SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Page 29
22. nóvember 2009 29
hvað skemmtilegt í lífinu þegar hægt er að hafa það leið-
inlegt. Og þykjast vera gáfaður.
Við héldum okkar striki og stoppuðum nokkrum sinnum
á leiðinni þegar eitthvað áhugavert varð á leið okkar. Við
keyrðum niður að Ingólfshöfða þar sem Palli myndaði
sandana. Það var hans mynd. Svo var ferðinni haldið áfram
til heimkynna skúmsins út af Kvískerjum. Þar byrjaði fyrst
fjörið, það var eins og að vera í stríði, undir stöðugum árás-
um orrustufugla að verja svæðin sín og unga.
Eftir að skúmurinn hafði næstum því slegið Palla í fjórða
sinn fékk hann nóg, hann gat ekki einu sinn skipt um filmu
þá réðst fuglinn á hann. Aldrei mátti líta af skúmnum. Ég
vildi reyna að ná betri mynd og hafði fest flass á myndavél-
ina til að reyna að stoppa hreyfinguna á fuglinum sem kom
æðandi í áttina að mér. Það skipti engum togum, flassið sem
var hæsti punktur á myndavélinni brotnaði af þegar fuglinn
kom æðandi alveg trítilóður og sló í myndavélina þar sem
ég var við hliðina á unganum hans.
Það er mikið keppnisskap í okkur félögunum. Við gef-
umst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Ég hafði tapað þessari
heimskulegu hestakeppni, 68 gegn 57, á leiðinni, þannig að
ég ætlaði ekki að klúðra myndinni líka. Það varð að harka af
sér nokkrar árásir fuglsins og taka sem flestar myndir því
ólíklegt var að allar væru í lagi.
Aðferðin var sú að kippa myndavélinni aftur á bak á sama
hraða og fuglinn. Vera búinn að stilla fjarlægðina rétta og
vonandi ná að smella af á réttu augnabliki. Þannig varð
stóra myndin hér á opnunni til. Að vísu gat ég ekki notað
flassið, það var brotið, en myndin af Palla er tekin með
flassinu rétt áður en það brotnaði.
Nokkrum dögum seinna var myndavélinni stolið úr bíln-
um mínum. Ég hafði gleymt að læsa honum. Sá sem tók
hana mætti alveg skila henni, en ef ekki, þá upplýsist hon-
um til fróðleiks að rispurnar á toppnum á vélinni eru eftir
skúminn á myndinni.