Morgunblaðið - 24.12.2009, Síða 22

Morgunblaðið - 24.12.2009, Síða 22
22 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is A ldarfjórðungur er liðinn frá því að Katrín Sig- urðardóttir og Stefán Guðmundsson luku framhaldsnámi í tónlist og hófu starfsferil í listinni. Fljótt skipuðust veður í lofti, þau söðluðu um, fluttust að Ásaskóla í Gnúpverja- hreppi og hófu rekstur minkabús. Nú reka þau stærsta minkabú á landinu í Mön og Hraunbúi þar í sveit. Það var í nógu að snúast í búinu þegar blaðamenn bar að garði fyrr í mánuðinum. Sláturtíð nýlokið og unnið af fullum krafti við þurrkun og frágang á skinnunum. Afurðirnar sendar jafnóðum með flugi til Dan- merkur þar sem skinnin verða seld á uppboðum. Bændur krossleggja fingur og vonast eftir góðu verði, en hvernig skyldi ganga í minka- búskapnum? „Við kvörtum ekki, við höfum van- ið okkur af því,“ segir Katrín. „Það hafa oft verið erfiðir tímar í minka- ræktinni og þá þýðir ekkert að kvarta. Núna eru óneitanlega betri tímar að loknum erfiðum kafla vegna gengis krónunnar, þannig að fólk er að koma sér upp úr hjólförunum. Ég hefði þó kosið að krónan hefði verið stöðugri, það hefði verið auðveldara fyrir alla.“ „Annars er það fleira en gengi krónunnar sem hefur áhrif á skinna- verð. Það er t.d. tískan, veðráttan og almennt efnahagsástand. Láns- fjárkreppan setti mark sitt á skinna- verslun í fyrravetur en á þessu ári hefur öll framleiðsla selst, en á lágu verði,“ segir Stefán. Þau eru sammála um að ástæða þess að íslenskum minkabændum hafi tekist að ná sér upp af botninum og blanda sér í toppbaráttuna á örfá- um árum sé sú að þeir hafi kappkost- að að standa saman og vinna að fram- förum í framleiðslunni. „Þegar til kastanna kemur eru það gæði fram- leiðslunnar og samkeppnisstaða hvers lands sem skilur á milli feigs og ófeigs á þessu sviði,“ segir Stefán. Minkaræktin í Mön skilar mörgum ársverkum, sem skiptir miklu máli fyrir sveitarfélagið. Minnst starfa þar fjórir, en mest 13-14 manns. Erf- iðlega hefur gengið að fá íslenskt starfsfólk og útlendingar því verið ráðnir, einkum frá Svíþjóð og Pól- landi. Þau Stefán og Katrín láta vel af þessum liðsauka, en viðurkenna að það sé svolítið einkennilegt að enska hafi verið hið opinbera tungumál í minkabúinu í haust. Heimilið í gamla skólanum Katrín er Húsvíkingur að upp- runa, en Stefán er fæddur og uppal- inn á Ásum sem stendur í brekkunni ofan við Ásaskóla. Þau fluttu austur árið 1996, en gamla skólahúsið keyptu þau 1992. Þau byrjuðu strax að vinna við að gera það upp. Upp- haflega ætluðu þau sér að eiga sum- arbústað í Ásaskóla, en að því kom að þau ákváðu að flytja í sveitina. Skólinn gamli varð því heimili þeirra og þriggja sona þeirra; Viðars, Guðmundar og Birgis. Elsti hluti Ásaskóla er byggður árið 1923 og er húsið um 400 fermetrar að stærð. Þarna var upphaflega starfræktur heimavistarskóli sveitarinnar og barnaskóli fram til ársins 1985 og því hafa margar kynslóðir nemenda sótt menntun þangað. „Pabbi var t.d. í öðrum árgangi nemenda,“ segir Stefán. „Mér finnst líka oft skrýtið að hugsa til þeirra daga þegar ég var sjálfur hér í skóla, þá grunaði mig ekki hvað yrði.“ „Við tókum húsið fyrst í gegn að utan, skiptum um þak, glugga og klæðningu, en svo var þetta verk sett í bið og við snerum okkur af meiri krafti að minkaræktinni og byggðum nýjan minkaskála,“ segir Katrín. Til stendur að hefja framkvæmdir við húsið á ný eftir áramót. Kenndum eins og vitleysingar Frá því að þau fluttu austur hefur minkabúið átt hug þeirra og tónlistin að miklu leyti verið lögð til hliðar. Þau byrjuðu með 300 læður í leigu- skála í sveitinni til að átta sig á því hvernig þeim líkaði. Fyrst í stað keyrðu þau hins vegar til Reykjavík- ur einn dag í viku og kenndu „eins og vitleysingar frá morgni til kvölds“, eins og Katrín orðar það, og svo var keyrt heim um eða eftir miðnætti. Einnig þurftu þau oft að skreppa í borgina til að syngja við jarðarfarir, en þau voru með Tónakórinn á sínum snærum. „Lífið í sveitinni átti betur við okk- ur en borgarlífið og okkur fannst minkaræktin skemmtileg,“ segja þau. Til að gera langa sögu stutta þá byggðu þau upp myndarlegt bú á Mön og keyptu síðan auk þess minka- búið Hraunbú. Nú eru þau með yfir fjögur þúsund læður og senda árlega frá sér um 20 þúsund skinn. Einnig verka þau skinn frá öðrum bændum þannig að í allt fara hátt í 40 þúsund skinn í gegn hjá þeim Manarhjónum. Læðurnar fá húsmæðraorlof Árið í minkaræktinni gengur í stórum dráttum þannig fyrir sig að í janúar lýkur vinnu við frágang á skinnum, en þau eru send utan jafn- óðum og þau eru tilbúin. Fengitím- inn, eða pörun eins og það er kallað, hefst í byrjun mars og tekur um hálf- an mánuð. Högnunum er fargað að lokinni pörun, að undanskildum inn- fluttum högnum sem lifa tvö til þrjú ár. Læðurnar byrja að gjóta um 20. apríl og goti lýkur viku af maí. Þær eru teknar frá hvolpunum eftir um sjö vikur og fá þá sitt húsmæðraorlof. Hvolpunum er jafnað út um mitt sumar í búr sem eru nokkurs konar stúdíóíbúðir, svefnherbergi með sam- liggjandi stofu og eldhús og salern- Líkar vel lífið í sveitinni Morgunblaðið/Ómar Mörg handtök Mikil vinna er við verkun skinna og mikið í húfi að gæðin verði sem allra mest. Eins og aðrir minka- bændur bíða Katrín Sigurðardóttir og Stefán Guðmundsson spennt eftir skinnauppboðum vetrarins.  Í heimsókn hjá tónlistarfólkinu sem rekur stærsta minkabú landsins  Senda frá sér yfir 20 þúsund skinn og verka annað eins fyrir aðra  Vísindin notuð við val á lífdýrum  Dýrin éta um þúsund tonn á ári „Ég var alltaf hrædd við öll dýr sem krakki, það hefði ekki þýtt að segja mér það hér áður fyrr að ég yrði bóndi,“ segir Katrín Sigurðardóttir. Ekki nóg með að hún og Stefán eiginmaður henn- ar yrðu bændur, heldur hafa þau hlotið fjölmörg verðlaun sem slík og lifa og hrærast innan um dýr. Í umsögn með veitingu land- búnaðarverðlauna landbúnaðar- ráðherra árið 2007 segir að það sé fyrir „áræði, framsækni og takmarkalausan áhuga á að efla loðdýrarækt í sveitum landsins“ sem þau Katrín Sigurðardóttir og Stefán Guðmundsson hljóti verðlaunin. Ennfremur segir þar: „Mörg- um þótti það fífldirfska að flytj- ast út í sveit og ekki síður þegar þau réðust í minkarækt eftir hin- ar miklu þrengingar sem greinin hafði mátt þola … Frá upphafi hefur áhugi og námsfýsn ein- kennt búskapinn. Þau náðu líka fljótt mjög góðri frjósemi og að skipa sér í efstu sæti á skinna- sýningum. Þau hafa ætíð haft það að leiðarljósi að fagleg þekk- ing, markvisst ræktunarstarf og samvinna bænda væri það eina sem dygði í búskapnum … Þau hjónin hafa mikið látið til sín taka í félagsmálum loðdýra- bænda og hafa sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir greinina frá upphafi … Áræði, framsækni og áhugi Rólegur Minkarnir á Mön eru vel haldnir og því friðasamir nema að þeim sé veist. Samt er vissara að klæðast leðurhönskum. Þeir eru hins vegar óhemju forvitnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.