SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 27

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 27
22. nóvember 2009 27 O kkar starf felst í því að vekja vitund almennings um stöðu kvenna um all- an heim og vekja athygli á því hvernig UNIFEM vinnur að bætt- um hag kvenna með hagsmuni heild- arinnar að leiðarljósi,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir, formaður UNIFEM á Íslandi, en UNIFEM er þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna. Í tilefni 20 ára afmælis samtakanna hér á landi verður haldin vegleg afmælishátíð næstkomandi miðvikudag en sú dagsetning varð fyrir valinu þar sem 25. nóvember er alþjóðlegur dagur SÞ tileinkaður afnámi ofbeldis gegn konum. Að sögn Rögnu Söru sýna rannsóknir að konur í þró- unarlöndum nota 90% af eigin tekjum til að sjá fjöl- skyldunni farborða en karlmenn 30-40%. „Með því að styrkja konur til að efla sjálfar sig, til fjárhagslegs og fé- lagslegs sjálfstæðis, er í raun verið að styrkja grunn- innviði samfélagsins. Konur eru grunnurinn í fjölskyld- unni í þróunarlöndum og það er mikilvægt að hlúa að þeim.“ Ragna Sara segir að undanfarin tvö ár hafi verið haldnir mánaðarlega opnir fyrirlestrar á vegum UNI- FEM, svokallaðar UNIFEM-umræður, og hafi þeir verið vel sóttir af ólíkum hópum fólks. „Við erum afar ánægð með aðsóknina. UNIFEM á Íslandi hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin 20 ár. Við erum alltaf að verða sýni- legri.“ Áhuga landsmanna á málefnum UNIFEM varð einnig vart í sumar þegar farið var af stað með styrkt- araðilaverkefnið Systralag, þar sem fólk getur styrkt „systur“ sínar úti í heimi með mánaðarlegum fram- lögum. Hefur markmiðum þessa árs þegar verið náð. Alls eru félagar og styrktaraðilar UNIFEM á Íslandi tæp- lega 1.300 talsins í dag og rennur söfnunarféð til verk- efna UNIFEM á alþjóðavísu og fer þangað sem þörfin er mest hverju sinni. Það getur verið í styrktarsjóð UNIFEM til að afnema ofbeldi gegn konum, í verkefni á stríðs- hrjáðum svæðum eða fyrir samfélög sem verið er að endurbyggja eftir stríðsátök. Næg vinna framundan Í ár á kvennasáttmáli SÞ 30 ára afmæli. Að sögn Rögnu Söru leggur hann grunninn að starfsemi UNIFEM á al- þjóðavísu. „Í honum kemur fram að Sameinuðu þjóð- irnar og aðildarríkin beita sér fyrir því að konur hljóti jafnan rétt á við karla. Þessi kvennasáttmáli markaði í raun þáttaskil í baráttu fyrir bættum aðstæðum kvenna.“ Þegar UNIFEM var stofnað 1976 áttu samtökin upphaflega aðeins að vera starfrækt í 10 ár, þar sem talið var að sá tími dygði til að rétta stöðu kvenna í heim- inum. „En að 10 árum liðnum kom í ljós að barátta fyrir betri stöðu kvenna, bæði hvað réttindi þeirra varðaði, sjálfstæði og öryggi, þyrfti mun meiri stuðning og vinnu. Þess vegna starfar UNIFEM enn í dag. Jafnvel árið 1976 var ekki enn komið í ljós hvað konur stóðu höllum fæti á mörgum stöðum,“ segir Ragna Sara og tekur sem dæmi að kosningarétt hafi konur í Írak ekki fengið fyrr en 1980 og konur í Kúveit 2005. Enn sé næg vinna framundan. Spurð um stöðu kvenna hér á landi samanborið við konur erlendis segir Ragna Sara kvennahreyfinguna, sem hefur verið virk undanfarna áratugi, hafa skilað miklum framförum fyrir konur. „Að sjálfsögðu stöndum við jafnfætis körlum hvað löggjöf varðar en hins vegar má endalaust ræða hvort framganga kvenna í samfélag- inu sé nægileg, t.d. í stjórnum fyrirtækja og stjórn- málum. Í raun stöndum við mjög vel, sem og konur í mörgum öðrum löndum, en staða kvenna er svolítið ójöfn. Það er ekki hægt að taka t.d. Afríku í heild og segja að staða kvenna sé slæm þar heldur er það í ákveðnum löndum, sérstaklega þar sem stríð geisa, réttindi kvenna eru ekki stjórnarskrárbundin og kynbundið ofbeldi er liðið samkvæmt lögum, þar sem konur búa við sérstaka ógn. Það er mikilvægt að vera sér meðvitandi um það að styðja við bakið á þessari baráttu þar sem hennar er virkilega þörf.“ ylfa@mbl.is Styrkja grunninnviði samfélaga UNIFEM á Íslandi fagnar 20 ára afmæli sínu í næstu viku Ragna Sara Jónsdóttir 99% mæðradauða í heiminum verða í þróunarlöndum. Að meðaltali deyr ein kona á hverri mínútu vegna erfiðleika í fæðingu eða af fylgikvillum á meðgöngu. 75% ungra alnæmissmitaðra í Afríku í dag eru konur. Þriðja hver kona í heiminum verður á lífs- leiðinni fórnarlamb kynbundins ofbeldis. Sýruárásir, morð vegna heimanmundar, mansal, kynferðisleg áreitni, heið- ursmorð og útburður stúlkubarna eru hluti af sama vandamáli. Allt er þetta of- beldi gegn konum. Barnadauði í Pakistan og Indlandi er 30- 50% hærri hjá stúlkum en drengjum. Mun færri stúlkur í þróunarlöndum hafa tækifæri til grunnmenntunar og skóla- göngu en drengir. Tveir þriðju hlutar af ólæsu ungu fólki í heiminum í dag eru stúlkur. Árið 2009 eru konur í 18,5% þingsæta í heiminum. Níu lönd hafa enga konu í þingsæti. Konur í þróunarlöndum nota 90% af tekjum sínum í þágu fjölskyldunnar en karlmenn nota á bilinu 30-40%. 800 þúsund manns eru seld mansali ár hvert, flestir til kynlífsþrælkunar. 80% þeirra eru stúlkur og konur, og um helm- ingur undir lögaldri. Mansal er þriðja um- fangsmesta glæpastarfsemi í heiminum á eftir verslun með ólögleg eiturlyf og vopn. Konur eru 60-90% vinnuafls í framleiðslu matvæla og fatnaðar í þróunarlöndum en eru þó mun líklegri til að þjást af hungri en karlmenn og er oft neitað um land- eignarrétt. Staðreyndir Í tilefni 20 ára afmælisins verður haldin afmælishátíð með framsögu og skemmtiatriðum í Þjóðleikhúskjall- aranum 25. nóvember kl. 17-19. Sama dag verður gef- in út lítil bók um UNIFEM sem inniheldur fjölda stað- reynda um stöðu kvenna í heiminum. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun flytja ávarp, Auður Jónsdóttir skáldkona flytur ljóð sem hún orti sérstaklega fyrir UNIFEM, hin palestínska Lina Masar segir frá reynslu sinni sem kona í flótta- mannabúðum í Írak, Ellen Kristjánsdóttir og dætur hennar ætla að spila tónlist auk hóps kvenna úr Sin- fóníuhljómsveit Íslands o.fl. Heljarinnar hátíð Hún kann að drepa sporðdreka berst við þrálátan þorstann öskrandi stríðsmann sem breytist í grátandi barn grátandi barn í öskrandi stríðsmann sem frjóvgar hana sem var barn í gær sem fæðir stríðsmann á morgun Og hún er þú og þú ert hún og þú ert þær þú Auður Jónsdóttir Kona með augu Guðs „Með því að styrkja konur til að efla sjálfar sig, til fjárhagslegs og félagslegs sjálfstæðis, er í raun verið að styrkja grunninnviði samfélagsins,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir hjá UNIFEM. Ljósmynd/IRIN news
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.