli FIFA myndi bregðast við því útspili?
Reuters
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hönd
hefur afgerandi áhrif á úrslit í mikil-
vægum leik á HM. Diego Maradona
gerði mark með vinstri hendinni fyrir
Argentínu gegn Englendingum í átta
liða úrslitum lokakeppninnar í Mexíkó
sumarið 1986. Er það án efa eitt af
frægustu mörkum sparksögunnar.
Maradona kom Argentínumönnum í
1:0 snemma í seinni hálfleik með því að
blaka knettinum yfir markvörð Englend-
inga, Peter Shilton, sem var tuttugu
sentimetrum hærri. Shilton stóð agn-
dofa eftir og félagar Maradona vissu
ekki hvernig þeir áttu að bregðast við.
„Komið og faðmið mig,“ upplýsti Mara-
dona síðar að hann hefði hrópað á þá.
„Annars lætur dómarinn markið ekki
standa.“
Í samtali við blaðamenn eftir leikinn
sagði Maradona að markið hefði verið
skorað með samstilltu átaki höfuðs
Maradona og handar Guðs. Sjónvarps-
upptökur sýndu aftur á móti að almætt-
ið var eitt að verki.
Argentínumenn unnu leikinn 2:1 og
voru á endanum krýndir heimsmeistarar.
Guð tók í taumana
Guð almáttugur, í gervi Diegos Maradonas, blakar
boltanum yfir Peter Shilton í Mexíkó sumarið 1986.
www.noatun.is
UNGNAUTALUND
KR./KG
2998
Við gerum
meira
fyrir þig
36%
afsláttur
4698
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI