Morgunblaðið - 24.11.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.11.2009, Qupperneq 20
✝ Pétur Guðjohnsenfæddist á Húsavík 8. nóvember 1927. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut fimmtudaginn 12. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Þórðarson Guðjohn- sen, sparisjóðsstjóri á Húsavík, f. 14. mars 1873, d. 14. júlí 1939 og Guðrún Hall- gerður Eyjólfsdóttir Guðjohnsen, f. 18. september 1897, d. 30. maí 1974. Systkini Péturs eru Halldóra Mar- grét, f. 28. september 1920, d. 10. júní 2001; Einar Þórður, f. 14. apríl Sveinbjörn Marion og María Helga. Sonur Sveinbjörns og Fríðu Edv- ardsdóttur er Ólafur Ottó, í sam- búð með Elínu Sólveigu Gríms- dóttur. Barn þeirra er Sigrún Fríða. 2) Viðar Helgi, f. 14. janúar 1958, kvæntur Margréti Björgu Júlíusdóttur. Börn þeirra eru Viðar Helgi, Júlíus Pétur og Andri Valur. Pétur starfaði við ýmis störf bæði til sjós og lands. Eftir nám við fiski- og farmannadeild Sjómanna- skólans 1953 starfaði Pétur sem stýrimaður á Esjunni og Fossunum til margra ára. Þá tók við vinna á fiskiskipum og var hann lengst af á Náttfara frá Húsavík. Vegna slitgigtar þurfti hann að leita sér vinnu í landi. Eftir það starfaði hann hjá Hafrafelli hf. Þór hf. og Höfðaleigunni. Útför Péturs verður gerð frá Bú- staðakirkju í dag, 24. nóvember, og hefst athöfnin kl. 13. 1922, d. 11. maí 1995; Stefán Sveinbjörn, f. 18. september 1924, d. 4. júní 1992. Eft- irlifandi systkini eru Þóra Ása, f. 17. mars 1930; Baldur Ásgeir, f. 17. ágúst 1932. Pétur kvæntist 29. október 1949 Grete Marion, f. 2. mars 1930. Foreldrar hennar voru Helge Kristine, f. 31. júlí 1900, d. 1960 og Otto Tangen, f. 27. apríl 1898, d. 1978. Börn Péturs og Grete Marion eru: 1) Sveinbjörn, f. 25. nóvember 1953, kvæntur Katr- ínu Gísladóttur. Börn þeirra eru Látinn er elskulegur og sómakær tengdafaðir minn. Eftir situr djúpur söknuður hjá eiginkonu og fjölskyldu. Þau hjónin áttu 60 ára brúðkaupsaf- mæli 29. október síðastliðinn. Það mátti berlega sjá að mikill kærleikur ríkti milli þeirra í gegnum súrt og sætt. Síðustu mánuði hafði Pétur glímt við erfið veikindi. Hann sýndi mikið æðruleysi og baráttuvilja allt fram í andlátið enda var hann sterkur í anda og hafði góða fjölskyldu sér við hlið. Mín fyrstu kynni af Pétri voru í bókaherbergi hans í Eskihlíðinni. Hann var mjög bókhneigður og átti orðið stórt safn bóka eftir ævilanga söfnun. Ævinlega var hægt að sækja í þekkingu hans ef á þurfti að halda. Hann var hafsjór af fróðleik og mikill íslenskumaður. Pétur hafði sterka réttlætistilfinn- ingu og var framsalið og veðsetning- ar í kvótakerfinu honum ekki að skapi. Oft sköpuðust langar og heitar umræður um það málefni. Nú verða þær ekki fleiri. Ég kveð þig með söknuði. Margrét Björg Júlíusdóttir. Pétur Guðjohnsen eða afi Pétur eins og ég þekkti hann var mér afar kær. Á ég margar og góðar minning- ar um hann frá barnæsku minni, þá sérstaklega um þær fjölmörgu veiði- ferðir sem við bræðurnir fórum í með honum. Það var þó ekki fyrr en ég hóf nám við Háskóla Íslands, og þurfti að finna mér hljóðlátt umhverfi til að læra í, sem við afi urðum nánir og hann fór að hafa mikil áhrif á lífs- skoðanir mínar. Fyrst um sinn, eftir að ég hóf reglulegar heimsóknir til afa og ömmu, deildum við hart og áttum mikil skoðanaskipti um samfélagið. Urðu oft heimsóknir, sem í grunninn voru ætlaðar skólabókalestri, að nær óstöðvandi samræðum um stjórnmál og kom það oftar en ekki fyrir að námið var sett á bið til að hlusta á þá miklu speki sem bjó í honum afa gamla. Ég minnist þess að oftar en ekki sat í mér tilhlökkun að komast úr skólanum til þeirra ömmu og afa til að sitja í stofunni með honum afa og hlusta á sögur frá hans yngri árum sem og ádeilur hans á ýmislegt sam- félagslegt óréttlæti. Sannarlega á ég eftir að sakna þeirra tíma þegar við afi sátum sam- an í stofunni, horfðum á ýmist þing- fundi, norsku fréttirnar, dýralífs- þætti eða annað, spjölluðum um samfélagið og biðum eftir góðum mat frá henni ömmu. Sárt þykir mér að hugsa til þess að þeir tímar eru liðnir en það er mér huggun að vita til þess að minning hans og orðstír mun lifa áfram um ókomna tíð því eins og seg- ir í gamalli speki: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Þegar ég lít til baka og horfi yfir þau ár sem ég hef farið nokkuð reglulega í heimsóknir til hans afa, og hennar ömmu, get ég sagt það með vissu að hann afi er með stærri áhrifavöldum á lífsskoðanir mínar og kveð ég hann með miklum sökn- uði. Viðar Helgi Guðjohnsen, yngri. Elsku Pétur bróðir, nú þegar leið- ir skiljast koma upp í huga minn æskuminningar frá Húsavík. Það sem er efst í huga mér er að þú lað- aðist snemma að sjónum. Alltaf varstu á ferðinni niðri í fjöru eða úti á bryggju og það kemur skýrt upp í huga mér þegar þú komst einn dag- inn hlaupandi inn og baðst mömmu að gefa þér 1 krónu. Þú hafðir komið þér í vandræði niðri á bryggju þegar þú dast í sjóinn og einhver maður hafði bjargað þér og þú vildir fyrir alla muni greiða honum fyrir. Þegar pabbi dó sundraðist fjöl- skyldan og þú fórst í Bárðardal og síðar til Egils og Fríðu, þau reynd- ust þér mjög vel og ég veit að þér var alla tíð mjög kært til þeirra. Elsku Pétur minn, samband okk- ar var alltaf gott og þér þótti gaman að hitta vini og fjölskyldu, þú varst alltaf svo vingjarnlegur og kátur. Seinni árin varst þú kominn á kaf í að binda inn bækur og lestur þeirra. Þú hringdir oft og spurðir hvort ég hefði séð eða lesið bók, þar sem minnst var á atvik sem við þekktum eða ættingja og vini. Mig hefði þó langað að stundirnar saman hefðu mátt vera fleiri. Það kemur upp í hugann söknuður og tárin renna yfir hlutunum sem við hefðum átt að njóta saman og orðunum sem aldrei voru sögð. Elskulegi bróðir, þakka þér fyrir góðu stundirnar og minn- ingarnar, Guð blessi þig og þína, hvíldu í friði. Þóra Ása. Pétur Guðjohnsen 20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2009 Við munum sakna Péturs bróður okkar mjög mikið. Hann var einn sá yndisleg- asti, vingjarnlegasti og skiln- ingsríkasti maður sem við höfum þekkt, einn af þeim sem marka sérstök spor í líf- inu. Ást okkar til hans varir að eilífu. Baldur og Sherry Guðjohnsen. Við munum sakna Péturs frænda, sérstaklega hans frábæru kímnigáfu og hlýja, sérstaka bross. Við munum geyma kæra minningu hans í hjörtum okkar alla tíð. Kerry Guðjohnsen og John Teixeira. HINSTA KVEÐJA LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÍÐUR HALLDÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Borgarhöfn í Suðursveit, til heimilis Langholtsvegi 177, Reykjavík, lést aðfaranótt fimmtudagsins 19. nóvember. Hún verður jarðsungin frá Langholtskirkju í Reykjavík mánudaginn 30. nóvember kl. 13.00. Jón Guðni Arason, Guðmundur Jóhann Arason, Aðalgeir Arason, Margrét Þorbjörg Þorsteinsdóttir, Einar Sigurbergur Arason, Ari Jónsson, Adam Jónsson, Vala Sigríður Guðmundsdóttir, Ari Hlynur Guðmundsson, Rögnvaldur Guðmundsson, Pétur Ólafur Aðalgeirsson, Ari Hálfdán Aðalgeirsson, Þorsteinn Hjalti Aðalgeirsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, ÁSTVALDUR HÓLM ARASON frá Borg á Mýrum, A-Skaftafellssýslu, til heimilis Brekkubyggð 18, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 20. nóvember. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 27. nóvember kl. 11.00. Sigríður Hera Ottósdóttir, Bergdís Lilja Kristinsdóttir Paul, Graham John Paul, Halla Kristín Guðlaugsdóttir, Gísli Örn Arnarson og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR PÉTURSSON hæstaréttarlögmaður, Hagamel 44, Reykjavík, lést föstudaginn 20. nóvember. Sigríður Níelsdóttir, Pétur Guðmundarson, Erla Jóhannsdóttir, Níels Guðmundsson, Jónanna Björnsdóttir, Snorri Guðmundsson, Bolette Steen Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐMUNDUR ÍVARSSON ÁGÚSTSSON útgerðarmaður og skipstjóri, Vogum, Vatnsleysuströnd, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík laugar- daginn 21. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju þriðjudaginn 1. desember kl. 15.00. Þórunn Kristín Guðmundsdóttir, John Hill, Lilja Júlía Guðmundsdóttir, Jón Ögmundur Þormóðsson, Andrés Ágúst Guðmundsson, Sædís Guðmundsdóttir, Þórður Kristinn Guðmundsson, María Gunnarsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, afabörn, langafabörn og langalangafabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ATLI H. ELÍASSON, Sléttuvegi 23, áður Hvassaleiti 11, andaðist á Landspítala Landakoti mánudaginn 16. nóvember. Útförin fer fram frá Grensáskirkju fimmtudaginn 26. nóvember kl. 13.00. Ragnhildur Bergþórsdóttir, Bjarghildur Atladóttir, Bragi Guðlaugsson, Bergþór Atlason, Margrét Atladóttir, Bjarni Ásgeir Jónsson, Ragna G. Atladóttir, Valdís Atladóttir, Lárus Sigurðsson, Jónína K. Ingadóttir, Ari Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐFINNUR SIGURÐUR SIGURÐSSON fyrrv. lögregluvarðstjóri og forvarnarfulltrúi, Hátúni 12, Reykjavík, lést miðvikudaginn 18. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helen Sigurðsson, Sigurður Kr. Guðfinnsson, Aldís Hugbjört Matthíasdóttir, Stefán Birgir Guðfinnsson, Rositsa Slavcheva Guðfinnsson, Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, Helga Björg Guðfinnsdóttir, Ingólfur Marteinn Jones, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, HALLDÓR EINARSSON ljósmyndari og hljóðfæraleikari, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugar- daginn 21. nóvember. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 27. nóvember kl. 15.00. Steinþóra Þórisdóttir, Halldóra Halldórsdóttir Adler, Jeremy Adler, Anna Birna Halldórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.