SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 8
8 7. febrúar 2010 Samskipti páfastóls og breskra yf- irvalda hafa verið snúin frá því Hin- rik VIII. var bannfærður og sagði í kjölfarið þjóðina alla úr sambandi við páfagarð. Á þeim tíma var það flokkað sem landráð ef menn við- urkenndu ekki vald konungs í öllum málum, veraldlegum sem geistleg- um, og kaþólskir áttu erfitt upp- dráttar í hundruð ára og var meðal annars meinað að gegna æðstu embættum. Sú mismunum hefur verið afnumin en þeir sem fjallað hafa um ræðu páfa segja að þetta sé í fyrsta sinn í 300 ár sem páfi skipti sér af breskum innanríkismálum. Vegna ræðu páfa er búist við miklum mótmælum í Bretlandi vegna heimsóknarinnar og samtök trúleysingja hafa skipulagt mikil mótmæli þar sem ýmsir frammámenn og þekktar kvikmynda- og tónlistarstjörnur koma við sögu. Einnig verður haldin sérstök kvikmyndahátíð þar sem sýndar verða myndir sem draga eiga upp mynd af spillingu og for- dæðuskap sem þrifist hafi í skjóli kaþólsku kirkjunnar. Að þessu sögðu þykir milljónum manna páfi aufúsugestur og fagna komu hans. Búist við miklum mótmælum Benedikt hylltur í Þýskalandi. Þ ví var varpað fram í útvarpsþætti í breska ríkisútvarpinu, BBC, fyrir nokkr- um árum að ef til væri á Bretlandi fyr- irtæki sem meinaði konum að gegna stjórnunarstöðum og bannaði samkynhneigðum að gegna nokkru starfi væru yfirvöld löngu búin að grípa inn í starfsemi þess og leysa það upp eða leggja niður. Þessu var slegið fram í deilum um af- stöðu bresku biskupakirkjunnar til þess að konur gætu orðið biskupar en til er stofnun í Bretlandi sem er enn íhaldssamari í þessum efnum – kaþ- ólska kirkjan. Hans heilagleiki Benedikt XVI. er væntanlegur í heimsókn til Bretlands í haust. Honum verður vel fagnað af yfirvöldum og trúbræðrum sínum, en aðrir munu ekki taka honum eins vel því fjöl- margir eru argir út í páfa fyrir yfirlýsingar hans varðandi nýja löggjöf sem ríkisstjórn Bretlands er með í bígerð sem ætlað er að tryggja mannréttindi betur en nú er. Mannréttindalögin nýju eiga að koma í stað fjöl- margra annarra laga sem sett hafa verið í gegnum árin til að tryggja mannréttindi eftir því sem tíð- arandinn hefur breyst, til að mynda lög um jafna stöðu karla og kvenna, um bann við mismunun vegna litarháttar, trúar eða kynhneigðar og svo má áfram telja. Í lögunum er ekki fjallað um geist- leg embætti, en aftur á móti tiltekið að óheimilt sé að mismuna fólki í veraldlegum störfum, þar með talið þeirri iðju að skúra og skrúbba í kirkjum, klippa kirkjulegt limgerði og sinna reikningshaldi og annarri skrifstofuvinnu. Þar stendur hnífurinn í kúnni því trúfélögum finnst þá sem verið sé að þvinga þau til að ráða til starfa fólk sem brjóti gegn kennisetningum trúar þeirra. Téð mannréttindalöggjöf hefur og verið umdeild á Bretlandi og þá aðallega gagnrýnd af frammá- mönnum innan trúfélaga, enda þykir þeim það skerðing á þeim undanþágum sem þau hafa haft frá slíkum lögum til þessa, en meðal þeirra sem beitt hafa sér gegn frumvarpinu eru biskupar ensku biskupakirkjunnar sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu í lávarðadeildinni. Ræða páfa var þó aðeins ætluð enskum og velskum biskupum og í henni hvatti hann biskupana til að bregðast hart við væntanlegum breytingum, enda séu þær skerðing á frelsi trúfélaga til að breyta í samræmi við trú sína „og að vissu leyti brjóta [breyting- arnar] í bága við lögmál náttúrunnar sem jafnrétti alls mannkyns byggist á og sem tryggir það jafn- rétti“ eins og sagði í ræðunni. Ýmsir hafa gagnrýnt páfa fyrir ummæli sín og allmargir harkalega. Þannig skrifaði einn þing- manna Verkamannaflokksins, Martin Salter, grein í Daily Telegraph þar sem hann sagði að þetta væri eflaust í fyrsta sinn sem maður í kjól hefði gagn- rýnt jafnréttislöggjöf. Hann túlkaði orð páfa sem svo að kaþólska kirkjan vildi njóta þess að búa í þjóðfélagi þar sem trúfrelsi nyti verndar, svo framarlega sem hún þyrfti ekki að leyfa öðrum að njóta sömu verndar. Aðrir hafa tekið upp hanskann fyrir páfa, þar á meðal Andrew Pierce, dálkahöfundur Daily Mail, samkynheigður kaþólikki, en hann telur að lögin gæti meðal annars orðið til þess að kaþólsk mun- aðarleysingjaheimili hættu starfsemi þar sem þau mættu ekki neita samkynhneigðum hjónum um ættleiðingu þótt slíkt gengi gegn trúarsannfær- ingu þeirri sem stofnunin byggðist á. „Í jafnrétti felst að við séum öll jöfn – jafnt þeir sem berjast fyrir réttindum samkynhneigðra og þeir sem berj- ast gegn þeim.“ Joseph Alois Ratzinger sem tók sér nafnið Benedikt þegar hann tók við páfastól hefur oftlega verið gagnrýndur fyrir íhaldssemi í skoðunum. Styr um páfa í Bretlandi Benedikt páfi er umdeildur vegna orða um jafnréttismál Vikuspegill Árni Matthíasson arnim@mbl.is Mótmæli eru tíð þar sem páfi fer um og líka á heima- slóðum – hér mótmæla samkynhneigðir í Róm. Benedikt XVI. heldur til Eng- lands 16. september og dvel- ur þar til 19. september, en skreppur í dagsferð til Skot- lands. Í ferðinni mun hann taka John Henry Newman, kaþólskan prest sem uppi var á nítjándu öld, í tölu dýrlinga. Þess má geta að því hefur iðu- lega verið haldið fram að Newman hafi verið samkyn- hneigður, en hann var grafinn með sambýlismanni sínum. John Henry Newman, fyrrverandi kardináli og verðandi dýrlingur. Reuters Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Galleríi Fold Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn 8. febrúar, kl. 18.15 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg Kristján Davíðsson Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna Verkin verða sýnd: laugardag 11–17, sunnudag 12–17 og mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.