Morgunblaðið - 24.11.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 24.11.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is VERULEG lækkun á virðisauka- skatti vorið 2007 kom aldrei fram í verðlagi á kaffihúsum og börum. Nú stendur til að hækka virðisaukaskatt á veitingaþjónustu aftur. Spurningin er hvort sú hækkun kemur fram í verðlagi til neytenda? Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks- og Framsóknarflokks fékk samþykkt lög á Alþingi í árslok 2006 sem gerði ráð fyrir að neðra þrep virðisauka- skatts yrði lækkað úr 14% í 7%. Markmiðið með þessum breytingum var að stuðla að því að verðlag hér á landi yrði svipað og það er annars staðar á Norðurlöndum. Miðað var við að öll matvæli ættu að vera í neðra þrepinu. Til sam- ræmis við þetta var veitingaþjón- ustan færð í neðra þrepið en hún hafði greitt 24,5% virðisaukaskatt. Til viðbótar voru vörugjöld felld nið- ur á mörgum vörum. Þetta var því veruleg skattalækkun á þessa at- vinnugrein. Heildaráhrif frumvarpsins á verð- lag voru þau að tekjur ríkissjóðs af óbeinum sköttum lækkuðu um 10,5 milljarða. Lögin tóku gildi 1. mars 2007. Mælingar Hagstofu Íslands sýndu að hótel- og veitingaþjónusta lækk- aði um 3,2% í verði strax og lögin tóku gildi. Verðlag í veitingahúsum lækkaði, en engin breyting varð á verðlagi á börum og kaffihúsum. Ef horft er á verðbreytingar frá ársbyrjun til dagsins í dag kemur í ljós að verð á börum og kaffihúsum hefur hækkað um 30% á sama tíma og neysluverðsvísitala hefur hækkað um 32,5%. Verðlag á veitingahúsum hefur hækkað um 19,2% og í mötu- neytum um 20,8%. Það má því segja að neytendur sem eiga viðskipti við veitingahús og mötuneyti hafi notið skattalækkunar, en kaffihús og barir virðast hafa tekið nær alla hækkun- ina til sín. Ríkisstjórnin hefur nú kynnt að hún ætli að taka upp nýtt skattþrep í virðisaukaskatti sem er 14%. Í því verða veitingastarfsemi og sælgæti, kex og kökur, og drykkjarvörur aðr- ar en áfengi. Miðað við reynsluna frá 2007 ætti skattahækkunin nú ekki að hafa áhrif á verðlag á kaffihúsum. Kaffihúsin lækkuðu ekki þrátt fyrir skattalækkun Ríkisstjórnin áformar að hækka á ný virðisaukaskatt á veitingaþjónustu Morgunblaðið/Heiddi Inni og úti Lækkun á virðisaukaskatti skilaði sér ekki til neytenda á kaffihúsum og börum fyrir rúmum tveimur ár- um. Framundan er hækkun á virðisaukaskatti á veitingaþjónustu á ný og spurt er hvort hækkunin skilar sér. Í HNOTSKURN » Áformaðar breytingar ávirðisaukaskatti eiga að skila ríkissjóði samtals 6 millj- örðum króna tekjuauka, en miðað er við að breytingin komi til framkvæmda í 2 áföngum, 1. janúar og 1. mars. » Virðisaukaskattur á veit-ingastarfsemi var 24,5% fram til ársins 2007, fór síðan niður í 7% en færist nú í 14% þrep. Virðisaukaskattur af veitinga- húsastarfsemi kemur til með að breytast í upphafi næsta árs, en aðeins eru þrjú ár síðan sköttum var síðast breytt. Skatturinn fer úr 7% þrepi í 14% þrep. ÓVENJUMIKIÐ fékkst af ókyn- þroska grálúðu í haustralli Hafrann- sóknastofnunarinnar og var fjöldi ungfisks sá mesti sem sést hefur síð- an mælingar hófust 1996. Vísitala (þyngd og fjöldi fiska) 55 cm og stærri grálúðu var mjög lág 2003 til 2008 miðað við 1997 til 2001, en hún hefur aukist síðan 2007 og var svipuð 2009 og 2003. Jón Björn Pálsson, fiskifræðingur hjá Hafró, bendir á að hækkun vís- tölunnar byggist eingöngu á ung- fiski og sérstaklega á 35 til 40 cm löngum fiski. Það sé frekar óvenju- legt að sjá svo hátt hlutfall í þeim stærðarflokki. steinthor@mbl.is Góð nýliðun grálúðu „LÖGREGLAN mun funda með okkur í vikunni þar sem við förum yfir hvort ástæða sé til að efla varð- stöðu hennar hér um helgar. Á þess- um tímapunkti viljum við hins vegar höfða til almennings um að virða þá viðkvæmu starfsemi sem hér er,“ segir Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, yfirlæknir slysa- og bráðadeildar Landspítalans í Fossvogi. Til átaka kom á biðstofu slysa- deildar undir morgun aðfaranótt sunnudags. Sjö einstaklingar, fimm karlar og tvær konur, höfðu sig þar í frammi og varð lögregla að beita piparúða til að skakka leikinn. Ófeig- ur segir þetta mál mjög alvarlegt og sömuleiðis hve hrikalegar birting- armyndir ofbeldisins séu orðnar en á deildina komi allt að 1.600 manns á ári vegna afleiðinga ofbeldis af ýms- um toga. sbs@mbl.is Hörð átök á biðstofu slysadeildar ÚTLIT er fyrir að kosið verði upp á nýtt í nokkrar starfsnefndir Norð- urþings eftir að Friðrik Sigurðsson, einn af þremur bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, hætti samstarfi við meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og hyggst starfa sem óháður bæjarfulltrúi út kjör- tímabilið. Friðrik hefur verið óánægður með vinnubrögð meirihlutans og kornið sem fyllti mælinn er að hans sögn ákvörðun um sölu á raforkuhluta Orkuveitu Húsavíkur. Hann segist vilja að slík mál séu fyrst rædd við fólkið og hann kunni ekki við þá leynifélagsnálgun sem hann upplifi hjá forystumönnum meirihlutans. Þá telur hann verðið of lágt. Friðrik tilkynnti það á fésbók- arsíðu sinni sl. laugardag að hann væri hættur að styðja meirihlutann. „Mér þykir þetta leitt. Ég hef átt ágætt samstarf við Friðrik og óska honum alls hins besta á nýjum vett- vangi,“ segir Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs Norðurþings og oddviti sjálfstæðismanna. Friðrik er formaður skipulags- og byggingarnefndar og æskulýðs- nefndar. Hann hyggst ekki segja af sér nefndaformennskunni, segist al- veg treysta sér til að sinna þessum störfum fyrir íbúana áfram. Jón Helgi segir aftur á móti að meiri- hlutinn muni sjá til þess að hann hafi meirihluta í öllum nefndum sveitar- félagsins. Hann samsinnir því að Friðriki verði skipt út, segir að það liggi í hlutarins eðli. Samningur um sölu Orkuveitu Húsavíkur á rafdreifikerfi og til- heyrandi sölustarfsemi til RARIK og Orkusölunnar hefur verið stað- festur á hluthafafundi í OH en vísað til endanlegrar afgreiðslu í sveit- arstjórn. Söluverðið er rúmar 200 milljónir kr. Virkjun fyrirtækisins verður ekki seld. helgi@mbl.is Verður skipt út úr nefndum  Bæjarfulltrúi á Húsavík tilkynnti það á fésbókarsíðu sinni að hann væri hættur stuðningi við meirihlutann  Segist óánægður með leynifélagsnálgun Jón Helgi Björnsson Friðrik Sigurðsson Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is *Árleg meðalávöxtun frá 15.01.2001 til 31.10.2009. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti. Við öflum fyrir þig 9,8% 100%RÍKISTRYGGING MEÐALÁVÖXTUN* Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 RVK Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is LÚÐVÍK Geirs- son, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sækist eftir sjötta sæti í prófkjöri Samfylking- arinnar í Hafn- arfirði fyrir sveitar- stjórnarkosn- ingar á næsta ári. Ákveðið var á félagsfundi í gær að prófkjörið færi fram hinn 30. janúar. Sex bæjarfulltrúa þarf til að hljóta meirihluta í bæjarstjórninni og verð- ur Lúðvík því í baráttusæti. „Ég ætla að leggja allt að veði í þessari kosningu,“ segir hann. Samfylkingin hefur nú sjö fulltrúa í bæjarstjórn, Sjálfstæðisflokkurinn þrjá og Vinstri grænir einn. Lúðvík vill sjötta sætið Lúðvík Geirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.