SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Page 52

SunnudagsMogginn - 22.11.2009, Page 52
52 22. nóvember 2009 Þ að eru viðtekin sannindi í bókaútgáfu að hinn dæmigerði lesandi er kona á miðjum aldri, áhugasöm um menningu og oftar en ekki langskólagengin. Þrátt fyrir það er bókmenntahefð okkar enn karl- læg; þó blessunarlega sé sjatnað flóðið af mæðulegum þroskasögum ungra karla sem ætlaði okkur lifandi að drepa fyrir nokkrum árum, er fátt um sterkar konur að pakka inn fyrir þessi jól. Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að lítið fari fyrir konum sem sögupersónum; af þeim íslensku skáldverkum sem ég hef lesið undanfarinn mánuð eða svo eru karlar í góðum meirihluta – 38 á móti 19. Flestar karlabókanna eru þroska- og baráttusögur karla sem þurfa að komast að því hverjir þeir eru (eða hverjir þeir voru), en inn á milli eru líka bækur sem eru með sterkum konum eða stúlkum í aðalhlutverki, til að mynda Svo skal dansa eftir Bjarna Harð- arson, þar sem umkomulausar konur bogna en brotna ekki, og eins í sögunni hans Sindra, Dóttir mæðra minna, þar sem helstu sögu- persónur eru konur sem takast á við mikil og erfið örlög. Þá eru eiginlega upp taldar sterkar konur fyrir þessi bókajól, og þær eru í boði karla. Í bókum kvenna birtast meiri gufur, nefni sem dæmi pasturslitla aðalpersónu Blómanna frá Maó eftir Hlín Agnars- dóttur, og höfuðpersónu Hins fullkomna landslags Rögnu Sigurðardóttur sem er óttalegur veifiskati (veifiskata?); hefur lítið sem ekkert frumkvæði þó hún sé alltaf að setja sig í skylmingastellingar (enda eru skylmingar nútímans í eðli sínu varnaríþrótt). Í Góða elskhuganum hennar Stein- unnar eru þrjár veigamiklar persónur, forvitnilegur karl, kona sem þýðist hann fyrir einhverjar sakir og svo geðlæknir, fínt efni í sterka sögupersónu, vel menntuð, gáfuð og ákveðin, en svo kem- ur það í ljós í bókinni að hún þráir ekkert frekar en gullhamra frá karlinum og þeg- ar þeir loks koma er lífi hennar lokið. Kristin Marja kemst eiginlega einna best frá þessu öllu saman í Karlsvagn- inum, þó hún sé frekar að velta fyrir sér kynslóðabili en bili milli karla og kvenna þá eru konurnar heilar og saga þeirra trúverðug. Svo verður ekki annað sagt en að sú Auður djúpúðga sem birtist í samnefndri bók Vilborgar Davíðsdóttur sé mikið kjarnakvendi. Ég bíð spenntur eftir framhaldinu. Sterkar konur óskast Orðanna hljóðan Árni Matthíasson arnim@mbl.is Það eru viðtekin sannindi í bókaútgáfu að hinn dæmi- gerði lesandi er kona á miðjum aldri. M argir muna eflaust eftir að hafa í æsku gleypt í sig sögurnar um Öddu allt þar til bókaflokknum lauk með farsælum endalokum í stíl þess tíma í síðustu sögunni, Adda trúlofast. Höfundar þeirra, Jenna og Hreiðar, voru um áratugaskeið meðal vin- sælustu barnabókahöfunda landsins og skrifuðu saman yfir tuttugu barna- og unglingabækur. Öddu-bækurnar eru þekktustu bækur þeirra, prýddar teikningum eftir Halldór Pétursson. Það er forvitnilegt að fletta fyrstu tveimur bókunum sem nú hafa verið endurútgefnar. Margt í þeim virkar gam- aldags í dag, sem þarf ekki að vera galli, sumt er svo bein- línis afturhaldssamt en annað alveg ágætt og stenst tímans tönn. Ömurlegt líf Í fyrstu Öddu-bókinni kynnist lesandinn munaðarleysingj- anum Öddu litlu. Hún er fjögurra ára og elst upp hjá gamalli konu, Birnu, sem sýnir litlu stúlkunni litla blíðu og Adda á enga vini í öðrum börnum sem stríða henni. Einn daginn lendir Adda í slysi og fer á spítala. Þar vinnur hún hug og hjörtu læknisins og konu hans sem taka hana að sér. Bókin byrjar með miklum látum. Líf Öddu litlu er svo öm- urlegt að ungum lesanda hlýtur að bregða en góðu lækn- ishjónin koma eins og frelsandi englar og færa hluti til betri vegar. Sagan einkennist af einföldum stíl og ágætu málfari. Það er yfir henni fremur geðþekkur blær enda er litla sögu- hetjan kjarkmikil og dugleg stúlka, tilfinningarík og ekki laus við skap en einstaklega góð í sér. Hún gerir alls kyns mistök og er áminnt fyrir það enda er henni ætlað að vera prúð og stillt, eins og talið er æskilegt að litlar stúlkur séu. Önnur bókin í bókaflokknum, Adda og litli bróðir, kom út 1947. Eins og titillinn ber með sér eignast Adda, sem þá er orðin sjö ára, bróður. Foreldrar hennar hafa reyndar ekki fyrir því að segja henni að von sé á fjölgun í fjölskyldunni. Heimur hinna fullorðnu er á vissan hátt sérheimur sem ekki þykir ástæða til að setja börn inn í nema þegar það þarf að aga þau og sýna þeim fram á hvað sé rétt hegðun. Adda er send í sveit yfir sumarið og faðir hennar kemur þangað til hennar í heimsókn til að segja henni fréttirnar eftir að drengur er fæddur. Uppeldistónninn er mun sterkari í Adda og litli bróðir en hann er í fyrstu bókinni. Óþekkur drengur er flengdur af pabba sínum og geymdur niðri í kjallara eftir að hann neitar að fara í skólann og hefur rifið blað úr lesbókinni til að leggja áherslu á uppreisn sína. Flenging og innilokun hafa undraskjót áhrif og drengurinn verður góður og fer orða- laust í skólann eins og aðrir krakkar. Fullorðnir vilja heldur ekki að börn ofmetnist. Mamma Öddu sem virðist hin besta kona, laus við refsigleði og há- vaðasamar skammir, er staðfastlega þeirrar skoðunar að ekki eigi að hrósa börnum svo þau heyri. Þarna endurspeglast uppeldisviðhorf sem var ríkjandi um tíma og telst varla sér- lega blessunarvert. Forvitnilegar bækur Þessar fyrstu Öddu-bækur eru forvitnilegar aflestrar rúmum sextíu árum eftir að þær komu út. Börn ættu enn að hafa gaman af lestri þeirra, einfaldlega vegna hinnar tápmiklu Öddu sem endaði svo feril sinn með því trúlofast. En það var einmitt það sem stúlkur gerðu í bókum í gamla daga. Svo fréttist ekkert af þeim meir. Bókafélagið Ugla hefur endurútgefið fyrstu tvær bækurnar í hinum vin- sæla bókaflokki um Öddu. Öddu- bækurnar eru sjö talsins. Sú fyrsta heitir því einfalda nafni Adda og kom fyrst út árið 1946. Þetta er fimmta útgáfa sögunnar. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Þessi tápmikla stúlka var sögu- hetja í sjö bókum. Adda litla snýr aftur Lesbók O ft byrja ég á því aðrenna augunum eftirbókahillunum, opna kannski eina bók, blaða í henni og dett í hana. Gleymi mér algerlega og geng aftur á bak alveg dottin út þar til ég lendi á stól sem ég sest í ómeðvitað. Stundum er ég alls ekki í stuði fyrir þessa bók og sting henni aftur í hilluna, jafnvel fullkomlega áhugalaus, finn ekkert í full- um hillunum og verð að kíkja í bókabúðina. Ósjaldan þegar ég er að opna kassa fullan af nýjum erlendum bókum birtist hún þarna í honum miðjum. Liggur og bíður, bókin sem mig langar að lesa, eftir þennan magnaða höfund sem skrifaði þarna bókina manstu sem var svo frábær. Þetta virðist í mínu tilviki allavega fara eftir því í hvernig skapi ég er. Er ég í skapi til að sökkva mér ofan í níðþungan texta með orðabók mér við hlið og fullan fant af bleksterku, svörtu kaffi? Eða langar mig kannski frekar til að trilla flissandi eins og skreytigl- Lesarinn Svanborg Þ. Sigurðardóttir verslunarstjóri hjá Eymundsson Hvernig bók langar mig til að lesa í dag? Þegar staðið er við hillur í bókaverslun fyllast lesendur valkvíða.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.