SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Síða 49

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Síða 49
að því að skapa umhverfi og það er líka mjög gefandi,“ segir hann. „Þar er hægt að fara þessa leið, þó vinnuferlið sé aðeins annað.“ Stærsta slíka samstarfsverk er bílageymsluhúsið við Kringluna. „Gamla leiðin var sú að arkitektar bjuggu til umhverfi fyrir myndlist, frá- tekna staði. Það er óþarflega erfið og ófrjó nálgun til lengdar – og margreynd. Þess vegna var svo ánægjulegt að fara í samstarf með Stúdíó Granda, en við höfum þróað með okkur vinnubrögð þar sem engu máli skiptir hvar eða hvernig myndlistin og arkitektúrinn rekast saman. Við vitum ekkert hvort við eigum að kalla þetta arki- tektúr eða myndlist og það skiptir okkur engu máli. Ferlið er opið og þegar við för- um af stað í vinnu sem þessa ræðum við okkur að ákveðnu konsepti og þar fer hin eiginlega vinna fram.“ Byggir á verkum ljóðskálda Kristinn segist aldrei hafa lagt neitt upp úr því að skilgreina sig sem myndlistarmann. „Það leynir sér ekki að verkin á fyrstu einkasýningu minni, á Kjarvalsstöðum ár- ið 1990, gáfu nokkuð tóninn. Ég var þá mjög hrifinn af konkret myndlist, jafnvel konstrúktífri myndlist, sem var nokkuð áberandi seint á níunda áratugnum og svo auðvitað mínimalismanum og konsept- listinni sem ég sótti frekar í aðeins síðar. Raunar hef ég svo general áhuga á mynd- list að ég nenni ekki að katigorisera hana frekar og læt mér duga að njóta hennar.“ Hann fór snemma að velta fyrir sér tengslum tungumálsins og umhverfisins – því hugsanlega og því áþreifanlega. Stöð- um og merkingu þeirra. „Í tungumálinu felst mikill vísdómur og þekking. Besta leiðin að skilningi á um- hverfinu hefur mér fundist vera gegnum skáldskap og ýmsa aðra heimspekilega texta, en þetta birtist líka í dagsdaglegu málfari fólks. Mörg minna verka eru þess vegna byggð á verkum annarra, ekki síst ljóð- skálda, en þau eru ekki endilega tilvitn- anir, heldur miklu fremur afleidd eða þýdd yfir í annað form. Það er alltaf ánægjulegt að opna ljóðabók og sjá að ljóðskáld fjalli um svipaða hluti og maður sjálfur er að hugsa um. Það segir mér að listamenn eru margir að hugsa um það sama, þótt þeir útfæri hugsunina á mjög ólíkan hátt.“ „Við vitum ekkert hvort við eigum að kalla þetta arki- tektúr eða myndlist,“ segir Kristinn E. Hrafnsson sem er hér við bílastæðahúsið við Kringluna sem hann vann að með Stúdíó Granda. Morgunblaðið/Kristinn 22. nóvember 2009 49 „Jæja, þá er myndin komin aftur til landsins, eftir 175 ár,“ segir Bragi Guð- laugsson, dúklagningameistari og mál- verkasafnari, þegar hann hefur skorið umbúðirnar utan af litlu málverki sem hann keypti á uppboði hjá Bruun- Rasmussen í Kaupmannahöfn á dög- unum. „Ég fékk hana á tvöföldu mats- verði,“ segir Bragi, og greiddi hann að auki aðflutningsgjöld og virðisaukaskatt eins og vera ber. „Hún er býsna falleg,“ segir Bragi og ber fínlegt verkið út að glugga til að skoða það betur. Þarna sést út á sundin við Reykjavík, til Esjunnar og Skarðs- heiðar, og fyrir miðri mynd er stórt her- skip en málarinn kom með því til Íslands. Frederick Theodor Kloss (1802-1876) var opinber listamaður prinsins sem kom með herskipinu, Dronning Marie, til landsins, en prinsinn varð síðar Friðrik VII. Kloss gerði nokkurn fjölda mynda meðan á heimsókninni stóð, einkum teikningar og vatnslitamyndir. Þegar heim kom málaði hann stærri olíumyndir eftir sumum frummyndanna, þar á meðal eftir þessu olíumálverki sem Bragi keypti á uppboðinu á dögunum. Stærri útgáfan er í eigu Statens Museum for Kunst. „Þetta mun vera eitt af fyrstu málverk- unum sem gerð eru hér í Reykjavík með fagurfræðilegt gildi í huga, að und- anskildum kirkju- og mannamyndum. Þetta er afskaplega gömul mynd ef við miðum við íslenska myndlist. Þarna var Sölvi Helgason 14 ára,“ segir Bragi. Kloss tilheyrir svokallaðri gullöld danskrar málaralistar, sem sögð er hafa staðið milli 1770 og 1850. Fimm myndir eftir hann eru í stofngjöf Listasafns Ís- lands. Þrjár vatnslitamyndir málaðar í ferðinni árið 1834 og tvö málverk sem hann málaði síðar, annað gaf Kristján IX. Í leiðangri prinsins hingað til lands árið 1834 var sérlegur aðstoðarmaður hans sjóliðsforinginn C. Irminger. Aftan á verkinu er gulnaður miði sem á stendur: Reykjavik bugt 1834 malet af F. Th. Kloss 1834. Har tilhört Admiral C. Imringer. Aðstoðarmaðurinn hefur eignast verkið til minningar um Íslandsferðina. efi@mbl.is Málverk Fredericks Theodors Kloss. Þar sér út á sundin við Reykjavík sumarið 1834. Á verkinu, sem er 24 x 40 cm, sést herskipið sem flutti prinsinn og málarann til landsins. Morgunblaðið/Einar Falur Gamalt málverk snýr aftur Í dag kemur út glæsileg bók um Kristin E. Hrafnsson myndlist- armann. Er það önnur bókin í ritröð sem Crymogea gefur út um ís- lenska samtímalistamenn og styrkir Listasjóður Dungal útgáfuna. Fyrsta bókin í ritröðinni var helguð Guðrúnu Einarsdóttur og kom út á síðasta ári. Þótt nafn Kristins sé ef til vill ekki kunuglegt, þá kannast margir við verk hans, án þess að vera kunnugt um höfundinn; yfirgnæfandi líkur eru á að fólk hafi stigið á þau, ekið á þeim eða komið við þau. Verk Kristins er meðal annars að finna fyrir framan verslun IKEA í Garða- bæ, á bílastæðum Kringlunnar, á Laugaveginum, í Austurstræti, Aðalstræti, við Ægisíðu, við Háskólann á Akureyri, á Hólum í Hjaltadal, í Skálholti, Laugardal í Reykjavík, Mosfellsbæ, Ólafsfirði auk fjölda annarra staða og bygginga um allan heim. Bókin fjallar um verk og feril Kristins en á um 25 ára ferli hefur hann tekið virkan þátt í að móta umhverfi borgar og sveitar með ísmeygilegum, ljóðrænum, húmorískum og heimspeki- legum spurningum um stað og tíma. Fyrstu 100 eintökum bókarinnar fylgir grafíkverk eftir Kristin. Þessi fyrstu eintök verða ein- göngu seld í Eymundssyni í Kringlunni á útgáfudaginn. Þá verður einnig boðið upp á leiðsögn um eitt stærsta verk Kristins, bílastæðahúsið milli Kringlu og Borgarleikhúss. Bílastæðið er samstarfsverkefni Kristins og Studio Granda. Bókin er 180 blaðsíður auk innfellu með verkinu 32 strik. Texta um verk Kristins skrifar Gunnar J. Árnason. Bókarhönnun var í höndum Snæfríðar Þorsteins og Hildigunnar Gunn- arsdóttur. Þegar er farið að leggja drög að næstu bók í ritröðinni en Crymogea áætlar að gefa út eina bók á ári í þessari ritröð um samtímalistamenn, með dyggum stuðningi Listasjóðs Dungal. Stigið á verkin og ekið á þeim

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.