SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 16

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 16
16 7. febrúar 2010 H ljómfagur og samstilltur kór verður ekki til af sjálfu sér. Þegar áheyrandi mætir uppá- búinn á tónleika til þess að njóta fegurðarinnar um stund er jafnan langur tími að baki við æfingar hjá söngv- urum og stjórnanda. Margir svitadropar. Stundum margir bensíndropar; það á að minnsta kosti við í tilfelli Kammerkórs Norðurlands. Rúmir tveir tugir manna frá Sauðárkróki í vestri til Kópaskers í austri hittast þrisvar til fimm sinnum á vetri, einn til þrjá daga í senn, og syngja saman undir stjórn Guð- mundar Óla Gunnarssonar sem hefur verið við stjórnvölinn síðan árið 2000. „Við kennum okkur við Norðurland, reynum að fara sem víðast um svæðið og náum að syngja á nær öllum þétt- býlisstöðum á tveggja ára tímabili,“ sagði Jón Pálmi Óskarsson formaður kórsins þegar blaðamaður leit inn á æfingu í hús- næði Tónlistarskólans á Akureyri um síð- ustu helgi. Þeir Guðmundur Óli hafa á orði að ekki sé algengt að kórar haldi fleiri tón- leika en æfingar en sú tölfræði eigi við í þeirra tilviki! Kórinn var stofnaður haustið 1998 og þróunin hefur verið sú að í honum er nær einvörðungu fagfólk; t.d. tónlistarkenn- arar, organistar eða lærðir söngvarar. „Við æfum svo lítið að ekki gefst tími til þess að kenna fólki raddir, þess vegna er hér bara menntað tónlistarfólk eða söngvarar með mikla reynslu,“ segir stjórnandinn. Kórfélagar víla það ekki fyrir sér að keyra um langan veg á æfingar. Þrír þeirra eru búsettir á Kópaskeri og aka því hátt í 400 kílómetra hverja æfingahelgi. „Guðmundur Óli gerir miklar kröfur og við fáum tækifæri til þess að fást við erf- iðari verkefni en annars væri,“ segir Krist- ján Þ. Halldórsson, einn kórfélaganna sem búsettur er á Kópaskeri, í samtali við Morgunblaðið. „Það er allt afstætt,“ segir Kristján spurður um vegalengdirnar. „Við sem bú- um langt frá helstu þéttbýlisstöðum erum vön löngum ferðum bæði í starfi og leik; það er vissulega tímafrekt að keyra á milli en kemst upp í vana. Helsta ástæða þess að við tökum þátt í starfinu er hversu skemmtilegt og gefandi er að vinna með þessum góða hópi.“ Kórinn syngur eingöngu án undirleiks; „a capella“ eins og það er kallað. Áhersla hefur verið lögð á íslenska tónlist undan- farin ár og tónskáld fengin til þess að semja sérstaklega fyrir kórinn. Á söngskránni sem nú er verið að æfa eru til dæmis fimm ný íslensk lög, þar af þrjú eftir Pál Barna Szabó – sem stundum er kallaður Barna- Páll af félögum sínum í kórnum. Hann er af ungversku bergi brotinn, býr á Hauganesi en starfar sem tónlistarkennari á Dalvík og syngur í Kammerkórnum. Framundan eru tónleikar á Norðurlandi í vetur, þeir fyrstu á Húsavík 21. febrúar, auk þess sem kórinn syngur í Langholts- kirkju í Reykjavík 7. mars. Blóð, sviti og bensíntár Á bak við tjöldin Í Kammerkór Norðurlands eru um 20 manns víðs vegar úr landshlutanum. Sumir keyra um langan veg á æfingar en segja ferðalagið vel þess virði því mjög gefandi sé að syngja með hópnum. Texti og ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Söngvararnir eru auðvitað allir vel með á nótunum; frá vinstri, Sigurdríf Jónatansdóttir, Judit György, Guðný Erla Guðmundsdóttir og Auður Aðalsteinsdóttir. Jón Pálmi Óskarsson bassi er jafnframt formaður Kammerkórs Norðurlands.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.