Morgunblaðið - 24.12.2009, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2009
Ífljótu bragði man ég ekkieftir nokkrum sjónvarps-þáttapersónum sem hafanáð slíkum vinsældum og
„költ-fylgi“ sem vaktmennirnir
góðu Georg Bjarnfreðarson (Jón
Gnarr, auk þess sem hann er túlk-
aður af fjórum leikurum til við-
bótar á ýmsum aldursskeiðum),
Ólafur Ragnar, eða Forsetinn
(Pétur Jóhann) og Daníel (Jör-
undur Ragnarsson). Ég sé heldur
ekki fyrir mér að þeir verði slegnir
úr toppsætinu næstu árin. Þeir eru
orðnir eins og frímerki, límdir á
þjóðarsálina eftir þrjár einkar vel
heppnaðar gamanþáttaraðir á und-
anförnum árum; Næturvaktina,
Dagvaktina og loks Fangavaktina,
sem lauk í vetur. Þættirnir hafa
tekið ýmsar óvæntar stefnur og
ferskar, það vantaði aðeins punkt-
inn yfir i-ið, loka þeim ásætt-
anlega. Líkt og nafnið bendir til er
Bjarnfreðarson fyrirferðarmestur í
kvikmyndinni sem virðist vera
endapunkturinn á lífi vaktmann-
anna (í bili a.m.k.). Nú fáum við að
vita hvað gerði Bjarnfreðarson að
þeim óferjandi og óalandi gallagrip
sem við þekkjum úr þáttunum.
Vitaskuld kemur kerlingarfrenjan
móðir hans mikið við sögu, hún er
iðin, frá því hún gat hann, við að
gera úr honum hið forstokkaðasta
viðundur, blinduð af karlfyrirlitn-
ingu, kvenrembu og kynjamisrétti
(sem hún berst á móti með því að
klæða drenginn sinn eins og hálf-
vita í skærlitar kápur og annað
slíkt sem hrekur blessuð börnin í
klær eineltisins). Heimsvaldastefn-
an fær sitt pláss með tilheyrandi
Keflavíkurgöngum (sem eiga eftir
að draga dilk á eftir sér). Inn í
uppeldissögu Georgs er fléttað
raunum hans í hversdagsstreði
samtímans, það er slitrótt saga þar
sem koma einkum við sögu „vinir“
hans tveir, vaktkammeratarnir
Ólafur forseti og heybrókin Daníel.
Þeir eru við sama heygarðshornið
og við sleppum því að tíunda frek-
ar örlög þeirra félaga.
Bjarnfreðarsyni verður örugg-
lega tekið tveimur höndum af
landanum sem fær botn í and-
hetjurnar sínar sem má rekja til
þeirra mismunandi áhrifavalda
sem gert hafa okkur mest til bölv-
unar á undanförnum áratugum.
Þetta tekst handritshöfundunum
bærilega, oftast vel, einkum í
hnyttnum tilsvörum og satt að
segja fylgir því söknuður og nost-
algía að sjá þá enda sitt skeið,
Daníel, Forsetann og Georg, þótt
það heppnist í sjálfu sér prýðilega.
„Hvað viltu verða vinur,“ spyr
móðir Georgs hann, og rauður log-
inn brennur í augum hennar, þessa
óforbetranlega hernámsandstæð-
ings og Fylkingarkonu, og litla
furðuveran, sonur hennar, svarar:
„Káboj í Ameríku.“ En enginn veit
sína ævina fyrr en öll er.
Eins og við mátti búast er
myndinni snaggaralega leikstýrt af
Ragnari Bragasyni, einum reynd-
asta og færasta leikstjóranum okk-
ar í dag. Það er vandasamt verk
að flétta saman mikil hlaup í tíma
og sögu persónanna, en það er
tæpast hægt að segja að Bjarn-
freðarson verði nokkurn tímann
grautarleg. Þeir halda manni við
efnið þessir miklu skemmtikraftar,
standa vaktina sem fyrr, öllum til
ánægju.
saebjorn@heimsnet.is
Bjarnfreðarson Verður örugglega tekið tveimur höndum af landanum sem fær botn í andhetjurnar sínar.
Það var endur fyrir löngu –
í miðri Keflavíkurgöngu …
Sambíóin
Bjarnfreðarson
bbbmn
Leikstjóri: Ragnar Bragason. Handrits-
höfundur: Ragnar Bragason og Jón
Gnarr. Kvikmyndataka: Bergsteinn
Björgúlfsson. Klipping: Sverrir Krist-
jánsson. Brellur: Haukur Karlsson.
Framleiðendur: Ragnar Bragason, Jón
Gnarr o.fl. Aðalleikarar: Jón Gnarr, Pét-
ur Jóhann Sigfússon, Jörundur Ragn-
arsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir, Helga Braga
Jónsdóttir, Sara Margrét Mikaelsdóttir,
Örn Árnason, Arnar Jónsson, Anna
Kristín Arngrímsdóttir o.fl. Saga Film.
SAM Film 90 mín. Ísland. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
ÞAÐ er tæpast til það mannsbarn í eyríkinu sem Jón Gnarr hefur ekki
komið í gott skap. Og það oft og mörgum sinnum. Að öðrum gamanleik-
urum og skemmtikröftum ólöstuðum ber hann höfuð og herðar yfir vel-
flesta kollega sína nú um stundir. Aukinheldur er maðurinn hamhleypa,
efnið sem liggur eftir hann er með ólíkindum að vöxtum og skemmti-
lega sundurleitt. Hann getur brugðið sér í allra kvikinda líki; með einni
svipbreytingu getur Jón Gnarr breytt sér úr engli í púkann á fjósbásn-
um. Hann er engum líkur og á örugglega eftir að skemmta okkur vel og
lengi.
Maðurinn með þúsund andlitin
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Gjafakort Borgarleikhússins
– gjöf sem lifnar við
Gleðilega jólahátíð
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Þri 29/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Sun 3/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sun 27/12 kl. 14:00 Sun 3/1 kl. 14:00 Sun 17/1 kl. 14:00
Sun 27/12 kl. 19:00 Sun 10/1 kl. 14:00 Sun 24/1 kl. 14:00
Vinsælasti söngleikur ársins - sýningum lýkur í janúar
Jesús litli (Litla svið)
Þri 29/12 kl. 19:00 Mið 30/12 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 20:00
Þri 29/12 kl. 21:00 aukas Sun 3/1 kl. 20:00 Sun 10/1 kl. 20:00
Snarpur sýningartími. Síðasta sýning leikársins 10. janúar.
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Sun 27/12 kl. 22:00 Lau 16/1 kl. 22:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Mán 28/12 kl. 19:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 19:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Fös 8/1 kl. 22:00 Fös 22/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 22:00
Fös 15/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 22:00
Rautt brennur fyrir (Nýja svið)
Þri 29/12 kl. 20:00 síðasta sýn
Ekki við hæfi barna. Síðasta sýning 29. des
Djúpið (Litla svið/Nýja svið)
Mið 30/12 kl. 21:00 síðasta
sýn
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
GJAFAKORT
ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Einstakt tilboð til jóla
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Fim 21/1 kl. 20:00
Fös 15/1 kl. 20:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Oliver! (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 20:00 Frums. Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas.
Sun 27/12 kl. 16:00 Aukas. Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Fös 29/1 kl. 19:00
Sun 27/12 kl. 20:00 2. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Lau 30/1 kl. 15:00
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Lau 6/2 kl. 15:00
Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Fim 14/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Lau 16/1 kl. 15:00 Aukas.
Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 19:00
Gjafakort á tilboðsverði til jóla!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Sun 27/12 kl. 15:00 Mið 30/12 kl. 15:00 Lau 9/1 kl. 15:00
Þri 29/12 kl. 15:00 Sun 3/1 kl. 15:00 Sun 10/1 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Ókyrrð (Kassinn)
Þri 29/12 kl. 20:00 Mið 30/12 kl. 20:00
Gestaleikur - aðeins þessar tvær sýningar!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
39 þrep (Samkomuhúsið)
Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k.
Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Fös 29/1 kl. 19:00
Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Lau 30/1 kl. 19:00
Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 22:00 Aukas
Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k. Fös 5/2 kl. 19:00
Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas Lau 6/2 kl. 19:00
Forsala er hafin
Prestur sr. Egill Hallgrímsson.
Samkoma og kirkjukaffi í Réttinni á eftir.
Jólamessa Úthlíðarkirkju
sunnudaginn 27. desember kl. 16.00
ATH. breyttan messutíma.
www.uthlid.is
KVIKMYNDIN Sherlock Holmes í leikstjórn Guys Ritchies var frumsýnd í
New York nýlega. Leikaraúrval myndarinnar mætti á rauða dregilinn auk
fleiri frægra enda um stórmynd að ræða.
Spæjarafrumsýning
Reuters
Fræg og flott Aðalleikarar myndarinnar Jude Law og Robert Downey Jr.
með leikkonunni Rachel McAdams og t.v er Susan, eiginkona Downey.
Slúðurstelpa Blake Lively var flott.
Hasarhetja Bruce Willis mætti.