SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Blaðsíða 10
10 7. febrúar 2010 R uglið og fáránleikinn í kringum vinnubrögð bankanna tek- ur stöðugt á sig nýja og nýja mynd og virðast vitleysunni engin takmörk sett. Ólafur Ólafsson hefur eignast Samskip upp á nýtt, eða 90% í félaginu og fengið tugi milljarða króna í skuldum fellda niður í gamla Kaupþingi. Eina sem Ólafur þurfti að gera, var að henda nokkur hundruð milljónum króna í lán- ardrottnana, gegn því að þeir bara steingleymdu tugmilljörðunum sem hann skuldaði þeim. Þessi sami Ólafur er grunaður um markaðs- misnotkun og getur því hæglega átt yfir höfði sér kæru frá sérstökum saksóknara. En það breytir engu, Ólafur er svo mikilvægur fyrir rekstur Samskipa, að sögn forsvarsmanna félagsins, að félagið væri bara handónýtt og óstarfhæft, ef Ólafur ætti ekki þessi 90%. Ólafur er í felum í Sviss; það er kjörlendi fyrir rekstur skipafélags, ekki satt?! Og ekki eru undrin og stórmerkin minni í kringum nýjustu fréttir úr Arionbanka af málefnum Haga. Nú ætlar bankinn að skrá Haga í Kauphöllinni og selja sinn hlut í félaginu. Bankinn tekur þó frá 10% fyrir Jóhannes Jónsson í Bónus, sem hann hefur forkaupsrétt að og 5% fyrir stjórnendur félagsins. Bankinn ætlar að selja Jóhannesi 10%, en bankinn ætlar ekki að lána honum fyrir kaupunum. Það finnst Finni Sveinbjörnssyni bankastjóra Arionbanka merkileg ákvörðun! En Finnur minnist ekkert á þá staðreynd að skuldir 1998 ehf. í Ar- ionbanka eru líklega yfir 50 milljarðar króna og hann gefur ekkert upp um það hversu mikið af þeim skuldum bankinn mun á endanum þurfa að afskrifa. Hvað með þá staðreynd, að Gaumur, fjölskyldufélag Bónusfjöl- skyldunnar, gekk í ábyrgð fyrir 82% af þeim lánum sem gamla Kaup- þing veitti 1998 ehf. sumarið 2008, þegar feðgarnir ákváðu að kaupa Haga út úr Baugi? Hvers vegna er ekki gengið að þeim sem skuldsettu sig til helvítis, til þess að ná algjöru eignarhaldi á Högum? Hvernig getur bankinn ákveðið að selja allt félagið, eða þau 95,7% sem hann telur sig eiga í Högum, áður en það liggur klárt og kvitt fyr- ir, að bankinn eigi þennan hlut? Eru forsvarsmenn Arionbanka og eigendur kannski búnir að gleyma því að hér í bæ er þrotabú Baugs, sem hefur skiptastjóra, sem telur að salan á Högum út úr Baugi til 1998 sumarið 2008 sé rift- anlegur gjörningur? Er ekki allt eins líklegt að kröfur þrotabús Baugs á hendur 1998 ehf. eigi eftir að enda fyrir dómstólum? Telja forsvarmenn Arionbanka að almenningur muni bíða í röðum eftir því að fá að fjárfesta í Högum með Bónusfjölskyldunni, án þess að það liggi fyrir hver á Haga í raun og veru? Þrátt fyrir yfirlýsingar og gorgeir frá sl. hausti og allt fram á síðustu vikur frá þeim Bónusfeðgum, um að ekki yrði afskrifuð króna vegna Haga og 1998 í gamla Kaupþingi og Arionbanka og að erlendir fjár- festar biðu í röðum eftir að fá að kaupa með þeim feðgum Haga, hefur nú annað komið á daginn. Raunar voru mjög margir þeirrar skoðunar frá upphafi, þegar Jón Ásgeir sagði frá því í ágúst í fyrra að erlendir fjárfestar ætluðu að koma með 16 milljarða króna inn í Haga, að sann- leiksgildi þeirrar frásagnar hefði verið afar rýrt. Enda fór það svo, eftir því sem leið á haustið, að upphæðirnar sem nefndar voru, skruppu stöðugt saman og voru ef ég man rétt komnar niður í 6 til 8 milljarða króna og niðurstaðan varð vitanlega sú að engir erlendir fjárfestar vildu fjárfesta með Bónusfeðgum. Ég nenni nú ekki einu sinni að ræða um froðusnakkið í Finni Svein- björnssyni, þegar hann skýrði hér í Morgunblaðinu, útvarpi og sjón- varpi að þessi ákvörðun myndi „þjóna hagsmunum bankans best, starfsfólki fyrirtækisins og fyrirtækinu sjálfu“. Síðan hvenær hefur banki hugsað um eitthvað annað en eigin hag? Er Arionbanki kannski orðinn ein af góðgerðarstofnunum samfélagsins? Staðreyndina tel ég vera þá, að bankinn, í dulargervi, þykist ætla að selja félagið í opnu útboði en ætlar í raun og veru að tryggja áfram- haldandi yfirráð þeirra Bónusfeðga yfir fyrirtækinu, óbreytta stjórn og lykilstjórnendur. Halda menn að það muni taka feðgana og stjórn- endur langan tíma að ná aftur ráðandi hlut í félaginu? Eru allir búnir að gleyma því með hvaða hætti feðgarnir gættu hags hins almenna hluthafa í Baugi, þegar hann var enn almenningshlutafélag? Gæsla þeirra fólst fyrst og fremst í því að gæta eigin hagsmuna á kostnað hins almenna hluthafa, eins og frægt er orðið fyrir margt löngu. Sem sagt, það verður engin breyting á einokunarkeðjunni Högum. Þetta gat bankinn vitanlega ekki gert fyrir opnum tjöldum, því nýir eig- endur Arionbanka vissu, að ef slík viðskipti yrðu gerð opinber og allt væri uppi á borðum, hefði það orsakað áhlaup á bankann. Líklega hefði fólk í þúsundatali streymt í Arionbanka og útibú hans og hirt krónurnar sínar og lokað reikningum. Hvaða bankaeigendur vilja kalla fram slík viðbrögð? Hver vill kaupa með Jóa í Bónus? Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is 06.00 Þessi dagur byrjaði bara hörmulega. Vaknaði með hausinn fullan af skít, kvefaður og vitlaus. Engin miskunn samt sem áður, enda málflutningur framundan í Hæstarétti. Ég gúffaði í mig AB-mjólk með músli og dáðist síðan að sjálfum mér í speglinum áður en ég yf- irgaf kotið. 06.30 Kominn á Lög- fræðistofu Reykjavíkur að klára undirbúning fyrir málflutning í Hæstarétti. Mér líður stundum eins og ég sé að fara í munnlegt próf þegar kemur að málflutn- ingi fyrir hinum virðulega Hæstarétti. Þarna sitja ein- staklingar með yfirburða- þekkingu á lögfræði og grilla mann hiklaust ef maður er ekki nógu vel undirbúinn. 08.30 Mættur í Hæstarétt og eins og venjulega tekinn kaffi- bolli með dómvörðunum. Miklir snillingar þeir menn sem gaman er að spjalla við. 09.00 Málflutningur í Hæstarétti. Eva B. Helgadóttir hrl var á móti mér. Dómarar Jón Steinar Gunnlaugsson, Hjördís B. Hákonardóttir og Helgi I. Jónsson. Helgi er dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur en tekur iðulega sæti í Hæstarétti við forföll dómara. Mál þetta fjallaði um ábyrgð Ölgerðar Eg- ils Skallagrímssonar á húsa- leiguskuld vegna Austurstrætis 22 sem brann til grunna árið 2007. Í héraðsdómi var Ölgerðin sýknuð þar sem frestur sá sem kveðið er á um í húsaleigulögum að leigutaki hafi til þess að beina greiðsluáskorun til ábyrgð- araðila eftir að leiguafnotum lýkur var liðinn. Ég flutti málið fyrir Ölgerðina 11.00 Kominn aftur á skrif- stofuna til að fara yfir tölvu- pósta og hvort einhver hafi sent mér skilaboð á Facebook. Mjög margir skjólstæðingar mínir eru í samskiptum við mig í gegnum það samskiptaforrit sem er al- ger snilld. 11.30 Rölti mér út á Maður lifandi og náði mér í grænmet- isbakka úr hlaðborðinu og tók með mér. Fáránlega góður mat- ur á þessum stað. 12.00 Skjólstæðingur kom í viðtal til mín vegna yfirheyrslu seinna í dag. Staða hans er nokkuð dæmigerð fyrir banka- hrunið og gjaldeyriskreppuna. Á velmektarárunum hafði hon- um vegnað vel í gjaldeyr- isviðskiptum og við kaup og sölu fasteigna. En síðan hrundi allt. Viðskiptabankinn hans hafði millifært 10. m.kr. inn á einn af fjölmörgum reikningum hans sem áttu að fara til að greiða niður tap á öðrum reikn- ingi. Hann hafði ekki áttað sig á þessu og var í góðri trú þegar hann ráðstafaði þessum fjár- munum. Bankinn var ekki sátt- ur og kærði hann til lögregl- unnar. 13.00 Nú kom í viðtal til mín Pólverji nokkur og með í för Sandra Steinarsdóttir túlk- ur. Sandra er á 1. ári í lögfræði en ber höfuð og herðar yfir þann fjölda túlka sem túlka fyr- ir pólska sakborninga. Pólverji þessi hafði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að ráns- málum. Hann var látinn dúsa í nokkra daga í klefa á lög- reglustöðinni við Hverfisgötu við algerlega óviðunandi að- stæður og án þess að fá lækn- isþjónustu. Réttlætiskennd þessa unga Pólverja var mikil og hafði hann samviskusamlga rit- að allt niður sem gerst hafði þann tíma sem hann var í haldi. 14.00 Mætt í yfirheyrslu hjá fjársvikadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar tók á móti okkur sá eðaldrengur Jón- as Helgason rannsóknarlög- reglumaður. Hann er eins og sendiherrann faðir hans, alltaf þægilegur og diplómatískur þegar kemur að því að yfirheyra sakborninga, enda er slík að- ferðafræði mun vænlegri til ár- angurs en stælar og læti. 16.00 Kominn aftur á skrif- stofuna að tékka á tölvupóstum, fésinu og reyna að svara ein- hverju af skilaboðunum. 17.30 Eins og á hverjum degi tók ég æfingu í Laugum en hún var róleg vegna slappleik- ans. Æfing dagsins var upp- handleggir og kassi. Þetta verð- ur að vera í lagi. Eftir góða æfingu var að sjálfsögðu farið í gufu og heita pottinn í spa-inu enda algerlega ómissandi. Spjallaði lengi við Össur Skarp- héðinsson enda kallinn dugleg- ur að hreyfa sig. Gleymdi að sníkja neftóbak. 20.00 Mættur aftur á skrif- stofuna, gengið frá tíma- skýrslum og farið að skoða mál sem kemur til flutnings í Hæstarétti á fimmtudaginn, svaraði einhverjum tölvu- póstum og skilaboðum, sem ég reyndar kemst sjaldnast yfir. 23.00 Kominn heim. Lagðist yfir brezkan spennuþátt á guf- unni hundlasinn og ómögu- legur, áður en ég fór í koju. Dagur í lífi Sveins Andra Sveinssonar lögmanns Sveini Andra líður stundum eins og hann sé að fara í munnlegt próf þegar hann á að flytja mál fyrir Hæstarétti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Engin miskunn sé mál- flutningur framundan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.