SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 23

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 23
7. febrúar 2010 23 Óhætt er að tala um undrið í Suður- Afríku þegar litið er til þess hvernig fornir erkifjendur sömdu um frið, fyrirgefningu og framtíð landsins á síðasta áratug lið- innar aldar. Vissulega bar eitt og annað út af, en undrið er hversu snurðulaust þessi fífldjörfu áform gengu eftir, án þess blóð- baðs sem margir töldu óumfýjanlegt. En hvernig má segja þá margslungnu sögu – um örlög heillar þjóðar, nei þjóða – með viðhlítandi hætti í aðgengilegri bók, hvað þá bíómynd? Hluti fyrir heild Breski blaðamaðurinn John Carlin var stöðvarstjóri breska dagblaðsins The In- dependent í Suður-Afríku á árunum 1995-98 og hafði orðið vitni að þessum miklu hræringum. Hann gældi við hug- myndina um að skrifa „stóru bókina“ um suður-afríska undrið, en áttaði sig brátt á því að það væri vonlaust verk. Á hinn bóginn datt honum í hug að það mætti reyna að segja sögu af einum, einstökum þætti þessarar margbrotnu sögu á þann hátt að hún segði í raun alla söguna. Og hann vissi nákvæmlega hvaða saga það væri. Hann ráðfærði sig við Nelson Mandela, sem þá var sestur í helgan stein, og forset- inn fyrrverandi hvatti hann eindregið til verksins. Ruðningur er vinsæl íþrótt meðal margra þjóða hins gamla breska samveldis, auk nokkurra annarra þjóða. Heimsmeistaramótið árið 1995 var haldið í Suður-Afríku og úrslitaleikurinn þótti einstaklega spennandi meðal ruðnings- aðdáenda víða um heim. Þorri heims- byggðarinnar tók þó ekki einu sinni eftir honum, en í Suður-Afríku var leikurinn vendipunktur í sögu lands og þjóðar. Það var engin tilviljun. Mandela hafði lagt á ráðin um það af mikilli einbeitni, en fram- kvæmdina annaðist landsliðið í ruðningi, Springboks (stökkhafrarnir). Kvikmyndin Invictus, sem Clint Eastwood framleiðir og leikstýrir, fjallar um þessa atburði og byggist á bók Carlins. Meðframleiðandi hans er Morgan Freem- an, sem leikur Mandela í myndinni. Man- dela hafði fyrir mörgum árum sagt að ef einhver gerði kvikmynd um sig væri Freeman kunningi sinn rétti leikarinn, en Freeman reyndi í nokkur ár að berja sam- an kvikmyndahandrit upp úr sjálfs- ævisögu Mandela, án árangurs. Þegar honum barst ágrip af bók Carlin í hendur þóttist hann hins vegar sjá í hendi sér að þarna væri komin saga, sem næði kjarna málsins og erindi Mandela. Hann flaug því til Suður-Afríku og bar það undir Man- dela, sem kannaðist við málið og veitti því blessun sína. Svarthvítar hetjur Invictus segir sögu tveggja manna – tveggja þjóðarbrota – og hvernig þeir taka höndum saman við að ná hvor sínu mark- miði. Nelson Mandela vill byggja þjóð, en landsliðsfyrirliðinn François Pienaar vill verða heimsmeistari. Áður en yfir lýkur deila þeir markmiðunum líka. Myndin hefst þegar Mandela er sleppt úr fangelsi og hvítur Afríkani lýsir því yfir að þetta sé dagurinn þegar landið fór í hundana. Fjórum árum síðar, árið 1994, tekur Mandela við forsetaembætti og vanda þeirrar vegsemdar. Þeldökkir stuðningsmenn hans eru sigurreifir, vilja jafnvel láta kné fylgja kviði, en hvíti minnihlutinn er uggandi um framtíðna. Úr þessu vill Mandela bæta og hann telur sig vita hvernig megi gera það. Íslendingar hafa nýleg dæmi um hvern- ig stjórnmálamenn reyna að notfæra sér velgengni á íþróttasviðinu til pólitísks framdráttar, en Mandela þurfti að fara öðru vísi að. Í Suður-Afríku var ruðningur íþrótt hvíta mannsins, en fótbolti hins svarta. Í augum flestra svertingja var Springboks-liðið holdgervingur ofríkis hvíta minnihlutans, eins og best sást á landsleikjum. Þeir fáu blökkumenn sem á annað borð fóru á völlinn stóðu ávallt með gestunum gegn eigin landsliði. Það veittist þeim létt, enda Springboks fráleitt sig- ursælt á þeim árum. Þessu öllu vildi Mandela breyta. Hann vildi að Springboks yrði eiginlegt landslið, sem nyti stuðnings allrar þjóðarinnar, og hann vildi að það ynni heimsmeist- arakeppnina að ári, til þess að sýna þjóð- inni og heiminum öllum hvað byggi í hinni nýju „regnbogaþjóð“ Suður-Afríku. Pienaar var fremur efins um þessa ráða- gerð Mandela, en forsetinn taldi hann á að leiða lið sitt til frækilegra afreka og vitnar í ljóð, sem hann hafi sjálfur sótt styrk í á fangelsisárunum. Það er ljóðið Invictus eftir William Ernest Henley, en heiti þess þýðir „ósigraður“. Það heiti tekur á sig víðari merkingu eftir því sem líður á myndina. Freeman, Damon og Eastwood Nelson Mandela er vitaskuld höf- uðpersóna myndarinnar og því er Morgan Freeman útnefndur til Óskarsverðlauna, sem besti leikari í aðalhlutverki. Matt Damon, sem leikur François Pienaar, er hins vegar útnefndur til sömu verðlauna sem besti leikari í auka- hlutverki. Í því felst nokkur ósanngirni, því hlutverk hans er nokkru veigameira og hann skilar því alveg ljómandi vel. Hlutverk Freeman er aftur á móti mun lágstemmdara, hann þokast um tjaldið sem heilög manneskja og sérhver setning er spakmæli eða orðskviður. Sem slíkur er hann afar sannfærandi og raunar var greinarhöfundi sagt það af François Pienaar, að Freeman „negldi“ Mandela fullkomlega. Ekki má gleyma þætti Clint Eastwood leikstjóra. Sú sterka, þögla týpa hefur ákveðið að gefa myndina ekki tilfinning- unum á vald. Hún er tilfinningarík, en ekki tilfinningasöm. Og þrátt fyrir við- fangsefnið tekst Eastwood að koma því til skila án þess að prédika fyrir áhorfand- anum. Sögusviðið og framvindan eru aldrei dregin með svörtum eða hvítum dráttum. Það er undirliggjandi spenna í myndinni, en Eastwood liggur ekkert á að losa hana. Um leið glittir hvarvetna í mannlega eiginleika. Þeir eru misgöfugir, en það er aldrei gert lítið úr persónunum heldur mistökum þeirra. Það er líka kjarni málsins, því enda þótt myndin fjalli um ruðningsboltaleik, sem aftur er samþjöppuð dæmisaga um þjóð- arbrotin og átök þeirra (sem endurspegl- ast frábærlega í núningi milli þeldökkra og fölra lífvarða Mandela), þá fjallar myndin að lokum um einhverja göfugustu kennd mannsins, fyrirgefninguna. Er það ekki vel af sér vikið hjá manni, sem fékk Ósk- arinn fyrir Unforgiven? Fyrirgefningin ósigrandi Morgan Freeman hefur fengið mikið lof fyrir túlkun sína á frelsishetjunni Nelson Mandela. Matt Damon hefur ekki fengið „stærra“ hlutverk um dagana. Hann leikur François Pienaar. Clint Eastwood leikstjóri slær á létta strengi á tökustað. ’ Ég held samt að við höfum allir dregist að þessu verkefni vegna þess að sagan er bæði sönn og sannarlega upp- lífgandi.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.