Morgunblaðið - 24.11.2009, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2009
Þrátt fyrir unglegt útlit ogæskuþrótt man ég eftirKananum gamla, útvarps-
stöð sem rekin var af bandaríska
herliðinu á Keflavíkur-flugvelli frá
1952. Á þeim árum sem ég byrjaði
að spekúlera í músík var nóg af
klassík í Ríkisútvarpinu, sem ég
hlustaði og mikið á, en erfiðara að
finna aðrar gerðir af tónlist. Þá
kom Kaninn sér vel enda var þar að
finna kalla eins og Casey Kasem,
sem spilaði vinsældalista, Wolfman
Jack og fleiri músíkmenn sem miðl-
uðu til okkar þeirri tónlist sem vin-
sæl var vestan hafs.
Á þeim árum sem ég hlustaðihvað mest á Kanann, í upphafi
áttunda áratugarins, var heilmikið
að gerast í músíkinni og ekki bara
popp; í bland við Kool and the
Gang, Johnny Cash, Jimmy Buffet
og Stevie Wonder fékk maður
meira fjör frá Lynyrd Skynrd,
Mike Oldfield, Led Zeppelin,
Doors, Rolling Stones, Santana,
Alice Cooper, Derek and the Dom-
inoes, James Brown og KC and The
Sunshine Band (víst voru þeir frá-
bærir!).
Ég rifja þetta upp hér í kjölfarsamtals sem ég átti við gamlan
kunningja fyrir stuttu þar sem
hann emjaði yfir músíkinni sem
spiluð er á útvarpstöðinni Kananum
sem byrjaði útsendingar nýverið.
Það sem hann hafði helst út á stöð-
ina að setja var að hún var ekki eins
og „gamli“ Kaninn, þ.e. að spila tón-
list frá áttunda áratugnum (af ein-
hverjum orsökum nefndi hann ekki
tónlist frá sjöunda áratugnum, nú
eða þeim sjötta þegar útsendingar
hófust).
Í kjölfar þessa hlustaði ég á Kan-ann til að grennslast fyrir um
hvað væri á seyði og ekki gat ég
betur heyrt en að Kaninn anno 2009
væri nákvæmlega eins og Kaninn
forðum, þ.e. að spila þá tónlist sem
vinsælust er hverju sinni. Til gam-
ans kannaði ég hvað væri efst á
baugi hjá þeim „Kanamönnum“,
það er útvarpstöðvum í herstöðvum
Bandaríkjamanna víða í Evrópu.
Þar eru menn við sama hey-
garðshornið, þ.e. að spila þá músík
sem er vinsælust vestan hafs;
listamenn eins og Shakira, Black
Eyed Peas, Mariah Carey, Sean
Paul og Pink, svo dæmi séu tekin.
Að vísu sýnist mér og heyrist menn
vera að spila meira rokk á þeim
stöðvum en í Kananum íslenska, en
það er þá alloft frekar þreytt iðn-
aðardót og lítið eftirsjá að því:
Weezer, Bon Jovi, Pearl Jam og
Linkin Park.
Það er gott að minnast gömludaganna, en óheilbrigt að
fagna ekki þeim nýju. Eitt það besta
við músík er að hún er síbreytileg
og þeir sem hafa gaman af tónlist-
inni tónlistarinnar vegna hljóta að
fagna því að sífellt koma nýjar
stefnur og nýir straumar. Þeir sem
ríghalda í gamalt dót til að reyna að
halda í æskuna ættu að skafa aðeins
út úr eyrunum og gefa nútímanum
sjens. Kananum líka. arnim@mbl.is
Hvenær er Kani Kani?
AF LISTUM
Árni Matthíasson
» Þeir sem ríghalda ígamalt dót til að
reyna að halda í æskuna
ættu að skafa aðeins út
úr eyrunum og gefa nú-
tímanum sjens.
Gamlingjar KC and The Sunshine Band átti sitt blómaskeið á áttunda áratugnum og er enn að, eins og greinarhöf-
undur. Ekki eru þeir þó eins ferskir, enda er gott að minnast gömlu daganna en óheilbrigt að fagna ekki þeim nýju.
YFIR 32.000 GESTIR
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
FRÁBÆR MYND UM UPP-
VAXTARÁR EINS ÁSTSÆLASTA
KÖRFUBOLTAMANN
SAMTÍMANS, LEBRON JAMES.SÝND Í ÁLFABAKKA
JÓLAMYNDIN Í ÁR
Jim Carrey fer gersamlega á kostum
EKKI VIÐ HÆFI
UNGRA BARNA
HHHH
„STÓRKOSTLEGT SJÓNARSPIL“
- ROGER EBERT
„STÓRKOSTLEG
UPPLIFUN“
- C.G - AAS
„MEISTARAVERK, JIM CARREY
ER HREINT STÓRKOSTLEGUR“
M.S.A – CBS TV
JIM CARREY
Sýnd með íslensku
og ensku tali
Frá Robert Zemeckis, leikstjóra “Forrest
Gump” og “Back to the Future” myn-
danna kemur hið klassíska jólaævintýri
Charles Dickens.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
/ KRINGLUNNI
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl.5:503D 7 3D-DIGITAL MY LIFE IN RUINS kl.5:50-8 L
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.5:503D -83D -10:103D ótextuð 7 3D-DIGITAL LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:10 L
PANDORUM kl.8 -10:20 16
L
16
/ ÁLFABAKKA
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl. 5:503D 7 3D DIGITAL LAW ABIDING CITIZEN kl. 8-10:20 L
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl. 83D - 10:103D ótextuð 7 3D DIGITAL MORE THAN A GAME kl. 5:50 7
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl. 5:50 7 COUPLES RETREAT kl. 8 12
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl. 8-10:10 7 ALGJÖR SVEPPI.. kl. 6 L
PANDORUM kl. 5:50-8-10:20 16
HORSEMEN kl. 10:20 16
LAW ABIDING CITIZEN kl. 5:50-8-10:20 LÚXUS VIP
BJÓÐUM APÓTEKARANN
Lyf á lægra verði í næsta nágrenni
Melhaga Reykjavík Salavegi Kópavogi
Smiðjuvegi Kópavogi
Hafnarstræti Akureyri
Þverholti MosfellsbæMjóddinni Reykjavík
Höfða Reykjavík
Opnunartími
Höfða
Við höfum opnað að Bíldshöfða 20 (Húsgagnahöllinni) og bjóðum lyf á lægra verði.
mán.–fös.
11.00–19.00
laugardaga
12.00–18.00 www.apotekarinn.is