Morgunblaðið - 24.12.2009, Page 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Ég vildi með þess-
um fáu orðum minnast
mágs míns Kristmundar Harðarson-
ar eða Krissa eins og hann var alltaf
kallaður. Krissa kynntist ég rétt eft-
ir að ég kynntist konunni minni
henni Hrönn. Ég man vel eftir því
þegar við hittumst fyrst. Hann var
mjög alvarlegur á svip þegar hann
spurði hvort ég væri sá sem væri að
slá sér upp með systur hans. Mér
brá en reyndi að láta á engu bera er
ég sagði „já, það er ég“. Þá læddist
fram bros á andliti hans og hann
sagði „gaman að kynnast þér“. Upp
frá þessu tókust með okkur góð
kynni.
Við áttum ýmislegt sameiginlegt.
Báðir vorum við iðnmenntaðir, höfð-
um báðir mikinn áhuga á íþróttum,
áttum sama uppáhaldsliðið í ensku
deildinni og nú á síðustu árum fórum
við báðir að fá áhuga á golfi. Við
höfðum því alltaf um nóg að spjalla
er við hittumst. Fjölskyldur okkar
áttu margar góðar stundir saman.
Við fórum t.d. saman í útilegur og þá
var ávallt kátt á hjalla. Við töluðum
nokkrum sinnum um það hvað það
væri gaman ef þið kæmuð út til okk-
ar og við gætum ferðast saman.
Stuttu eftir að við Hrönn fluttumst
til Danmerkur átti ég afmæli. Þótti
mér mjög vænt um að Krissi og fjöl-
skylda ásamt bræðrum hans Hilmari
og Hlyni komu til Danmerkur og
voru með okkur á afmælisdaginn.
Höfðu þeir bræður ásamt foreldrum
sínum slegið saman og gáfu mér for-
láta golfsett að gjöf. Frétti ég eftir á
að Krissi hefði verið aðalmaðurinn á
bak við gjöfina og séð um að velja
réttu kylfurnar í settið. Hann var
líka fljótur að drífa mig út á golfvöll
til þess að prófa kylfurnar.
Það er erfitt að sætta sig við það
að Krissi sé farinn en ég er þakk-
látur fyrir að hafa kynnst honum og
allar þær góðu stundir sem við átt-
um saman. Elsku Kolla, Berglind,
Birna og Brynjar. Ég votta ykkur
samúð mína og megi Guð styrkja
ykkur á þessum erfiða tíma. Hugur
minn er hjá ykkur.
Kristinn.
Kæri frændi.
Þetta er skrítin og erfið kveðju-
stund. Ég hugsa með mér af hverju
Guð tekur frá okkur svona góða
menn eins og þig, stundum er lífið
svo skrítið. Þegar ég hugsa um
skemmtilegustu minningarnar úr lífi
mínu eru það án efa allar góðu
stundirnar í sveitinni þegar ég var
yngri. Ég og Birna vorum nánast
eins og systur og eyddum heilu
sumrunum saman, og þar varst þú
alltaf til staðar til að gera allt
skemmtilegra. Alltaf tilbúinn í eitt-
hvert sprell með okkur og öllum
frændsystkinunum. Í kringum þig
ríkti alltaf gleði, hamingja og hlátur
og greinilegt að þú hafðir gaman af
lífinu. Ég er þakklát fyrir allar góðu
stundirnar sem ég fékk að eiga með
þér og í kringum þig, þú gerðir lífið
svo sannarlega skemmtilegt.
Elsku Kolla, Berglind, Birna,
Brynjar, amma, afi og fjölskylda,
megi Guð styrkja ykkur í sorginni.
Kveðja,
Hafdís.
Ekkert er jafn óumflyjanlegt og
dauðinn. Það er ekki spurning hvort,
heldur hvenær. Hann var þó full-
snemma á ferðinni í tilfelli Krist-
mundar vinar okkar. Þegar okkar
Kristmundur
Harðarson
✝ KristmundurHarðarson fædd-
ist í Stykkishólmi 21.
október 1964. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu í Grund-
arfirði laugardaginn
12. desember sl.
Útför Kristmundar
fór fram frá Grund-
arfjarðarkirkju 19.
desember sl.
leiðir lágu saman þá
kemur upp í huga mér
einstaklega ljúfur og
kurteis sveitastrákur.
Hann bjó 3 km frá
Grundarfirði. Fyrstu
alvöru kynni mín af
Krissa var þegar ég og
pabbi vorum að koma
með fóður út að Hömr-
um; við höfum verið 9
ára. Ég var uppi í bíl
hjá pabba og var að
reyna að draga fóður-
pokana. Hörður tók
pokana úr bílnum og
rétti Krissa pokana á bakið. Gleymi
ég því aldrei þegar þú tókst þessa
poka eins og að drekka vatn, þessir
pokar voru 50 kg. Ég var svo stoltur
að eiga þig sem vin, svona sterkur og
ekki nóg með það, gast hlaupið enda-
laust. Krissi var búinn að vinna öll
víðavangshlaup í skólanum í mörg ár
og held ég að hann eigi ennþá metið í
Grundarhlaupinu, áður en veginum
var breytt. Við vorum skólabræður
allan grunnskólann og ekki var þetta
lítill bekkur, 33 stykki þegar mest
var. Fótbolti var spilaður alla daga á
þessum árum. Kristmundur lagði sig
100 % í alla leiki, og man ég eftir því
að hann spilaði oft sem bakvörður í
liði okkar. Ef einhverjir fóru framhjá
honum þá elti hann þá uppi. Hann
miklaði ekki fyrir sér þó hann væri á
malarvelli en yfirleitt var hann með
stór svöðusár á lærinu eftir hvern
kappleik.
Kristmundur var rafvirki og rak
fyrirtæki sitt Lengjuna ehf. af mikl-
um myndarskap. Hann var mjög fær
á sínu sviði. Kristmundur var mikil
barnagæla og fórum við fjölskyld-
urnar oft í ferðalög saman, þá að-
allega ef það tengdist íþróttum. Við
fórum nánast á alla fótboltaleiki hjá
börnum okkar en Krissi og Kolla
hafa verið ótrúlega dugleg að fylgja
börnum sínum eftir og þá sérstak-
lega honum Brynjari síðustu ár.
Kristmundur fór að spila golf fyrir
nokkrum árum og var hann tíður
gestur á golfvellinum. Við höfum far-
ið í nokkrar golferðir saman og núna
síðast í október s.l. til Spánar í viku.
Krissi var búinn að ná góðum tökum
á golfinu og var Kolla farin að stunda
það með honum. Krissi var mjög
fylginn sér og fengum við hann til að
taka að sér liðstjórn fyrir Golfklúbb-
inn Vestarr á síðasta ári og átti hann
stærstan þátt í því að við lentum í
fjórða sæti af 13 liðum.
Þegar við hjónin vorum að hugsa
um að opna líkamsræktarstöð í
Grundarfirði kom Krissi til okkar og
hvatti okkur eindregið áfram. Hann
kom nánast á hverjum degi til að vita
hvernig okkur gengi. Kristmundur
var farinn að stunda líkamsrækt af
fullum krafti og var það mikið
kappsmál hjá honum að komast í
gott form og búa sig undir golfsum-
arið.
Kæri vinur, við viljum þakka þér
fyrir árin sem við höfum átt með þér
og fjölskyldu þinni.
Elsku Kolla,Berglind, Birna,
Brynjar og aðrir aðstandendur, við
sendum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og biðjum Guð um að veita
ykkur styrk á þessum erfiða tíma.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svefnsins draumar koma fljótt.
:,:svo vöknum við með sól að
morgni:,:
(Bubbi Morthens.)
Ásgeir Ragnarsson
og fjölskylda.
Elsku Krissi!
Margir hafa þeir verið erfiðir
spinningtímarnir í gegnum tíðina, en
tíminn síðastliðinn þriðjudag sló
þeim öllum við, þó á annan hátt þar
sem pedalarnir á þínu hjóli snerust
ekki. Það gerðist ekki oft að þeir
væru stopp, því þú varst alltaf mætt-
ur og fórst manna fremstur. Ekki
voru margir sem gátu slegið þér við
því þú bjóst yfir þeim hæfileika að
geta hjólað um allan salinn á spinn-
inghjóli. Svo mikill var ákafinn að yf-
irleitt þaut hjólið þitt um á öðru
hundraðinu og fram úr okkur hinum.
Við hittum þig alltaf í skjóli nætur,
en morgunfýlan var ekki lengi að
renna af manni þegar þú mættir inn í
Sólarsport svo hress og kátur, tilbú-
inn að „taka á því“.
Það var alltaf svo gaman að sitja
með þér eftir tímana, fá smákaffi-
sopa og hlusta á sögurnar þínar og
brandarana sem þú reyttir af þér. Þú
varst hrókur alls fagnaðar.
Hver á núna að taka að sér tíma-
vörsluna? Þú passaðir alltaf upp á að
tíminn næði örugglega 45 mínútum
og lést heyra í þér ef átti að snuða
okkur um svo mikið sem mínútu.
Við erum ennþá að melta þessar
hræðilegu fréttir um að þú sért far-
inn. Við bíðum eftir því að kaloríu-
kóngurinn labbi inn í salinn og hvetji
okkur hin áfram.
Elsku Krissi, við kveðjum þig með
söknuði. Þú skilur eftir þig stórt
skarð í hópnum sem verður seint
fyllt. Við eigum margar góðar minn-
ingar sem gleymast ekki. Við vitum
öll að þú munt halda áfram að fylgja
okkur því eins og þú sagðir sjálfur þá
„væri maður að svíkja hópinn með
því að mæta ekki“.
„You’ll never walk alone.“
Elsku Kolla og fjölskylda. Send-
um okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Megi guð veita ykkur styrk á
þessum erfiðu tímum.
Fyrir hönd spinningfélaga í Sól-
arsporti,
Kristín Alma, Vilberg Ingi
og Ásdís Lilja.
Krissi er fallinn frá, getur það ver-
ið? Aldrei hefðum við trúað því að þú
mundir fara frá okkur svona
snemma. Við minnumst allra
skemmtilegu ferðalaganna sem við
fórum í saman og öll áramótin sem
við fengum að vera með þér og fjöl-
skyldunni, þar sem þú varst oftast
með stærstu sprengjurnar, verða
víst ekki jafn stórar sprengjur í ár.
Við munum samt sem áður alltaf
halda hópinn sem ein stór fjölskylda.
Þú og pabbi voruð eins og bræður,
gerðuð allt saman, svo nú er komið
að okkur að draga pabba í ræktina
eins og þú varst duglegur að gera.
Þú varst alltaf svo góður og við
vitum það að Gunnar Ingi mun
sakna þín mikið þar sem þið voruð
alltaf svo góðir vinir, eins og hann
sagði í gær mun hann sakna þess að
heyra rödd þína og það munum við
öll gera.
Við minnumst hláturskastanna og
hvað þú komst öllum í gott skap með
návist þinni. Þú varst góður vinur
mömmu og pabba og ekki síst okkar,
þú varst snillingur!
Þakka þér fyrir alla þá umhyggju
og ástúð sem þú veittir okkur alla
tíð. Við erum þakklát fyrir að hafa
notið þeirra forréttinda að hafa átt
þig sem vin og munum við sakna þín
óendanlega mikið. Ef við þekkjum
þig rétt þá ertu á góðum stað, sprikl-
andi um á stórum og flottum golf-
velli.
Hvíl í friði, elsku Krissi.
Þórdís Sigrún, Benedikt Lárus,
Erna Katrín og Gunnar Ingi.
Við vorum 32 sem byrjuðum
skólagöngu í Grundarfirði haustið
1971, öll sett í einn bekk. Kristmund-
ur Harðarson var í þeim stóra hópi,
sem nú hefur verið höggvið í mikið
skarð.
Kristmund prýddu margir góðir
kostir. Hann hafði góðar gáfur og
átti auðvelt með allt nám sem hann
og stundaði af kostgæfni. Hann var
mikill keppnismaður, bæði í íþrótt-
um og námi, og vildi alltaf gera sitt
besta, enda uppskar hann eftir því.
Krissi var ekki hávaxinn, en það
taldi hann vera mikinn kost; lág-
vaxnir menn væru miklu sneggri en
þeir hávöxnu og ættu síður við bak-
meiðsli að stríða. Hann lifði sam-
kvæmt þessari skoðun sinni og var
enda ótrúlega snöggur í öllum hreyf-
ingum og á fótboltavellinum áttu
flinkustu mótherjar sjaldnast nokk-
uð í hann. Hann var líka duglegur og
harðdrægur og gafst aldrei upp á því
V i n n i n g a s k r á
34. útdráttur 23. desember 2009
BMW318i
+ 5.200.000 kr. (tvöfaldur)
3 6 2 6 1
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
3 7 9 8 9 4 1 4 5 6 5 9 5 4 5 7 0 8 3 3
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
8382 17757 30096 35217 38652 60756
11605 26352 34053 36241 53864 75941
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
8 9 4 1 4 5 1 4 2 4 6 4 5 3 4 5 1 0 4 9 6 5 4 5 8 2 8 0 6 6 0 2 5 7 1 8 2 5
2 0 1 5 1 4 8 7 0 2 5 7 4 3 3 6 0 2 9 4 9 9 8 6 5 9 1 3 1 6 6 2 1 0 7 1 8 4 0
2 7 7 2 1 5 1 1 3 2 6 0 9 7 3 7 1 3 0 5 0 4 7 9 5 9 6 1 6 6 6 5 8 2 7 1 9 3 0
3 0 3 1 1 5 3 7 1 2 6 6 8 5 3 9 5 2 8 5 0 6 7 9 5 9 6 8 8 6 7 0 3 4 7 2 2 2 6
4 6 1 7 1 5 3 7 8 2 7 1 9 2 4 0 9 7 7 5 2 5 3 9 5 9 8 2 5 6 7 2 2 0 7 4 4 4 2
6 5 4 6 1 7 0 6 7 2 8 7 4 2 4 1 7 1 9 5 3 8 5 8 5 9 8 7 5 6 7 9 8 0 7 4 4 9 1
6 7 7 9 1 7 6 6 5 3 0 8 9 4 4 2 7 1 4 5 4 1 5 1 6 1 0 8 3 6 8 3 8 0 7 7 0 0 4
7 1 5 1 1 8 3 1 5 3 1 1 3 5 4 4 3 1 8 5 4 2 7 9 6 1 3 7 1 6 8 5 0 0 7 8 8 4 5
9 1 5 6 1 8 9 2 1 3 1 9 0 8 4 5 1 9 4 5 5 1 5 3 6 2 3 2 6 6 8 8 3 9 7 9 5 8 5
1 2 5 2 5 1 9 2 2 4 3 2 1 8 8 4 5 9 3 1 5 5 4 6 0 6 2 7 7 4 6 9 2 0 9
1 2 7 5 4 2 0 3 2 1 3 2 4 4 3 4 7 1 9 8 5 6 3 4 3 6 2 8 2 3 7 0 1 6 3
1 2 9 9 9 2 2 3 1 7 3 3 3 9 2 4 7 4 9 2 5 6 7 7 3 6 4 7 9 6 7 0 9 0 0
1 3 9 7 1 2 2 5 9 0 3 3 6 8 9 4 9 1 1 2 5 7 6 9 3 6 5 8 8 2 7 0 9 1 8
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
1 1 5 1 3 4 0 6 2 3 7 4 3 3 2 1 9 5 4 5 3 1 6 5 5 4 2 2 6 2 6 8 8 7 1 3 9 4
4 8 9 1 3 4 6 4 2 3 7 7 1 3 2 3 7 8 4 5 5 0 1 5 5 7 3 7 6 2 7 4 0 7 1 5 1 5
1 3 1 9 1 3 5 0 3 2 3 9 4 0 3 2 5 9 9 4 5 5 5 3 5 5 9 7 9 6 2 8 9 5 7 1 7 1 7
1 8 5 8 1 3 5 1 3 2 3 9 5 3 3 3 2 2 9 4 6 2 2 1 5 5 9 8 7 6 3 5 8 3 7 1 7 7 6
2 0 0 2 1 3 5 8 4 2 4 0 2 4 3 3 4 5 5 4 6 4 3 8 5 6 3 3 6 6 3 9 8 2 7 2 3 4 8
2 9 7 2 1 4 1 5 9 2 4 6 4 3 3 3 7 7 3 4 6 7 4 3 5 6 4 8 0 6 4 0 2 4 7 2 4 1 9
3 3 9 9 1 5 1 9 6 2 5 2 1 3 3 4 5 1 1 4 6 8 9 3 5 6 7 4 4 6 4 2 2 0 7 2 7 5 7
3 6 1 1 1 5 3 1 1 2 5 3 4 4 3 5 3 5 5 4 7 2 5 0 5 6 8 8 5 6 4 5 4 2 7 2 9 6 5
3 6 9 3 1 5 3 6 1 2 5 4 2 7 3 5 7 4 6 4 7 3 8 2 5 7 1 3 0 6 4 5 7 4 7 3 6 5 7
3 8 3 1 1 7 0 7 1 2 5 7 2 4 3 5 9 2 1 4 7 3 9 6 5 7 2 4 4 6 4 5 9 8 7 4 2 9 9
4 1 0 3 1 7 4 6 7 2 6 0 0 3 3 5 9 6 7 4 7 5 5 4 5 7 2 7 8 6 4 7 1 1 7 4 5 7 0
4 2 7 1 1 7 7 6 7 2 6 2 9 6 3 6 9 2 9 4 8 1 0 7 5 7 3 6 1 6 4 8 8 4 7 4 6 1 7
4 2 8 3 1 7 9 6 6 2 6 3 3 4 3 7 1 2 3 4 8 1 9 5 5 7 5 9 0 6 5 0 0 9 7 4 7 0 8
4 4 8 2 1 8 0 1 3 2 6 4 0 3 3 7 2 4 0 4 8 2 0 5 5 7 6 1 4 6 5 1 3 3 7 4 8 0 2
5 6 5 1 1 8 3 9 5 2 6 4 6 2 3 7 3 3 5 4 8 5 7 1 5 8 0 9 7 6 5 5 1 9 7 4 8 0 4
6 2 8 9 1 8 4 1 6 2 6 5 7 3 3 8 5 0 6 4 8 6 6 7 5 8 2 0 2 6 5 8 7 2 7 4 9 7 3
8 0 9 8 1 8 8 1 2 2 6 6 2 1 3 9 0 1 2 4 8 9 8 6 5 8 2 4 7 6 6 2 0 4 7 5 0 2 1
8 1 1 8 1 9 2 7 5 2 6 7 9 1 3 9 7 2 3 4 9 6 2 1 5 8 7 2 8 6 6 4 5 8 7 5 9 1 7
8 1 7 1 1 9 5 3 3 2 6 9 2 4 4 0 0 3 5 5 0 7 9 2 5 8 8 1 7 6 6 9 6 9 7 6 2 9 6
8 4 0 5 1 9 7 4 8 2 6 9 4 1 4 0 2 0 1 5 0 8 8 4 5 8 9 0 0 6 7 2 6 3 7 6 6 1 2
9 6 0 1 2 0 4 7 0 2 7 0 5 3 4 2 3 4 4 5 1 3 3 5 5 9 1 6 1 6 7 4 8 0 7 6 6 2 6
9 6 5 5 2 0 5 7 8 2 7 6 9 3 4 2 7 6 8 5 1 6 7 3 5 9 1 8 3 6 8 0 1 6 7 7 4 3 9
1 0 3 6 8 2 0 7 6 3 2 8 0 7 0 4 2 8 4 2 5 1 9 7 7 5 9 7 7 2 6 8 2 3 0 7 7 6 6 5
1 0 4 5 9 2 0 8 3 0 2 8 2 6 3 4 2 9 6 1 5 2 8 5 3 6 0 0 1 7 6 8 8 7 3 7 7 7 9 4
1 0 7 1 6 2 0 8 3 3 2 8 3 4 1 4 3 2 7 2 5 3 2 6 6 6 0 2 5 8 6 9 0 5 3 7 8 9 1 9
1 0 9 7 2 2 1 4 7 8 2 8 5 4 8 4 3 5 5 8 5 3 5 3 8 6 1 1 7 9 6 9 0 9 8 7 9 8 4 3
1 1 0 3 6 2 1 8 3 6 2 8 7 7 6 4 3 6 4 0 5 4 2 4 7 6 1 8 8 3 6 9 5 8 1
1 1 2 7 8 2 2 1 2 7 2 9 1 9 1 4 4 1 2 1 5 4 6 2 7 6 2 0 0 5 7 0 0 6 4
1 1 8 6 7 2 3 1 2 4 3 0 6 9 9 4 4 4 4 0 5 4 6 5 6 6 2 3 0 0 7 0 2 7 0
1 1 9 5 5 2 3 1 5 9 3 0 8 2 5 4 4 4 6 7 5 4 6 8 6 6 2 4 4 7 7 0 2 8 3
1 2 0 3 6 2 3 4 0 1 3 1 5 8 7 4 4 6 1 8 5 4 7 7 3 6 2 4 5 6 7 0 9 6 3
1 2 7 8 4 2 3 6 1 4 3 1 7 4 5 4 4 6 9 5 5 5 3 2 4 6 2 5 7 7 7 1 2 5 8
Næsti útdráttur fer fram 30. desember 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.is
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag