Morgunblaðið - 17.11.2009, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 17.11.2009, Qupperneq 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009 Gengi krónu gagnvart evru sept. 2008 - nóv. 2009 350 300 250 200 150 100 50 0 3. sept. 2008 3. nóv. 2009 Aflandsgengi Gengisskráning Seðlabanka Íslands 217,0 183,5 122,8 123,1 Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is AFLANDSGENGI krónu hefur nálg- ast gengisskráningu Seðlabanka Ís- lands á síðastliðnu ári. Sé litið til geng- isþróunar krónu gagnvart evru sést að aflandsgengi krónunnar snarlækk- aði við bankahrunið. Þann 8. október 2008 var munur á skráðu gengi á Ís- landi og aflandsgengi um 250%, en greiðslumiðlun og millibankamarkað- ur á Íslandi var þá í algeru frosti. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að erlendar innistæður í íslenskum krónum næmu um 200-300 milljörð- um. Í vefriti Lánasýslu ríkisins, sem birt var 9. nóvember síðastliðinn, má einnig sjá upplýsingar um að úti- standandi ríkisvíxlar í erlendri vörslu nema 44 milljörðum króna. Einnig er 72 milljarða skuldabréfaflokkur 10 ára ríkisskuldabréfa á gjalddaga í mars á næsta ári. Með nýjum tilmæl- um Seðlabankans er í raun verið að læsa þetta fé úti, enda notkunar- möguleikar þess afar takmarkaðir. Segja má að þetta fjármagn séu „óþolinmóðustu krónurnar,“ en reikna má með að Seðlabankinn þjón- usti eigendur þess fjármagns síðast. Seðlabanki Íslands hefur nú í raun skapað tvo gjaldeyrismarkaði með krónuna, einn á Íslandi og annan er- lendis. Ómögulegt er að eiga viðskipti með krónuna milli þessara tveggja markaða, nema þegar um ræðir vaxtagreiðslur, verðbætur eða arð- greiðslur, þó ekki sé heimilt að skipta greiðslum í erlenda mynt. Braskið erfiðara Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær gera tilmælin 9. nóvember gjaldeyrisbröskurum mun erfiðara um vik. Það mun væntanlega styrkja innlendu gengisskráninguna. Gjald- eyrisbrask hefur samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins stórminnkað í kjölfar gildistöku tilmælanna, og það sást á snarlegri minnkun í veltu á aflandsmarkaði krónu. Þó verður að taka inn í reikninginn að viðskipti á krónumarkaði eru jafnan stopul og aflandsgengisskráning veitir því ekki bestu upplýsingar. Jón Bjarki Bentsson, hagfræðing- ur hjá Íslandsbanka, segir í samtali við Morgunblaðið að með auknu flækjustigi og frekari hindrunum í gjaldeyrisviðskiptum muni af- landsgengi krónunnar gera lítið ann- að en að veikjast: „Það skapar síðan aukinn hvata til að svindla á kerfinu,“ segir Jón, enda eftir meiru að sækjast þegar gengismunurinn eykst. Heimabrúks- krónan styrkist Ný tilmæli munu auka gengismun Í HNOTSKURN »Reikna má með að krónanmuni styrkjast samkvæmt skráningu Seðlabanka Íslands til skamms tíma. »Aflandsgengi mun líklegaveikjast, enda eykst fram- boð króna þar í kjölfar nýrra tilmæla Seðlabanka. »Aukinn gengismunur gætiaukið hvata til að svindla. ÞETTA HELST ... Eftir Örn Arnarson ornarnar@mbl.is NORSKI fjárfestirinn Endre Røsjø segir ástæðuna fyrir því að hann hafi ekki enn fjárfest í MP-banka vera þá að lífeyrissjóðirnir, sem til stendur að taki þátt í kaupunum á nýju hlutafé í bankanum, hafi hvorki skuldbundið sig til þátttöku né gert áreiðanleikakönnun. Þátttaka hans í hlutafjáraukningu MP hafi verið háð þessum skilyrðum. Hann segist þó ekki vera afhuga fjárfestingu í bankanum né öðrum fjárfestingum hér á landi en hann fjárfesti að eigin sögn í íslenskum ríkisskuldabréfum í sumar fyrir um milljarð króna. Eins og Morgunblaðið sagði frá í haust þá stóð til að Røsjø myndi kaupa hlutafé í MP fyrir um 1,4 milljarða króna. Bankinn hefur heimild til þess að auka hlutafé um 600 milljónir króna. Í frétt í Viðskiptablaðinu þann 5. nóvember kom fram að til hefði staðið að Røsjø myndi kaupa hlutafé fyrir 200 milljónir á genginu sjö og lífeyrissjóðir og aðrir stofn- anafjárfestar ættu að kaupa það sem eftir stóð. Fram kom í sömu frétt að ekkert hefði orðið af kaup- unum þar sem Røsjø hefði vilj- að kaupa stærri hlut en til stóð í upphafi. Røsjø segir ástæðuna ein- göngu vera þá að lífeyrissjóð- irnir hafi ekki ennþá gert áreið- anleikakönnun á bankanum og þar við sitji. Aðrir fyrirvarar sem voru forsenda þátttöku hans í hlutafjár- aukningunni velti á gerð hennar. Hann segist ekki hafa neinar skýr- ingar á því af hverju málið hefur dregist á langinn af hálfu lífeyr- issjóðanna. Sem kunnugt er hafa fjölmiðlar fjallað umtalsvert um fjárfestingar Røsjø í norska olíufyrirtækinu DNO og persónuleg lán til forstjóra þess. Røsjø segir þessa umfjöllun engu máli skipta varðandi fjárfestingar sínar, enda hafi hann hreinan skjöld í þessum efnum. Lífeyrissjóðir halda Røsjø frá Endre Røsjø Hinn norski Røsjø segist ekki fjárfesta í MP-banka án áreiðanleikakönnunar Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is FJÖLDI fjársterkra aðila auk ým- issa þrautreyndra rekstrarmanna víðsvegar að úr atvinnulífinu er sagður standa að baki Þjóðarhag, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Í dag verður sent bréf til Nýja Kaupþings, þar sem formlega verður óskað svara við því hvort Hagar séu til sölu. Finnur Svein- björnsson, bankastjóri Nýja Kaup- þings, lét hafa eftir sér í sjónvarps- fréttum í gær að litið yrði á öll tilboð í Haga, þótt það væri í samræmi við verklagsreglur bankans að reyna fyrst að ná samkomulagi við núver- andi eigendur félagsins. Ekki náðist í Finn Sveinbjörnsson við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir. Fjöldi vanra rekstrarmanna Í gærkvöldi höfðu ríflega 3.500 manns skráð sig fyrir hlut í yfirtöku- tilboði á Haga, en það er ríflega 1,1% íslensku þjóðarinnar. Morgunblaðið náði tali af nokkrum þeim aðilum sem standa að Þjóðarhagi. Enginn þeirra vill láta nafns síns getið fyrr en skýr svör fást frá Nýja Kaupþingi um hvort til greina komi að selja fyr- irtækið í hendur annarra en Jóns Ás- geirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er aðallega um að ræða ein- staklinga úr atvinnulífinu með mikla reynslu af fyrirtækjarekstri. Senda bréf til bankans  Þjóðarhagur hefur sent Nýja Kaupþingi fyrirspurn um hvort Hagar séu til sölu  Fjársterkir einstaklingar og aðilar úr atvinnulífinu sagðir hluti af hópnum Í HNOTSKURN »Fjöldi þaulvanra rekstr-armanna úr atvinnulífinu stendur að baki Þjóðarhag. »Forsvarsmenn fjár-festahópsins hyggjast senda fyrirspurn til Nýja Kaupþings um hvort Hagar séu til sölu. Bankastjórinn vill selja Bónusfjölskyldunni. »Um 3.500 manns höfðu ígær skráð sig fyrir hlut í Högum, sem er ríflega 1,1% ís- lensku þjóðarinnar. Hagar Hópurinn á bak við Þjóðar- hag er sagður fjársterkur. ● Heildarafkoma HS Orku á fyrstu níu mánuðum árs- ins var jákvæð um 2,6 milljarða króna. Eiginfjár- hlutfall var 23,0% en var 16,3% í upphafi ársins. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að frá upphafi reikningsskilatímabils- ins hafi álverð hækkað, þannig að framtíðarvirði álverssamninga hefur hækkað um rúmlega 2,2 milljarða. Á móti kemur gengistap á sama tíma um 1,2 milljarða króna. Vegna þess að fyrirtækinu var skipt í tvennt í desember í fyrra seg- ir í tilkynningu að ekki sé hægt að bera saman tölur frá sama tímabili í fyrra við árangurinn nú. Allt árið 2008 var heildartap 4,7 milljarðar. bjarni@mbl.is Heildarhagnaður HS Orku 2,6 milljarðar Stórfréttir í tölvupósti Sunnudagsmogginn kemur nú með laugardagsblaðinu. Nýjar áherslur. Minna brot, spennandi vikurit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.