Morgunblaðið - 24.12.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
SAMKVÆMT upplýsingum frá helstu ferða-
skrifstofum landsins verða um 1.000 Íslendingar
á þeirra vegum á Kanaríeyjunum Kanarí og Te-
nerife yfir jól og áramót. Þetta er um 45% sam-
dráttur milli ára, en um síðustu jól er talið að um
1.800 Íslendingar hafi dvalið á þessum sólar-
ströndum um hátíðirnar. Einnig dvelur stór hóp-
ur Íslendinga í orlofshúsum sínum á Flórída í
Bandaríkjunum, eða um 1.000 manns samkvæmt
upplýsingum frá Icelandair. Þá fór Iceland Ex-
press með um 150 manns í aukaflugi til Alicante
á Spáni fyrir jólin. Önnur aukaferð verður farin
þangað milli jóla og nýárs.
Að sögn Tómasar Gestssonar, fram-
kvæmdastjóra Heimsferða, eru um 140 manns á
Kanaríeyjum á vegum ferðaskrifstofunnar. Er
það um þriðjungsfækkun á milli ára. Tómas seg-
ir útlitið mun betra eftir áramót og að nær upp-
selt sé orðið í ferðir til Kanarí í janúar til apríl.
Ferðaskrifstofa Íslands er móðurfélag Úrvals
– Útsýnar, Plúsferða og Sumarferða en þær
selja ferðir til Kanaríeyja yfir jól og áramót.
Þorsteinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Ferðaskrifstofu Íslands, segir helmingi færri
fara til Kanaríeyja á þeirra vegum en á sama
tíma í fyrra, eða um 750 manns. Að sögn Björns
Guðmundssonar, markaðsstjóra ferðaskrifstof-
unnar Vita, eru ríflega 100 manns á þeirra veg-
um á Kanaríeyjum yfir hátíðirnar, mun færri en
fyrir ári. bjb@mbl.is
Um þúsund manns í jólasól á Kanarí
Kreppan birtist í 45% færri farþegum til Kanaríeyja yfir jól og áramót Betra útlit í bókunum
til sólarlanda á fyrstu mánuðum nýs árs Um þúsund manns dvelja á Flórída yfir hátíðirnar
Í HNOTSKURN
» Iceland Express flýgureinu sinni í viku til Frie-
drichshafen í S-Þýskalandi,
þaðan sem stutt er á skíða-
svæði.
» Þangað fóru um 150manns í fyrstu ferð fyrir
jólin, að sögn Matthíasar
Imsland framkvæmdastjóra.
» Um 100 manns fóru ískíðaferðir til Evrópu yf-
ir jólin á vegum Ferðaskrif-
stofu Íslands. Það er tölu-
verð fækkun á milli ára.
Mest sala í skíðaferðir er að
jafnaði í janúar og febrúar
ár hvert.
Morgunblaðið/Golli
Kanarí Talið er að um 1.000 Íslendingar flatmagi í sólinni á Kanaríeyjum um jólin þetta árið.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
VELTA á húsnæðismarkaði er í
sögulegu lágmarki um þessar mund-
ir. Það sem af er ári er hún aðeins
ríflega fimmtungur veltunnar árið
2007. Fjöldi þinglýstra kaupsamn-
inga það ár var 9.929 en þegar rúm
vika er eftir af árinu hefur aðeins
1.951 samningi verið þinglýst.
Samkvæmt 38. riti Peningamála
Seðlabankans er íbúðafjárfesting og
íbúðaverð nú í langvarandi lægð.
Kemur það til af því að íbúðafjár-
festing jókst um 75% hér á landi á
árunum 2002-07 og þegar skóinn tók
að kreppa við bankahrunið skapaðist
mikið offramboð húsnæðis og verð
eignanna lækkaði. Í ritinu er því
slegið föstu að þetta og lítið framboð
lausafjár til kaupanna muni halda
aftur af fjárfestingum í íbúðarhús-
næði „um þó nokkurt skeið“. Er því
spáð að íbúðaverð muni standa í stað
en íbúðafjárfestingar taka lítið eitt
við sér árin 2011 og 2012.
Vegna hins mikla offramboðs
íbúða í byggingu og fullbúinna íbúða
er ekki útlit fyrir að byggingafram-
kvæmdir verði miklar fyrr en í lok
árs 2011. Er þetta samkvæmt var-
færinni spá Landsbankans í grein-
ingu hans á fasteignamarkaðinum
frá í október.
Bjartsýnni spár greiningarinnar
gera ráð fyrir að framkvæmdir muni
taka við sér síðla árs 2010 eða um
mitt ár 2011.
Markaðurinn mjög þungur
„Árið hefur verið gríðarlega erfitt
og markaðurinn verið virkilega
þungur,“ segir Grétar Jónasson,
framkvæmdastjóri Félags fast-
eignasala. Hann segir að fast-
eignasalar hafi orðið þess varir
nokkru fyrir bankahrun að fé til
fasteignakaupa var illfáanlegra en
verið hafði. „Fasteignamarkaðurinn
fór að finna fyrir þessu allhressilega
alveg ári áður en hrunið varð.“
„Það er gríðarleg óvissa um þró-
unina,“ segir Grétar og kveður því
eðlilegt að fólk muni halda að sér
höndum enn um sinn. Hann telur þó
að fasteignaverð muni ekki lækka
mikið meira, heldur muni standa í
stað um tíma og taka síðan að hækka
smátt og smátt.
Áfram dauft á markaðnum
Langvarandi lægð í íbúðafjárfestingu og íbúðaverði að sögn Seðlabankans
„Gríðarleg óvissa um þróunina,“ segir framkvæmdastjóri Félags fasteignasala
Í góðærinu var gósentíð á fast-
eignamarkaði og árið 2007 nam
veltan 307 milljörðum. Í efna-
hagslægðinni nú er annað uppi á
teningnum og fyrirsjáanleg þíða
markaðarins er lítil.
Fasteignaviðskipti
350.000
300.000
250.000
150.000
100.000
50.000
0
Heildarvelta þinglýstra kaupsamninga
2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009*
*Til 17. desember
12
6.
54
7 17
7.6
36 22
4
.3
4
7
20
4
.8
57
30
7.
23
2
11
0.
77
6
68
.3
57
Vísitala íbúðarverðs
á höfuðborgarsvæðinu
Fyrst boðið upp á 100% lán Fyrst boðið
upp á 100% lán
Jan. 2003 Nóv. 2009
350
300
250
200
150
168,97
309
Milljónir króna
INDEFENCE hópurinn mun safna
undirskriftum undir áskorun til for-
seta Íslands um að hann staðfesti
ekki lögin um
Icesave-
samningana þar
til þriðju og síð-
ustu umræðu um
málið lýkur,
væntanlega milli
jóla og nýárs.
Eiríkur S. Svav-
arsson, einn af
talsmönnum
Indefence-
hópsins, segir að
hópurinn vilji fá tækifæri til að fara
efnislega yfir málið með forsetanum.
Hópurinn vilji fara yfir hvernig
fyrirvörum við ríkisábyrgðina hafi
verið breytt síðan þá. „Við viljum
fara yfir hvernig fyrirvörunum hefur
verið breytt einkum í ljósi þess að
þegar forsetinn staðfesti lögin 2.
september þá gerði hann það með
sérstakri skriflegri yfirlýsingu þar
sem hann vísaði til fyrirvaranna. Og
það er ekki hægt að álykta út frá
þessari yfirlýsingu, eins og hún er
orðuð, öðruvísi en að lögin hefðu
ekki fengið staðfestingu ef þessir
fyrirvarar væru ekki í lögunum. Nú
er búið að breyta þeim mjög mikið.“
Álit Mishcon de Reya staðfesti að
fyrirvararnir séu útþynntir. Sam-
kvæmt upplýsingum frá forseta-
embættinu verða forsetahjónin á
landinu yfir hátíðirnar.
Lýkur líklega 29. desember
Um 35.000 manns hafa skrifað
undir yfirlýsinguna á vefnum
www.indefence.is. Eiríkur segir að
undirskriftum hafi fjölgað hægt síð-
ustu daga fyrir jól, eins og vonlegt
sé, en hann vonast til að fleiri muni
skora á forsetann þegar líður að lok-
um umræðunnar á Alþingi. Eiríkur
gerir ráð fyrir að þriðja umræða
verði stutt. runarp@mbl.is
Halda
áfram að
safna
Eiríkur S.
Svavarsson
Indefence stefnir
á fund með forseta
„ÖLL fiskiskip er komin í land,“
sagði Aðalsteinn Aðalsteinsson hjá
Vaktstöð siglinga við Morgunblaðið
í gærkvöldi. Fjögur flutningaskip
voru á sjó í gærkvöldi, tvö á útleið.
Önnur tvö stefndu í land en annað
þeirra átti að ná í höfn um það leyti
sem jólin ganga í garð.
Nokkur flutninga-
skip á sjó um jól
SKÖTUVEISLUR að vestfirskum hætti voru
haldnar víða um land í gær, á Þorláksmessu.
Rammkæst skata með hamsatólg þykir herra-
mannsmatur enda er hún í hávegum höfð og eft-
irsótt. Sumir treysta sér þó ekki í skötuna og láta
saltfiskinn einfaldlega duga. Á veitingastaðnum
Þremur Frökkum í Reykjavík var bekkurinn
þétt setinn, en meðal gesta þar var þessi vina-
hópur sem skálaði fyrir skötunni.
Morgunblaðið/Ómar
Skálað fyrir skötunni á messu heilags Þorláks