Morgunblaðið - 24.11.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.11.2009, Blaðsíða 25
Níels Kristinn Ómarsson og Emelía Marín Ákadóttir fóru í smá- hreinsunarátak í hverfinu sínu og tíndu flöskur og dósir. Þau gengu líka í nokkur hús og söfnuðu með þessu framtaki sínu 692 krónum sem þau styrktu Rauða krossinn með. Söfnun Dagbók 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2009 „ÞESSI afmælisdagur verður fjölskylduhátíð. Dóttir mín er komin hingað til Ástralíu frá Íslandi og dætur hennar tvær. Sonur minn sem býr hér ætlar líka að koma og einnig fjölskylda mannsins míns, börnin hans og barnabörn,“ segir Sólveig Einarsdóttir sem er sjötug í dag, en hún býr í Ástr- alíu og hefur gert það undanfarin tuttugu ár. „Í tilefni afmælisins ætlum við öll að safnast saman í strandbæ sem heitir Byron Bay og er á austur- ströndinni. Við verðum saman þar í sumarhúsi og þetta verður rosalega gaman. Hér er sól og hiti, um fjörutíu stig,“ segir Sólveig sem nýtur þess að vera til. „Núna kann ég að meta krikket og fylgist með því en það tók mig ein tíu ár að komast inn í allar reglurnar. Ég stunda garðyrkju þó nokkuð, rækta plöntur og matjurtir. Ég les líka mikið og reyni að fylgjast með því sem er að gerast heima á Íslandi. Ég var á Íslandi í sumar og líka um síðustu jól. Ég er eiginlega með annan fótinn á Ís- landi og hinn í Ástralíu, það er svolítil togstreita í hjartanu. Margir gamlir vinir á Íslandi sendu mér bækur hingað út í tilefni af afmælinu og mér finnst alveg yndislegt að þeir skuli enn muna eftir mér, ég sem er búin að vera svona lengi langt í burtu.“ khk@mbl.is Sólveig Einarsdóttir er sjötug í dag Afmæli í sól og blíðu Sudoku Frumstig 8 7 5 9 3 4 8 9 8 5 3 8 5 2 4 6 7 9 2 4 4 2 7 6 3 3 7 4 9 5 7 2 9 5 6 3 7 3 2 2 9 6 4 6 5 4 1 1 3 2 8 2 4 7 1 2 9 8 2 5 9 8 5 4 3 6 4 6 6 9 2 1 8 4 3 5 9 8 6 2 1 7 8 6 1 2 7 5 9 3 4 2 9 7 1 3 4 6 8 5 7 8 3 5 2 9 4 6 1 5 2 6 8 4 1 7 9 3 1 4 9 7 6 3 5 2 8 9 7 2 4 1 8 3 5 6 3 1 4 6 5 2 8 7 9 6 5 8 3 9 7 1 4 2 1 7 4 5 2 8 9 6 3 2 9 3 6 7 1 4 8 5 5 8 6 4 3 9 2 1 7 6 3 7 9 1 5 8 4 2 8 5 2 3 4 6 7 9 1 9 4 1 2 8 7 5 3 6 4 2 5 1 9 3 6 7 8 7 1 9 8 6 2 3 5 4 3 6 8 7 5 4 1 2 9 8 6 3 7 9 5 4 1 2 4 5 9 1 6 2 8 3 7 7 2 1 4 3 8 6 9 5 6 4 5 9 7 3 2 8 1 3 9 7 8 2 1 5 6 4 2 1 8 5 4 6 3 7 9 5 3 6 2 1 7 9 4 8 1 8 4 3 5 9 7 2 6 9 7 2 6 8 4 1 5 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 24. nóvember, 328. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef- ast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.) Fimmtán ára gamall sonur Vík-verja er ágætlega stæður eftir sumarið, auk þess sem hann hefur unnið aðeins með skólanum í haust. Þessa dagana hefur hann áhuga á að koma sjóði sínum í lóg, alltént hluta hans, og hefur einkum augastað á jakkafötum. Fullyrðir að enginn sé maður með mönnum nema hann eigi almennileg jakkaföt. Sonurinn brá sér í Kringluna á dögunum í þessum erindagjörðum og þóttist hafa himin höndum tekið þegar hann sá að 20% afsláttur var á jakkafötum í Hugo Boss. Hann vatt sér inn og óskaði eftir því að líta á jakkaföt. Afgreiðslumaðurinn hélt það nú. Dró fram föt í öllum regn- bogans litum. Sonurinn fór allur að iða og fann eftir nokkrar pælingar föt sem hann gat hugsað sér. Þá var bara eitt eftir: Að spyrja um verðið. „80 þúsund krónur,“ sagði af- greiðslumaðurinn skælbrosandi. Með eða án afsláttar? „Með afslætti. Þau voru á 100 þúsund krónur.“ x x x Aumingja syninum féll allur ketillí eld enda taldi hann sig vera að festa kaup á jakkafötum, ekki bif- reið. Enda þótt hann hafi ekki kvart- að undan kjörunum hjá Reykjavík- urborg síðastliðið sumar var þetta heldur mikið af því góða. Sonurinn tjáði því afgreiðslumanninum að hann þyrfti aðeins að hugsa málið. Líklega í svona tvo áratugi. „Gjörðu svo vel,“ sagði afgreiðslumaðurinn skælbrosandi. Sonur svipast nú um eftir jakka- fötum í öðrum verslunum. Hann ger- ir sér eftir þessa lífsreynslu grein fyrir því að orðið „merkjavara“ hef- ur raunverulega þýðingu. x x x Víkverja þykir orðið „orðræða“alltaf jafnskrýtið en það er mik- ið notað í fræðasamfélaginu og í auknum mæli í fjölmiðlum. Honum er ljóst að orðið er gott og gilt og merkir, samkvæmt orðabók, tal, samræða eða umræða. En er þetta ekki ofhlaðið orð? Er ræða til án orða? Má ekki alveg eins tala um „knattbolta“? Ellegar „talsíma“? víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 smáspölur, 8 drekkur, 9 gufuhreins- ar, 10 kraftur, 11 magr- ar, 13 happið, 15 nag- dýrs, 18 tagl, 21 elska, 22 linu, 23 endurtekið, 24 bílnum. Lóðrétt | 2 glatar, 3 sér eftir, 4 högg, 5 vesælan, 6 reykir, 7 veiðidýr, 12 skel, 14 stefna, 15 blanda, 16 skæld, 17 á litinn, 18 kjaftæði, 19 stríðin, 20 lifa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hjarn, 4 kulna, 7 Aðils, 8 rofin, 9 afl, 11 agni, 13 saur, 14 löngu, 15 bull, 17 máni, 20 bak, 22 gutla, 23 ærinn, 24 ræðin, 25 agnar. Lóðrétt: 1 hjara, 2 arinn, 3 nusa, 4 kurl, 5 lyfta, 6 Arnar, 10 fanga, 12 ill, 13 sum, 15 bágur, 16 látið, 18 ásinn, 19 iðnir, 20 bann, 21 kæpa. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. Rf3 g6 5. cxb5 a6 6. b6 d6 7. Rc3 Rbd7 8. e4 Bg7 9. h3 O-O 10. Be2 Dxb6 11. O-O Re8 12. a4 Rc7 13. Rd2 Hb8 14. Ha3 Da7 15. Dc2 f5 16. exf5 gxf5 17. Rc4 Re5 18. Bg5 Re8 19. f4 Rxc4 20. Bxc4 Rf6 21. b3 Kh8 22. Dd3 Bb7 23. He1 Hbe8 24. Ha2 Bc8 25. Hae2 Hf7 26. Kh2 Hg8 27. He3 Bf8 28. De2 Da8 29. Dc2 Bb7 30. Dxf5 h6 Staðan kom upp á opnu atskákmóti sem lauk fyrir skömmu í Korsíku í Frakklandi. Sigurvegari mótsins, hol- lenski stórmeistarinn Ivan Sokolov (2657), hafði hvítt gegn Alexandre Iwanesko (2195) frá Frakklandi. 31. Hxe7! Bxe7 32. Hxe7 Rg4+ 33. Dxg4 Hxe7 34. Bf6+ Hgg7 35. Dh4 Df8 36. f5 Kg8 37. Bxg7 Hxg7 38. Df4 Bc8 39. f6 Hg5 40. Re4 He5 41. f7+! Kh8 42. Rxd6! og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Tónninn gefinn. Norður ♠852 ♥K6 ♦104 ♣1087632 Vestur Austur ♠D10763 ♠G94 ♥9532 ♥4 ♦– ♦DG87653 ♣KDG5 ♣94 Suður ♠ÁK ♥ÁDG1087 ♦ÁK92 ♣Á Suður spilar 6♥. Austur opnar á 3♦ og gefur þannig tóninn fyrir komandi átök. Suður dobl- ar og krefur í kjölfarið með tígul- sögnum, en undirtektir norðurs eru að vonum dræmar og sagnir enda í hálf- slemmu. Útspilið er ♣K. Vonin liggur í því að endaspila aust- ur. Sagnhafi sér í anda fjögurra spila endastöðu, þar sem austur og suður eiga bara tígul á hendi: Smáum tígli þá rennt á tíuna og austur er dæmdur maður. En bíðum við – getur austur ekki haldið eftir svörtu fríspili til hliðar við ♦DGx? Jú, sú hætta er yfirvofandi hvað laufið varðar. En sagnhafi reddar sér með því að nota innkomuna á ♥K til að trompa lauf og strípa austur af þeim lit. Síðan klárar hann trompin áð- ur en hann losar um spaðann. Við því á austur ekkert svar. 24. nóvember 1972 Suðurlandsvegur milli Reykja- víkur og Selfoss var formlega tekinn í notkun. Hann hafði verið endurbyggður og lagður bundnu slitlagi. Verkið tók sex ár. 24. nóvember 1974 Varðskipið Ægir tók vest- urþýska togarann Arcturus að ólöglegum veiðum við Suð- austurland. Þetta var fyrsti togarinn sem tekinn var innan 50 mílna fiskveiðilögsög- unnar. 24. nóvember 1999 Nýr vegur fyrir Búlandshöfða á Snæfellsnesi var formlega tekinn í notkun. 24. nóvember 2000 Skógarhöggsmenn í Hallorms- staðarskógi felldu sitka- grenitré sem var 15 metrar og 10 sentimetrar og var þá hæsta tré sem fellt hafði verið hér á landi. Það var flutt til Egilsstaða og prýtt jólaljósum. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú átt ekki gott með að einbeita þér að flóknum verkefnum í dag, hug- urinn fer út og suður. Hinkraðu við og gefðu þér tíma til þess að hugsa málin. (20. apríl - 20. maí)  Naut Einhver vill að þú skuldbindir þig af meiri alvöru. Vertu opinn fyrir nýj- um hugmyndum því þær víkka út sjón- deildarhringinn. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert undir miklu álagi og kannt illa að verja þig. Reyndu að halda þig fjarri honum svo engin leið- indi komi upp á. Skoðaðu hvert mál vandlega áður en þú tekur afstöðu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú getur aukið hæfni þína til ei- lífðarnóns, en það er ekki endilega hæfni sem mun færa þér velgengni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú þarft að ganga frá smáatriðum sem tengjast skatta- og tryggingamál- unum. Ef þú heldur vöku þinni og gef- ur þér tíma til að gera hlutina vel ætti allt að ganga vel. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er auðvelt að hugsa bara um eigin mál, sérstaklega þegar þau eru hrein skemmtun. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er hætt við að áhyggjur af fjármálunum og ábyrgð þinni gagnvart öðrum hellist yfir þig í dag. Haltu henni fyrir þig eða milli þín og náins vinar. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Vinsældir þínar í einkalífi og starfi eru miklar um þessar mundir og allir vilja hafa þig með. Gættu þess bara að ganga ekki fram af þér. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert ákveðinn í að komast til botns í heimilisvanda og laga hann. Maður getur ekki unnið stanslaust og ekki skemmt sér allan sólarhringinn. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þetta er góður dagur til þess að taka höndum saman með góðgerðar- samtökum. Hertu upp hugann því nú er til mikils að vinna. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Hvöt þín til óhófs spennist sí- fellt á móti fjárhaslegri visku. Ef þú sækir í enn betri vinnufélaga getur þetta verið stórkostleg hugmynd. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þig langar til að koma skipulagi á hlutina bæði í vinnunni og á heimilinu og hefja að því loknu nýjan kafla. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.