Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
Írska rokksveitin U2 náði sínumlistræna hápunkti með plötunniThe Unforgettable Fire árið
1984. Öðrum eins hæðum hefur hún
ekki náð, hvorki fyrr né síðar. Plat-
an ber með sér hárfínt jafnvægi til-
raunamennsku og aðgengilegheita
og það var eins og sveitin
væri, í fyrsta sinn, komin í
snertingu við mátt sinn og
megin. Einhvers konar
heimkoma, svo vísað sé í
opnunarlag plötunnar.
Platan hefur nú verið end-urútgefin og með þess-
ari útgáfu er níundi áratug-
urinn tæmdur hvað viðkemur
endurútgáfum á plötum U2.
The Joshua Tree var endur-
útgefin haustið 2007, um mitt
sumar 2008 komu fyrstu þrjá
plöturnar út (Boy, October og
War) og um haustið það ár var
tónleikaplatan Under A Blood
Red Sky gefin út.
The Joshua Tree og The Unfor-
gettable Fire fengu ívið öflugri
hanteringu en hinar, sú fyrstnefnda
kom m.a. út í forláta öskju og líkt er
með þessa hér. Auk upprunalegu
plötunnar er þar að finna disk með
sextán vandfundnum aukalögum,
hvorki meira né minna og þá er
mynddiskur með safninu The Unfor-
gettable Fire Collection sem kom
upprunalega út á VHS spólu árið
1985 og hafði að geyma stutta heim-
ildarmynd um gerð plötunnar auk
myndbanda. Þá er og að finna upp-
tökur frá tónleikaferðinni A Conspi-
racy of Hope sem sveitin lagði í árið
1986 ásamt fleirum, en ferðin var
farin fyrir tilstilli Amnesty Int-
ernational. Þar að auki er að finna
upptökur frá því er U2 kom fram á
Live Aid tónleikunum árið 1985, en
innslag sveitarinnar er goðsagna-
kennt og átti ekki lítinn þátt í að
hefja sveitina upp til vegs og virð-
ingar á meðal tónlistaráhugamanna.
Innbundin bók fylgir öskjunni þar
sem hinir og þessir reifa sögu plöt-
unnar, þar á meðal upptökustjór-
arnir Brian Eno og Daniel Lanois.
The Edge skrifar þá smá texta ogleiðir fólk í allan sannleikann
um lögin sjaldgæfu sem eru hrein-
asti fjársjóður. Einhver poppfræð-
ingurinn sagði eitt sinn að gæði
sveita mætti mæla út frá því hversu
góðar b-hliðar þær gerðu og lögin
sem fengu náðarsamlegast að prýða
b-hliðar smáskífnanna sem komu út
í tengslum við Unforgettable Fire
myndu gera hvaða sveit sem er
græna af öfund. Á sumum laganna,
eins og „Boomerang I“, „Boomer-
ang II“, „Bass Trap“ og „Sixty Se-
conds in Kingdom Come“ er til-
raunastarfsemin keyrð í botn en tvö
„hefðbundnari“ lög standa sér-
staklega upp úr. „The Three Sun-
rises“ komst næstum því á móð-
urplötuna og hið frábæra „Love
Comes Tumbling“ sýnir mjög
áhugaverða hlið á bandinu, Bono er
afslappaður og spilamennskan línu-
leg, nánast letileg. Miklir töfrar
leika um þetta lag sem er eitt það
allra besta sem sveitin hefur samið,
b-hlið eða ekki. Tvö lög hafa þá aldr-
ei komið út áður, „Disappearing
Act“ og „Yoshino Blossom“.
Þegar ég hugsa um The Unfor-gettable Fire verður mér oft
hugsað til Kid A Radiohead. Oxford-
sveitin rómaða hafði „slegið“ í gegn
með OK Computer en valdi að fylgja
plötunni eftir með vel súru verki.
Árið 1983 hafði U2 gefið út War,
plötu sem bar með sér ástríðufullt
melódískt rokk og lög eins og „New
Years Day“ og „Sunday Bloody
Sunday“ glumdu nokkuð í útvarpi.
Auðvelt hefði verið að hnykkja á
þeim vinsældum með samskonar
plötu en U2 hafði lítinn áhuga á því.
Hugrökk – því að öðru vísi er varla
hægt að orða það – lagði sveitin hins
vegar út í óvissuna. Réð til sín upp-
tökustjóra sem þekktastir voru fyrir
tilraunabundnar plötur og höfðu
meðlimir greinilega mun meiri
áhuga á að umfaðma listamanninn í
sér, búa til alvöru tónlist, fremur en
að eltast við vinsældir. The Unfor-
gettable Fire kom út aðeins ári eftir
War, en það er varla hægt að tala
um sömu sveitina. Þroskastökkið er
algert; lögin úthugsuð og „ógríp-
andi“, sveimkennd, hægstreym og
„listræn“. „Promenade“ er draum-
kennt, stutt súrrealískum, óhlut-
bundnum texta, „Elvis Presley and
America“ er naumhyggjulegt, minn-
ir smá á Can, og Bono spann textann
á staðnum. Hið ósungna „4th of
July“ er líkt og nútímadjass á vegum
ECM og „Wire“ er tryllingslegt,
nánast geðveikislegt. Stór, drama-
tísk lög eru þarna líka, nefna ber tit-
illagið og hið magnaða „Bad“, lík-
lega það besta sem sveitin hefur
gert nokkru sinni.
Á þessum tíma voru meðlimir 23
og 24 ára gamlir, á þeim aldri þegar
fólk býr til sín meistaraverk. Það
ungir og vitlausir að ekkert virtist
ómögulegt en það sterkir og orku-
ríkir að hið ómögulega varð engu að
síður mögulegt. Og útkoman er jafn
ógleymanleg og áður. arnart@mbl.is
Einhvers konar heimkoma
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
» Þroskastökkið er al-gert; lögin úthugsuð
og „ógrípandi“, sveim-
kennd, hægstreym og
„listræn“.
Ógleymanlegt U2 voru í hæstu hæðum, sköpunarlega séð, er The Unforgettable Fire
kom út árið 1984. Sveitin lagði ferilinn að veði með þessu magnaða verki sínu.
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára
Paranormal Activity kl. 6 - 8 -10 B.i.16 ára
Broken Embaces kl. 5:20 B.i.12 ára
Zombieland kl. 8 - 10 B.i.16 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
30.000
MANNS!
Sýningum fer
fækkandi
ÁÐUR ÓSÉÐ MYNDEFNI SEM
HEIMURINN HEFUR BEÐIÐ EFTIR
SÝND ÚT NÓVEMBER
SÖKUM VINSÆLDA!
HHH
-E.E., DV
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SUMIR DAGAR...
34.000MANNS!
EIN VINSÆLASTA MYND ÁRSINS!
FRÁ LEIKSTJÓRA INDEPENDENCE DAY OG THE DAY AFTER TOMORROW
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
2012 kl. 5:45 - 9 B.i.10 ára
Desember kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára
Jóhannes kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9 B.i.10 ára
This is It kl. 10 LEYFÐ
Jóhannes kl. 6 - 8 LEYFÐ
„2012 er Hollywood-
rússíbani eins og þeir
gerast skemmtilegastir!
Orð frá því ekki lýst
hvað stórslysasenurnar
eru öflugar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
Stórslysamynd eins og
þær gerast bestar.
V.J.V - FBL
600 k
r.
600 k
r.
600 k
r.
STÆRSTA FRUMSÝNING ÁRSINS!
VINSÆLASTA
MYNDIN
Á ÍSLANDI
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR