Morgunblaðið - 24.12.2009, Side 29
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Birgir
Björnsson
✝ BirgirBjörnsson
fæddist í Borg-
arnesi 23. sept-
ember árið 1941.
Hann lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness þriðjudag-
inn 8. desember
2009. Foreldrar
hans voru hjónin Björn Hjörtur Guð-
mundsson, f. 14. janúar 1911, d. 14.
júlí 1998, og Inga Ágústa Þorkels-
dóttir, f. 25. ágúst 1917, d. 22. febr-
úar 1993. Systir Birgis var Alda
Björnsdóttir, f. 30. ágúst 1942, d. 7.
júlí 1991.
Barnsmóðir Birgis er Ingibjörg
Nancy Morgan, f. 12. júlí 1943, barn
þeirra er Guðbjörg Peggy Wallace, f.
28. júlí 1960. Eiginmaður Peggyar er
Lon Wallace, f. 9. apríl 1960. Dætur
þeirra eru Christina Réene, f. 23.
október 1989 og Erika ,f. 3. október
1991. Barnsmóðir Birgis var Guðrún
Hjarðar Vermundsdóttir, f. 17. ágúst
1946, d. 1. janúar 1970, barn þeirra
er Jón Marinó Birgisson, f. 23. janúar
1966. Eiginkona Jóns er Herdís Rós
Kjartansdóttir, f. 15. desember 1972.
Börn þeirra eru Kjartan, f. 18. des-
ember 1993, og Heiðdís Erla, f. 7.
febrúar 2000.
Birgir bjó nær allan sinn aldur í
Borgarnesi. Að skyldunámi loknu
starfaði hann fyrst sem verkamaður
á heimaslóðum en síðar lá leiðin til
sjós, ýmist á vertíðir eða í siglingar.
Þar starfaði hann um árabil. Um tíma
á áttunda áratug liðinnar aldar bjó
Birgir á Eskifirði, vann þar jafnt til
sjós og lands. Þaðan lá leiðin síðan
til Færeyja, eftir stutta dvöl þar flutti
Birgir að nýju í Borgarnes. Þar starf-
aði Birgir við hin fjölbreytilegustu
verkefni. Síðustu árin og allt til
starfsloka hjá BM Vallá. Í frístundum
seinni ár naut Birgir þess mjög að
ferðast um landið á vel búnum húsbíl
sínum. Myndlistin lék um árabil stórt
hlutverk í lífi Birgis. Hann var alfarið
sjálfmenntaður í listsköpun sinni –
verk hans báru handverki hagleiks-
mannsins fagurt vitni.
Útför Birgis fór fram frá Borg-
arneskirkju miðvikudaginn 16. des-
ember síðastliðinn.
Meira: mbl.is/minningar
Guðrúnu Þórðar-
dóttur mætti ég
fyrst haustið 1986
þegar ég hóf störf á
Þjóðskjalasafni Íslands en þar
hafði hún þá unnið mörg ár. Guð-
rún aðstoðaði mig dyggilega við að
kynnast innviðum safnsins og rata
um ranghala þess en það var þá til
húsa í Safnahúsinu við Hverfis-
götu. Eru kynnin af henni meðal
margra bestu minninganna úr því
góða húsi. Hún var góður leiðbein-
andi, hjálpsöm og alúðleg og lagði
sig fram um að greiða götu þeirra
sem til hennar leituðu. Guðrún var
einörð og hreinskilin, skemmtileg í
viðræðum og orðheppin, þrællesin
bæði í sagnfræði og bókmenntum,
og fylgdist með bókaflóðinu hvert
haust en gat verið hispurslaus í
gagnrýni á bækur. Um kunnan
höfund sagði hún að verk hans
væru ekkert annað en herpingur.
Þá var hún tónlistarkona mikil og
Guðrún Elísabet
Þórðardóttir
✝ Guðrún ElísabetÞórðardóttir
fæddist í Borgarnesi
7. ágúst 1915. Hún
lést á Droplaug-
arstöðum 3. desem-
ber síðastliðinn.
Útför Guðrúnar
fór fram frá Foss-
vogskirkju 16. des-
ember sl.
einkar ljóðelsk og
kunni mikið af ljóð-
um þótt hún flíkaði
þeim ekkert sér-
staklega. En á
safninu bar mest á
ættfræðiáráttu
hennar. Hún var
einkar vel að sér
um ættir á Vestur-
landi enda átti hún
þar víða djúpar
rætur. Stundum
fannst manni ætt-
fræðiflettingarnar
hennar svolítið
ruglingslegar, hún greip eina bók,
síðan aðra og virtist fletta þessu
tilviljanakennt og oft skildi ég
ekkert hvert hún var að fara. En
alltaf komst hún að farsælli nið-
urstöðu og sjaldan eða aldrei
skeikaði henni. Guðrún var æv-
inlega vel til fara og prúðlega
klædd, þó án alls íburðar, virkilega
smart kona eins og stundum er
sagt. Hún var, eins og áður sagði,
ættuð af Mýrunum, vísast afkom-
andi Skalla-Gríms á Borg að lang-
feðratali, en taldist þá til fámenn-
ari hluta þeirra ættmenna. Að
lokum skal heiðurskonunni Guð-
rúnu Þórðardóttur þökkuð sam-
fylgdin um leið og ég votta afkom-
endum hennar og aðstandendum
samúð.
Jón Torfason.
Vinátta sterk sem
stál. Þú getur ávallt
leitað hennar hjá
sönnum vini. Árið
2002 urðu mikil um-
skipti á lífi okkar
hjóna. Við ákváðum að hætta að
vinna, selja húsið okkar sem við
höfðum búið í næstum 40 ár og
búa okkur nýjan samastað til að
eyða ævikvöldinu á. Búmenn voru
að fara að byggja tvö af fjórum
raðhúsum í Lindasíðu og við feng-
um eina íbúðina. Fljótlega vorum
við kölluð á fund með hinum íbú-
unum og þá kom í ljós að við könn-
uðumst við flesta þeirra. Svona
eins og Akureyringar stundum
segja; „við heilsuðumst á götu“.
Óli og Lína voru ein af þeim.
Næstu mánuði hittumst við oft og
20. desember fluttum við inn. Það
voru töluverð viðbrigði að koma úr
einbýlishúsi í raðhús þar sem ná-
Haraldur Óli
Valdimarsson
✝ Haraldur ÓliValdimarsson
fæddist á Akureyri
17. desember 1934.
Hann lést 4. desember
sl.
Útför Óla var gerð
frá Akureyrarkirkju
17. desember 2009.
býlið er meira, en
sambúðin hefur
gengið mjög vel. Við
Andri og Óli og Lína
búum í sitthvoru
húsinu í vesturend-
um húsanna og lóð-
irnar okkar liggja
saman. Samskiptin
hafa verið mjög góð.
Við höfum oft átt
góðar stundir saman.
Á sólríkum sumar-
dögum settust þau
stundum út í sólina
þegar þau komu af
golfvellinum og við settumst hjá
þeim í notalegt spjall. Á veturna
fóru þeir Óli og Andri með „prikin
sín“ í leikskólann handan götunn-
ar. Síðustu tvö árin höfum við
komið saman í grillveislu íbúarnir
í Búmannabyggðinni í Lindasíðu,
það hafa verið góðar stundir. Nú
er stórt skarð höggvið í hópinn og
við eigum eftir að sakna Óla mjög,
en jafnframt viljum við þakka fyrir
allar stundirnar sem við fengum
að lifa saman þessi sjö ár sem við
höfum átt saman. Elsku Lína, við
vottum þér, dætrum þínum og fjöl-
skyldum af alhug okkar dýpstu
samúð.
Andri og Guðrún.
Minningar á mbl.is
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður,
HARALDAR TORFASONAR
fyrrum bónda,
Haga í Nesjum,
sem lést fimmtudaginn 10. desember.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðis-
stofnunar Suðausturlands fyrir hlýja og góða umönnun.
Elín Dögg Haraldsdóttir,
Gunnar Björn Haraldsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
Halldór Sölvi Haraldsson, Anna Halldórsdóttir,
Sigrún Brynja Haraldsdóttir, Þorvaldur Helgason,
Þorleifur Haraldsson,
Harpa Cilia Ingólfsdóttir, Ivon Stefán Cilia,
barnabörn, barnabarnabarn og systkini.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður, dóttur og systur,
ELVU DAGGAR PEDERSEN,
Mosarima 12,
Reykjavík.
Við þökkum sérstaklega góðum vinum okkar fyrir
einstakan stuðning og vináttu á erfiðum tímum.
Einnig þökkum við sérstaklega því heilbrigðisstarfsfólki sem annaðist
Elvu Dögg í veikindum hennar.
Haukur Sigurðsson,
Alexander Hauksson,
Palle Skals Pedersen,
Sæunn Elfa Pedersen,
Daníel Thor Skals Pedersen,
Arnór Ingi Ingvarsson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju vegna andláts ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, sonar, tengdasonar, bróður og
mágs,
HANS ALBERTS KNUDSEN
flugumsjónarmanns,
Lúxemborg.
Þökkum af alhug öllum vinum okkar hér á Íslandi
og í Lúxemborg fyrir ómetanlega hjálp og stuðning í veikindum hans.
Guð gefi ykkur gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár.
Laufey Ármannsdóttir,
Henrik Knudsen,
Helen Sif Knudsen,
Guðmunda Elíasdóttir,
Guðbjörg Eyvindsdóttir,
Sif Knudsen, Stefán Ásgrímsson.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, afa, langafa og langalangafa,
VIGFÚSAR SIGURÐSSONAR
húsasmíðameistara,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs
fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Inga Sigrún Vigfúsdóttir, Óli Rafn Sumarliðason,
Guðfinna Vigfúsdóttir, Aðalsteinn Valdimarsson
og afabörnin.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MARTIN MAX WILHELM MEYER,
lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi þriðju-
daginn 22. desember.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn
5. janúar kl. 13.00.
Ester Martinsdóttir, Vernharð Guðnason,
Bryndís Meyer, Jón Indriði Þórhallsson,
Halldór Meyer, Sif Svavarsdóttir
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem
pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áður
en skilafrestur rennur út. Greinar,
sem berast eftir að útför hefur farið
fram, eftir tiltekinn skilafrests eða
ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey,
eru birtar á vefnum, www.mbl.is/
minningar.
Minningargreinar
✝
Elskuleg dóttir, móðir, tengdamóðir og amma,
BIRNA BJARNADÓTTIR,
lést á Hrafnistu Reykjavík þriðjudaginn
15. desember.
Jarðarförin mun fara fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 28. desember kl. 13.00.
Aðalheiður Sigurðardóttir,
Jófríður Sveinbjörnsdóttir,
Aðalheiður Sveinbjörnsdóttir,
Stefán Þór Sveinbjörnsson, Hjörtfríður Guðlaugsdóttir
og barnabörn.