Morgunblaðið - 24.11.2009, Síða 14
14 Skoðun
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2009
Eftir Einar Má Guðmundsson
G
engið hafði á með jarð-
skjálftum en þann 8.
júní árið 1783 hófust
eldsumbrot vestan við
Vatnajökul. Þá var
hvítasunnudagur og þetta voru
Skaftáreldar. Stóð gosvirknin fram á
næsta ár. Þá mynduðust Lakagígar
sem liggja á tíu samhliða sprungum.
Þær eru frá tveimur til fimm kíló-
metra á lengd.
Munu þetta vera
með meiri nátt-
úruhamförum
sem um getur.
Menn hafa ekki
notað aðra hag-
ræna stuðla á
þetta eldgos en
þá að sveitin lagð-
ist í eyði og fólk
flýði af bæjum.
Ég hef að
minnsta kosti ekki heyrt að þrýst-
ingurinn á jarðlögin hafi verið tíu
sinnum eða tólf sinnum stærri en
þau sjálf, svipað og þegar við tölum
um fjármálakerfið fyrir bankahrunið
í október 2008 og segjum að það hafi
verið tólf sinnum stærra en hag-
kerfið og því sprungið einsog eld-
fjall. Engu að síður hljóta jarðvís-
indamenn að hafa reiknað þetta út
þó ég kunni ekki á því skil.
Í bankahruninu hrundu þrír bank-
ar, fjórir ef Seðlabankinn er talinn
með og enn fleiri ef sparisjóðir og
minni fjármálastofnanir bætast í
hópinn. Í Skaftáreldum kom eld-
gosið í hrinum og þær eru taldar
hafa verið tíu. Í allt mynduðust 135
gígar og má eflaust líkja þeim við
tómið sem fjármálafurstarnir skildu
eftir í hagkerfinu. Eitrið úr gos-
stöðvunum dreifðist víða um land og
lagðist á fiskimiðin, svo hver vertíð á
fætur annarri brást. Fólk flýði af
nærliggjandi svæðum, margir urðu
úti og sumir gengu aftur. Í heim-
ildum er getið um umkomulausan
pilt sem fylgdi fjölskyldu frá Stokks-
eyri í marga ættliði, en fjöl-
skyldufaðirinn hafði úthýst honum
þegar hann barði að dyrum, þrek-
aður og nær dauða en lífi. Einhver
eftirherma af pilti þessum er nú í
draugasafninu á Stokkseyri, sem á
sinn hátt er táknrænt ef Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum tekst að breyta
Íslandi í draugasafn alþjóða-
samfélagsins og kannski verða yf-
irvöld nútímans stoppuð upp og
geymd sem safngripir þar.
En nóg um það, því slíkur var
mökkurinn úr gosinu að sól myrkv-
aðist. Aska kom niður í Skotlandi og
um alla Evrópu dimmdi á ótrúleg-
ustu tímum. Uppskeran brást í
Frakklandi. Sársvangir bændur yf-
irgáfu bú sín og streymdu til Par-
ísar. Nokkrum árum síðar varð bylt-
ing, franska byltingin, sem flestum
þykir allra byltinga merkilegust.
Evrópa baðar sig enn í ljóma þeirrar
byltingar og krafna hennar um
frelsi, jafnrétti og bræðralag. Nú
meira en tveimur öldum síðar ætla
ég ekki að fara að hrófla við neinum
söguskýringum og þakka Íslandi og
þá einkum íslenskum eldfjöllum
frönsku byltinguna, en þessi skýring
á einni af orsökum hennar er eflaust
ekkert vitlausari en hver önnur. Ég
nefni þetta því þess er hvergi getið í
sögulegum heimildum að franski að-
allinn hafi krafist skaðabóta af Ís-
lendingum vegna þessara nátt-
úruhamfara, enda ekki til nein
innistæðutrygging eldgosa á þeim
tíma eða eitthvert Evrópukerfi sem
sagði að vissulega mætti gosmökk-
urinn ferðast um heiminn en ábyrgð-
in væri hjá eldfjallinu sjálfu.
Hrun íslenska fjármálakerfisins
haustið 2008 hafði áhrif í öðrum
löndum þó einnig hafi áhrif frá öðr-
um löndum átt þátt í hruni þess. Og
alveg einsog uppskera bændanna
brást og aska féll í Skotlandi þá
misstu bæði enskir og hollenskir
sparifjáreigendur, sveitarfélög og
sjúkrastofnanir spón úr aski sínum
við fall íslensku bankanna. Á Eng-
landi hafði sú tilskipan verið látin
ganga út til sveitarfélaga að þau
ættu að spara, sem sé, bæði að skera
niður útgjöld og ávaxta sitt pund og
sína sjóði á hagstæðum reikningum.
Þrýstingurinn á þetta fyrirkomulag
frá stjórn Verkamannaflokksins var
svo mikill að þegar einstaklingar,
sveitarfélög, lúðrasveitir og spítalar
heyrðu talað um ICESAVE-
reikningana með hærri vöxtum en
gengur og gerist þá stukku menn til
og lögðu allt sitt fé inn á þessa reikn-
inga. Hér heima á Íslandi höfðu
langflestir íbúar landsins ekki hug-
mynd um að þessir reikningar væru
til og var þó eflaust fjallað um þá í
einhverjum af viðskiptakálfum blað-
anna en þeir voru oftast í sérblöðum
og í þeim prentaðar grobbsögur af
íslenskum auðmönnum. ICESAVE-
reikningarnir eru ein slík grobbsaga
en með sorglegan endi einsog títt er
með grobbsögur. Það fer oft illa fyr-
ir grobbnum mönnum, enda grobb
náskylt hrokanum sem nær allir
harmleikir fjalla um. Hin tæra snilld
bankamannanna varð að hreinni
óværu sem nú hvílir á þjóðinni, af því
að stjórnvöld okkar vilja ekki að
snillingarnir beri ábyrgð á snilld-
arverkum sínum. Okkar hlutverk er
að sitja uppi með hörmungarnar
sem og hin slöku eftirmæli snilld-
arinnar.
Einn góður félagi minn var aðsegja mér að allar vísitölurhefðu hækkað nema greind-
arvísitalan; og í höfuðstólinn er ekki
hægt að setjast. Ef hann er ekki á
hæðina þá er hann á lengdina; og
talnaleikirnir og loftfimleikarnir
halda áfram á þessu ísmeygilega
tungumáli stjórnvalda. Katrín Júl-
íusdóttir iðnaðarráðherra var virki-
lega dónaleg við garðyrkjubændur
þegar þeir mótmæltu raforkuverð-
inu um daginn. Spurning hvort hún
sé jafn hvassyrt við álfurstana og
stóriðjupostulana þegar þá ber að
garði. Hugsa sér! Hún hafði leyft
þeim að tala við mann á skrifstof-
unni, og var það ekki nóg? Sú spurn-
ing gerist áleitin hvort Samfylk-
ingin, sem kallar það mannasiði að
borga ICESAVE-reikningana, þurfi
ekki að fara á námskeið í mann-
legum samskiptum. Flokkurinn
hlýtur að hafa sín sambönd hjá Dale
Carnegie svipað og hann hafði í við-
skiptalífinu. Samfylkingin virðist
líka ráða öllu í ríkisstjórninni. Þar
eru spunameistarar sem líkjast vef-
urunum í Nýju fötin keisarans. Það
ætti frekar að hleypa gróð-
urhúsabændum inn en reka þessa
vefara út, alla aðstoðarmennina sem
aldrei hafa látið að sér kveða nema í
einhverju leynimakki. Það er alla
vega ekki verið að efna þau loforð
sem Vinstri græn buðu sig fram út á.
Ríkisstjórn sem vill að við fórnum
okkur fyrir fjármálaelítu heimsins
og ríkisstjórnir á hennar snærum, er
ekki að hlusta eftir félagslegum
lausnum. Almenningur í þessum
löndum hefur ekkert verið spurður.
Hann fer í vaxandi mæli út á götur
og segir: „Við neitum að axla ábyrgð
á kreppu auðvaldsins.“ En við erum
með stjórnvöld sem segja að það sé
bara allt í fínu að við játum á okkur
glæp sem við höfum ekki framið. Svo
er okkur líkt við Jesú Krist af því að
við eigum að bera syndir alþjóða-
samfélagsins. Ætli stjórnvöld okkar
endi ekki í guðfræði og sendi Gunn-
ar í Krossinum til að semja við Evr-
ópusambandið. Það er út í hött að við
eigum að axla ábyrgð á þessari kol-
klikkuðu innistæðutryggingu og ef
allt fjármálalíf Evrópu hvílir á henni,
segir það þá ekki sína sögu um þetta
sama fjármálalíf? Enn og aftur: Við
eigum að neita að axla ábyrgð á
kreppu fjármálaelítunnar. Erum við
sammála því eða eigum við að hlusta
á endalausa bankaþvælu, lagakróka
og óskiljanlega menn sem þvæla um
að þetta hafi verið allt í lagi þá, og
ekkert óeðlilegt og ekkert ólöglegt
við þetta þá? Má ekki alveg eins
spyrja: Hvað segir réttlætiskennd
okkar við þessu? Ef gjörninga eins-
og arðgreiðslur auðmannanna til
sjálfra sín má ekki taka upp þá erum
við að segja að það sé fullkomlega
eðlilegt að keyra heilt þjóðfélag í
þrot. Hvaða skilaboð eru það til
barnanna okkar? Fjármálasnilling-
arnir komu á fót yfirskuldsettum
loftbólufélögum og blésu upp efna-
hagsreikning sinn með viðskiptavild
og peningaskáldskap. Út frá þessum
skáldskap voru greiddar svimandi
arðgreiðslur, já í rauninni út á ekki
neitt. Um þetta segir Andrés Magn-
ússon geðlæknir: „Það er algerlega
ný og (ófyrirsjáanleg) staða að örfáir
einstaklingar geti sett heila þjóð á
hausinn. Það væri í hæsta máta
óeðlilegt að setja ekki ný lög til þess
að mæta þessum nýju aðstæðum.
Hluti þeirra gæti hljóðað eitthvað á
þessa leið: „Ef sú staða kemur upp
að gjaldþrot ákveðinna einkafyr-
irtækja er það stórt að það íþyngir
verulega ríkisfjármálum í fleiri ár
(eða er stærra en x% af ríkisfjár-
lögum) þá skal fyrst gengið að öðr-
um eigum ábyrgðarmanna (eigenda)
hinna gjaldþrota fyrirtækja áður en
almenningi í landinu er gert að taka
á sig skuldir þeirra.“
Hvað hefur skilað þjóðfélagiokkar árangri? Það er ekkihin sjálfumglaða fáviska
sem lagt hefur mesta áherslu á að
taka út úr þjóðfélaginu en ekki að
skila því neinu tilbaka. Mál Yngva
Arnar og annarra bankaforkólfa
speglar þetta. Þessir menn settu
þjóðfélagið á annan endann með því
að taka of mikið til sín, en nú vilja
þeir fá borgað fyrir það eftir göml-
um reglum sem ríktu í þeirra valda-
tíma. Yngvi Örn og bankaforkólf-
arnir, þetta hljómar einsog nafn á
gamalli nýbylgjuhljómsveit, Ian
Dury og þöngulhausarnir eða eitt-
hvað svoleiðis. En væri þetta bara
nafn á hljómsveit þá værum við í
góðum málum. Yngvi Örn var fram-
kvæmdastjóri verðbréfasviðs
Landsbankans og þar með yfirmað-
ur fjárstýringar bankans. Hann var
því einn af aðalleikendum í hruni
bankans og bankanna. Svo kann líka
einhver að spyrja: Hvað ætla menn-
irnir að gera við alla þessa peninga?
Og hvað fengu þeir mikla peninga á
meðan dansinn dunaði í kauphöll-
unum? Þegar við bætist að Yngvi
Örn Kristinsson er ráðgjafi félags-
málaráðherra eða hver nú titillinn
er, rýkur þá ekki allur trúverð-
ugleiki norrænu velferðarinnar út
um gluggann? Eina ferðina enn.
Hlýtur þingflokkur Vinstri grænna
ekki að gera þá kröfu að frjáls-
hyggjumennirnir yfirgefi félags-
málaráðuneytið? Hvaða erindi eiga
loftbólukapítalistar og verðbréfa-
prangarar þangað?
Í Kastljósi sjónvarpsins sagði
Yngvi Örn að það væri ekkert svig-
rúm til að laga stöðu heimilanna, og
má segja að komi úr hörðustu átt frá
manni sem vann við að búa til svig-
rúm með því að blása allt út í heimi
fjármagnsins. Svo vilja þessir menn
að bankarnir efni loforðin sem þeir
gáfu sjálfum sér á meðan þeir
stjórnuðu bönkunum. Ögmundur
Jónasson talar um veruleikafirrta
siðvillinga. Ef Ögmundur væri forn-
sagnaritari hefði hann líklega skrif-
að: Dýr myndi Yngvi Örn allur. Þó
hefur Yngvi Örn ekki misst fingur,
líkt og Hafliði forðum. Það er hins
vegar loftið í kringum Yngva Örn
sem er svo miklu dýrara en loftið í
kringum okkur hin. Í hagkerfi ný-
frjálshyggjunnar tóku þessir menn
út verðmæti sem þeir áttu ekki og
hirtu arð sem engin innistæða var
fyrir. Nú vilja þeir áfram fá borgað á
sömu forsendum og áður. Þeir sem í
raun ættu að skila peningum tilbaka
heimta meiri peninga. Eru þetta
mannasiðir Samfylkingarinnar?
Ætlar Norræna velferðarstjórnin að
láta þetta yfir okkur ganga?
Það er ekkert skrýtið þótt Yngvi
Örn sé hér tekinn út fyrir sviga í
hinu fríða föruneyti. Hann er hægri
hönd félagsmálaráðherra, en félags-
málaráðherra er frjálshyggjumaður
sem hugsar ekki um neitt nema kjöt-
katla Evrópusambandsins. Þess
vegna ræður hann til sín Yngva Örn
Kristinsson sem virðist helst líta á
það sem hlutverk sitt að bjarga
kúlulánaliðinu, en hluti þess situr á
þingi. Það má sannarlega segja að
þessir menn séu í björgunarleið-
angri. Þeir eru reiðubúnir að hamast
á öryrkjum og ellilífeyrisþegum og
heimilunum í landinu. Þar er ekkert
svigrúm. Ef við hugsum út í málin
þurfum við ekki að fara ýkja langt
aftur í tímann og skólaganga er ekki
sjálfsagður hlutur, og heilbrigð-
isþjónusta ekki heldur eða önnur al-
menn samhjálp. Það var barátta al-
þýðunnar sem skilaði okkur þessu,
öflugu velferðarkerfi, skólakerfi,
heilbrigðiskerfi. Góðærið svonefnda
fólst í því að afrakstur þessarar bar-
áttu, sameignin, var einkavædd og
seld. Það sem áður var sameign
fólksins, fiskurinn, síminn og bank-
arnir, var fært til einkaaðila á silf-
urfati og því síðan sólundað í kaup-
höllum heimsins. Verði
Icesave-samningarnir samþykktir
og skuldabyrðinni velt yfir á þjóðina
stöndum við aftur í hinum gömlu
sporum ójafnréttis þar sem hvorki
skólaganga né heilbrigðisþjónusta
verða sjálfsögð mál. Við þurfum að
geta horft nokkrar kynslóðir aftur í
tímann og spurt okkur hvað sé fram-
undan. Fjármagni fólksins hefur
verið eytt i einskisnýtt drasl, gler-
hallir og partí og fátt er eftir til að
selja. Þótt stór hluti góðærisins væri
hagbóla, byggð á draumórum, þá má
ekki gleyma því að undirstaða þess
voru raunverulegar eignir fólksins:
Fiskurinn, lífeyrissjóðirnir og rík-
isfyrirtækin. Við þurfum að brjótast
undan bölvun þeirrar spillingar sem
nú ríkir. Það er alveg ljóst að þessi
ríkisstjórn er ekki að brjótast undan
bölvun spillingarinnar. Hafi hún ætl-
að að gera það hefur hún löngu gef-
ist upp á því. Það er fjármálakerfið
sem er að taka allar stóru ákvarð-
anirnar og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn er fulltrúi þess. Þetta fjár-
málakerfi sem Viðskiptaráð kom á
hér á landi með ýmsar kanónur
hrunsins innanborðs er úrsérgengið
um allan heim. Engu að síður ræður
það öllu. Frelsi er að segja Nei við
þetta kerfi, nei við þetta fólk, nei við
Yngva Örn og bankaforkólfana.
Hlustum frekar á Ian Dury og þöng-
ulhausana. Við þurfum nýtt afl,
breiða samstöðu fólks þar sem ekki
er spurt um flokksskírteini. Stjórn-
málaflokkarnir hafa fengið sitt tæki-
færi en eru óðum að klúðra því.
Yngvi Örn og bankaforkólfarnir
Höfundur er rithöfundur.
Morgunblaðið/RAX
Gosmökkur efnahagshamfara „… enda ekki til nein innistæðutrygging eldgosa á þeim tíma eða eitthvert Evr-
ópukerfi sem sagði að vissulega mætti gosmökkurinn ferðast um heiminn en ábyrgðin væri hjá eldfjallinu sjálfu.“
Einar Már
Guðmundsson