SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 47

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Blaðsíða 47
22. nóvember 2009 47 LÁRÉTT 1.Gyðinga? (10) 7. Vera þungorður um fimm vofur. (7) 8. Mjög hugsi kemur ofan hosuna. (12) 10. Innanhúss, inn í kassa. (11) 11. Fuglatjörn í Borgarfjarðarsýslu. (8) 12. Sjá sérhæfða sundmenn vegna ferðar knatt- spyrnuliðs. (7) 13. Eldur, mynt og fleiri tákn eru notuð í þessari skrift. (9) 15. Heyrist gera nýja plöntu. (7) 18. Lemur áhald fimmtíu og einn með hreinskilni. (8) 20. Er það ofneysla að setja naut í ofn? (7) 23. Ögra Félagi íslenskra teiknara með einni óvenjulegri tegund myndlistar. (7) 24. Á krá hefurðu stól sem nýtist þér í kosningum. (11) 25. Skólameistari fer öfugur í rotker. (6) 26. Mætur deyði það sem sleppir í gegn. (9) 27. Með í höfði hár en er samt eftirtektarsamur. (7) 28. Naglinn setur Portúgal tvisvar inn. (7) LÓÐRÉTT 1. Eiginmaður ær vegna skamma. (12) 2. Gin skera með frásögn. (10) 3. Kaka úr sjávardýrum? (10) 4. Sinni aftur kór með fótabúnaði (8) 5. Á bak Hannesi jarl finnst sem er góður stuðn- ingsmaður. (8) 6. Óskyldur er auðveldur viðfangs. (9) 9. Lítil Anais fær skömmina. (6) 14. Reipi kemur á eftir stúlku hjá blautum. (9) 16. Braut ryk sundfæri þetta. (10) 17. Hópurinn sem stóð ekki upp á Íslandi í stríð- inu. (9) 19. Dyr góðar fyrir vinveitta. (8) 21.Þegar Anna fær sunnlenskt tíkó í sig verður hún að grískri konu. (8) 22. Fangast brún á heimkynnum þeirra dauðu. (8) 23. Senda enskan konung í austur til að finna land. (7) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn með nafni og heim- ilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðs- ins, Hádegismóum 2, 110 Reykja- vík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 21. nóvember rennur út næsta föstudag. Nafn vinningshaf- ans birtist laugardaginn 28. nóvember. Heppinn þátt- takandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgát- unnar 14. nóvember sl. er Bryndís Jónasdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina Opinská ævisaga gleðikonu í London eftir Belle de Jour. JPV gefur út. Krossgátuverðlaun Íslendingar eiga fjóra keppendur á heimsmeistaramóti barna og unglinga sem nú stendur yfir í Kemer í Tyrklandi. Bjarni Jens Kristinsson teflir í flokki pilta 18 ára og yngri, Tinna Kristín Finn- bogadóttir í sama aldursflokki stúlkna, Mikhael Jóhann Karls- son teflir í flokki pilta 14 ára og yngri og Kristófer Gautason í flokki pilta 12 ára og yngri. Í þessu sama móti fyrir tveim ár- um voru íslensku þátttakend- urnir níu talsins en keppnis- flokkarnir eru 12 talsins og yngstu þátttakendur sjö eða átta ára gamlir. Fækkun íslensku keppend- anna nú er auðvitað samdráttar- einkenni og þar við bætist að mótið er býsna nálægt próftíma framhaldsskólanna. Samsetning íslenska hópsins er þó athygl- isverð því fulltrúar okkar koma úr hverjum landsfjórðungi. Eyja- maðurinn Kristófer Gautason má þannig heita fulltrúi Sunnlend- inga en faðir hans, Karl Gauti Hjaltason sýslumaður, er for- maður Taflfélags Vestmannaeyja og er syninum til halds og trausts á vettvangi í Tyrklandi. Frá Vest- urlandi eða öllu heldur Hítardal á Mýrum kemur Tinna Kristín Finnbogadóttir. Mikhael Jóhann Karlsson er réttur og sléttur Norðlendingur og býr á Akureyri og fulltrúi Austurlands er Bjarni Jens Kristinsson frá Fjósakambi í Hallormsstað. Fararstjóri og þjálfari hópsins er greinarhöf- undur. Samanburður við Norðurlönd, sem stundum er gripið til, er ís- lenskum ungmennum hagstæður á skáksviðinu en þar sem Tyrk- land liggur nálægt ýmsum stór- veldum skákarinnar þyngist róðurinn. Hér í eina tíð þótti það nær örugg ávísun á miklar fram- farir að teflan austan járntjalds en þótt skákin hafi misst stöðu sína að einhverju leyti þar er skákhefðin engu að síður afar sterk. Fyrir hina fjölmörgu keppendur frá Rússlandi, Arme- níu, Georgíu, Aserbaidsjan og ýmis önnur ríki Austur-Evrópu má ferðast skjótt á keppnisstað. Utar liggja hin nýju stórveldi skákarinnar Indland og Kína. Þessi lönd senda fjölmarga þátt- takendur til leiks og því er þetta heimsmeistaramót ungmenna „djúpa laugin“ í skákinni. Sem stendur hefur Tinna Kristín náð bestum árangri með 3 vinninga af sex mögulegum en hinir koma í humátt á eftir. Tinna hóf að tefla fyrir alvöru þegar Guðrún Jónsdóttir frá Glit- stöðum í Norðurárdal tók fyrir nokkrum árum að stefna börn- um og unglingum úr sveitinni í kring á skákæfingar í Borgarnesi. Hún varð í 2.-3. sæti ásamt Hall- gerði Helgu Þorsteinsdóttur á Ís- landsmóti kvenna á dögunum og hlýtur að knýja dyra hjá Ólymp- íuliði kvenna á næsta ári. Í 3. umferð vann hún sannfærandi sigur í skák sem hér fer á eftir. Útþensla peðanna á drottningar- væng var fyrirfram ráðgerð en svartur má gæta þess að riddari taki sér bólfestu á c5. Þegar svartur bjóst til gagnatlögu á drottningarvæng uggði hann ekki að sér því biskupinn sem réðst inn til atlögu á d7 tætti sundur peðakeðjuna með hinum óvænta 23. leik: Kemer 2009; HM ungmenna 18 ára og yngri Tinna Kristín Finnbogadóttir – Amira Hamza (Alsír) Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5. Rf3 Bd7 6. a3 cxd4 7. cxd4 f6 8. b4 Dc7 9. Bf4 Rge7 12. Bg3 f5 11. Rbd2 Rg6 12. h4 h5 13. Hc1 Db6 14. Rb3 Be7 15. Bd3 Rd8 16. O-O Ba4 17. Bc2 Bxb3 18. Bxb3 Rf7 19. Ba4+ Kf8 20. Dd3 a5 21. bxa5 Dxa5 22. Bd7 Rd8 Sjá stöðumynd. 23. Bxe6 Bxa3 24. Hb1 b5 25. Dxf5+ Ke7 26. Bxd5 - og svartur gafst upp. Í Tyrklandi eru tefldar ellefu umferðir og lýkur mótinu nú um helgina. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Landsbyggðarkrakkar á heimsmeistaramóti Skák Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.