SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Qupperneq 20

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Qupperneq 20
20 22. nóvember 2009 Undir berum himni Gunnhildur Ragnarsdóttir, sem haldin er MND-sjúkdómnum, kom í fyrsta sinn í fjögur ár út undir bert loft í vikunni en að- stæður í fjölbýlishúsinu, þar sem hún býr, eru ekki ákjósan- legar fyrir fólk í hjólastól. Ljósmyndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is án þess að vera beðinn um það. Svona næmur er hann.“ Árið 2000 fór Gunnhildur að finna fyrir máttleysi í öðru hnénu. Eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Síðan færðist máttleysið yfir í aðra höndina og þreytu fór að gæta. Hún gekk milli sérfræðinga í tæpt ár þangað til greiningin lá fyrir, hún er með MND- sjúkdóminn. Gunnhildur hélt áfram að vinna í sláturhúsi Móa í Mosfellsbæ en smám saman dró af henni. Hún fór að missa fótanna í snjónum og mígrenið, sem hrjáð hefur hana frá barnsaldri, lét til skarar skríða af fullum þunga. Vorið 2004 var svo komið að Gunnhildur treysti sér ekki lengur til að vinna. Hún átti orðið erfitt með gang og að halda jafnvægi og fór æ sjaldnar út úr húsi. Haustið 2005 datt hún illa í stigaganginum heima og síðan hefur hún ekki treyst sér til að fara út. Þegar hér er komið sögu var Gunnhildur farin að styðja sig við hækjur. Lá í átta vikur á spítala Í september 2007 varð hún fyrir því óhappi að renna í bleytu á gólfinu og tvílærbrotna. „Strangt til tekið fór ég þá út en á sjúkrabörum, þannig ég tel það varla með,“ segir Gunnhildur sem lá í átta vikur á spítala. Eftir að brotið var gróið óskaði hún eftir að komast á Reykjalund í endurhæfingu en „mér var sagt að ég þyrfti ekki á því að halda“. Eftir lærbrotið hefur Gunn- hildur alfarið verið í hjólastól heima. „Sjúkraþjálfari hefur komið hingað heim en ég er ekki nægilega ánægð með þá þjónustu. Hún vill vel en fæst ekki til að gera þær æfingar sem ég sækist eftir. Segist ekki mega það. Það er ekki við hana að sakast, A drenalínið streymdi um æðar mér. Ég vildi helst vera lengur úti í nepjunni en það var ekki hægt þar sem allir aðrir skulfu eins og hríslur. Ég fann aftur á móti hitann frá hvirfli til ilja,“ segir Gunnhildur Ragnarsdóttir, 56 ára MND-sjúklingur, sem kom í fyrsta skipti í fjögur ár, svo heitið geti, út undir bert loft í vikunni. Gunnhildur býr á annarri hæð í lyftulausu fjölbýlishúsi í Kópavogi og hefur þangað til nýlega ekki haft aðgang að búnaði sem gerir henni kleift að komast upp og niður tröpp- urnar í stigaganginum í hjólastólnum. Eftir að hafa fylgst með heimsókn Evalds Kroghs, formanns Muskelsvindfonden í Danmörku, hingað til lands í fréttum að undanförnu, en hann hefur aðgang að svokallaðri notendastýrðri þjónustu fyrir lamaða og fatla, setti Gunnhildur sig í samband við Guðjón Sig- urðsson, formann MND-félagsins, og Sigurstein Más- son, og gerði þeim grein fyrir aðstæðum sínum. Brugðust þeir skjótt við og sáu til þess að hún fékk að yfirgefa heimili sitt í fyrsta skipti í fjögur ár. Gunn- hildur fór með sigur af hólmi í þessari orrustu en stríð- ið er hvergi nærri búið. Lokatakmarkið er aðgangur að notendastýrðri þjónustu. „Ég get ekki sætt mig við að aðrir ákveði fyrir mína hönd hvenær ég fer í bað og hvenær ég fer út úr húsi,“ segir hún ákveðin. Klóraði Krogh í augabrúninni Gunnhildur fékk tækifæri til að hitta Evald Krogh í vikunni. Hann er með aðstoðarmann sér við hlið öllum stundum og Gunnhildi þótti mikil upplifun að fylgjast með samspili þeirra. „Svona á þjónusta við lamaða og fatlaða að vera. Hvers vegna stöndum við Dönum svona langt að baki í þessum efnum? Það var magnað að sjá aðstoðarmanninn klóra Krogh í augabrúninni, Gunnhildur Ragnarsdóttir kampakát úti í nepjunni í vikunni. Móðir hennar, Inga Jóna Kristjánsdóttir, fylgist með á tröppunum.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.