SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Page 4
4 7. febrúar 2010
Vikuritið Marianne segir Eric Besson, ráðherra inn-
flytjendamála, „hataðasta mann Frakklands“ og
Nouvelle Observateur kallar hann „óforskammaðan
þjón herra síns“, Nicolas Sarkozy. Besson fæddist í
Marrakesh í Marokkó og flutti til Frakklands þegar
hann var 17 ára. Nú er hann í eldlínu umræðunnar um
það hvort banna eigi múslímakonum að hylja ásjónu
sína. Hann segist vilja að uppbyggileg umræða fari
fram í föðurlandi mannréttindanna og telur að hægri-
öfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen hafi of lengi fengið
að sitja einn að því að móta þjóðarímyndina. Til þess
að þessi umræða gæti farið fram opnaði hann vef-
síðu fyrir þjóðina. Brátt birtust þar svo ógeðfelld um-
mæli að ritskoða þurfti síðuna.
Sósíalistar saka Besson um að beina sjónum frá
hinum raunverulegu vandamálum, fjárlagahalla og
atvinnuleysi. Besson er sósíalistum ekki ókunnur.
Hann var ráðgjafi Ségolène Royal, frambjóðanda
sósíalista, í forsetakosningunum 2007 og skrifaði
þá um Sarkozy að hann væri „amerískur nýfrjáls-
hyggjumaður með franskt vegabréf“.
Honum sinnaðist við sósíalista og gekk þá í raðir
hægri manna. Sagt er að hann hafi búið Sarkozy und-
ir kappræðurnar fyrir seinni umferð forsetakosning-
anna og þá tekið að sér hlutverk Royal.
Fyrir rúmri viku skar frönsk þingnefnd úr um að
setja bæri lög um að banna konum að hylja ásjónu
sína á opinberum stöðum. Konum í búrku eða með
níkab yrði þá meinaður aðgangur að stofnunum,
sjúkrahúsum, félagslegum skrifstofum, skólum og
almenningssamgöngum. „Ég held að við verðum að
banna búrkuna – í þágu kvenna,“ segir Besson.
„Hataðasti maður Frakklands“
Eric Besson innflytjendamálaráðherra.
K
röfur um að banna múslímakonum
að hylja andlit sitt fara vaxandi í
Evrópu. Í Noregi kom Lise Chri-
stoffersen, talsmaður Verka-
mannaflokksins í innflytjendamálum, fram í
vikunni og mæltist til þess að slíkt bann yrði
sett í þar í landi. Christoffersen segir að klæði
á borð við búrkur og níkab beri kvennakúgun
vitni. Þegar hún var spurð í dagblaðinu Aft-
enposten hvort þessi krafa gengi ekki á skjön
við trúfrelsi svaraði hún því til að um væri að
ræða „misnotkun trúfrelsis“. Christoffersen
hefur ekki rætt málið í eigin flokki og veit
ekki hvort hann mun styðja málið. Framfara-
flokkurinn hefur hins vegar slíkt bann á dag-
skrá en Miðflokkurinn, Sósíalíski vinstri-
flokkurinn og Hægriflokkurinn eru því
andvígir.
„Að banna tiltekinn fatnað er framandi
hugmynd,“ segir Trygve Magnus Slagsvold
Vedum, þingmaður Miðflokksins. „Mér finnst
búrka vera hræðilegur fatnaður en við getum
ekki farið á þá hringekju að byrja að ákveða
hvernig fólk klæðist.“
Þrjár konur klæðast búrku í Danmörku
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar,
var spurður hvort hann teldi rétt að banna
búrkur: „Ég tel ekki að nokkur maður í
frjálsu landi á borð við Svíþjóð eigi að hylja
andlit sitt með þessum hætti.“ Skömmu síðar
vísað hann hins vegar á bug hugmyndinni
um að banna búrkur og níkab.
Kveikjan að því að Reinfeld var spurður er
umræðan um þessi mál í Danmörku. Rætt
hefur verið um bann við búrkum og níkab
þar í landi, en stjórnarflokkarnir ákváðu að
setja ekki almennt bann þar sem það stríddi
gegn stjórnarskrá, en í menntastofnunum má
með fullum rétti krefjast þess að bæði kenn-
arar og nemendur sýni andlit sitt. Í ýmsum
tilfellum má krefja konur um að sýna andlit
sitt í Danmörku, til dæmis þegar þær nota
kort í strætisvögnum, lestum og ferjum. Í
Danmörku er þetta mikið hitamál og end-
urspeglar kannski frekar ótta við innflytj-
endur og að þeim fylgi vandamál en að það sé
raunverulegt vandamál að konur hylji andlit
sitt. Samkvæmt rannsókn, sem Kaup-
mannahafnarháskóli gerði, klæðast aðeins
þrjár konur í allri Danmörku búrku og 150 til
200 konur níkab.
Bann við búrkum hefur komið til tals víð-
ar. Í Aftenposten kemur fram að í Belgíu sekti
yfirvöld í mörgum bæjum konur, sem brjóti
staðbundið bann við slæðunotkun. Á Ítalíu
voru lög frá valdatíma fasistastjórnar Benitos
Mussolinis sem banna notkun grímu notuð til
að sekta múslímakonu sem klæddist búrku.
Á liðnu ári samþykktu Svisslendingar í
þjóðaratkvæðagreiðslu að banna byggingu
bænaturna við moskur og forsprakkar þeirrar
atkvæðagreiðslu hafa talað um að búrkan
væri næst á dagskrá.
Lítil umræða er um að banna búrkur í
Þýskalandi og á Bretlandi þótt þar séu margir
innflytjendur. Of langt væri þó gengið að
segja að umræðan á Bretlandi væri engin og
er uppnámið, sem varð þegar Jack Straw,
fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands,
skrifaði grein fyrir nokkrum árum um að sér
þætti óþægilegt að ræða við kjósendur sína
þegar þeir hyldu andlit sitt.
Í Frakklandi eru þessi mál hins vegar mikið
rædd þessa dagana og hafinn er undirbún-
ingur að lagasetningu um að banna búrkur og
níkab-slæður á opinberum stöðum. Í Frakk-
landi var trúarlegum táknum úthýst úr op-
inberu lífi eftir byltingu og Frakkar hafa átt
mjög erfitt með að taka á þeim birting-
armyndum íslams, sem fylgja múslímskum
íbúum landsins. „Búrkan er ekki velkomin á
landi franska lýðveldisins,“ sagði Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseti í ræðu í fyrrasum-
ar.
Deilan um búrkurnar er birtingarmynd
umræðunnar um það hvort og hvernig nýir
íbúar í nýju landi eigi að laga sig að þeim
háttum og siðum, sem fyrir eru. Þessi deila á
sér nú stað um alla Evrópu, en það er erfitt
að sjá hvernig á að greiða fyrir aðlögun músl-
ímskra innflytjenda með því að setja þeim
boð og bönn, sem þeim finnst stríða gegn
þeirra menningu. Á hinn bóginn er sú krafa
líka eðlileg að innflytjendur virði siði og gildi
sem eru við lýði í nýjum heimkynnum.
Búrkur
valda
uppnámi í
Evrópu
Bann víða til um-
ræðu í álfunni
Kona klædd í níkab-slæðu verslar á útsölu í bænum Leers í Norður-Frakklandi. Til stendur að banna slíkan klæðnað í landinu.
ReutersVikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Búrka Níkab
Búrka og
níkab
Búrka er alklæðn-
aður, sem sumar
múslímakonur bera
yfir sínum venjulegu
fötum utan heimilis-
ins. Orðið merkir and-
litshula með opi fyrir
augun. Fyrir augunum
er gagnsæ grisja. Sú
sem klæðist búr-
kunni sér út, en augu
hennar sjást ekki.
Níkab nefnist slæða,
sem notuð er til að
hylja allt andlitið
nema augun.
Grísalund e
rlend1498
kr.
kg
verð áður 2
598
40%afsláttur
einfalt & ódýrt!