Morgunblaðið - 24.11.2009, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 328. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
122,21
202,97
115,42
24,588
21,85
17,792
121,09
1,3746
195,82
183
Gengisskráning 23. nóvember 2009
122,5
203,46
115,76
24,66
21,914
17,844
121,43
1,3786
196,4
183,51
235,6188
MiðKaup Sala
122,79
203,95
116,1
24,732
21,978
17,896
121,77
1,3826
196,98
184,02
Heitast 4°C | Kaldast -4°C
NA-átt. 10-18 m/s
síðdegis. Snjókoma
eða slydda NA- og A-
til. Él norðvestanlands.
Léttskýjað sunnan til. »10
Sýning Jóhönnu
Helgu snýst um
áhrif ljóss og lita á
okkur mannfólkið,
ljóstillífun og skort á
dagsljósi. »28
MYNDLIST»
Áhrif ljóss
og lita
TÓNLIST»
Janet Jackson kom fram
ásamt fleirum. »33
Þórdís Björnsdóttir
pælir í því hvað er
draumur og hvað er
veruleiki og hvers-
konar veruleiki er
raunveruleikinn. »27
BÓKMENNTIR»
Draumur og
veruleiki
FÓLK»
Of gamall til að vera
talinn kyntákn. »31
KVIKMYNDIR»
Reiðmenn lofuðu góðu en
enduðu illa. »30
Menning
VEÐUR»
1. Íslendingur fannst látinn
2. Lýst eftir Jóni Helga Lindusyni
3. Missti bætur vegna mynda
4. Gekk berserksgang í …húsi
Íslenska krónan styrktist um 0,3%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Megas kemur
fram í Bústaða-
kirkju 4. og 5. des-
ember nk. og flytur
Jesúrímur eftir
Tryggva Magnús-
son sem Helgi
Hóseasson safnaði
saman og gaf út. Þekktir tónlistar-
menn spila með Megasi, m.a. Hörð-
ur Bragason orgel, Birgir Bragason
bassi, Hjörleifur Valsson fiðla,
Kormákur Geirharðsson trommur,
Kristinn Árnason gítar og Ágústa
Eva Erlendsdóttir söngur.
TÓNLIST
Megas flytur Jesúrímur í
Bústaðakirkju í desember
Sjö lög Sigur
Rósar verða notuð
í bresku bíómynd-
inni The Boys Are
Back sem skartar
stórleikaranum
Clive Owen í aðal-
hlutverki. Auk þess
verður eitt lag notað úr hliðarverk-
efni Jóns Þórs Birgissonar, Rice-
boy sleeps. Segir á Clashmusic.com
að meðlimir Sigur Rósar hafi veitt
leyfi fyrir notkun á tónlist þeirra í
myndinni, eftir að þeir höfðu sjálfir
horft á hana. „Ég var varaður við því
fyrirfram að þeir væru mjög vand-
fýsnir á hvað tónlistin þeirra væri
notuð í, en ég fór til Íslands til að
sýna þeim myndina og þeir einfald-
lega elskuðu hana,“ er haft eftir
Scott Hicks, leikstjóra myndarinnar,
sem verður frumsýnd á næsta ári.
TÓNLIST
Tónlist Sigur Rósar í
stórmynd með Clive Owen
Leikararnir Ilm-
ur Kristjánsdóttir,
Jóhannes Hauk-
ur Jóhannesson,
Björn Thors og
Halldóra Geir-
harðsdóttir verða
andlit á auglýs-
ingum fyrir dag rauða nefsins sem
verður 4. desember nk.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) heldur daginn og mark-
miðið er að selja sem flest rauð nef
til styrktar UNICEF.
HJÁLPARSTARF
Landsþekktir leikarar eru
andlit dags rauða nefsins
„ÞIÐ Íslendingar eigið í kreppu núna. Það er lítið mið-
að við þau verðmæti sem þið eigið í menningunni. Í
mínum huga eru verðmætin í sögu Nonna alþjóðleg og
mikilsverð fyrir fólk hvar sem er,“ segir Motokatsu
Watanabe, fyrrverandi starfsmaður japanska sendi-
ráðsins á Íslandi. Watanabe er mikill aðdáandi Jóns
Sveinssonar, Nonna, og hefur verið óþreytandi í að
kynna hann í Japan og afla upplýsinga um dvöl hans
þar í landi, en Nonni dvaldi í eitt og hálft ár í Japan
þegar hann var áttræður. Á þessu ári efndi Watanabe
til stórrar Nonnasýningar í Japan og kom krónprins-
essan m.a. og skoðaði hana. | 27
Kynnir Jón
Sveinsson í Japan
Morgunblaðið/Júlíus
Heillaður Motokatsu Watanabe með bók eftir Nonna
sem hann hefur þýtt yfir á japönsku.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„ÉG hafði aðeins kynnst ísklifri áð-
ur en aldrei klifrað í frosnum fossi.
Fyrir ári fór ég fyrst með vinum
mínum í ísklifur. Mér fannst það
skemmtilegt, hélt áfram og núna er
ég að fara á heimsmeistaramótið,“
segir Marianne van der Steen,
nemi við Háskóla Íslands. Hún
keppir á heimsmeistaramótinu í ís-
klifri eftir áramót, fyrst hollenskra
kvenna þótt hún hafi aðeins stund-
að greinina í eitt ár.
Marianne hefur stundað klifur-
íþróttina frá unga aldri. Hún fór
ung með foreldrum sínum í Alpana
í fjallgöngur og síðan tók klifrið
við.
Líf hennar snýst mikið um þessa
íþrótt og á þeim vettvangi fann hún
íslenskan kærasta, Valdimar
Björnsson. „Ég var ein á útiklifur-
svæði í Frakklandi og þar var líka
hópur Íslendinga. Við fórum að
klifra saman og svo kom ég til
Íslands,“ segir hún.
Á húsbílnum til Spánar
Hún hefur dvalið hér á landi í
tvö ár og vann fyrst hjá Íslenskum
orkurannsóknum. Hún hóf nám í
kennslufræði við Háskóla Íslands
og hætti í vinnunni til að geta
stundað námið betur og klifrað
meira.
Marianne er í hópi allra bestu
klifrara hér á landi, á öllum sviðum
íþróttarinnar, og slær meira að
segja mörgum karlmanninum við.
Hún kennir börnum og unglingum
klifur í Bjarkarhúsinu í Hafnarfirði
og hefur mikla ánægju af því. Hún
tekur þetta áhugamál svo alvarlega
að þótt hún hafi lært náttúrufræði í
Hollandi setur hún starfsheitið
klifrari við nafn sitt í símaskránni.
Ágætar aðstæður eru til klifurs á
Íslandi, þótt ekki jafnist þær á við
bestu aðstæður á Spáni. Stærsta
klifursvæðið er í nágrenni Hnappa-
valla. „Ég og kærastinn minn vor-
um þar í allt sumar að klifra. Fór-
um á húsbílnum í júní og komum
ekki aftur í bæinn fyrr en í sept-
ember,“ segir Marianne.
Þau ætla með bílinn til Dan-
merkur í vor, eftir heimsmeistara-
mótið, aka suður til Spánar og
klifra þar í nokkra mánuði.
Marianne van der Steen er ástríðufullur ís- og klettaklifrari
Skráir sig klifr-
ara í íslensku
símaskránni
Ljósmynd/Guðmundur Tómasson
Á brattann að sækja Aðstæður geta verið ógnvekjandi þegar ísklifrarar
eru að æfa sig. Marianne klifraði í Eyjafjallajökli um helgina.
Keppir fyrir Hollendinga á
heimsmeistaramótinu í ísklifri
Í HNOTSKURN
»Ice Climbing Worldcup,heimsmeistaramótið í
ísklifri, fer fram í janúar og
febrúar í Rússlandi, Ítalíu og
Sviss og sýningar eru einnig í
Frakklandi og Þýskalandi og
mótinu lýkur síðan í Rúmeníu.
Marianne fer ekki til Rúss-
lands en tekur þátt í öðrum
keppnum og sýningum.
»Hún æfir vel með hjálp ís-lenskra vina og takmarkið
er að komast í úrslit.
GRÉTAR Rafn Steinsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, fær sama og
engin tækifæri til að spila með liði
sínu, Bolton, í ensku úrvalsdeild-
inni. Hann hefur ekki verið í náð-
inni síðan hann ákvað að leika með
íslenska landsliðinu þegar það
mætti Slóvakíu og Georgíu í vin-
áttulandsleikjum. „Reiðin verður
bara meiri og meiri, en ef ég nota
hana rétt kemur hún mér til góða,“
segir Grétar Rafn. | Íþróttir
Reiðin bara
meiri og meiri