SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 15

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 15
7. febrúar 2010 15 „Þetta er hryllingur – óskiljanlegt,“ segir Baltasar Kormákur um niðurskurð stjórnvalda á framlögum til kvikmyndagerðar. „Þetta er sérstaklega sorglegt fyrir mig, þar sem ég hef verið ötull í að ná fram leiðréttingu á framlögunum. Ég var formaður SÍK á þeim tíma, en fram að því höfðu framlög til kvikmynda- gerðar ekki hækkað í langan tíma, heldur rýrnað og orðið að ekki neinu. Nú er sú leiðrétting notuð til að skýra niðurskurð- inn, en það er með öllu óskiljanlegt.“ Hann segir að á sama tíma og niðurskurður nemi 5-10% í öðrum listgreinum, þá sé kvikmyndagreinin skorin niður um 33%. „Það er úr samræmi við allt og kemur mér mjög á óvart, því ég hélt að hugmyndafræði Vinstri grænna væri önnur, fyrir utan að þetta er arðbær iðnaður, sem útvegar gjaldeyristekjur, skapar störf og hefur margfeldisáhrif í hagkerfinu. Reiknað var út að sennilega myndu hundrað kvikmyndagerðarmenn missa vinnuna á ársgrundvelli og ef allur sá hópur fer á atvinnuleys- isbætur, þá er það dýrara fyrir ríkið en sparnaðurinn sem felst í niðurskurðinum. Og þar verður ekkert úr þessum peningum. Þannig að þetta er með öllu óskiljanlegt.“ Ef horft er til tíu ára tímabils, þá hafa framlög til kvikmynda- gerðar ekki hækkað meira en framlög til Sinfóníuhljómsveitar Íslands eða Þjóðleikhússins, að sögn Baltasars. „Hækkunin var mikil á tímabili, því framlögin höfðu staðið í stað svo lengi. Í eðli sínu er kvikmyndasjóður eins og hver önnur menning- arstofnun, nema hann byggist á útboðum í stað þess að fram- leiða sjálfur. Og þetta er sú menning sem nær til flestra, fyrst í kvikmyndahúsum og svo í sjónvarpi. 90 þúsund manns sáu Mýrina í kvikmyndahúsi og síðan fór hún í sjónvarp. Kvikmynd- ir lifa með þjóðinni sem íslensk frumgerð verk og jafnvel þegar þær eru gerðar eftir bók, þá er jafnan leitað í íslenska sam- tímasögu eða menningu. Maður er algjörlega forviða á því, að fólki skuli detta þetta í hug.“ Hann gagnrýnir jafnframt Pál Magnússon útvarpsstjóra. „Svo kom þessa fáránlega yfirlýsing Páls Magnússonar í kjöl- farið, sem var svívirða af verstu tegund og lýsandi fyrir fram- komu Sjónvarpsins í garð þessa iðnaðar. Fyrir utan að logið er og tölur uppdiktaðar til að uppfylla skilyrði þjónustusamnings- ins. Þar var skýrt kveðið á um að lágmarksupphæð til kaupa á efni frá íslenskum framleiðendum ætti að vera að lágmarki 200 milljónir, en þrátt fyrir einbeittan brotavilja og kreatíft bók- hald gátu þeir ekki komið upphæðinni hærra en í 170 millj- ónir. Af þeim fara svo 67 milljónir í talsetningu á erlendu barnaefni! Þá er nánast jafnmiklu varið í alla innlenda fram- leiðslu utan stofnunarinnar og í talsett barnaefni, þar sem tveir leikarar í hljóðveri tala í hljóðnema. Það er með ólíkindum – ekki getur það talist íslensk kvikmyndagerð eða nýsköpun. Ég hef ekkert á móti barnaefni, en það á ekki að grafa undan sjálfstæðum framleiðendum með þessum hætti.“ Hann segir að RÚV sé eina ríkisrekna sjónvarpsstöðin í heiminum sem hafi þá yfirlýstu stefnu að kaupa ekki bíómynd- ir frá heimalandi sínu. „Ekki einu sinni Íran fellur í þann flokk. Þetta er algjörlega fáránlegt. Þess vegna er kallað eftir afsögn Páls Magnússonar, því ekki verður við þetta unað. Ef RÚV tel- ur sitt eina hlutverk vera að framleiða forkeppni Eurovision, þá er mikið að. Það er hlægilegt að horfa á RÚV við hlið Stöðvar 2 í samkeppninni um innlent efni, enda hafa menn þar áttað sig á því að í innlendri dagskrárgerð eru mestu verðmætin fólgin, því það er hægt að hlaða niður erlendum þáttum og bíómynd- um á Netinu. Þeir hafa náð mun meiri árangri, með aðeins markaðinn til að vinna með, á móti fyrirtæki sem hefur hátt í fjórða milljarð í forgjöf.“ Með öllu óskiljanlegt inu. Það hefur verið tilhneigingin þegar leikrit eru nú- tímavídd að fletja þau út og ég er ekki hrifinn af því. Ég er þeirrar skoðunar að hægt sé að þjóna báðum þessum húsbændum; að gera skemmtilegt leikhús en styðjast við skáldskap og vel skrifaðan texta á sama tíma.“ Baltasar segir að einhverju leyti horft til spagettí- vestranna í uppfærslunni. „En það lifir bara í nokkrum augnablikum sem spagettí, til dæmis þegar þeir tveir leggja í leiðangur til að drepa einhvern. En þegar komið er að Ögri, þá er allt annað upp á teningnum, venjulegt heimilisrifrildi, hver gerði hvern óléttan. En ef farið verður í kvikmyndanálgun á verkinu, nokkurs konar vegamynd, þá yrði örugglega sótt meira í spagettívestrana. Nema það vantar vonda kallinn. Það væri hægt að setja Bútralda Brúsason í það hlutverk, en hann gegnir engu lykilhlutverki í sögunni. Og er bara hugarburður, þó að getgátur séu uppi um að hann hafi jafnvel drepið Þorgeir. Í raun eru aðalpersónurnar Þor- geir og Þormóður vondu kallarnir, því maður gengur undir manns hönd í að fá þá til að halda friðinn, vera bara heima og rækta garðinn sinn, en það finnst þeim ekki nógu smart.“ Hann staldrar við. „Laxness hefði getað verið heima og sleppt því að flækja lífið fyrir sér – róta í þjóðinni. Það er ekki auðvelt að búa með svona manni. Og að því leyti eru Þormóður og Þorgeir hliðstæður við hann.“ – Verður þetta bíómynd? „Ég hefði mikinn áhuga á því, ef leitað væri eftir því, enda höfum við unnið mikið í sögunni. En það er undir öðrum komið. Ef við klárum víkingamyndina, þá erum við hins vegar með mikinn forða af sverðum og bún- ingum, auk þess sem hægt væri að breyta bæjunum sem búið er að byggja, þannig að það gæti nýst.“ Gibson setti strik í reikninginn Baltasar segir að víkingamyndin, sem til stendur að taka upp á Höfn í Hornafirði, þar sem þegar er farið að reisa leikmyndina, sé andhverfan við Gerplu, þó að hún gerist á sama tíma. „Það má segja að Gerpla sé paródía af vík- ingamyndinni, því frásögnin er í hefðbundnum stíl hvað varðar hetjumyndir. Enda væri ekki heiglum hent að gera skopmynd í anda Íslendingasagnanna – það þyrfti þá Ben Stiller í aðalhlutverkið! Víkingamyndin er gerð á raunsæ- isforsendum og Karl Júlíusson hefur búið til mjög trú- verðugan heim, en hann gerði nú síðast leikmyndina fyr- ir Hurt Locker, sem tilnefnd er til tíu óskarsverðlauna.“ Hann segir að ný mynd sé dregin upp af þessum tíma, sem Íslendingar hafi ekki séð áður. „Hingað til hafa þetta verið skeggjaðir idjótar með tvö horn og hjálm. En við drögum fram að á þessum tíma var kúltúr á Íslandi, til dæmis sýnum við Alþingi eins og við ímyndum okkur að það hafi verið. Gerpla er á allt öðrum nótum. Við getum tekið Íraksstríðið sem dæmi. Ef horft væri á það út frá sjónarhorni forsætisráðherra Bretlands með hefð- bundnum hætti, þá væri hann á fundum með öðrum leiðtogum, og í heimsókn á vettvangi. En sjónarhorn Gerplu væri annað á sama veruleika, þar væri hann sýnd- ur skíthræddur heima hjá sér, með niðurgang og maga- kveisu.“ Samningaviðræður standa yfir við stórt kvikmynda- fyrirtæki um tökur á víkingamyndinni, að sögn Baltas- ars. „Mel Gibson setti strik í reikninginn um tíma. Menn fengu sjokk er þeir heyrðu af hans mynd, en nú er þetta að komast á skrið aftur. Best væri að við gerðum báðir víkingamynd enda af nógu að taka og mér finnst hann frábær leikstjóri.“ Baltasar hefur einnig augun á kvikmynd, sem byggð verður á leikritinu Djúpinu eftir Jón Atla Jónasson. „Við fengum vilyrði úr sjóðnum,“ segir hann. „Handritið er byggt á sögu Guðlaugs, eða Sundlaugs, og myndin verð- ur eins íslensk og nokkur mynd getur orðið. Jón Atli byggir það lauslega á leikritinu og sögunni og handritið er komið ansi langt.“ Fleira bíður á teikniborðinu, en óvissan er jafnan mikil í heimi kvikmyndanna. „Ég var fenginn til þess að leikstýra endurgerð Reykjavík-Rotterdam fyrir Work- ing Title, sem er Universal-fyrirtæki og framleiðir meðal annars myndir Coen-bræðra. Þar finn ég áþreifanlega að ég stjórna ekki ferðinni. Líklegt er að af henni verði í ár – en verður það í ár?“ Hann yppir öxlum. „En það vantar ekki verkefnin.“ – Verður Ingvar Sigurðsson í aðalhlutverki í Djúpinu eins og á leiksviði? „Nei, ekki Ingvar,“ svarar Baltasar afdráttarlaust. „Hann er að nálgast fimmtugt, en ég er að leita að yngri manni, auk þess sem maður með holdafar Ingvars væri ekki líklegur til að lifa lengi í sjó. Ég hef áhuga á honum í önnur hlutverk, enda met ég hann mikils sem leikara.“ – Þú leggur áherslu á að þetta verði íslensk mynd? „Inn að beini,“ segir hann ákveðinn. „Ég hef verið spurður úti hvort hún verði á ensku, en ég sé enga ástæðu til þess. Og ég mun ekki velta mér upp úr trag- edíu manna sem dóu eða þeirra nánustu. Það stendur ekki til að klæmast á einkalífi fólks. Þvert á móti verður þetta afrek notað til að segja sögu allra sem björguðust og fórust á Íslandsmiðum. Og þannig vörpum við ljósi á sögu íslenskra sjómanna.“ – Hvernig ertu að þróast sem leikstjóri? „Núorðið geri ég bara það sem mig langar til. Ég veit það getur verið frekt, en þannig er það. Ég tekst líka á við verkefnin af meiri alvöru. Það getur verið heilmikill húmor í verkunum, en mér er mikið í mun að gera allt eins vel og ég mögulega get, hvort sem það er leikrit, kvikmynd, bók eða grein í blaði. Annað væri óvirðing við áhorfendur.“ Hann klykkir út með: „Það getur verið að einhverjum finnist ég taka mig hátíðlega, en ég geri það ekki. Ég hef hins vegar meiri ábyrgðartilfinningu en ég hafði. Og kannski á það við um mig sem manneskju.“ ’ „Ég mun ekki velta mér upp úr tragedíu manna sem dóu eða þeirra nánustu. Það stendur ekki til að klæmast á einkalífi fólks. Þvert á móti verður þetta afrek notað til að segja sögu allra sem björguðust og fórust á Íslandsmiðum.“ Baltasar brá á leik á æfingu á Gerplu þegar ljósmyndari ætlaði að mynda leikarana – og eins og sést í speglinum lyfti hann búklausu höfði fyrir myndavélina.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.