SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 10
10 22. nóvember 2009 U mræðan um Haga og mögulegar afskriftir á tug- milljörðum af skuldum félagsins og eignarhalds- félagi þess 1998 ehf. í Nýja Kaupþingi tók á sig enn nýja mynd þegar Finnur Árnason, forstjóri Haga, sendi frá sér yfirlýsingu í nafni Haga um það hvernig hann og aðrir stjórnendur og starfsmenn Haga vilji að Jóhannes Jóns- son verði áfram eigandi Haga. Meðal annars sagði forstjórinn í áðurnefndri yfirlýsingu: „Líta verður á umfangsmikla umfjöllun Morgunblaðsins und- anfarnar vikur sem einstaka í sögu blaðamennsku. Sú umfjöll- un verður ekki skilin öðruvísi en sem aðför að Högum og því starfsfólki sem þar starfar. Megininntakið í málflutningi blaðsins er að nauðsynlegt sé að Bónus starfi í framtíðinni án Jóhannesar í Bónus … Þessu er ég, sem forstjóri Haga, með öllu ósammála og deili ég þar skoðunum með stjórnendum og starfsfólki Haga. Enginn hefur unnið betra starf í þágu landsmanna við að tryggja lágt vöruverð á Íslandi en Jóhannes í Bónus. Hann hef- ur barist fyrir lágu vöruverði og ekki síður að sama verð sé boðið í verslunum hans um allt land. Hann hefur verið frum- kvöðull í hagræðingu, sem hefur skilað sér í lægra vöruverði til íslenskra heimila.“ Er það virkilega svo?! Má ég spyrja Finn Árnason hvað hafi orðið þess valdandi að hann ákvað að senda frá sér ofangreinda yfirlýsingu? Er hann ekki launamaður hjá Högum? Koma málefni eigenda fyrir- tækisins honum eitthvað við og ber honum skylda til þess að ráðast í slíkt makalaust mærðarmjálm um eigendur Haga, einkum Jóhannes? Telur hann að einhver trúi því að ekki muni koma til afskrifta á skuldum Haga og 1998 ehf. að stórum hluta, eins og Jóhannes heldur fram? Er Finnur kannski þeirrar skoðunar að starfsmenn fyrir- tækja sem eru í erfiðri stöðu, forstjórar, framkvæmdastjórar, deildarstjórar og óbreyttir, eigi að hafa það á verkefnalista sínum að tala máli eigenda sinna gagnvart almenningi og lán- ardrottnum? Eiga ekki skuldamál fyrirtækja almennt að vera í sama opna og gegnsæja ferlinu hjá lánastofnunum, burtséð frá því hverjir eigendurnir eru? Hefði það til dæmis fallið í frjóan jarðveg, hvort sem er hjá almenningi eða Íslandsbanka, ef Einar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Árvakurs hf., hefði, þegar verið var að undirbúa í Ís- landsbanka að setja Árvakur í opið útboðsferli, verið með op- inberar yfirlýsingar um að það væri tómt mál að tala um að selja Morgunblaðið til nýrra eigenda; Morgunblaðið yrði að vera áfram í höndum sinna gömlu eigenda, annars væri voð- inn vís? Nei, vitanlega hefði það aldrei gengið. Einar Sigurðs- son er skynsamur maður og hann vissi og veit að þótt hann hefði sínar persónulegu skoðanir á því hvernig hann vildi sjá eignarhald á Árvakri í framtíðinni, þá kom honum það bara yfirhöfuð alls ekkert við. Þess vegna sendi hann ekki frá sér neina yfirlýsingu – slíkt var ekki í hans verkahring. Frá því Finnur sendi frá sér yfirlýsinguna hafa margir komið að máli við mig og lýst undrun sinni á þessari nýju tegund af vinnubrögðum úr Baugs-herbúðum. Ekkert hefur heyrst frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni um langa hríð, enda virðast flestir sammála um að honum sé markvisst haldið í felum, því hvað svo sem hann kæmi til með að segja, þá er ekki talið að það væri til þess fallið að auka samúð Íslendinga með þeim Bónus- feðgum. Þá þótti tilraun Jóhannesar til hvítþvottar, með að- sendri grein bæði hér í Mogga og Fréttablaðinu þann 4. nóv- ember, vera afskaplega misheppnað áróðursbragð og vakti í mesta lagi kátínu, vegna einfeldningslegra staðhæfinga, ekki síst niðurlag greinar hans: „Það virðist vera þannig, að sé sama vitleysan sögð nógu oft fer fólk að trúa henni og gildir þá einu hver sannleikurinn er.“! Er ekki smásala einhver einfaldasti rekstur sem hægt er að hugsa sér? Smásalinn kemur sér upp verslunarhúsnæði, lag- erhúsnæði, ræður starfsfólk, semur við birgja, leggur á vöruna og hefur síðan sölu. Þetta eru engin geimvísindi, hvað sem Finnur Árnason og Jóhannes Jónsson reyna að telja okkur trú um. Þess vegna skiptir það engu máli þótt enginn Jói í Bónus eða Jón Ásgeir eigi verslanir Haga. Það getur gengið nákvæm- lega jafn vel, hugsanlega miklu betur, að Jón Jónsson og Páll Pálsson eigi og rekir verslanirnar og þeir gætu jafnvel tekið upp á því að ráða Finn Árnason sem forstjóra. Engin geim- vísindi að reka búð Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is 5:30 Steinþór fer á fætur, fær sér einn disk af morgun- korni og drífur sig svo út því um sexleytið þarf hann að vera mættur í Björnsbakarí við Austurströnd á Seltjarnarnesi. Aðspurður segir hann ekki erfitt að vakna svona snemma á morgnana sé maður búinn að stilla sig inn á það. „Þeir sem vinna í bakaríum eru búnir að vinna fyrr á daginn og hafa þá tíma til að gera ýmislegt ann- að. Að vísu þegar maður er að reka fyrirtækið er maður alltaf í vinnunni, maður er vakinn og sofinn yfir því,“ segir hann en Steinþór og faðir hans, sem einnig er bakari, keyptu bakaríið árið 2003 og reka þeir það saman. Þá var afi Steinþórs einnig bakari. Í Björnsbakaríi starfa alls sex bakarar og hafa þeir í nógu að snúast. Fjögur bakarí eru rekin undir nafni Björnsbakarís en aðeins er bakað á Seltjarnar- nesinu og þaðan er keyrt með brauðið og bakkelsið í hin bak- aríin. Að sögn Steinþórs er góður andi á vinnustaðnum enda hefur sami mannskap- urinn verið þar að störfum lengi. Sem eigandi sér Steinþór ekki einungis um baksturinn. „Ég er í öllu,“ segir hann en hann bregður sér reglulega á skrif- stofuna til að fylgjast með pöntunum og sjá til þess að dreifingin sé í lagi. Kemur m.a.s. stundum fyrir að Stein- þór hjálpi til frammi í afgreiðslu þegar mikið er að gera. „Núna erum við t.d. að opna nýtt bak- arí og sé ég um að fara með vörurnar þangað.“ Segist Stein- þór einfaldlega vera í bakaríinu þar sem hans er þörf hverju sinni. 15:00 Steinþór fer heim, slappar af og les blöðin. „Svo sæki ég kannski börnin í leik- skólann um fjögurleytið,“ segir hann en Steinþór og eiginkona hans, Aðalbjörg Sif Krist- insdóttir kennari, eiga tvö börn, Guðnýju Lilju og Jón Kristin sem eru 3 og 4 ára. Steinþór segir afar misjafnt hvort hann er þreyttur seinni- part dags, á því sé dagamunur, en hann reyni að ná 7 klst. svefni. „Ég reyni að leika með börnunum milli kl. 16 og 18 og svo sé ég yfirleitt um að elda matinn á heimilinu,“ segir hann. Vinnudeginum er þó ekki lokið því oftar en ekki þarf Steinþór að loka bakaríunum, gera upp og undirbúa næsta dag. „Stundum geri ég það fyrir mat og stundum eftir mat. Yf- irleitt er ég í þessu aðeins á kvöldin. Maður er aldrei búinn í vinnunni.“ 20:00 Steinþór kemur yfir- leitt heim á þessum tíma og þá er Aðalbjörg búin að svæfa börnin. „Þá reynir maður að slappa af eftir daginn fyrir framan sjónvarpið,“ segir hann. 23:00 Steinþór segist yfir- leitt reyna að sofna milli kl. 23 og miðnættis enda mikilvægt að fá góðan svefn þar sem langur og strangur dagur er fram- undan. ylfa@mbl.is Dagur í lífi Steinþórs Jónssonar bakara Steinþór Jónsson er árrisull eins og aðrir bakarar. Morgunblaðið/RAX Vakinn og sofinn yfir bakaríinu sínu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.